Dagurinn í dag er búinn að vera mikill tilfinningarússibani – þegar ég settist fyrir framan skjáinn rétt fyrir ellefu í morgun til að fylgjast með fréttatilkynningu forsetans um afdrif Icesavefrumvarpsins fannst mér ég vona hið besta og óttast hið versta og vera við öllu búin.
En ég var greinilega ekki viðbúin, því niðurstaða forsetans olli mér vonbrigðum, reiði og hryggð.
Ekki af því að ég treysti ekki Íslendingum til að taka afstöðu til mála á skynsamlegum nótum heldur vegna þess hversu flókið málið er og hversu mikilvægt það er í uppbyggingu íslensks samfélags.
Ég fann að ég er algerlega að missa þolinmæðina gagnvart töfum og vandræðagangi – við höfum verk að vinna – verk sem allar forsendur eru til þess að fara í af fullum þunga ef undirstöður eins og trúverðugleiki þjóðarinnar er fyrir hendi.
Við verðum að standa við skuldbindingar okkar – það viðurkenna allir stjórnmálamenn allt í einu í dag – það að telja fólki trú um að með því að skrifa nafn sitt á netsíðu hverfi Icesaveskuldbindingin er ljótur leikur og afleiðingarnar byrja fljótt að sýna sig.
Forseti Íslands er bundinn af ákvörðunum þingsins – því Ísland er þingbundið lýðveldi – hann hefur samkvæmt stjórnarskrá rétt til að skjóta málum til þjóðarinnar – en mér finnst ábyrgðarlaust að gera slíkt þegar Ísland er á jafn viðkvæmu stigi í endurreisnarferli sínu og trúverðugleikaendurheimt hjá erlendum þjóðum, frestunaráráttan heldur áfram – og heldur áfram að skemma fyrir okkur…
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ummæli (21)
Björgvin Valur // 5.1 2010 kl. 23:17
Hárrétt.
Kristján Sig. Kristjánsson // 5.1 2010 kl. 23:19
Það er ótrúlegt hvað þingmenn geta lagst lágt. „Ísland er þingbundið lýðveldi“ getur ekki þýtt annað en að fyrst sé valdið hjá þinginu og svo hjá kjósendum.
Þingmenn Samfylkingarinnar haga sér verr en þingmenn Flokksins 2004.
Gísli Baldvinsson // 5.1 2010 kl. 23:27
Mér finnst innlit Kristjáns ansi klént gagnvart hógværum pistli þingmannsins. Ómaklegt og hrokafullt, Kristján.
Simon // 5.1 2010 kl. 23:31
Sorgleg niðurstaða, maður bara skilur ekki hvernig fólk heldur að við sem þjóð getum haft þetta mál allt á okkar forsendum eingöngu.
Svona flókið mál á ekki heima í neinni þjóðarkostningu, fólk (þar á meðal ég) höfum ekkert vit á þessu og erum ekki að fara lesa allar þúsundir síðnana í samningum.
Simon
Kristján Sig. Kristjánsson // 5.1 2010 kl. 23:32
Mér finnst bara þingmaðurinn sýna óþolandi óvitaskap á stjórnskipun þjóðarinnar.
Chicken Little // 5.1 2010 kl. 23:33
Fólk á erfitt með að skilja munin á Lýðveldi og Lýðræði.
Grísku borgríkin voru dæmi um lýðræði – lýðskrum og popúlismi afbakaði lýðræðið þannig að úr varð múgræði.
Þetta lærðu Rómverjar af og byggðu eitt farsælasta Lýðveldi sögunar.
en sagan endurtekur sig… núna á mis upplýstur almenningur að kjósa um eitt mesta tilfinningamál Lýðveldisins. Öll vinna Alþingismanna og embættismanna frá því í ágúst köstuð á glæ.
Lýðskrumið minnkar ekki – Þvert á móti vill Sigmundur Davíð halda því fram að það sé ríkisstjórninni að kenna og bara henni – að útlendingar séu að tala illa um okkur.
Þeir tala nefnilega bara illa um okkur því þeir þekkja ekki málstað okkar – því miður er keisarinn nakinn – þeir tala ekki um málstað okkar því við höfum engan!
Arnar // 5.1 2010 kl. 23:47
@ Kristján Sig. Kristjánsson // 5.1 2010 kl. 23:32
Þú skrifar:
„Mér finnst bara þingmaðurinn sýna óþolandi óvitaskap á stjórnskipun þjóðarinnar.“
Þetta er efnislega rangt hjá þér. Jónína Rós þingmaður ítrekar raunar rétt forseta til að skjóta málum til þjóðarinnar (sem er meira en þingmenn FLokksins gerðu 2004) og tekur svo fram í sömu efnisgrein að gagnrýni hennar er á það ábyrgðarleysi að beita málskotsréttinum nú enda eru alvarlegar afleiðingar þess þegar farnar að koma fram og ekkert annað í stöðunni en reyna að lágmarka tjónið og vona að við endum ekki uppi með að sæta afarkostum eftir að forsetinn setti þjóðina á hnéin frammi fyrir Bretum og Hollendingum. Þú getur lesið þennan hluta hér:
„Forseti Íslands er bundinn af ákvörðunum þingsins – því Ísland er þingbundið lýðveldi – hann hefur samkvæmt stjórnarskrá rétt til að skjóta málum til þjóðarinnar – en mér finnst ábyrgðarlaust að gera slíkt þegar Ísland er á jafn viðkvæmu stigi í endurreisnarferli sínu og trúverðugleikaendurheimt hjá erlendum þjóðum“
Kristján Sig. Kristjánsson // 5.1 2010 kl. 23:58
1. gr. Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.
Þetta er fyrsta gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem þingmaðurinn hefur svarið eið að.
Forseti Íslands er ekki bundinn af ákvörðunum þingsins nema í einu tilviki, ætli þingmaðurinn viti hvaða tilvik það er?
Einar Ben // 6.1 2010 kl. 00:00
Ekkert það sem Jónína segir um stjórnskipan Íslands er efnislega hægt að deila um Kristján.
mbk E.
Jón Ottesen // 6.1 2010 kl. 00:08
Það er auðvitað allveg agalegt þegar meiri hluti þjóðarinnar nær sínu fram. Er það ekki?
Ég vil benda þingmönnum á að þið eruð þjónar almennings en ekki drottnarar.
Ólafur var ekki að eyðileggja neitt, hann var að framfylgja vilja meiri hluta þjóðarinnar, það þýðir ekkert að grenja yfir því.
Það var ríkisstjórninni sem mistókst að sameina þjóðina og þingið í þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Þannig að þið ættuð að beina reiðinni inn á við vegna þess að það voru þið sem brugðust, ykkur mistókst að klára málið.
Það sem þessari ríkisstjórn vantar er öflugur foringi. Foringi sem er sýnilegur og talar máli landa sinna en ekki útlendinga. Ef þið finnið ekki þann leiðtoga eruð þið game over.
Chicken Little // 6.1 2010 kl. 00:27
Þingið og ríkisstjórnin hafa nýrra og sterkara umboð frá þjóðinni en ORG.
Það er kominn tími til að ORG endurnýji umboð sitt.
Guðrún // 6.1 2010 kl. 04:24
Jón Ottesen. Var ÓRG að framfylgja vilja meirihluta þjóðarinnar? Ég veit ekki betur en að aðeins 1/4 kosningabærra einstaklinga hafi skrifað undir hjá Indefence.
Enda, ef meirihluti fólks væri svona sáttur við málið þá væri meiri gleði í samfélaginu með ákvörðunina. En ég tek ekki eftir henni. Ég tek bara eftir reiði og í raun sjokki yfir málinu. Vantrú á að hann hafi aktúallí gert þetta. Held að það sé langt í frá einhver meirihluti þjóðarinnar ánægður með stöðu okkar núna. Held frekar að lítill hávær minnihluti sé ánægður en meirihlutinn akkúrat eins og ég lýsti áðan, í sjokki.
Hólmfríður Bjarnadóttir // 6.1 2010 kl. 06:26
Mér varð ómótt og ég varð að játa að ég hreinlega lagðist undir sæng og svaf lengi dags. Hef því ekki draugast í rúmið ennþá en er samt öll að koma til. Dagurinn var bara ansi svartur.
Góður pistill um grafalvarlegt mál.
Helga // 6.1 2010 kl. 07:40
Við horfðum dag eftir dag á stjórnarandstöðuna biðja um svör, sérstaklega í annari umræðu.
Stjórnarþingmenn voru ekkert að flagga þeim og sáust varla í salnum.
Ég upplifði þetta sem lítilsvirðingu við okkur almenning.
Ykkar tækifæri til að sannfæra þjóðina var í umræðunum en þið þögðuð.
Jón Ottesen // 6.1 2010 kl. 08:31
Guðrún. Skoðanakannanir sýndu að 70% eru á móti þessu frumvarpi.
Ég sé ekki afhverju það ætti að ríkja einhver sérstök gleði út af þessu. Málið er erfitt og fólk gerir sér grein fyrir því að það hverfur ekki.
Nú ríður á að stjórnvöld framfylgji vilja þjóðarinnar og í raun Alþingis líka og komi með niðurstöðu sem fólk sættir sig við. Það er allveg ljóst að þjóðin lætur ekki kúga sig til nauðungarsamninga sem munu koma niður á börnum þessa lands. Sama hver vilji ríkisstjórnarinnar er í málinu.
Vinur // 6.1 2010 kl. 09:22
Það hefur verið sagt að hroki útrásarmanna og embættismanna þjóðarinnar hafi orsakað hrunið. Við héldum að við værum ósnertanleg! Frosetinn var hallur undir útrásina, með neitun hans að skrifa undir Ic samningana finnst mér endurspegla þennan hroka. Við höfum ekkert lært, viðbrögð erlendra fjölmiðla og embættismanna komu að óvart. Þetta var hrokafull aðgerð af hálfu forsetans, hann hugsaði meira um að vera sakvæmur sjálfum sér en um hag þjóðarinnar. Hann tók eiginnhagsmuni fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar. Ég hefði átt von á þessu frá Framsóknarmönnum, en ekki frá forsetanum, ég hélt að hann væri skinsamari. Hann hefur gleymt að spyrja Dorrit. Svo koma þeir í tv stuttbuxnamennirnir blautir á bakvið eyrun og tala um glatað tækifæri, forsætis og fjármálaráðherra að kynna málstaðinn. Ég segi bara Jesús! Þessir menn, eftir vill skilja þeir einhvertíman að við erum ekki ósnertanleg.
Eiríkur H. Sigurjónsson // 6.1 2010 kl. 11:59
Hárrétt hjá þér.
Hörður Tómasson // 6.1 2010 kl. 13:12
Dans, dans, lífið er flokkslínudans.
Vinur // 6.1 2010 kl. 15:41
Nú hafa allir blásið, nóg er komið. Ég legg til að eftir daginn í dag hættum við að kvarta og kveina, menn einhendi sér í að leysa málin. Við og allir höfum fengið nóg af bulli. Það þarf að leysa þessa deilu, þjóðin þarf að samþiggja Icesave skuldbindingarnar. Það er verkefni þingmanna og ríkisstjórnar að koma því í kring. Skiljum Framsóknarmenn eftir með skömmina en fáum aðra í lið með okkur til að svo megi verða. Ég tala til allra skynsamra manna. Gleymið bullinu á þingi síðustu mánuði og endurtakið það ekki. Sýnið nú góða takta, ég hef nú samúð með Forseta vorum að minnsta kosti ef hann hefur horft mikið á þingfréttir síðustu mánuði.
Sigurður Þórðarson // 15.1 2010 kl. 08:14
Athyglisverður pistill.
Er þingmaðurinn Jónína Rós Guðmundsdóttir sammála samflokksþingmanni sínum Þórunni Sveinbjardóttur um að væntanleg þjóðaratkvæðagreiðsla sé barátta milli forsetans og ríkistjórnarinnar upp á líf eða dauða?
Guttormur Sigurðsson // 16.1 2010 kl. 01:50
Hvað sem Indefence hópnum líður, þá hefur meiri hluti þjóðarinnar risið upp til að mótmæla stefnu núverandi stjórnvalda í Icesave málinu.
Við getum sum okkar reynt að gera málið flokkspólitískt og skammast út í framsóknarmenn í Indefence eða sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu, en slíkt er bara eins og að stinga höfðinu í sandinn og vilja ekki horfast í augu við það að mjög hugsanlega hefur ríkisstjórnin og samninganefnd hennar gert stór mistök í þessu örlagaríka máli. Það þýðir ekki að sakast við stjórnarandstöðuna fyrir það. Hún reynir auðvitað að virkja óánægjuna sér í hag.
En uppspretta óánægjunnar, sem kraumar greinilega hjá yfirgnæfandi meirihluta landsmanna, er samt ekki að leyta í flokksherbergum stjórnarandstöðunnar eða í einhverjum yfirlýsingum Indefence hópsins. Uppsprettunnar er að leyta í réttlætiskennd þjóðarinnar og kjarki hennar að vilja ekki láta beygja sig með hótunum um skerta lánafyrirgreiðslu til landsins.
Ríkisstjórnin hefur siglt svo siðferðilega og hugmyndafræðilega grunnt að þjóðinni ofbýður. Hún hefur sennt þau skilaboð út til svokallaðs „Alþjóðasamfélags“, sem eru Bretar og Hollendingar, að hægt sé með hótunum um fjársvelti að svínbeygja þessa þjóð.
Ríkisstjórnin hefur vissulega gert sínar áætlanir um hvernig best sé að komast út úr núverandi kreppu. Megin atriðið í þeirri áætlun er að taka stórfelld lán til svokallaðrar enduruppbyggingar og endurfjármögnunar. Þessu hafa Bretar og Hollendingar tekið eftir, því þeir hugsa líka kapitalískt, og sjá sér því færi á að hindra væntanlegar lántökur með því að efna til samstöðu með öllu ESB batteríinu um að þvinga Íslensku þjóðina til að borga Icesave reikninginn að hálfu á móti arði af sölu Landsbankaeignanna. Breska fjármálaráðuneytið hefur gefið út yfirlýsingu til almennings á Bretlandi að breskir skattborgarar þurfi ekki að borga svo mikið sem pund af Icesave skuldunum.
Hundur hafa það eðli að koma alltaf hlaupandi að kjötbeininu, jafnvel þótt sá sem heldur á því hafi nýverið barið hann, afþví að hann stjórnast mest af grunnhvötum sínum.
Flestar manneskjur hafa hinsvegar ekki slíkt hundseðli. Hjá þeim vegur þyngra sálrænar kenndir og þrár heldur en líkamlegar þarfir. Þessvegna yfirgáfu forfeður okkar frekar ættland sitt og óðul heldur en að fórna sjálfræði sínu með því undirgangast vilja Haralds hárfagra.
Þingkonan ætti að gleðjast yfir því að meirihluti Íslendinga hefur ekki hundseðli, heldur er tilbúin að fórna einhverjum efnislegum þægindum fyrir baráttu fyrir réttlæti. Af því mun styrkur þjóðarinnar líka aukast, þótt ekki verði hann mældur í efnislegum gæðum.
Rita ummæli