Þættirnir í Icesavefarsanum eru einugis hlé það sem af er degi.
Verið er að bíða eftir tölvupóstsamskiptum milli íslenskra stjórnvalda og lítillar breskrar lögfræðiskrifstofu þar sem lögfræðiskrifstofan er fyrst og fremst að reyna að ná sér í verkefni hjá íslenska ríkinu – vitað er að þessi samskipti tengjast icesavemálinu afar lítið og þar kemur sennilega ekkert nýtt fram um málið.
En við bíðum og bíðum – eftir engu – því stjórnarandstaðan þorir ekki að taka ákvörðun.
Við vorum kosin á þing á erfiðum tímum til að taka erfiðar ákvarðanir, ryðja björgum af endurreisnarveginum, vinnuvélarnar til að ryðja icesave af veginum standa og bíða – en það eru verkamenn sem eru hræddir við að það muni verða of greiðfært ef Icesave er rutt úr vegi og heiðurinn verði ekki þeirra heldur hinna sem vilja nýta vélarnar.
Málið snýst þó ekki um heiður heldur um uppbyggingu og trúverðugleika Íslands.
Farsanum þarf að ljúka svo lífið geti tekið við.
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ummæli (19)
Ólinn // 30.12 2009 kl. 13:55
Þið voruð ekki kosinn á þing til ljúga!!!!!
Þið eruð engu betri en fyrri stjórnir.
Vox Veritas // 30.12 2009 kl. 13:59
Haltu áfram góðu starfi við að leysa vanda þjóðarinnar.
Vonandi tekst ykkur að stöðva skemmdarverk stjórnarandstöðunnar gegn uppbyggingarstarfinu.
Eggert Sólberg // 30.12 2009 kl. 14:06
Af hverju eru þá tölvupóstarnir ekki birtir fyrst þeir skipta engu máli?
Þór // 30.12 2009 kl. 14:16
Stormur í vatnsglasi því stjórnarandstaðan er að fara á límingunni (hrunaflokkarnir) af ótta við að þetta verði samþykkt.
Helga // 30.12 2009 kl. 14:17
Uppbyggingarstarf? Drottinn minn dýri.
Þið eruð að rústa því sem eftir er.
Veistu hvað þú ert að skrifa undir þegar þú samþykkir Icesafe í óþökk mikils meirihluta þjóðarinnar?
Gerirðu þér einhverja grein fyrir því sem ríkisábyrgð á óútfylltum gjaldeyrisvíxli getur haft um ókomna tíð, jafnvel áratugi?
Þjóðin er ekki vitlaus. Taktu mark á henni og segðu nei.
Björgvin Valur // 30.12 2009 kl. 14:19
Mér er sama um sönginn í stjórnarandstöðunni en hvernig er hljóðið í hugsjónadeildinni hjá samstarfsflokknum?
Það verður nefnilega að klára þetta mál í dag og þess vegna verða stjórnarflokkarnir að þétta raðir og standa saman.
Margrét // 30.12 2009 kl. 14:36
Sem kjósandi VG og Samfylkingarinnar til margra ára, er mér nóg boðið. Flokkarnir sem stöggluðust á því í kosningabaráttunni að NÚ yrði allt upp á borðinu! Samt er alltaf eitthvað nýtt að koma í ljós. Alls konar mál sem virðast hafa verið í felum. Einn segir þetta og hinn segir hitt. EF þeir þá telja svaravert. Maður er farin að trúa því að þjóðin verði seld fyrir aðild að ESB. Maður er líka farin að trúa því að innganga í ESB sé til að afdankaðir stjórnmálamenn þessara flokka, geti séð fram á dægileg puntstörf, sér og sínum vinum til handa.
Svik þessarar ríkisstjórnar í öðrum málum verður lengi höfð í minnum, s.s., skjaldborgin fræga, sem breyttist í skuldaklafa. Þjóðin á að taka á sig skuldir glæpamanna um ókomin ár.
Alltaf eru að berast fréttir af niðurfellingu skulda fyrirtækja, nýjum kúlulánum til sömu glæpamanna, nýrra viðskiptatækifæra manna sem bera ábyrgð á skuldaklafa þjóðarinnar. Viðskiptatækifæra þar sem þessu liði er gert hátt undir höfði með ívilnun í skattamálum og fleira í þeim dúr. Menn eins og Jón Sigurðsson eru heiðraðir með úrvals stöðum með úrvals tekjum.
Mér er gjörsamlega ofboðið svik þessarar ríkisstjórnar og ég mun leggja mig fram við að styðja fall hennar komi þjóðstjórn í staðin.
Það er sárt fyrir okkur vinstri menn að horfa upp á svikin – ekki bara við þjóðina – heldur málstað okkar, sem við höfum stutt, trúað á og barist fyrir alla okkar ævi.
Hafið þið skömm fyrir.
Guðrún Helgadóttir // 30.12 2009 kl. 14:58
Er fólk gjörsamlega búið að láta rugla í sér? Málið er bara einfalt; við sem þegnar í lýðræðisþjóðfélagi kusum yfir okkur höfunda þessa klúðurs árum saman: Sjálfstæðisflokk og Framsókn sem skuldsettu þjóðfélagið stórkostlega með ofþenslunni og einkavæðingunni – sem við skrifuðum uppá aftur og aftur og aftur í kosningum. Nú er víxillinn fallinn og þá vill fólk bara ekki viðurkenna skuldina afþví hún er við útlendinga? Þessa sömu útlendinga og við ætluðum að græða svo rosalega á í útrásinni? Og það þýðir ekkert að segja nei ég kaus þá aldrei – þjóðin kaus yfir sig frjálshyggjuna ítrekað og nú verðum við bara að taka til eftir sukkið ef einhver mannsbragur er á okkur.
Margrét // 30.12 2009 kl. 15:18
Aldrei hef ég kosið þetta lið. Vill þetta fólk sem kaus þessa flokka axla ábyrgð á þeim og VIÐURKENNA að þau hafi kosið þetta yfir okkur? Þau mundu aldrei viðurkenna það væru þau látin sæta ábyrgð á þeirri gjörð.
Nei það vitum við – hvers vegna ætti ÉG þá að taka ábyrgð?
Ég mótmæli því og ætla mér ekki að taka ábyrgð á þessu máli. Fyrr fer ég frá landinu.
Pétur Halldórsson // 30.12 2009 kl. 15:28
Furðulegt að tala um að fara úr landi. Aldrei skal það verða mitt ráð. Einmitt núna á þjóðin að þramma sameinuð út úr vandanum. Ef fjárhúsgólfið er farið að hækka verulega stingur maður út en bíður þess ekki að allt fyllist, bara af því að einhverjar gamlar og löngu dauðar kindur skitu í króna. Samþykkjum þessi ósköp og förum svo að nýta allt mannvitið sem er í landinu! Þá verðum við fljótt vel stæð aftur. Svartsýni er böl.
Ari // 30.12 2009 kl. 15:50
Aldrei kusum við þetta yfir okkur, algjör fásinna að halda slíku fram
Það var ekkert í kortunum að við kusum að Landsbankinn opnaði IceSave í London hvað þá að núverandi ríkisstjórn myndi samþykkja allt sem Bretar og Hollendingar myndu leggja fyrir framan okkur!
Þú og þínir þingflokksmenn eigið að skammast ykkar! Óheiðarleikinn, pukrið og lygarnar hafa aldrei verið meiri og nóg var hjá síðustu ríkisstjórn!
Þessi ríkisstjórn hefur engum vörnum haldið uppi fyrir Ísland og þessum gjörning verður ávallt minnst sem svikum við Ísland og íslenska þjóð, því get ég lofað!
Margrét // 30.12 2009 kl. 16:15
@Pétur Halldórsson
Furðulegt að talal um að fara úr landi segir þú. Heldur þú virkilega að okkur verði eitthvað ágengt hér? Ertu svo veruleikafyrrtur aða þú trúir því eina mínútu að við „þrömmum SAMAN“ ÚR VANDANUM? Finnst þér aðgerðir gagnvart glæpamönnunum lofa góður? Finnst þér það lofa góðu að td., Landsbankinn er fullur af því fólki sem kom kkur í vandann? Finnst þér í lagi að Jón Sigurðsson hafi fengið stjórnarformannstöðuna? Finnst þér í lagi að Björgólfur Thor fær hér, einn af mörgum öðrum sakamönnum, einstakt tækifæri, sem þér og mér á ALDREI EFTIR AÐ STANDA TIL BOÐA?
NEI – ríkisstjórnin hefur sýnt það og sanna að að hðér á ekkert að breytast. Í stað frjálshyggjunnar er bara komið annað lið með sömu valdadraumana.
EFTIR að þú og ég höfum borgað skuldirnar, meðan útvalið lið er stikkfrí frá slíku oki, verður allt eins – NÁKVÆMLEGA EINS.
Samt verra – því það er vinstri hreyfingin SEM LOKSINS komst að, með fulltingi fólks eins og mín, sem hefur meðvitað teki- þá ákvörðun að svíkja, ljúga og beita kjósendur sína ofbeldi.
Margrét // 30.12 2009 kl. 16:26
„Farsanum þarf að ljúka svo lífið geti tekið við.“!!!!!!!!
Það er líka hægt að segja að „farsanum verði að ljúka svo kúgunin geti tekið við“
svo skuldaokið geti hafist.
Vilt þú frú mín svara því hvernig ríkisstjórnin hefur hugsað sér að brúa þann 100 milljarða – já – HUNDRAÐ MILJARÐA – halla sem verður á ríkissjóð BARA þetta árið vegna þessa „farsa“???
Nei væntanlega getur þú ekki svarað því. Þið vara vonið og treysitið á að fólk „þrami“ saman og borgi.
Ég get hins vegar sagt þér það að um leið og atvinnuástand batnar erlendis, fer fólk svo þúsundum saman burt.
Þá geta væntanlega þú og þínir þrammað hér saman og greitt þennan „farsa“.
Endist þér ekki ævin þá geta börnin þín og barnabörn tekið stolt við. Þ.e.s., hafi þau ekki fyrir löngu yfirgefið þetta guðsvolaða land sem þér og þínum er svo hjartanlega sama um, svo lengi sem Jónarinir og þið hin fáið notið þess, sem þið hirðið hér og skaffið hvert öðru í skjóli embætta og tengslanets, þá er hér allt í góðu, er það ekki?
Pétur // 30.12 2009 kl. 16:33
Sumir sem tjá sig hér ættu að átta sig á að mannasiðir eru líka í boði. Sumir þurfa reyndar líka að leita sér sérfræðiaðstoðar vegna graftarkýla á sálinni.
Héðinn Björnsson // 30.12 2009 kl. 16:39
Ef þið ætlið að rukka fjárhættuskuldir Björgúlfanna og annarra útrásarvíkinga á mínu heimili eða heimili vina minna og vandamanna mun ég snúast til varnar og nota til þess meira en beitt orð.
Ef þið eruð til í að rukka þetta hjá auðvaldi þessa lands gegnum eingarupptöku á eignum þess og kvóta skulið þið bara kalla eftir aðstoð. Ég er til í baráttu en ekki ætla ég að borga sukkið meðan stóreignarstéttin heldur sínu og undirbýr næsta sukkreikning fyrir komandi kynslóðir.
Einkavæðing bankanna til óþekktra spilafíkla, ívilnanir til útrásarvíkinga og uppgjöfin við að leggja neinar byrgðar á eigendur stórfyrirtækja samhliða algerri uppgjöf fyrir því að stilla til friðar milli heimilisskuldara og lánadrottna þeirra bendir til að það sé á heimilum almennings sem sækja eigi fjármunina og ekki hjá stóreignarstéttinni.
Sem borgari í þessu samfélagi ber ég ábyrgð á að reyna allt sem ég get til að stöðva frjálshyggjustefnuna sem enn ríkir og verja skuldaþrælastétt þessa lands þeim árásum sem að henni er stefnt af fjármagnseigendum og ríkisvaldi þeirra.
Þeir sem telja að við verðum að bera ábyrgð á fyrri ríkisstjórn verða þá líka að taka ábyrgð á þessari og sjá til þess að hún haldi ekki áfram að hlaða á okkur skuldum frá stóreignarstéttinni án þess að taka eignirnar með.
Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 30.12 2009 kl. 16:51
Gleymum ekki framlagi Davíðs Oddssonar til síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins
http://wms0a.straumar.is/xd/DavidOddson.wmv
Takið sérstaklega vel eftir Bjarna Benediktssyni í klappkórnum. Ég mæli einnig með klappi Þorgerðar Katrínar.
Þetta minnir mig helst á upptökur frá síðasta flokksþingi rúmenskra kommúnista undir stjórn félaga Sjáseskú 1989.
Uni Gíslason // 30.12 2009 kl. 16:53
Ég efast um að það hafi skilað sér alla leið inn til sumra: þetta verður samþykkt.
Sama hvaða stjórn er við völd á hverjum tíma.
Hrafn Arnarson // 30.12 2009 kl. 18:02
Breska lögfræðistofan skilaði langri skýrslu. Við verðum að gera ráð fyrir því að þar hafi öll mikilvæg ariði málsins komið fram. Ef við gerum það ekki eru við að saka lögfræðistofuna um óheiðarleg vinnubrögð. Ef hún er óheiðarleg getum við ekki treyst henni.
Er ekki tímasetning og atburðarás undarleg? Þegar umræðan er á lokaspretti berst tölvupóstur til þingmanna og þjóðþingið fer á hvolf! Eða það heldur sjórnarandstaðan að minnsta kosti. Svo furðulegt sem það er þá virðast tölvupóstar og tímasetning vera pöntuð.
Sem sagt: Farsinn á Alþingi.
Skúli Björnsson // 31.12 2009 kl. 00:09
Loksins þorði þingheimur að ganga til atkvæða um ríkisábyrgð á lágmarksskuldbindingum Tryggingasjóðsins. Það er mín sk0ðun að ef þetta hefði ekki gengið eftir þá hefðu skuldbindingarnar sem hægt hefði verið að krefja ábyrgðasjóðinn margfaldar og gjaldfelldar strax. Eins er ljóst að atvinnulífið hefði stöðvast smásaman þar sem gjaldeyrisþurrð hefði fljótlega orðið og þar með fjöldaatvinnuleysi.
Ég segi húrra fyrir þeim sem sögðu já áðan.
Hefjumst handa við endurreisnina og hættum að hlusta á brennuvargana.
Rita ummæli