Hver mætir best og hver mætir verst? Hver á dýrasta fundinn? Er það næsta spurning? Hvers vegna erum við að setja pólitíkina á þennan stað? Hvers vegna að hnýta hvert í annað með þessum hætti? Þurfa pólitískir fulltrúar að upphefja sjálfa sig með því að gera lítið úr öðrum? Þessi umræða er engum til góðs. Fólk hefur mætt misvel á fundi í nefndum, stjórnum og ráðum. Ástæður þess að kjörnir fulltrúar mæti ekki á fundi eru eflaust misjafnar og margar. Þó fulltrúi mæti á fundi þarf það heldur ekki að segja til um það hversu vel hann er að sinna vinnunni sinni.
Vinna í borgarstjórn er miklu meira en það að mæta á fundi. Undirbúningsvinna liggur að baki hverjum einasta fundi sem mætt er á og mikið lesefni oft á tíðum. Ég mun samviskusamlega svara þeim spurningum sem ég hef nú fengið frá blaðamönnum um það hvernig mætingar hafa verið hjá aðalmönnum í Velferðarráði og veit að þar er enginn sem þarf að hafa áhyggjur af sinni mætingu. Það breytir ekki því að mér finnst þessi umræða á lágu plani og sorglegt hvernig okkur stjórnmálamönnum tekst að gera lítið hvert úr öðru með skollaleik eins og þessum. Svona umræða gerir ekkert annað en rýra traust til stjórnmálamanna yfirleitt, sama hvar í flokki þeir eru.
Jórunn Frímannsdóttir
Ummæli (21)
JS // 6.11 2009 kl. 10:26
Fólk á ad mæta í vinnuna sína. Ef thad getur ekki mætt í vinnuna sína vegna annarra anna á thad ad segja sig frá henni. Thetta er ofureinfalt mál.
Fjadrafokid út af thessu er skiljanlegt, thegar fólk sem var ad stunda vinnuna sína samviskusamlega er sagt upp vegna naudsynlegs nidurskurdar, en á sama tíma er verid ad halda mönnum sem ekki einu sinni mæta í vinnuna. Upphædirnar skipta mig minna máli, bara tvískinnungurinn ad thurfa ad skera nidur grídarlega hjá ríki og sveitarfélögum en sjá gengnum fingur sér med thetta, er fáránlegur.
Teitur Atlason // 6.11 2009 kl. 10:29
Ertu ekki að grínast?
Er virkilega til of mikils mælt að krefjast þess að kjörnir fulltrúar borgarinnar mæti á fundi sem tengjast vinnunni þeirra?
Lokaorðin þín eru algerlega dæmigerð fyrir þá gjá sem myndast hefur milli stjórnmálamanna og fólksins í landinu.
Þú segir: „Svona umræða gerir ekkert annað en rýra traust almennings til stjórnmálamanna yfirleitt, sama hvar í flokki þeir eru“.
Er það s.s „umræðan“ sem er slæm. Væri ekki frekar ráð að stjórnmálamennirnir MÆTTU í vinnuna sína . Það myndi strax útiloka umræðuna (sem þér þykir svo slæm)
Það sem rýrir traust almenning eru lélegir stjórnmálamenn sem nenna ekki að mæta á fundi.
-En takk samt.
Takk fyrir að koma með þetta kristalskýra dæmi um gjánna milli stórnmálamanna og almennings.
Guðm. Hilberg Jónsson // 6.11 2009 kl. 11:05
„Hvers vegna erum við að setja pólitíkina á þennan stað ?“
Það er enginn að setja pólitíkina á neinn stað, þið hafið alveg séð um það sjálf að gera pólitíkina að þeim skrípaleik sem hún er núna í augum almennings.
Að sprengja borgastjórn var bara hobbý fyrir ykkur ekki alls fyrir löngu.
Þegar fólk mótmælti í Háskólabíó þá gerir Ingibjörg Sólrún lítið úr mörg þúsund manns á opnum fundi með því að tala niður til þeirra og segja að þau séu ekki endilega rödd fólksins.
Sjálfstæðismenn með Geir Haarde í fararbroddi en með bundið fyrir augun, var að leiða þjóðina fram að björgum en skildi ekkert í því hvers vegna hann fékk ekki frið fyrir fólkinu sem mótmælti fyrir utan Alþingishúsið.
Þessi frekja, hroki, siðblinda, yfirgangur og hræsni í ykkur stjórmálamönnum er oðinn svo ógeðslega þreytandi að það hálfa væri nóg. Það er líkt og þið skiljið ekki neitt og búið í fílabeinsturnum. Horfið niður á almenning og dæmið hann annars flokk sem á ekkert annað skilið en brauðmolana sem detta frá ykkur.
Þú ættir að skammast þín fyrir að hafa tekið þessa afstöðu að þið stjórnmálamenn séuð yfir gagnríni hafin og það megi ekki benda almenningi á hvað þið eruð að gera lítið fyrir allt of há laun.
Með þessum skrifum ertu í raun að segja að þið eigið að fá frið til að taka feita launaseðla, fyrir sama og enga vinnu.
Jórunn Frímannsdóttir // 6.11 2009 kl. 11:21
Ég er nú ekki að segja það – alls ekki….
Mér finnst við samt allt of oft vera að kasta steinum úr glerhúsi. Ef ég er erlendis vegna starfs míns og get því ekki mætt á fund og þarf að kalla til varmann er ég þá ekki að sinna starfi mínu? Auðvitað eru skýringar misjafnar og ekki gott ef fólk sinnir starfi sínu nánast alls ekki eða getur ekki mætt nema á um helming funda, það á ekki að líðast.
við getum líka haft þetta opinberar tölur teknar saman einu sinni á ári og þá með skýringum.
Ég held að það gæti verið gott og ákveðið aðhald í því, fulltrúar þyrftu þá að gefa skýringu á því að þeir mættu ekki hverju sinni…
… ég verð að skrifa meira síðar þarf að mæta á undirbúningfund, en þeir eru t.d. ekki skráðir og ansi margir… Égvil alls ekki meina að sé gjá milli stj´ronmálamann og almennings, enda má það alls ekki vera, ég lít á mig sem almenning og ég kýs líka stjórnmálamenn og finnst þeir misjafnlega góðir…
Heiða // 6.11 2009 kl. 11:29
Sæl Jórunn og takk fyrir þessi skrif ég er algjörlega sammála þér. Björk Vilhelmsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Stefán Benediktsson úr Samfylkingunni hafa fært pólitíska umræðu niður á lægsta plan með þessu frumhlaupi sínu. Það eru fá dæmi þess að pólitísk upphlaup hafi orðið til þess að viðkomandi hafi náð að skjóta sig jafn illilega í fótinn og þetta fólk gerði. Ég er á móti svona vinnubrögðum í pólitík þessir þremenningar eru ekki að hugsa um hag okkar eða Borgarinnar þau eru bara að reyna að koma höggi á andstæðing sinn. Þetta eru ómerkileg vinnubrögð ómerkilegs fólks. En steininn tekur úr þegar lesið er viðtal við Dag Eggertsson í dag þegar hann er spurður um lélega mætingu hans í Hafnarstjórn. Dagur er bara móðgaður yfir spurningunni og að þurfa að svara svona “ persónulegum“ spurningum eins og þeim af hverju hann gat ekki mætt. Svar Dags er svo dæmalaus hroki að fólk bara verður að lesa viðtalið við hann í Mogganum. Skora á þig Jórunn að birta niðurlag viðtalsins við Dag svo fólk sem ekki kaupir Moggan geti séð hrokann í manninum. Já þetta upphlaup Samfylkingaar kom þeirra eigin varaformanni á kaldan klaka en hann svarar svo af alþekktum hroka.
Teitur Atlason // 6.11 2009 kl. 11:32
Endilega mættu á undirbúningsfund.
Það er nefnilega hluti af þínu starfi. Líka að mæta á fundin sem verður vegna þessa undirbúningsfundar. Ég vorkenni þér ekki baun að þurfa að sinna vinnuni þinni
Þú lítur s.s þannig á að ekki sé gjá á milli almennings og stjórnmálamannan? Að stjórnmálamenn séu almenningur og þ.a.l sé hugmyndin um gjánna, út úr kú?
ps:
Eru mætingar borgarfulltrúa á svona fundi opinber gögn sem hægt er að nálgast? VIð hvern er hægt ða hafa samband vilji maður fá e-r tölur yfir mætingu borgarfulltrúa?
Heiða // 6.11 2009 kl. 11:37
Jórunn það er miður að sjá að Teitur Atlason sem er landflótta maður í Svíþjóð sé að blogga hér inni á þínu svæði. Þetta er maður sem er ekki vandaður að þeim meðölum sem hann beitir þegar hann skrifar blogg. Maður sem er kalinn á sálinni og það sést á skrifum hans.
Teitur Atlason // 6.11 2009 kl. 12:35
Landflótta maður?
JS // 6.11 2009 kl. 12:44
Heiða er að standa sig eins og hetja í að toga uppræðuna upp úr skotgröfunum, þessum sömu og hún segist vera svo mikið á móti.
Fyrsta flokks hræsnari.
Símon // 6.11 2009 kl. 12:47
Mæting ein og sér segir akkúrat ekki neitt – ætti að liggja í augum uppi. Gagnlegra væri að til dæmis fjölmiðlar fylgdust betur með þeim málum eru uppi á borði í nefndum og ráðum borgarinnar, þar hafa menn sofið á verðinum – er hér sérstaklega að hugsa um skipulagsráð, Höfðatorg, Háskólinn í Reykjavík, Einholt-Þverholtsreiturinn og fleiri skipulagsslys, þau eru mýmörg.
Ágætt að þetta sé tekið til umræðu hér. Skulum vona að kosningabaráttan sem nú er hafin verði ekki á jafn lágu plani í framhaldinu…
Teitur Atlason // 6.11 2009 kl. 12:48
„Mæting ein og sér segir akkúrat ekki neitt“
Víst Símon.
Símon // 6.11 2009 kl. 13:18
Já Teitur, orðalagið hefði mátt vera nákvæmara, átti við að það dugir ekki að horfa á hana eina – það hlýtur að skipta meiru að menn skili af sér góðum verkum – ekki satt? Samhengið.
Sigurður #1 // 6.11 2009 kl. 16:01
Ef umræðan er skaðleg stjórnmálam0nnum, þá eru stjórnmálamenn að gera eitthvað sem þolir ekki umræðu.
Þetta er ekkert flókið.
Stjórnmálamenn hafa sjálfir fyrirgert öllu trausti almennings á pólitíkusum sem virðast mjög margir ekki hafa annað hlutverk en að hlaða undir rassgatið á sjálfum sér.
Það er ekki afsökun hjá Degi að hann hafi verið upptekinn eftir að hann varð varaformaður.
Ekki frekar en það sé afsökun hjá Sigmundi Davíð að hann sé upptekinn af formennsku sinni.
Ef þeir eru svona uppteknir af störfum sínum fyrir flokkana að þeir hafi ekki tíma til að sinna þeim störfum sem þeir hafa tekið að sér eiga þeir að segja sig úr þessum nefndum og ráðum.
Ekki að bölva því að það sé verið að segja frá þessu.
Bakkus // 6.11 2009 kl. 20:51
Á enginn að Axla ábyrgð?
Steingrímur Thomsen // 7.11 2009 kl. 00:03
Ert þú ekki BARA atvinnupólitíkus.
Þessi skrif þín eru alveg út hött.
Það eru stjórnmálamennirnir sjálfir sem hafa komið sér þangað sem þeir eru.
Pétur V. Maack // 7.11 2009 kl. 21:13
Það er ekkert gamanmál að sitja í nefndum og vinna ekki vinnuna síns.Því miður er það nú svo að sveitastjórnarma enn m´æta á einn nefndarfund og víkja síðan til að mæta á annan fund og inn kemur varamaður. Ég veit ekki hvort þetta er græðgi eða eitthvað annað . Sumir sveitastjórnarmenn eru sjálfsagt bráð greindir og geta lesið fundagerðir sem eru nánast innihaldslausar.
Það eru ótal mál þar sem framkvæmdavaldið hefur sveitastjórnarmenn að fíflum , og sé þeim (sveitstjórnarmönnum) bent á villur eða lagabrot þá verða þeir arf vitlausir og neita alveg að leiðrétta mistök.þá er það helst sem gerist að framkvæmdavaldið’ og kjörnir fulltrúar bindast samtökum gegn borgurunum Á stundum mætti ætla að þeir vissu ekki fyrir hverja þeir eru að vinn eða hverjir veittu þeim verkstjórnina.
Það er kominn tími til að stoppa þessa vitleysu og að borgarar höfuðborgarsvæðisins bindist samtökum gegn þessari spillingu því þetta er ekkert annað.
Pétur V. Maack
Heiða // 8.11 2009 kl. 20:36
Skil ekki fólk eins og Teit Atlason sem bloggar stöðugt um mál á Íslandi og eingöngu með neikvæðum hætti en býr svo sjálfur og lifir á sósíalnum í Svíþjóð. Svona fólk ætti að koma heim og reyna að vinna með okkur að því að lyfta landinu upp úr erfiðleikunum en ekki sitja í vellystingum erlendis spúandi óþverra og leiðindum yfir okkur Íslendinga. Ómerkilegt fólk sem nærist á óförum annarra.
Jórunn Frímannsdóttir // 9.11 2009 kl. 22:48
Heil og sæl öll
Ég vil þakka ágætar umræður um þetta mikilvæga mál. Ég er alveg sammála ykkur um það að auðvitað eigi kjörnir fulltrúar að mæta á fundi og sinna vinnunni sinni eftir fremsta megni. Mér finnst samt vont þegar við gerum lítið hvort úr öðru.
Björk Vilhelmsdóttir hóf þessa umræðu, sem kom í raun til baka eins og „búmmerang“ í raðir Samfylkingar þegar farið var að skoða mætingar DBE, en látum það liggja milli hluta. Það eru eflaust misjafnar ástæður fyrir því að fulltrúar mæta ekki eða mæta illa og það getur vel verið þarft að skoða það. Það er hægt að gera með ýmsu móti. Til dæmis hefði Björk getað beðið almennt um að þetta væri skoðað í ráðum, nefndum og stjórnum borgarinnar og allar upplýsingar verið dregnar fram og fólk þá fengið tækifæri til áð útskýra fjarveru.
Það er alls ekki það að mér finnist ekki rétt að upplýsa um þessa hluti enda fundargerðir lagðar fram og opinberar og þar hægt að sjá hverjir mæta hverju sinni og hverjir ekki.
Förum varlega í að dæma aðra.
Við sem störfum í pólitík þessa dagana eigum ekki mikið inni og traust til okkar er lítið. Því verðum við sjálf að breyta og það gerum við fyrst og fremst með því að; vanda okkur, bera virðingu hvort fyrir öðru og kjósendum okkar og með því að leggja okkur fram í störfum okkar.
Best ég fari að reyna að skrifa um Strætó, en það var víst verið að halda því fram að stæði til að reka alla starfsmenn….. auðvitað stendur ekkert slíkt til
Stefán Benediktsson // 19.11 2009 kl. 01:18
Hvað sem málefninu líður áttu heiður skilið fyrir að hafa opið fyrir umræðu.
Einar Karl Friðriksson // 26.11 2009 kl. 21:57
Sæl Jórunn.
Það er virðingarvert af þér að koma umræðunni upp úr einhverju niðurrifsnaggi. EN…
nú hefur einfaldlega verið byggt upp þannig launakerfi fyrir t.d. borgarstjórnarfulltrúa í Reykjavík að þeir fá umtalsverðar aukagreiðslur fyrir setu í nefndum og ráðum. Og þá kemur það okkur kjósendunum óneitanlega spánskt fyrir sjónir að a.m.k. sumir fulltrúar í mikilvægum nefndum mæti ekki nema á tæplega annan hvern fund.
Og þessar innáskiptingar á borgarstjórnarfundi þegar varamenn eru kallaðir til í hálftíma og fá greitt fyrir eru vægast sagt stórfurðulegar. Slíkt viðgengst ekki á Alþingi og hvergi viðskiptalífi. Tæplega heldur í öðrum sveitarfélögum?
Þú mátt gjarnan vinna í að koma þessu í betra horf!
BjarniG // 14.12 2009 kl. 02:41
Jórunn, þú ert hræsnari af verstu sort. Ummæli þín um velferðakerfðið og þá sem ‘þurfa að þiggja’ eru þér til skammar.
Annað hvort vinnið þið ykkar vinnu eða farið og hleypið öðru fólki að!
Hvað kemst ‘ruslakarlinn þinn’ (sá sem sér um að tæma sorptunnuna í hinum ýmsu veðrum) oft upp með það í viku að vera upptekinn og komast ekki til að tæma hjá þér? Myndir þú sætta þig við það að tunnan væri tæmd eftir dúk og disk?
Það er til mikið af ungu hæfileikaríku fólki sem hefur hugsjónir og er tilbúið í breytingar en ekki sérhagsmunagæslu….
Afsakanir ykkar eru 0 virði. Farið og vinnið vinnuna ykkar!
Rita ummæli