Nú sit ég á skrifstofunni minni og hlusta á þingmenn ræða um fjárlög fyrir árið 2009. Fjárlögin þetta árið eru engin skemmtilesning, niðurskurður og skattahækkanir eru ekki beinlínis það sem nýjan þingmann langar mest til að sjá í fjárlagafrumvarpinu.
En á þeim tímum sem nú eru þýðir ekki að væla yfir erfiðum verkefnum, það þarf að standa fast í fæturna og láta stofnanir hins opinbera standa við áætlanir sínar og veita þeim það aðhald sem nauðsynlegt er á niðurskurðartímum.
Það sem þó er afar jákvætt er að verið er að gera grundvallarbreytingar á skattkerfinu þannig að þeim sem minnstar tekjur hafa er hlíft í skattlagningu og þannig er skattkerfið nýtt sem það jöfnunartæki sem það á að vera.
Framundan eru umræður um skattamál og ýmis atriði almannatryggingakerfisins svo fátt er það sem ekki er undir í umræðunni á þingi fram að jólum.
Allir þingmenn koma að fjárlagagerðinni í gegnum nefndarstörf sín og margir nýir þingmenn eru hugsi yfir því hvernig fjárlögin eru unnin. Mér finnst t.d. vanta stefnumörkun og framtíðarsýn í vinnulagið -við hljótum að vilja setja mesta fjármuni í þau verkefni sem við teljum mikilvægust fyrir framtíð Íslands og Íslendinga, ekki má falla í þá gryfju að afrita málin frá því í fyrra og líma þau inn að nýju.
Efnahagslegar forsendur frumvarpsins eru afar vandaðar og vel unnar – það sem þarf að gera er að taka upp faglegri og markvissari vinnubrögð við að raða inn í forsendurnar.
Ég tel að það séu margir þingmenn sammála mér og nú er bara að vinna saman að því að bæta vinnubrögðin.
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ummæli (2)
Héðinn Björnsson // 14.12 2009 kl. 20:30
Forsenda sáttar um fjárlögin er aukin opnun gagnvart almenningi. Það er súrt að sjá að við virðumst alltaf koma að orðnum hlut í þessum málum og erfitt að hafa nein áhrif meðan slík er staðan. Væri ekki tilvalið að fjárlaganefnd héldi opinn borgarafund þar sem fjárlögin væru kynnt fyrir almenningi í núverandi mynd og almenningi gefið tækifæri á að koma með umsagnir og athugasemdir, beint og milliliðalaust.
Vinur // 16.12 2009 kl. 13:39
Já er copy- takkinn mikið notaður, það kemur mér ekki að óvart. Að fara á móti straumnum þarf sterk bein, bæði háfættan og sterkan einstakling. Það er hægt að sætta sig við ímislegt en þegar maður er farinn að borga eina kr af hverjum tveim sem maður þénar í skatta, þá verður maður aðeins vandlátur í hvað peningarnir eru settir. Ég hef ekkert við það að athuga að þeim sem eru í vandræðu verði hjálpað en þegar við höldum uppi syndamennsku og snobbi þá treysti ég þér til að reiða hnífinn.
Utanríkisþjónusta þá á ég við sendiráð, það er enginn sem ég þekki hvorki í viðskiptum eða annarstaðar leitað til sendiherra, nema þá helst sjálfskipaðir menningarhöfðingjar sem þá hefur verið boðið í hallirnar til að þiggja kokteil. Þarna kemur þá saman að leik fullorðið fólk, feitar kerlingar og karlar til að skemmta sér á kostnað einstaklingana í landinu á sama tíma og hin almenni maður hefur ekki efni á að senda barnið sitt í leikskóla eða íþróttaiðkun. Jónína ég skora á þig að byrja á syndarmennskunni og óþaranaum og fullorðna fólkinu. Hlífum börnunum og gamlafólkinu.
Rita ummæli