Lýðræðið er hornsteinn samfélagsins – lýðræðisleg vinnubrögð eru þau vinnubrögð sem við höfum talið þau ákjósanlegustu.
Ef málþófið sem fram fer í sölum Alþingis núna er lýðræðislegt hafa vaknað efasemdir um gildi lýðræðisins í mínum kolli.
Mér finnst að við eigum að tala – skiptast á skoðunum – skýra mál okkar – en kunna að ljúka málum þegar upplýsingar eru fram komnar.
Vinnustaðurinn minn, sem ég var svo stolt að verða hluti af, er niðurlægður með þeirri tegund umræðu sem nú fer fram og lýðræðið skrumskælt illilega.
Skyldi einhverjum sem á þingi starfar líða vel í dag????
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ummæli (22)
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 15:08
Sæl.
Ertu til í að útskýra eitt fyrir mér…..
Muninn á þessu málþófi, og svo málþófi ykkar þegar fjölmiðlafrumvarpið var til afgreiðslu.
Ég held að þetta sé ekki ósanngjörn spurning.
Var málþóf Samfylkingarinnar, þegar t.d. Björgvin G las upp úr bók í ræðustól eitthvað málefnanlegra málþóf en það sem nú á sér stað???
Allavega, ertu til í að ústkýra muninn á ykkar málþófi, og svo núverandi málþófi.
Með fyrirfram þökk.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 15:19
Ég var að reyna að google þessa frammistöðu BJörgvins, fann þetta:
http://stebbifr.blogspot.com/2004/05/heitast-umrunni-2.html
Er málþóf Björgvins og Marðar „málefnanlegra“ en það sem nú á sér stað.
Kristján Elís // 3.12 2009 kl. 15:26
Sigurður #1
Maður réttlætir ekki gjörðir sýnar með því að einhverjir aðrir séu hafi gert sömu vitleysuna
Prufaðu að rökstyðja það að það sem fer fram núna á Alþingi sé lýðræðinu til framdráttar
Þórarinn Einarsson // 3.12 2009 kl. 15:31
Skyldi vilji þjóðarinnar eitthvað koma lýðræðinu við að þínu mati?
GSS // 3.12 2009 kl. 15:32
Icesave umræðan í þinginu er auðvitað í anda lýðræðis. Tjáningarfrelsið er hornsteinn þess en að því kemur að mál eru fullrædd og taka verður ákvörðun. Stjórnarandstaðan hefur gert skyldu sína og komið sjónarmiðum sínum á framfæri.
Nú er nóg komið enda óljóst hver ávinningur er af frekara málþófi. Varla telur stjórnarandstaðan, að ríkisstjórnin dragi málið til baka eða semji um að Ice save fari í þjóðaratkvæði.
Aðalatriðið nú er að klára málið í þinginu. Það fer í gegn með eins eða tveggja atkvæða mun og þá kemur til kasta forseta Íslands.
Stjórnarandstaðan veit að forsetinn á aðeins einn kost. Að beina Ice save í þjóðaratkvæði. Til þess liggja fjórar ástæður. Ice save hefur myndað gjá milli þings og þjóðar. Forsetinn samþykkti málið í fyrri umferðinni með tilvísan í fyrirvara Alþingis sem ekki eru lengur til staðar. Forsetinn neitaði á sínum tíma að skrifa undir fjölmiðlalögin sem var smámál miðað við Ice save skuldbindingarnar. Ríflega tuttugu þúsund hafa skrifað undir áskorun til forsetans um að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Bregðist forsetinn að þessu sinni og neiti þjóðinni um sjálfsagðan og lýðræðislegan rétt hennar í svo stóru máli hefur hann endanlega glatað trúverðugleika sínum.
Stjórnarandstaðan á því að ljúka umræðunni um Ice save með sæmilegri sæmd og fela forseta Íslands að ljúka Ice save deilunum með þeim eina hætti sem almenningur sættir sig við. Þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hörður Tómasson // 3.12 2009 kl. 15:41
Lýðræðisleg vinnubrögð á Alþingi???
Þú hlýtur að vera að grínast.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 15:50
Kristján Elís.
Ég var ekki að réttlæta neitt.
Ég var bara að spyrja hver væri munurinn á málþófi Samfó, og svo því sem er í gangi í dag.
Björgvin G var sjálfur að gagnrýna málfþóf í gær, hefur hann efni á því??
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 15:51
….þess vegna þarf ég ekki að rökstyðja neitt.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 15:52
Ég skora aftur á Jónínu að útskýra muninn á þeirra eigin málþófi með lestur úr bókum og vísna lestri, og svo því sem er í gangi í dag.
Eina sem mér dettur í hug, er grjót, og glerhús.
Jónína Rós // 3.12 2009 kl. 16:53
Sigurður!
Aðstæður í samfélaginu þegar fjölmiðlafrumvarpið var í vinnslu voru talsvert öðruvísi en aðstæður dagsins í dag.
Við erum að slökkva elda áður en trúverðugleiki íslensku þjóðarinnar brennur til kaldra kola og það finnst mér það erfiða í þessu máli – við verðum að hafa hugrekki til þess að taka erfiðar ákvarðanir eftir vandaða umræðu – þjóðin á það skilið að við þorum það. Orð eru góð og til alls fyrst – en það þarf að vinna verkin líka.
Kristján Elís // 3.12 2009 kl. 16:57
Sigurður
Þú heldur þig við að ræða fortíðina, er það vegna þess að þú þorir ekki að skrifa um nútímann?
Þórarinn Einarsson // 3.12 2009 kl. 17:33
Jónína, þjóðin á það líka skilið að á hana sé hlustað, sérstaklega í mikilvægustu málum hennar.
Ef þið ráðið ekki við verkefnin, þá skulið þið pakka saman.
Mér þykir þú ekki góður talsmaður lýðræðis.
Sævar Helgason // 3.12 2009 kl. 18:06
„Skyldi einhverjum sem á þingi starfar líða vel í dag????“
Ekki veit ég það- en ég held að þjóðn sé búin að fá nóg af þessum skrípaleik.
Það verður langt þangað til ég fer á kjörstað næst- svo er um fleiri. Að kjósa sama ruglið.
En ég er meira en til í byltingu og að henda þessu liði út úr Alþingishúsinu.
Héðinn Björnsson // 3.12 2009 kl. 18:07
Sárt er að horfa upp á þingmann lýsa yfir efasemdum um gildi lýðræðis. En ef þið hefðuð verið til í lýðræðisleg vinnubrögð í þessu máli hefðuð þið væntanlega annað hvort staðið við hina þverpólitísku lendingu sem náðist í sumar eða verið tilbúin til að leggja málið í dóm kjósenda.
Máni Atlason // 3.12 2009 kl. 18:10
Það þarf ekkert endilega að taka fjölmiðlafrumvarpið sem dæmi um málþóf hér, af nógu er að taka.
Frumvarpið um að breyta RÚV úr opinberri stofnun í opinbert hlutafélag var „rætt“ af þáverandi stjórnarandstöðu, Vinstri Grænum og Samfylkingu, í á annað hundrað klukkutíma. Frumvarp til vatnalaga svipað lengi. Á sínum tíma hélt Jóhanna Sigurðardóttir meira en 10 klst. ræðu þegar breyta átti lögum um Íbúðalánasjóð og er það Íslandsmet sem stendur enn.
Það er í besta falli hlægilegt að sjá Vinstri Græna og Samfylkingu kvarta undan málþófi, þessir flokkar eru Íslandsmeistarar í málþófi og núverandi stjórnarandstaða hefur ekki nálgast það Íslandsmet.
Vel að merkja skil ég það vel að stjórnarandstaðan haldi málinu inni í þinginu eins lengi og hún getur þar sem það er viðbúið að málið fái lélega flýtimeðferð í nefnd þegar og ef það loks kemst í gegnum aðra umræðu.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 18:24
Kristján Elís // 3.12 2009 kl. 16:57
Sigurður
Þú heldur þig við að ræða fortíðina, er það vegna þess að þú þorir ekki að skrifa um nútímann?
Kristján Elís.
Er einhversstaðar annarsstaðar að leita fordæma en í fortíðinni?????
Veistu dæmi þess að menn leiti fordæma í framtíðinni???
Ekki snúa út úr.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 18:27
Jónína Rós.
Ertu að segja að fjölmiðlafrumvarpið hafi verið stærra mál en Icesafe????
Öll hin rökin sem þú notar, voru einnig notuð af þáverandi stjórnvöldum um fjölmiðlafrumvarpið, að þora að taka ákvarðanir osfrv….
Þetta er hræsni í ykkur og ekkert annað.
Þið eru alveg greinilega ekkert á móti málþófi sem slíku, þið viljið bara ekki að aðrir en þið notið það.
Það er bara sú staðreynd sem blasir við.
Kristján Elís // 3.12 2009 kl. 20:08
ég er ekki að reyna að vera með útúrsnúning og er ekki að réttlæta málþóf sem hefur verið beitt á Alþingi ég er bara að reyna að fá svör við því hvað fólki finnst um það málþóf sem nú fer fram því málþóf er það þegar það fer jafnmikill tími í svokölluð ansvör eins og ræðurnar sjálfar. Og af því Máni getur ekki heldur talað um neitt nema fortíðina þá spyr ég, er það bara allt í lagi fyrir mig að haga mér eins og kjáni af því það hafa svo margir gert það á undan mér?
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 20:43
Kristján Elís.
Ef þú hagar þér eins og kjáni, ert þú þá rétti maðurinn til að gagnrýna að aðrir geri það sama???
Ef þú beitir sjálfur málþófi, ert þú þá rétti aðilinn til að gagnrýma málþóf annarra???
Ég er ekki að gefa upp neina afstöðu til málþófs, bara að það sé ekki sama fólkið að gagnrýna málþóf, og beitir því sjálft.
Annað hvort ertu á móti málþófi eða ekki.
Sú afstaða á ekki að ráðast af því HVER það er sem beitir málþófinu eins og þingmenn og ráðherrar samfylkingarinnar gera.
Sigurður #1 // 3.12 2009 kl. 20:44
Til að hafa það á fyrirbyggja miskilning, er ég ekki að kalla þig kjána.
Máni Atlason // 4.12 2009 kl. 00:29
Kristján Elís – það er auðvitað hægt að taka þann pólinn í hæðina að röfla yfir því að málþóf sé barnalegt og bjánalegt sem slíkt og að meira þurfi ekki að pæla í því. Staðreyndin er hins vegar sú að það að beita málþófi er vopn stjórnarandstöðunnar þegar til stendur að keyra stór mál í gegn á naumum meirihluta. Málþóf er einfaldlega það mikil fyrirhöfn fyrir þá sem því beita að því verður ekki beitt nema mikið liggi við og þá er ekki endilega lýðræðislegasta lausnin að 51% meirihluti keyri umdeild mál í gegn. Málþófið endar um leið og stjórnin gengur til samninga við stjórnarandstöðuna, en þangað til er það skylda hvers þingmanns stjórnandstöðunnar að halda málinu kyrru þar sem það stendur nú, þar sem enginn Íslendingur ætti að geta fallist á að samþykkja það eins og það liggur fyrir núna. Að ætla að samþykkja það bara til að klára það eða bara til að geta snúið sér að öðru er ekki ásættanlegt, öll önnur mál eru smámál í samanburðinum og ef stjórninni er svo mjög í mun að „klára dæmið“ ætti hún einfaldlega að mæta í þær rökræður sem nú eiga sér stað og klára dæmið með því að komast að einhverri niðurstöðu um málið, frekar en að stinga höfðinu í sandinn í einhverjum flótta undan veruleikanum.
Þar fyrir utan held ég reyndar að komast hefði mátt hjá þessum vandræðum stjórnarinnar með því einfaldlega að leyfa stjórnarandstöðunni að vera með í því að kynna fyrirvarana sem samþykktir voru á þingi fyrir Bretum og Hollendingum. Þá stæði allt þingið saman að þessu og sú staða kæmi ekki upp að þar væri stál í stál, þannig að í byrjun hefði mátt komast hjá öllu þessu veseni með því að forsætisráðherra hefði viðhaft það sem Samfylkingin hefur kallað svo mjög eftir, þ.e. „skynsamlega verkstjórn“.
Vinur // 9.12 2009 kl. 16:47
Það er víða pottur brotinn, þær setningar hafa farið hér nokkuð oft síðustu mánuði traust Íslendinga eða þjóðarinnar hafi borði skipbrot. Helst þá út á við eins og það er kallað, eða réttara sagt erlendis. Þetta er örugglega alveg rétt en þegar það heyrist innan frá alþingi að verið sé að endurvekja þetta traust, þá ja ég veit ekki hvað? Nokkrum sinnum kemur það fyrir að ég fletti fram já útsendingu alþingis í tv og hlusta á einar ræðu eða svo. Því miður er þvílíkt bull sem þar kemur fram, nei alþingismenn með þessum hætti endurvekja ekki traust. Þar fara fremstir liðsmenn Hreyfingarinnar sér í lagi hún þarna… ég vil ekki muna nafn hennar og Framsókn fljótlega á eftir. Stuttbuxnastrákarnir sem ætluðu að bjarga Icesave með norskum lánum ég hef sjaldan séð meira klúður og þarna fór formaður Framsókn fremstur í flokki.
Ég óska þér Jónína alls hins besta, ég vona að ef ég sé þig í ræðustól í þessum tv flettingum mínum að ég muni þó nafnið áfram.
Rita ummæli