Jenný Anna Baldursdóttir

blogg á eyjan.is

Fréttabréf Davíðs?

7.1 2010 | 23:45 | 14 ummæli

Þeir vaða bara í uppsagnirnar á Mogganum eins og vélmenni.

Sem þeir sennilega eru þarna í yfirstjórninni.

Fyrst flaug formaður BÍ.

Nú varaformaður.

Sem aukin heldur var að koma úr fæðingarorflofi og er trúnaðarmaður blaðamanna á Mogganum.

Smekklegt.

Eru virkilega einhverjir eftir sem kaupa þetta fréttabréf Davíðs?

Fréttin.

Flokkar: Fjölmiðlar · Kjaramál · Stjórnmál og samfélag | Facebook



Ummæli (14)

  •   Tryggvi // 8.1 2010 kl. 00:39

    ert þú að tala um frétta snepil valhallar

  •   3xB // 8.1 2010 kl. 00:59

    Er DO kannski að missa djobbið?

  •   marat // 8.1 2010 kl. 02:11

    Já, ég kaupi Moggann? Má það sem sagt ekki?

  •   Andrés Ingi // 8.1 2010 kl. 08:30

    Eru ekki flest fyrirtæki í landinu að segja fólki upp?

    Eru formenn og varaformenn eitthvað jafnaðari en aðrir starfsmenn?

  •   Balzac // 8.1 2010 kl. 08:47

    Smekklegt?

    Eðlið spyr ekki um smekk.

  •   Sig. Kr. // 8.1 2010 kl. 08:58

    Ég sagði upp blaðinu um áramótin.

  •   Derrick // 8.1 2010 kl. 09:33

    Davíð er að bíða eftir að rektorstaðan við MR losni.

  •   Hafþór // 8.1 2010 kl. 09:42

    Ef googlað er Bonus, kemur forsíðan á mbl. upp og mynd af Agnesi Braga? Er mbl. orðið fréttabréf Bónuss og co?

  •   HF // 8.1 2010 kl. 10:34

    Menn þurfa ekki að kaupa Mbl. til að fá ofstæki, það er nóg af því hérna á netinu: AMX o.fl.

  •   Margrét // 8.1 2010 kl. 16:36

    Nú gengur það fjöllunum hærra að Davíð hafi sem Seðlabankastjóri, hringt í Guðbjörgu í Ísfélagi Vestmannaeyja og „tippað“ hana, fimm í hrun, að Glitnir væri að falla. Guðbjörgu tókst að selja hlutabréf sín í Glitni fyrir milljarða á milljarð ofan DAGINN fyrir hrun.
    Nú er sagt að hún hafi verið að borga Davíð greiðann með að kaupa Árvak og gera hann að ritstjóra!

    Þetta fólk hefur siðferðisvitund á við kakkalakka.

  •   Örn Johnson ´67 // 8.1 2010 kl. 22:36

    Það hvarflar náttúrulega ekki að þér að þessar tvær hafi einfaldlega verið lélegir blaðamenn.

  •   Jenný Anna Baldursdóttir // 8.1 2010 kl. 22:51

    Örn: Nei en það hvarflar að mér að þú gætir drepið einhvern annan bloggskrifara úr leiðindum.

  •   Örn Johnson ´67 // 8.1 2010 kl. 23:19

    Farðu yfir bloggin þín og athugaðu hvar er jákvæðni að finna.
    Ég get sparað þér leitina. Hvergi krumpaða sál.

  •   Jenný Anna Baldursdóttir // 9.1 2010 kl. 00:07

    Örn: Ég veit hver þú ert – hafðu þig hægan og vertu úti.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):