Jónína Rós Guðmundsdóttir

blogg á eyjan.is

Sérstök aðventa

10.12 2009 | 06:12 | Rita ummæli

Mér hefur alltaf fundist aðventan yndislegur tími, annir á heimili við jólatóna og kertaljós, uppskerutími í vinnunni þar sem í ljós kemur hvernig til hefur tekist við ætlunarverkið, að búa til aðstæður fyrir ungt fólk að læra það sem læra þarf, sameinuð fjölskylda sem heldur fast í hefðir og siði – góður tími í skammdeginu.

Nýr vinnustaður og önnur búseta breytir ýmsu – vinnutíminn annar og óskipulagðari og jólaundirbúningur á tveimur heimilum þar sem annað verður heimili aðventunnar en hitt heimili jólanna – breyting – sem fær mann til að hugsa upp á nýtt.

Mörgu þarf að ljúka á vinnustaðnum fyrir jól og vonandi næst það í góðri samvinnu allra aðila án óeðlilegra málalenginga, ákvörðun á grundvelli góðrar og hæfilega langrar umræðu þarf að liggja fyrir í öllum málum.

Í morgunsárið ætla ég að aka hinni margreyndu fjölskyldubifreið austur á land og verður hún þar með fyrst úr fjölskyldunni til að komast heim í jólafrí, færðin og veðrið er yndislegt og ég án funda í borginni í dag og á morgun. Svo ég nota tækifærið, kem bílnum austur og funda um spennandi mál heima fyrir þá daga – síðdegis í dag eru það málefni fatlaðra og á morgun málefni vísindasafélagsins.  Hinn bráðskemmtilegi jólamarkaður í húsakynnum Barra verður svo heimsóttur á laugardaginn áður en flogið er suður á  vit verkefna sem bíða á því landshorni.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



  • .

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):