Færslur fyrir: desember 2009
Þættirnir í Icesavefarsanum eru einugis hlé það sem af er degi.
Verið er að bíða eftir tölvupóstsamskiptum milli íslenskra stjórnvalda og lítillar breskrar lögfræðiskrifstofu þar sem lögfræðiskrifstofan er fyrst og fremst að reyna að ná sér í verkefni hjá íslenska ríkinu – vitað er að þessi samskipti tengjast icesavemálinu afar lítið og þar kemur sennilega ekkert nýtt fram um málið.
En við bíðum og bíðum – eftir engu – því stjórnarandstaðan þorir ekki að taka ákvörðun.
Við vorum kosin á þing á erfiðum tímum til að taka erfiðar ákvarðanir, ryðja björgum af endurreisnarveginum, vinnuvélarnar til að ryðja icesave af veginum standa og bíða – en það eru verkamenn sem eru hræddir við að það muni verða of greiðfært ef Icesave er rutt úr vegi og heiðurinn verði ekki þeirra heldur hinna sem vilja nýta vélarnar.
Málið snýst þó ekki um heiður heldur um uppbyggingu og trúverðugleika Íslands.
Farsanum þarf að ljúka svo lífið geti tekið við.
Flokkar: Óflokkað
Enn einn aðfangadagurinn er runninn upp með sínum hátíðarbrag og yndislegum jólasnjó á Fljótsdalshéraði.
Það er óneitanlega gott að njóta helgi jólanna eftir átök síðustu þingdaganna.
Kliðurinn í afkomendunum sem eru að stússast í mat í bland við þrifaböð og snyrtingar er ósköp notalegur, fjögurra ára dótturdóttirin er óneitanlega spennt og gjóir augunum að pökkunum undir trénu með reglulegu millibili en lætur það duga þetta árið.
Rjúpnailmurinn er hin eiginlega jólalykt á þessum bæ, en hamborgarahryggur er hafður með fyrir þá sem það vilja frekar.
Ég óska lesendum mínum og fjölskyldum þeirra friðsællar og gleðiríkrar jólahátíðar.
Flokkar: Óflokkað
Nú sit ég á skrifstofunni minni og hlusta á þingmenn ræða um fjárlög fyrir árið 2009. Fjárlögin þetta árið eru engin skemmtilesning, niðurskurður og skattahækkanir eru ekki beinlínis það sem nýjan þingmann langar mest til að sjá í fjárlagafrumvarpinu.
En á þeim tímum sem nú eru þýðir ekki að væla yfir erfiðum verkefnum, það þarf að standa fast í fæturna og láta stofnanir hins opinbera standa við áætlanir sínar og veita þeim það aðhald sem nauðsynlegt er á niðurskurðartímum.
Það sem þó er afar jákvætt er að verið er að gera grundvallarbreytingar á skattkerfinu þannig að þeim sem minnstar tekjur hafa er hlíft í skattlagningu og þannig er skattkerfið nýtt sem það jöfnunartæki sem það á að vera.
Framundan eru umræður um skattamál og ýmis atriði almannatryggingakerfisins svo fátt er það sem ekki er undir í umræðunni á þingi fram að jólum.
Allir þingmenn koma að fjárlagagerðinni í gegnum nefndarstörf sín og margir nýir þingmenn eru hugsi yfir því hvernig fjárlögin eru unnin. Mér finnst t.d. vanta stefnumörkun og framtíðarsýn í vinnulagið -við hljótum að vilja setja mesta fjármuni í þau verkefni sem við teljum mikilvægust fyrir framtíð Íslands og Íslendinga, ekki má falla í þá gryfju að afrita málin frá því í fyrra og líma þau inn að nýju.
Efnahagslegar forsendur frumvarpsins eru afar vandaðar og vel unnar – það sem þarf að gera er að taka upp faglegri og markvissari vinnubrögð við að raða inn í forsendurnar.
Ég tel að það séu margir þingmenn sammála mér og nú er bara að vinna saman að því að bæta vinnubrögðin.
Flokkar: Óflokkað
Mér hefur alltaf fundist aðventan yndislegur tími, annir á heimili við jólatóna og kertaljós, uppskerutími í vinnunni þar sem í ljós kemur hvernig til hefur tekist við ætlunarverkið, að búa til aðstæður fyrir ungt fólk að læra það sem læra þarf, sameinuð fjölskylda sem heldur fast í hefðir og siði – góður tími í skammdeginu.
Nýr vinnustaður og önnur búseta breytir ýmsu – vinnutíminn annar og óskipulagðari og jólaundirbúningur á tveimur heimilum þar sem annað verður heimili aðventunnar en hitt heimili jólanna – breyting – sem fær mann til að hugsa upp á nýtt.
Mörgu þarf að ljúka á vinnustaðnum fyrir jól og vonandi næst það í góðri samvinnu allra aðila án óeðlilegra málalenginga, ákvörðun á grundvelli góðrar og hæfilega langrar umræðu þarf að liggja fyrir í öllum málum.
Í morgunsárið ætla ég að aka hinni margreyndu fjölskyldubifreið austur á land og verður hún þar með fyrst úr fjölskyldunni til að komast heim í jólafrí, færðin og veðrið er yndislegt og ég án funda í borginni í dag og á morgun. Svo ég nota tækifærið, kem bílnum austur og funda um spennandi mál heima fyrir þá daga – síðdegis í dag eru það málefni fatlaðra og á morgun málefni vísindasafélagsins. Hinn bráðskemmtilegi jólamarkaður í húsakynnum Barra verður svo heimsóttur á laugardaginn áður en flogið er suður á vit verkefna sem bíða á því landshorni.
Flokkar: Óflokkað
Lýðræðið er hornsteinn samfélagsins – lýðræðisleg vinnubrögð eru þau vinnubrögð sem við höfum talið þau ákjósanlegustu.
Ef málþófið sem fram fer í sölum Alþingis núna er lýðræðislegt hafa vaknað efasemdir um gildi lýðræðisins í mínum kolli.
Mér finnst að við eigum að tala – skiptast á skoðunum – skýra mál okkar – en kunna að ljúka málum þegar upplýsingar eru fram komnar.
Vinnustaðurinn minn, sem ég var svo stolt að verða hluti af, er niðurlægður með þeirri tegund umræðu sem nú fer fram og lýðræðið skrumskælt illilega.
Skyldi einhverjum sem á þingi starfar líða vel í dag????
Flokkar: Óflokkað
Enn er hið illræmda Icesave mál rætt á þingi – orð eru auðvitað til alls fyrst – en 50 til 100 ræður hvers stjórnarandstöðuþingmanns munu ekki láta Icesave hverfa.
Ísland ársins 2009 þarf á öðru að halda en málþófi og orðalengingum um vont mál, sem þó er eðlilegt að ræða lengi, því réttlætiskenndinni er algerlega misboðið með því að íslenskur almenningur þurfi að borga skuldir óreiðumanna sem hann á enga hlutdeild í.
En það kemur að því að hætta verður að tala og að þeir stjórnmálamenn, sem gáfu í vor, kost á sér í það erfiða verkefni að endurreisa Ísland eftir efnahagshrunið haustið 2008 verða að taka erfiðar ákvarðanir og axla ábyrgð á þeim – það verður að minnsta kosti að gefa þeim stjórnmálamönnum sem eru tilbúnir til þess að axla ábyrgðina tækifæri til þess.
Hin íslenska þjóð sem hefur svo sannarlega fundið fyrir hruninu og axlar af dugnaði og samstöðu sínar byrðar á það skilið að hætt verði að tala og verkin látin tala – ljúkum hinu ógæfusama Icesave og förum að ræða skattamál og fjárlög, eftirlit með bankastarfsemi, Helguvík, gagnaver og annað það sem nauðsynlegt er til þess að hið nýja Ísland verði að veruleika sem allra fyrst.
Hið nýja Ísland með breyttu vinnulagi virðist ekki hafa náð inn á Alþingi þar sem málþóf og orðalengingar hafa tíðkast um árabil – nýir þingmenn stjórnarandstöðunnar virðast ekki sjá þörf fyrir ný vinnubrögð þar þó þeir hrópi hátt á þau í störfum ríkisstjórnarinnar.
Mér finnst leikþátturinn í þingsal leiðinlegur og ömurlegur harmleikur og vildi að sýningum á honum yrði hætt sem allra fyrst.
Við eigum ekki að vera með leikþætti heldur alvöru, hæfilega langa umræðu um þau mál sem nauðsynlegt er fyrir endurreisn íslenskra heimila, fyrirtækja, sveitafélaga og ríkis.
Icesave hverfur ekki og betri lausn á því ljóta mál ekki í hendi þó reynt verði að láta Breta og Hollendinga sækja málið fyrir íslenskum dómstólum eða ræða aftur við Breta og Hollendinga – við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum.
Flokkar: Óflokkað