Jónína Rós Guðmundsdóttir

blogg á eyjan.is

Á öllum málum er siðferðileg hlið…

20.1 2010 | 21:43 | 2 ummæli

Við getum svo sannarlega fagnað því að endurskipulagning bankanna er nú á lokastigi og þeir geti því haldið áfram að stunda eðlilega bankastarfsemi, útlán og innlán, með gæðastimpil frá Fjármálaeftirlitinu upp á vasann.

Búið er að aðskilja skilanefndirnar sem starfa fyrir kröfuhafa gömlu bankanna og rekstur nýju bankanna að mestu með því að mynda sérstök eignarhaldsfélög um hlut kröfuhafa í nýju bönkunum.  Yfir þessum eignarhaldsfélögum verða stjórnir sem sérstaklega verður vandað til verka við að skipa, stjórnarfólk þarf að uppfylla mjög ströng hæfisskilyrði og verða flestir stjórnarmenn erlendir.  Við þessa skipan má ætla að hagsmunum eigenda sé vel borgið og að bankarnir eigi mikla möguleika á að verða öflugir og geti þjónað hagsmunum atvinnulífs og heimila sem þurfa að geta fengið fjármagn til framkvæmda að láni og ávaxtað sparifé sitt.

Það má hins vegar ekki gleyma hinum siðferðilega hluta endurskipulagningarinnar, bankarnir njóta ekki sérstaks trausts í dag og þeir þurfa að gæta þess vel að eignarhald, stjórnun og bókhald sé gegnsætt og standist þær kröfur sem við gerum um vandaða umsýslu, jafnræði og algert spillingarleysi.

Það er nauðsynlegt að nýju bankarnir geri sér vandaða stefnu þar sem þeir gera grein fyrir fjárfestingastefnu sinni, siðferðilegum, samfélagslegum, jafnréttislegum og umhverfislegum áherslum og enn frekar hvernig þeir ætla að framfylgja stefnu sinni og áherslum – nýtt samfélag á að krefjast nýrra vinnubragða.

Síðan er hugsanlegt svigrúm bankanna til þess að koma til móts við skuldara sína efni í aðra færslu og eignaumsýslufélög þeirra og meðferð á fyrirtækjum, fasteignum og fleiru sem bankarnir eiga efni í enn aðra…

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (2)

  •   Ásgeir Gunnarsson // 20.1 2010 kl. 22:52

    Þarf að, eða verður að þinglýsa kosningaloforðum í frammtíð vegna aðhaldsleisis ? þarsem allt siðferði,réttlæti og samvisku hefur vantað í stjornmálastétina ,stofnanir og stjórnsýslu Islands . Ekki fyrirsjánlegur þroski maneskjunar, og ekki þor til þroska né kjarkur og til réttlætis , dapurlegt hefur verið að fylgjast með þessu undanfarna áratugi ,vonandi fer einhver þroskuð góð sterk réttlát kjörkuð sál að koma til leiks í stjórnsýslu Islands

  •   jj jj // 20.1 2010 kl. 23:42

    er ekki sniðugast fyrir þig að vera bara á fac-book, passar það ekki betur fyrir þig?

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):