Gæðavísitala þjónustu Strætó bs. er byggð á þjónustukönnun sem gerð er meðal farþega árlega og hefur hún aldrei mælst hærri en einmitt nú.
Bættur árangur er beinn afrakstur verkefna sem hrint hefur verið af stað innan fyrirtækisins til að takast á við ákveðna þætti. Framkvæmdastjóri Strætó b.s. og aðrir í yfirstjórninni eiga heiður skilið fyrir að ná þessum árangri.
Ánægju með þjónustuna má einkum skýra með eftirfarandi þáttum:
1. Ánægja farþega með hitastig og innanþrif vagna mælist hærra en áður.
2. Stundvísi og aksturlag hefur batnað.
3. Bætt viðmót vagnstjóra mælist nú hærra en áður
Margt hefur verið gert innan fyrirtækisins til þess að bæta þjónustuna, viðmótið og upplifum farþegans. Hér er að finna nokkur dæmi um það sem unnið hefur verið að:
· Allir ferlar varðandi þrif (innan sem utan) hafa verið endurbættir með nýrri þvottastöð.
· Tekið var í notkun svokallað „spenakerfi“ sem leiðir til þess að nú fara bílar heitir út í þjónustuna á hverjum morgni. Þannig stíga fyrstu farþegarnir inn í heita vagna.
· Aukin áhersla hefur verið lögð á fyrirbyggjandi viðhald og reglubundna ástandsskoðun vagnanna.
· Gerðar voru breytingar á fyrirkomulagi við endurskoðun tímaáætlana á einstökum leiðum sem hefur leitt til bættrar stundvísi. Í þeim tilgangi var stofnun sérstök akstursfrávikanefnd með þátttöku starfsmanna sem hefur það hlutverk að greina slík tilfelli og koma með tillögur til lausnar. Ennfremur hafa svokölluð nýliðanámskeið verið endurvakin þar sem m.a. hefur verið lögð áhersla á að lesa aksturferla og skilja og skynja uppbyggingu og hönnun leiðakerfisins með áherslu á skiptingarnar á stóru skiptistöðvunum.
· Nýtt þjónustuver hóf starfsemi sýna þar sem öll þjónusta gagnvart farþegum ásamt samræmingu og skipulagi aksturs er stýrt. Þetta var áður í þremur aðskildum einingum.
· Lögð hefur verið áhersla á bætt viðmót vagnstjóra. Beitt hefur verið úrræðum um samskipti vagnstjóra og farþega varðandi fargjaldagreiðslur. Eftirlit hefur verið eflt og þannig stutt við þjónustuhlutverk vagnstjóra í því sambandi. Gerð krafa um snyrtimennsku vagnstjóra og einkennifatnað.
· Aðgengi farþega að upplýsingum og kaup á fargjöldum á vefnum hefur verið stórbætt.
· Öll markaðsumgjörð fyrirtækisins hefur verið tekin til gagngerrar endurskoðunar og framsetning kynningar- og ímyndar verið styrkt.
Svona niðurstaða fæst ekki nema með samstilltu átaki allra starfsmanna og segir þessi niðurstaða að þar er mikill metnaður til þess að veita framúrskarandi þjónustu. Ég vil óska öllum starfsmönnum til hamingju með þennan frábæra árangur.
Jórunn Frímannsdóttir
Ummæli (11)
Atli // 13.12 2009 kl. 23:52
Við skulum nú öll vera ánægð með að vísitölurnar (líka gæðavísitölur) stemmi hjá strætó og að fólkið sem þar vinnur er gott.
Er þetta skrifað til að réttlæta einhverjar gjörðir ? eða eru þessi skrif eingöngu hugsuð til að auka almenna þekkingu á innra starfi strætó ?
Hvað þurfa fatlaðir annars að borga í strætó nú til dags og á það eftir að breytast ?
Hversu há er jafnaðarvísitalan hjá strætó, er hún að hækka eða lækka ?
Ég vona að þú fyrirgefir þessar heimskulegu spurningar en ég vonast samt til að fá svör við þeim.
Valur Bj. // 13.12 2009 kl. 23:55
Við sem notum vagnana vitum betur, ekkert meira um það að segja. Íslenskir strætisvagnar og þjónustan þar á bæ er mörgum árum á eftir því sem maður upplifir hjá nágrannaþjóðum okkar. Megið þið sjálfstæðismenn ekki koma nálægt fjölmiðli án þess að ljúga viðstöðulaust?
Björn Daníel // 14.12 2009 kl. 01:05
Hraðbönkum hefur fækkað í Reykjavík, einnig sem sölustöðum miða og korta hefur fækkað. Hvernig væri að taka upp fyrirkomulag sem er t.d. í Stokkhólmi með lestarkerfin -að hægt er að kaupa miða í flestum sjoppum.
Þetta þykir mér alveg óþolandi og hef ég oft þurft að koma mér heim öðruvísi vegna þess að ég hef ekki verið akkurat með rétta skiptimynnt.
Bílstjórarnir eiga þó oftar strætómiða núna til að selja í vagninum og er það þó bót í máli. Hér áður var stundum ekki einusinni hægt að kaupa miða í vögnunum þó maður væri með 2500 krónur á sér. Erlendu bílstjórarnir sögðu nei og aðrir áttu til að gleyma veskinu sínu.
En gott að stundvísin er að færast í lag, það var alveg óþolandi hvað bílstjórar flýttu oft ferðum þannig að þörf var á að bíða eftir næsta vagni.
Pétur 2 // 14.12 2009 kl. 01:13
Hvernig má það vera að þegar að þjónusta er skert um helming þá verði þeir sem að eiga að njóta þjónustunnar ánægðari, og það „aldrei ánægðari“? Gæti ekki verið að forsendurnar á bakvið vísitöluna sé tómt bull? Álíka mikið bull og forsendurnar á bakvið skattareikninn ykkar.
Það er magnað að fylgjast með ykkur Valhallardátum þessa dagana, í borginni er ekkert nema skólfustungur, borða klippingar og hinum veiku og niðurbrotnu (eftir gjaldþrot frjálshyggjunnar) boðið klapp á bakið fyrir framan myndavél. En í landsmálum er allt að hruni komið og ekki snefill að góðum málum í gangi.
Taktu til þar sem að þú hefur völd vinan ekki þar sem að þú færð auglýsingu fyrir komandi kosningar.
Bergljot Aðalsteinsd // 14.12 2009 kl. 01:24
Vonandi losnar maður við þetta frjálshyggjulið úr stjórn borgarinnar næsta vor það er hörmung að fylgjast með stjórn borgarinnar allt síðan Villi dró Ólaf inná Kjarvalsstaði sællar miningar!
baf // 14.12 2009 kl. 05:38
Mig rekur ekki minni til þess að hafa lesið umfjöllun um vísitölur án þess að tölurnar séu hafðar með.
Eru til tölur yfir þessar vísitölur?
Ásamt skýringum um hvernig þær hafa verið mældar sl. árin?
Var ráðgjafafyrirtæki ráðið til þess að koma á ofangreindum breytingum? Ef svo er, hver var útlagður kostnaður Strætó?
Er starfsánægja vagnstjóra mæld?
Vagnstjóri // 14.12 2009 kl. 09:33
Ég veit ekki hvar ég ætti að byrja………………..
Teitur Atlason // 14.12 2009 kl. 10:20
Byrjaðu samt ágæti vagnstjóri. Það er mikilvægt að þú gerir það.
Hlynur Hallsson // 14.12 2009 kl. 11:07
Ég held að þetta sé málið:
http://blog.eyjan.is/larahanna/2009/12/14/politiskir-svanasongvar/
Let it snow // 14.12 2009 kl. 19:03
Er hægt að finna þessar gæðavísitölur á veraldarvefnum?
Ég saknaþess að sjá ekki tölur.
nn // 14.12 2009 kl. 22:46
Er tíðni ferða inni í þessari „vísitölu“?
Eða meðal ferðatími milli helstu staða?
Rita ummæli