Lára Ómarsdóttir

blogg á eyjan.is

HM blogg: Áfram Spánn!

7.7 2010 | 21:05 | 10 ummæli

Ég verð að viðurkenna það að ég elska þetta spænska lið. Það er hreinlega unun að horfa á það spila. Ég ætla að halda með þeim í úrslitaleiknum.

Ég þurfti að jafna mig eftir tap Argentínu gegn Þjóðverjum og var svona pínu lítið að vona að Þjóðverjar myndu þá bara vinna HM auðveldlega svo ég gæti sagt að Argentína hefði tapað gegn besta liðinu.

En eftir leik kvöldsins þá er það klárt að Spánverjar eru, eins og svo oft var talað um fyrir mót, með sterkasta liðið. Ekki bara á pappírunum heldur einnig á vellinum. Það mun reynast Hollendingum erfitt að eiga við þá. Þá þurfa þeir að eiga annan eins leik og gegn Brössum.

Villa, Xavi (sem ég held að sé borið fram Havi), Iniesta, Alonso og þeir félagar allir eru hreint frábærir. Þeir yfirspiluðu Þjóðverja í leiknum í kvöld og nei, þetta var ekki víti enda brotið fyrir utan teig sýndist mér. Aukaspyrna og rautt kannski en ekki víti.

Stundum er talað um að lið vinni verðskuldaðan sigur, það gerðist í kvöld.

Í heildina er ég sátt við hvernig úr hefur spilast á HM. Lið Argentínu átti líklega aldrei séns, þeir hefðu líklega tapað fyrir Spánverjum enda sú spá mín meira óskhyggja en nokkuð annað.

Það verður gaman að sjá nýtt landslið hampa heimsmeistaratitlinum enda hefur verið svolítið óþolandi hvernig sömu landsliðin vinna þessa keppni aftur og aftur.

Argentína tekur þetta svo bara næst ;)

Flokkar: Bloggar

Kvíðin fyrir leik dagsins

3.7 2010 | 13:13 | 2 ummæli

Það er svo einkennilegt með fótbolta að þegar maður horfir á leik en heldur ekkert frekar með öðru liðinu en hinu þá er virkilega gaman að horfa á. Þá hrífst maður af fallegum leikfléttum, skemmtilegum tilþrifum og sér hvort dómarinn er sanngjarn eða ekki. Þá á maður líka auðveldara með að meta hvort liðið er betra í leiknum og hvort þeirra á skilið að vinna.

Þegar maður hins vegar heldur með öðru liðinu breytist matið á boltanum. Tilfinningarnar leika það stórt hlutverk að þótt réttilega sé dæmt eða liðið manns tapar sanngjarnt þá horfir maður framhjá því. Fyrir slíka leiki er maður líka oft stressaður og kvíðinn. Ég held með Argentínu á HM og ég kvíði leik dagsins. Þýskaland er með firnasterkt lið og viðbúið að leikurinn verði jafn og að Argentína lendi í erfiðleikum. Ég kvíði því vegna þess að tapi Argentína þá verð ég fúl og leið. Já, svona er boltinn.

Argentína er eina liðin á HM sem vekur tilfinningar hjá mér. Því gat ég horft á leiki gærdagsins af hlutleysi. Í gær áttust Brasilía og Holland við. Framan af leiknum voru Brasilíumenn mun sterkari, liðið lék skemmtilegan bolta og voru skeinuhættari nálægt markinu. Þeir áttu að fá vítaspyrnu en fengu ekki og mjög oft var brotið á þeim, sparkað lítillega í hælana á sóknarmönnunum svona rétt til að trufla leik þeirra en dómarinn flautaði ekki oft.

Þegar Hollendingar jöfnuðu datt rassinn úr buxunum í leik Brassa og Hollendingar stálu sigrinum. Ég er enn á því að Brasilía sé með betra lið en Holland en í svona leikjum skiptir það ekki alltaf öllu máli. Andlegur styrkur, úthald og sjálfstraust skiptir miklu.

Í seinni leik dagsins áttust við Úrugvæ og Gana. Það var hárrétt ákvörðun hjá leikmanni Úrugvæ að verja með hendi þótt hann fengi að sjálfsögðu rautt spjald fyrir vikið.Leikurinn var jafn og skemmtilegur og bæði lið áttu skilið að vinna. Það sem skyldi á milli að lokum var viljinn til að vinna. Það sýndi leikmaðurinn þegar hann fórnaði sér til að verja mark sitt og það sýndu leikmenn Úrugvæ í vítaspyrnukeppninni.

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Að detta eða ekki detta – með stæl!

29.6 2010 | 23:29 | 1 ummæli

Í hvert skipti sem fram fer stórmót í knattspyrnu er mikið spáð og spekúlerað í dett.

Já, ég kalla það dett. Þá meina ég að mikið sé spáð hvernig hinn og þessi dettur, hvort hann sé að leika dettið eða hvort hann hafi í alvöru dottið, hvort hann hafi ýkt það um of eða hvort hann hafi ekki dottið en átt að gera það!

Þetta þykir mér alltaf leiðinleg og hálf asnaleg umræða. Það á engu máli að skipta  hvernig menn detta eða hvort þeir gera það yfir höfuð. Dómarinn á bara að dæma brot þegar brotið er á mönnum, óháð því.

En þannig er það því miður ekki. Sem dæmi má nefna að detti menn ekki er líklegra að dómari láti svokallaða hagnaðarreglu gilda þ.e. lætur leikinn halda áfram. Það versta við þessa reglu er að allt of oft hagnast sá sem braut meira á beitingu reglunnar en sá sem brotið var á.

Enn líklegra er að ekkert sé dæmt ef enginn dettur. Því er það oftast betra fyrir þann sem brotið er á að detta svolítið. En hann verður samt að passa sig á að detta ekki um of því þá á hann á hættu að fá ekkert dæmt, gæti jafnvel fengið gult spjald fyrir leikaraskap!

Við sjáum fjölmörg dæmi um þetta, nú síðast í leik Brasilíu og Chile. Brotið var á Lucio inni í vítateig. Dómarinn hefði átt að dæma víti en gerði ekki. Þá var það réttlætt þannig af sumum að Lucio hefði dottið of mikið, hann hefði ofleikið

Oft er sagt þegar brotið er á Ronaldo og ekkert dæmt að því sé um að kenna að hann hafi dottið of oft. Sömu afsökun er beitt þegar brotið er á Torres og fleiri leikmönnum og ekkert dæmt.

Getur verið að margfaldlega sé farið í lappirnar á bestu leikmönnum heims í einum fótboltaleik? Getur verið að það sé betra að detta en að reyna að standa og eiga þá á hættu að meiðast? Getur verið að maður sem er á harðaspretti detti ef stigið er lítillega á tána á honum eða hæl?

Og má hann þá ekki bara detta? Er það ekki bara leikaraskapur ef maður sem enginn kemur við, dettur til að reyna að fiska aukaspyrnu? Ég hefði haldið það.

Dómarinn á bara að dæma brot þegar það á við og leikaraskap ef það á við óháð því hvort eða hvernig menn detta.Geri hann það ekki eigum við hin ekkert að reyna að réttlæta dóminn með afsökunum um dett.

Annars þurfum við að fara að kenna ungum fótboltasnillingum hvernig og hve mikið má detta í einum leik.

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Fjögur lið bera af á HM

28.6 2010 | 20:40 | 5 ummæli

Það eru nokkur lið sem bera af á HM í ár. Þetta eru lið Argentínu, Brasilíu, Þýskalands og jafnvel Spánar. Önnur lið komast einfaldlega ekki með tærnar þar sem þessi lið hafa hælana.

Þjóðverjar sýndu gegn Englendingum hvers þeir eru megnugir. Snöggir, klókir og agaðir. Ungir, gráðugir og teknískir.

Argentína hefur sýnt það í öllum sínum leikjum að þeir eru baráttuglaðir, sókndjarfir og spila saman sem ein heild. Maradona hefur greinileg góð áhrif á þá, þeir eru jákvæðir og þakklátir og svo hafa þeir meistara innanborðs, Messi.

Brasilía er með firnasterka vörn, spilar svo hratt fram og stjórnar leik sínum vel. Það sást vel gegn Chile sem átti aldrei möguleika. Brassar einfaldlega klassa ofar.

Spánverjar voru óheppnir gegn Sviss og klaufskir en þeir hafa sannað það að þeir eru með firnasterkt lið, toppmenn í hverri stöðu. Villa hefur hreinlega blómstrað í keppninni og enn eigum við eftir að sjá það besta frá mönnum eins og Torres, Iniesta og Xavi.

Því er það pínulítið grátlegt að þessi lið geta ekki öll komist í fjögurra liða úrslit. Eitt þeirra mun detta út í átta liða úrslitum. Í staðinn mun annað hvort Úgúgvæ eða Gana komast áfram.

En svona er HM og þess vegna er keppnin svona frábær :)

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Mark eða ekki – sanngjörn úrslit

27.6 2010 | 15:56 | 20 ummæli

Ég hef áður sagt að það er algerlega óþolandi þegar lögleg mörk fá ekki að standa á stórmóti eins og HM. Skil ekki hvers vegna ekki er hægt að nota myndavélar til að dæma um það.

Ég er ekki hlynnt því að myndavélar séu notaðar við almenna dómgæslu í knattspyrnu eins og til að dæma um hvort dæma eigi hendi, aukaspyrnu, spjöld og þess háttar en ég sé ekki hvað er því til fyrirstöðu að hafa myndavél á marklínu sem sker úr um hvort boltinn fari í markið eða ekki.

Hvað sem því líður þá held ég að Þjóðverjar hefðu unnið Englendinga þótt mark Lamparts hefði fengið að standa. Varnarlína enskra var einfaldlega hriplek og svifasein og átti ekki roð í menn eins og Özil og Müllers svo dæmi séu tekin. Barry og  Upson voru skelfilega lélegir í þessum leik og þrátt fyrir að ég hafi aldrei getað glaðst yfir góðu gengi Þjóðverja (mér er meinilla við þá) þá verð ég að segja að hraður leikur þeirra og klókt spil heillar mig.

Þetta lið þeirra gæti farið ansi langt, því miður, og ég er allt í einu ekkert viss um það að mínir menn (Argentína) taki þá í næsta leik. Þjóðverjar eru hreinlega með firnasterkt lið. Þeir hafa vaxið í keppninni, eru betri í hverjum leik sem þeir spila og ef þeir vinna Argentínu þá kæmi mér ekki á óvart að Þjóðverjar verði heimsmeistarar. Þeir hafa alla burði til þess

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

HM rétt að byrja núna – spáð í spilin

25.6 2010 | 23:30 | 4 ummæli

Nú þegar riðlakeppninni er lokið á HM byrjar vonandi hasarinn. Of fá mörk hafa verið skoruð í keppninni til þessa og vonandi eigum við eftir að sjá fleiri mörk og agressívari leik.

Evrópuþjóðirnar ríða ekki feitum hesti frá riðlakeppninni. Aðeins 6 lönd af 13 komast áfram. Enn verri er frammistaða Afríkuþjóða en aðeins ein þeirra sex sem tóku þátt er enn með. Meira að segja tvær Asíu-þjóðir eru komnar áfram!

Á sama tíma komast allar Suður-Ameríku þjóðirnar áfram og tvær Mið-Ameríku þjóðir af þremur. Er ekki kominn tími til að endurskoða hve margar þjóðir frá hverri heimsálfu komast á HM? Ég held að Ameríkuþjóðirnar hafi sýnt það og sannað að Ameríka á skilið fleiri sæti á HM.

En aðeins að framhaldinu á mótinu. Fyrir mót spáði ég fyrir um úrslit leikja og riðla. 10 af þeim 16 þjóðum sem ég spáði áfram er enn með, 6 eru dottnar út og því þarf ég að spá uppá nýtt.

Svona er mín spá:

Bandaríkin vinnur Gana og Úrugvæ Suður-Kóreu. Bandaríkjamenn vinna svo Úrugvæ í áttaliða úrslitum.

Holland vinnur Slóvakíu og Brasilía tekur Chile. Brassarnir vinna svo Hollendinga í áttaliða.

Argentína vinnur Mexíkó og England vinnur lánlausa Þjóðverja. Rooney skorar tvö ;) . Argentína vinnur svo England og hver veit nema guð komi þar eitthvað við sögu.

Paragvæ vinnur leikinn gegn Japönum og Spánn rúllar yfir litla bróður. Spánverjar vinna síðan leikinn gegn Paragvæ í átta liða úrslitum.

Gangi þetta eftir verða undanúrslitaleikirnir svona:

Bandaríkin – Brasilía. Brassarnir vinna örugglega. Þrátt fyrir að Kaninn sé nokkuð sterkur á hann ekki roð í Brassa.

Argentína – Spánn. Ég ætla að leyfa mér að spá því að Argentína vinni þennan leik. Það geri ég af einskærri óskhyggju enda haldið með Argentínu frá því ég var smápía og svo langar mig bara til að Maradona fái uppreist æru.

Spánverjar næla svo í þriðja sætið og Argentína hlýtur dolluna eftirsóttu. Maradona hágrætur þegar hann tekur við verðlaununum og í viðtölum við fréttamenn á eftir segir hann eða gerir eitthvað sem mun valda óvild og umtali um ókomin ár.

Og já, Villa verður markakóngur :)

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Dómaraskandall!

24.6 2010 | 16:07 | 21 ummæli

Ég hafði spáð Ítalasigri í leik dagsins. Ég hafði líka sagt að leikurinn í dag milli Ítala og Slóvaka yrði leiðinlegur. Vá, hvað ég hafði rangt fyrir mér!

Hins vegar verð ég að segja að enn eina ferðina spilaði dómarinn allt of stórt hlutverk í leik á HM. Síðast þegar ég vissi er bannað að kýla menn í fótbolta. Það á að vera rautt spjald. Skil ekki hvernig línuvörðurinn og dómarinn réttlæta gult á markvörð Slóvaka sem greinilega kýldi leikmann Ítala (sem heitir svo löngu og erfiðu nafni að ég treysti mér ekki til að skrifa það hér).

Þá skoruðu Ítalir í það minnsta eitt, ef ekki tvö lögleg mörk sem ekki voru dæmd gild.

Mér finnst of mörg lögleg mörk vera dæmd af í þessu móti. Jú,jú, stundum gerist það að dómari sér ekki það sem gerist og stundum eru menn flaggaðir rangstæðir þótt réttstæðir séu en í þessu móti hefur þetta gerst of oft.

Mér finnst að þessi dómaraþrenna sem dæmdi leik Ítala og Slóvaka í dag eigi að fara heim. Og það strax í dag!

En aðeins að leik Ítala, sem nú detta út með skömm (neðstir í riðlinum), þeir voru of seinir í gang. Engu líkara en þeir hafi vanmetið andstæðinginn. Ekkert gerðist í leik þeirra fyrr en Pirlo kom inná og ungi leikmaðurinn með langa nafnið ( var nr. 18).

Loksins þá sáum við fantabolta hjá Ítölum, eitthvað sem við höfum ekki séð hjá þeim í keppninni til þessa. En það var bara of seint.

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Bandaríkin í undanúrslit HM?

24.6 2010 | 13:42 | 3 ummæli

Nú hafa fjórir riðlar af átta lokið keppni á HM og ljóst hvaða lið fara áfram upp úr þeim. Eins og svo oft áður á HM þá hafa óvæntir atburðir gerst. Úrugvæ mætir S-Kóreu í sextánliða úrslitum og Bandaríkjamenn taka á móti Gana. Sigurvegarar úr þessum leikjum mætast svo á átta liða úrslitum. Það þýðir hreinlega að eitt þessara liða, þ.e. Úrugvæ, S-Kórea, Gana eða Bandaríkin fer í undanúrslit. Það hlýtur að teljast til stórtíðinda.

Ég ætla að leyfa mér að spá því að Bandaríkjamenn vinni Gana og mæti Úrugvæ í átta liða úrslitum. Þó svo sagan segi að Úrugvæ eigi að vinna þann leik vona ég innilega að Bandaríkin komist áfram í undanúrslit. Í fyrsta lagi finnst mér þeir eiga það skilið þar sem litlu munaði að dómarar mótsins kæmu í veg fyrir að þeir kæmust upp úr riðlinum. Í öðru lagi þá er kominn tími til að Bandaríkin verði stórveldi í knattspyrnu.

Það hefði verið sögulegt ef Þýskaland hefði ekki komist upp úr sínum riðli, það hefur ekki gerst frá því fyrir seinni heimsstyrjöld en eins og þeim einum er lagið tókst þeim að bjarga sér fyrir horn. Þeir mæta Englendingum í sextán liða úrslitum og ég ætla að voga mér að spá Englendingum sigri. Rooney verður klár í slaginn og mun sýna sitt rétta andlit í leiknum. Argentína mun svo að sjálfsögðu vinna Mexíkó.

Fyrir mót spáði ég fyrir um úrslit riðlanna. Þá spáði ég Frökkum og S-Afríku áfram í A-riðli. Hafði algjörlega á röngu að standa þar. Þá spáði ég því að Argentína myndi vinna B-riðil, sem þeir og gerðu en að Grikkir færu með þeim upp en eins og flestir vita gekk það ekki eftir heldur fór S-Kórea áfram.

Um úrslit í C-riðli sagði ég: ,,Englendingar eru lang sigurstranglegastir í þessum riðli. Ég held þó að óvæntir atburðir muni gerast í þessum riðli og Kanarnir verði efstir, en það er háð því að allir þeirra bestu menn séu heilir. Bretinn þarf að fara bursta tennurnar víst að stóri bróðir handan hafsins er orðinn betri en þeir í fótbolta líka.“

Og ég spáði því að Þjóðverjar tækju Serba með sér úr D-riðli. Það fór ekki alveg þannig og Gana er komið áfram.

Í dag verður svo leikið til úrslita í E- og F-riðli. Um E-riðil sagði ég fyrir mót: ,,Hollendingar eru allaf bestir í riðlakeppninni. Þeir vinna þennan riðil með stæl og svo er bara að vona að þeir geri ekki í brækurnar á næstu stigum keppninnar eins og vanalega. Auðvitað væri gaman ef Danirnir kæmust áfram en það er nær ómögulegt að spá fyrir hverjir fylgja Hollendingunum. AAARRRG. Japanir eru líklegastir en ég ætla að láta óskhyggjuna ráða og Baunarnir komast áfram.“

Ég ætla að halda mig við þessa spá. Og ég ætla að spá því að Danir vinni Japana í hörkuspennandi leik sem fer 3-2 fyrir Dani.

Og í leiðinlegasta riðli mótsins munu Ítalir og Paragvæjar fara áfram. Því spáði ég fyrir mót og ætla að halda mig við það. Paragvæ mun vinna Nýja-Sjáland örugglega 1-0 og Ítalir vinna Slóvaka 2-0 og tryggja sér þar með sæti í sextánliða úrslitum.

Fyrri leikir dagsins verða ekkert augnakonfekt og í raun er bara einn spennandi leikur á dagskrá í dag, Danmörk-Japan. Á morgun má hins vegar búast við hörkufótbolta og fallegum. Þá mætast Brasilía og Portúgal annars vegar og Spánn og Chile hins vegar. Þessir tveir leikir eiga að hafa alla burði til að verða bestu knattspyrnuleikir riðlakeppninnar í ár. Mikið hlakka ég til.

Flokkar: Bloggar

Skandall í uppsiglingu?

23.6 2010 | 14:17 | 2 ummæli

Svo gæti farið að Englendingar komist ekki áfram í HM. Þeir þurfa að vinna í dag til að komast upp úr riðlinum og ættu að gera það, eiga að vera með sterkara lið en Slóvenía. Líklegt má telja að Bandaríkin vinni Alsír og fari svo dugar Englendingum ekkert nema sigur.

Slóvenar eru hins vegar efstir í riðlinum og þeim dugir jafntefli. Þeir munu því verjast eins og andskotinn. Spennan er gríðarleg. Munu Englendingar valda vonbrigðum eina ferðina enn á HM?

Þeir hafa hingað til ekki fundið rétta taktinn. Rooney hefur ekki sýnt þá snilldartakta sem til var af honum ætlast fyrir mót. Hann hefur heldur ekki fengið tækifæri til þess, fengið fáar sendingar inná teig. Á þessu þarf að verða breyting ef Englendingar eiga að eiga möguleika. Það segir sína sögu að Gerrard er markahæstur Englendinga á mótinu með eitt mark skorað!

Í D-riðli getur líka allt gerst. Gera má ráð fyrir að Serbar vinni Ástrala. Þá ræður leikur Gana og Þjóðverja úrslitum í riðlinum. Ganamönnum nægir jafntefli í leiknum en Þjóðverjar verða að vinna. Gana hefur komið á óvart í keppninni, er nú efst í sínum riðli og á góðan séns á að komast áfram. Þeir þurfa að vísu að halda jöfnu gegn Þjóðverjum og því líklegt að þeir muni verjast af hörku.

Dagurinn í dag gæti því orðinn einn allsherjar skandals dagur fyrir tvær stórþjóðir í fótbolta. Spennandi verður að sjá.

Flokkar: Bloggar
Efnisorð:

Hvers vegna Frakkland og Argentína

23.6 2010 | 13:52 | 1 ummæli

Frá því að ég man eftir mér hef ég verið Framari. Ástæðan er einföld, pabbi var Framari, bræður mínir voru Framarar, afi og amma, frændur og frænkur voru Framarar.

Ég hef líka alltaf haldið með Íslandi þegar landsliðið er að spila. Ástæðan fyrir því er einnig einföld, ég er Íslendingur.

En hvers vegna held ég með einhverjum liðum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu? Ísland hefur aldrei  komist á mótið og ekki spilar Fram á því.

Þegar ég horfði á Frakka spila gegn Suður-Afríku á heimsmeistaramótinu velti ég fyrir mér hvers vegna ég hef alltaf haldið með Frökkum á HM. Og þar sem ég horfði á lélega Frakka spila velti ég einnig fyrir mér hvers vegna ég hef líka alltaf haldið með Argentínu.

Ég veit ekki alveg hvernig þetta byrjaði allt saman en ég man að fyrsta heimsmeistarakeppnin sem ég fylgdist eitthvað með var sú á Spáni 1982. Þá sá ég í fyrsta sinn tvo meistara spila, Michel Platini og Diego Maradona.

Maradona, þá bara kjúklingur, spilaði fótbolta sem enginn hafði áður séð. Argentína átti titil að verja en varð að lúta í lægra haldi fyrir sterkum Brössum og Ítölum sem voru með Argentínu í milliriðli. Maradona fékk rautt í síðasta leiknum en það breytti því ekki að eftir keppnina var um fáa aðra framherja talað en Maradona.

Platini var hins vegar stjarna Frakka á mótinu.  Í einum æsilegasta leik heimsmeistarakeppninnar gegn Vestur-Þjóðverjum í undanúrslitum braut markvörður Þjóðverja hryllilega á einum leikmanni Frakka. Eftir það var ekki annað hægt en að halda með Frökkum. Leikurinn endaði 3-3 og fór í vítaspyrnukeppni. Mér hefur alltaf fundist Þjóðverjar hafa komist í úrslitaleikinn 1982 á svindli, Schumacher, markvörður Þjóðverja, hefði átt að fá rautt spjald en þess í stað var hann hetja Þjóðverja þegar þeir unnu vítaspyrnukeppnina. Síðan þá hef ég ekki getað stutt lið Þýskalands.

Þegar þetta var var ég ellefu ára. Árin á eftir var ég mikill aðdáandi Maradona og Platini og á HM 1986 hélt ég með Frakklandi og Argentínu. Frakkar duttu þá út á lokasprettinum (aftur gegn Þjóðverjum) en Argentína varð heimsmeistari eins og allir vita eftir æsilegan úrslitaleik gegn Þjóðverjum.

Frakkar hafa einu sinni unnið heimsmeistaratitilinn. Þeir munu ekki gera það í ár enda dottnir úr keppni eftir arfaslaka frammistöðu. Ég sem hafði spáð þeim langt í þessari keppni. Frammistaða þeirra hljýtur að flokkast undir vonbrigði mótsins.

Argentína hefur hins vegar staðið sig með mikilli prýði enda minn maður á hliðarlínunni. Hver veit nema þeir hampi heimsmeistaratitilinum og væri það ekki frábært ef Argentína myndi vinna Þjóðverja í úrslitaleiknum svona til að hefna fyrir HM 1990?

Flokkar: Bloggar
Efnisorð: