Jónína Rós Guðmundsdóttir

blogg á eyjan.is

Ríkisútvarp allra landsmanna

25.1 2010 | 21:53 | 5 ummæli

Mikið hefur verið rætt og skrifað um fyrirhugaðar sparnaðarleiðir útvarpsstjóra.  Þær eru eðli málsins samkvæmt umdeildar og erfiðar, uppsagnir fjölda reyndra starfsmanna um allt land valda usla og í raun sorgarviðbrögðum ekki síst á minni stöðum þar sem hvert starf er svo mikilvægt.

Þegar lög um Rúv eru skoðuð til að finna eiginleg markmið starfseminnar má sjá:

Í 3.gr. laga um Ríkisútvarpið segir að hlutverk Ríkisútvarpsins ohf. sé rekstur hvers konar útvarpsþjónustu í almannaþágu og svo er það skilgreint frekar í 13 liðum:
 

   1. Að leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð.
   2. Að senda út til alls landsins og næstu miða a.m.k. eina hljóðvarps- og sjónvarpsdagskrá árið um    kring. Enn fremur að birta valda hluta efnis síns, breytta eða óbreytta, ásamt öðru þjónustuefni í breyttu eða óbreyttu formi með öðrum miðlum, þ.m.t. að gera efni aðgengilegt almenningi með þeim hætti að hver og einn geti fengið aðgang að verkinu á þeim stað og á þeirri stundu er hann sjálfur kýs.
   3. Að framleiða og dreifa hvers konar útvarpsefni fyrir sjónvarp og hljóðvarp á sviði fréttamiðlunar, fræðslu, lista og afþreyingar. Efnið skal fullnægja eðlilegum kröfum almennings um gæði og fjölbreytni.
   4. Að veita almenna fræðslu og gera dagskrárþætti er snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag.
   5. Að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Gæta skal fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.
   6. Að flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Sérstaklega skal þess gætt að hafa á boðstólum fjölbreytt efni við hæfi barna, jafnt í hljóðvarpi sem sjónvarpi.
   7. Að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.
   8. Að flytja efni á sviði lista, vísinda, sögu, íþrótta og annars tómstundastarfs.
   9. Að miða útvarpsefni við fjölbreytni íslensks þjóðlífs, þar á meðal að sinna eðlilegum þörfum minnihlutahópa.
   10. Að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og útvarps utan höfuðborgarsvæðisins.
   11. Að halda uppi nauðsynlegri öryggisþjónustu á sviði útvarps.
   12. Að eiga eða leigja, sem og að reka, hvers konar búnað og eignir, þar á meðal tæknibúnað og fasteignir sem nauðsynlegar eru fyrir starfsemi félagsins.
   13. Að varðveita til frambúðar frumflutt efni, enda sé gengið frá samningum við aðra rétthafa efnis um að slíkt sé heimilt.

Í þessarri markmiðsgrein kemur greinilega fram að lögum samkvæmt á að vera aðstaða til útvarpsútsendinga og dagskrárgerðar utan höfuðborgarinnar og að flytja á fréttir af Íslandi öllu og búa til þætti þar sem sérstaða landshluta endurspeglast.

Þessi markmið verður að halda fast í um leið og við stöndum föst í fætur og viðurkennum þörfina fyrir niðurskurð og sparnað, meiri hjá RÚV en í velferðar- og menntakerfinu. 

Alvöru hagræðing í samræmi við markmið stofnunarinnar er það sem landsmenn eiga að fara fram á og veita aðhald við framkvæmd á.

Ég vil sjá tölur sem sýna mér að lokun svæðisstöðva og það að hætta svæðisbundnum útsendingum spari í raun það sem um er talað – er tekið tillit til auglýsingatekna, nýtingar á skuldlausum tæknibúnaði og fleiri slíkra atriða?

Fáum við faglega, skriflega útfærslu á því hvernig, hvenær og hversu mikið á að flytja fréttir og þætti frá stöðum utan Suðvesturhornsins og fáum við yfirlýsingu um breytta skipan þegar úr kútnum réttist?

Þannig verðum við að vinna úr erfiðri stöðu á niðurskurðartímum – muna að ástandið er tímabundið og aldrei gleyma því að Ísland er stórt, dreifbýlt land með búsetu um allt land – og það er einmitt það sem gerir það spennandi búsetukost – við þurfum öll að fylgjast með hvað er að gerast á öllu Íslandi – þar gegnir RÚV lykilhlutverki.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (5)

  •   Jakob Bjarnar // 25.1 2010 kl. 23:48

    Jámmm, er þessu viðbjargandi? Ég veit það ekki svei mér þá.

    Einu sinni komu hingað til lands sérfræðingur í útvarpsmálum og mælingum á útvarpshlustun. Að sjálfsögðu frá Bandaríkjunum. Á fund hans steðjuðu allir helstu markaðsgosar og foringjar í útvarpi. Og hlustuðu með andakt á hann útlista hvernig best væri að mæla hlustun og ná til hlustenda. Hann lagði fyrir metnaðarfulla áætlun um að setja upp einhvers konar mælitæki eða nema hjá helstu umferðaræðum sem myndu mæla á hvað ökumenn væru að hlusta þegar þeir færu þar um. Eftir að hafa farið yfir þetta fram og til baka spurði hann í framhjáhlaupi: Og hvað er þetta svo stórt markaðssvæði sem við erum að tala um? Það kom fát á fundarmenn en einn sagði: Tjahh, við erum að tala um alveg 300 þúsund manns! – Fyrirgefðu, hvað sagðirðu? – Þrjú hundruð … þúsund … manns. Löng þögn og það mátti sjá skrifað á enni mannsins – af hverju í ósköpunum er ég hér staddur? Þar til hann sagði: Af hverju hringið þið ekki bara í hvern og einn?

    Hér búa 320 þúsund manns! Þessi rembingur með svæðisútvarp á vegum ríkisins í öllum landsfjórðungum er vitaskuld tótal steypa. Af hverju ætti manninum á Raufarhöfn ekki að koma alveg jafn mikið við það sem sagt er í fréttum og þeim sem býr í Kópavogi?

    Að auki lýsir þetta alveg makalausum hugmyndum stjórnmálamanna um fjölmiðla. Að þeir eigi að vera einhvers konar talsmenn ákveðinna sjónarmiða og landsvæða þegar þeir eiga einmitt ekki að vera það. Heldur flytja hlutlausar fréttir og frásagnir. Fjölmiðlar eru vitaskuld best komnir þar sem flestir eru og þar sem helstu tíðinda er að vænta. Beri eitthvað til tíðinda annars staðar þá er sjálfsagt að senda mann á staðinn. Ef þú skyldir ekki vita það þá er höfðustaður norðurlands ekki Akureyri heldur Reykjavík.

    Kveðja,
    Jakob

  •   Jónína Rós // 26.1 2010 kl. 08:42

    Ég verð að viðurkenna að mér finnst ágæt ummæi þín Jakob byrja vel – en enda ver…
    Einmitt af því að við erum svo fá eigum við góða möguleika á að fylgjast með því sem er að gerast á öllu Íslandi – Raufarhöfn fylgist með Reykjavík og Reykjavík með Raufarhöfn – með hlutlausum upplýsingum og faglega unnum fréttum vinnum við gegn ríg og leiðindum milli landshluta – þess vegna er mikilvægt að það séu ekki bara fluttar fréttir af massanum á SV horninu – heldur líka af öðrum stöðum á Íslandi.
    Og —– Akureyri er höfuðstaður Norðurlands – en Reykjavík er höfuðborg Íslands – og þarf að standa undir því hlutverki sínu með sóma…

  •   Jakob Bjarnar // 26.1 2010 kl. 10:36

    Ég held að þessi rígur og leiðindi milli landshluta sé orðum aukinn en hentar hins vegar ágætlega þeim sem sitja á þingi í skjóli rangláts kjördæmafyrirkomulags. Því ætti að útrýma en kannski borin von þar sem þeir margir sem sitja á löggjafarþinginu sitja þar einmitt vegna þess og því ekki líklegir til að breyta því eins og sagan sýnir.

    Við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Nú sem aldrei fyrr. Ísland allt sem hlustendasvæði er agnarsmátt. Fásinnið er ekki kallað fásinnið fyrir ekki neitt. Og þú ert ekki að taka eftir því sem ég er að segja. „… – með hlutlausum upplýsingum og faglega unnum fréttum vinnum við gegn ríg og leiðindum milli landshluta – …“ Það er ekki hlutverk fjölmiðla að vinna gegn meintum ríg. Getur aldrei orðið því þá er fjölmiðillinn orðinn eitthvað allt annað en fjölmiðill. Hlutverk fjölmiðla er að miðla upplýsingum. Ekki miðla málum. Það er nokkuð sem þið alþingismenn eigið að sinna.

    Kveðja,
    Jakob

  •   Ingigerður E // 27.1 2010 kl. 09:15

    Lykilsetning hjá þér Jakob, „Hlutverk fjölmiðla er að miðla upplýsingum“
    Erfitt að miðla upplýsingum sem komast ekki til skila þar sem það er enginn á svæðinu til að miðla þeim áfram. Þó fáir búi í landinu breytir það ekki því að það er stórt og mjög dreifbýlt, lágmarkskrafa er að það sé einn fréttamaður á hverjum fjórðungi.
    Kveðja

  •   Skúli Björnsson // 28.1 2010 kl. 22:59

    Er ákaflega stoltur af því að vera fásinnaður og tel það mun heilbrigðara en þröngsýni. Ég held að svæðistöðvarnar hafi skilað hlutfallslega mun meira efni til útsendinga en sjálft RUV-höfuðbólið í henni Reykjavík. Það væri gaman að fá að sjá sundurliðaðan rekstur og þá bæði gjöld og tekjur á öllum svæðisstöðvunum.
    Kveðja
    Skúli

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):