Ég átti erindi í stórverslun hvar verslað er með barnaleikföng.
Ég þarf af skiljanlegum ástæðum að bregða mér í svona búðir af og til en oftast er það bara “hit and run dæmi“, þ.e. ég kem og kippi með mér fyrirfram ákveðinni vöru og út aftur.
En í dag þurfti ég að leita.
Tilgangurinn með heimsókninni var að kaupa jólagjöf handa barnabarninu mínu sem býr í London, honum Oliver.
Og þar sem ég stóð í risastórri verslunni gerði ég uppgötvun sem var ekkert gleðiefni fyrir mig ömmuna sem hefur tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttu í gegnum árin í þeirri trú að streðið myndi skila sér í breytingum í fyllingu tímans.
Eða hvað?
Stelpuleikföngin voru óguðlega bleik, silfruð og glamúros á meðan strákaleikföngin voru svört, krómuð og þunglyndisleg.
Í stelpudeildinni voru dúkkur, vagnar, alls kyns eldhúsvörur og haldið ykkur – þvottavélar og dót fyrir lengra komna ræstitækna!
Halló, hefur ekkert áunnist hérna?
Í strákadeildinni var hægt að kaupa alls kyns styrjaldarstöff frá öllum tímum.
Ég sverða ég sá Atla Húnakonungskitt með morðtólum af öllum stærðum og gerðum og gott ef ég sá ekki glitta húðflökunarhníf í einum kassanum!
Ég sá líka stóran gjafakassa með byssum svona reglulegum nútíma morðtólum.
Pælið í því, stríðsgagnaframleiðsla fyrir börn. Hversu sjúkt fyrirkomulag er það?
Alveg: Strákar mínir við getum ekki komið því við að senda ykkur í alvöru stríð vegna stopulla ferða til Palestínu og svona, en hér er það næst besta í stöðunni.
Rosalega er þetta sikk heimur ha?
Af hverju eru ekki seld aftökukitt þar sem finna má (fyrir utan hefðbundin morðtól eins og byssur, sverð og sprengjur) aftökunálar, fallöxi og hengingarólar?
Hver er munurinn? Þetta eru allt hlutir sem framleiddir eru til að myrða með fólk.
En..
Auðvitað var búðin full af öðru líka og stelpur hafa gaman að allskyns dúlleríi og strákar hafa sinn dótasmekk – ég er ekkert að biðja um að við breytum heiminum hér og nú skiljið þið.
En nánast öll leikföngin voru hlutverkaleikföng.
Ég myndi kjósa dót fyrir barnabörnin mín sem ýtti undir sköpunarþörf þeirra gæfi hugmyndafluginu lausan tauminn, efldi fumkvæði þeirra og verkvit.
Kommon: Hvað gerir þvottavélin fyrir sköpunarþörfina og hugmyndaflugið?
Barnið alveg: Hér er þvottavél. Á ég að setja í vél áður en ég fer og elda á dúkkueldavélinni, skipti á dúkkunni, þvæ klósettin og strauja þvott áður en eiginmaðurinn kemur heim og skýtur mig á milli augnanna og sprengir húsið í loft upp?
Nei, nei, ég ætla að henda henni í vegginn og sjá hvort hún verður ekki að froski í álögum.
Ó þú frjóa æska.

Jenný Anna Baldursdóttir
Ummæli (28)
Kári // 9.12 2009 kl. 23:35
Svo geta afi og amma staðið stolt á bakvið eldhúsgardínur og dáðst að litla skæruliðanum í felubúningi. Þungvopnaðaður þriggja ára. Er þetta ekki krúttlegt!
Sara Hrund // 9.12 2009 kl. 23:58
Mamma ég er svo sammála þér. Enda tel ég að tilbúin leikföng eru hönnuð fyrir fullorðna að mörgu leyti.. Börn, þá er ég að tala um mín, búa oftast til sín eigin leikföng. Um daginn bjó Jenný til dúkkuhús úr skókassa, málaði hann og límdi slaufu á. Í dag tók hún appelsínu, límdi klippumyndir á hana og leiðinlegan geisladisk ofaná og var hæst ánægð með útkomuna. Hrafn Óli sem er 2 ára leikur sér einungis að koddum, dúkkum og símum. Allt annað dót vill hann ekki sjá. Börn eiga að búa til sín eigin leikföng, mála og lesa.. Þá eru þau ánægð…
Helga // 10.12 2009 kl. 00:02
Ehhh .. mamma, ég held að við verðum að skila afmælisgjöfunum sem við keyptum handa Paffa og Jenný…
MLK // 10.12 2009 kl. 00:13
Alveg sammála! Þetta er alveg glatað. Sumum finnst alveg sjálfsagt að kaupa eftirlíkingar af vopnum handa börnunum sínum. Hvað yrði sagt ef ég kæmi með leikfangasígarettur í næsta afmælispakka?
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 00:18
Helga: GARG.
Sara: Jamm, börn búa sér til leikföng og það er frábært.
MLK: Ég hugsa að þú fykir fljótt úr afmælispartíinu.
Kári: Góður.
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 00:32
Sara: Þau eru ótrúlega dugleg þessi börn við að dunda sér. En ég er viss um að Jenný flippar yfir ammógjöfinni og Lillemann aka Paffi líka.
núman // 10.12 2009 kl. 00:54
Gefið drengjum leikfangalúður eða herðatré og sjá, þeir breyta þeim í byssur.
Byssó er heilbrigð og góð skemmtun.
Ekki láta strákana fara á mis við hana vegna femínísks rétttrúnaðar.
Historiker // 10.12 2009 kl. 00:54
Nú ætla ég einmitt að gefa mínum tveggja ára einhverja flotta skotvopnaeftirlíkingu í jólagjöf. Við karlmennirnir þurfum víst að venjast því að handleika skotvopn frá blautu barnsbeini. Af hverju? Jú, til að vernda kerlingarnar okkar og eldavélarnar frá öðrum gaurum með byssur. Svona er heimurinn skrýtinn.
Unnar // 10.12 2009 kl. 00:56
Hef óneitanlega orðið var við þetta varðandi eigin börn. Við hjónaleysin höldum áfram að hafna fyrirfram ákveðnum hlutverkaleikföngum fyrir strákana af eins miklum krafti og okkur er unnt.
Soffía Sigurðardóttir // 10.12 2009 kl. 01:18
Sástu nokkuð bækur í þessarri búð?
„Skemmtilegu smábarnabækurnar“ fást í öllum matvöruverslunum á Selfossi, Horninu (heitir víst Samkaup núna), Bónus og Krónunni (var eitt sinn Kauffulæið). En síðast þegar ég gáði, fékkst engin barnabók í Tojsaröss!
Jenný Stefanía // 10.12 2009 kl. 05:21
Þetta er virkilega góður pistill, með þéttum athugasemdum.
Gefandinn ræður þessu alveg, þess vegna taka leikfangaverslunarferðir meiri tíma en allt annað.
Fullt af flottu bi-sexual leikföngum í búðunum. Einfaldleikinn er líka oft skemmtilegastur, eins og skókassadúkkuhúsið.
Skemmtilegast að finna eitthvað sem hentar einstökum persónuleika litla ungans.
Millarína // 10.12 2009 kl. 07:32
Börn eiga að fá að nota sköpunargáfur sínar, hjá mér sem er amma, er eiginlega ekkert dót, heimasaumaðir litlir fiðrildakoddar, litir, blöð til að teikna á, spil, bækur og svo diskar og spólur, efni, blúndur og allskonar smádót til að gera sér hús úr bara kössum, löngu búin að fá grænar fyrir þessum leikfangabúðum.
Ía // 10.12 2009 kl. 08:17
Úllendúllendoff………. hvað varð um dúkkulísurnar okkar og serviettusafnið? Ég er í stökustu vandræðum með jólagjafir handa 2ja ára ömmustelpu sem á því miður allt.
Mamma bannaði bræðrum mínum að eiga ,,vopn“ og ég fékk aldrei að tyggja tyggjó. Vá hvað maður var stundum útundan. Alltaf að stelast til að gera eitthvað sem mátti ekki.
Dagný // 10.12 2009 kl. 08:58
Strákar (og líka sumar stelpur) búa sér til byssur ef þau fá þær ekki gefnar, mér finnst það í lagi svo framarlega sem foreldrarnir sjá um að kenna þeim muninn á leik og alvöru. Þegar ekki er hægt að sjá muninn á leikfangabyssu og alvörubyssu er of langt gengið og það er engin þörf á að framleiða eftirlíkingar af morðtólum sem hafa þann eina tilgang að limlesta eða drepa fólk. Flestir litlir krakkar hafa mest gaman af leikföngum sem gefa sköpunargáfunni lausan tauminn, það er ekki fyrr en búið er að slökkva á ímyndunaraflinu hjá þeim sem þau vilja svona hlutverkadót.
Escobar // 10.12 2009 kl. 09:51
Kerti og spil.
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 10:51
Dagný: Algjörlega satt og rétt.
Maður kemur ekki í veg fyrir að börn búi sér til byssur, en að kaupa handa þeim eftirlíkingar eða halda að þeim morðtólum er allt annar hlutur.
SAG // 10.12 2009 kl. 12:10
LEGO stendur alltaf fyrir sínu! Strákurinn minn hefur fengið ýmsa duplo kassa í gegnum tíðinna – og nú er öllu blandað saman: Þessa dagana byggir hann aðallega skrímsli – einusinni voru það vélmenni (með byssur í allar áttir), og svo voru það lestir, og þar áður vinnuvélar… Dáldið skrítið að allir kallarnir sem fylgja kubbunum eru allir karlkyns: nett „Village People“ stemmning þegar hann er búinn að stilla þeim upp. Um þetta erkitýpiska stelpudót talar hann með fyrirlitningu… skrítið?
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 12:16
SAG: Já þetta er merkilegt hvað skilur á milli kynja í leikfangavali. Innræting?
Hagl // 10.12 2009 kl. 12:35
Best að gefa börnum það sem örvar sköpunarhæfni og færni, samhæfingu hugar og handa og forðast draslið.
Við hin fullornu þurfum að gefa okkur tíma með börnum og taka þátt í leik og starfi.
Með öðrum orðum, vera ljóst, að hugsun og tíma þurfi til að vera foreldri.
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 12:36
Hagl: Nákvæmlega.
HF // 10.12 2009 kl. 13:45
Takk fyrir góðan pistil.
Varla væri verið að bjóða þessi stríðstól ef ekki væri eftirspurn. Held að þetta sé afleiðing af öllum stríðstólunum og ofbeldinu sem börn horfa á í sjónvarpi. Aukið ofbeldi og harka í þjóðfélaginu stafar sjálfsagt einnig af því. Annars getum við varla mikið sagt. Lýsingarnar í sögubókum okkar eru annsi skrautlegar sumar hverjar. Sbr. Egils sögu Skallagrímssonar o.fl.
sp // 10.12 2009 kl. 14:06
Já heimurinn er skrítinn. Sjáiði fyrir ykkur dúkkusett MEÐ kynfærum, karma sutra leiðbeiningar fylgja með. Ekki. Einhverjir búnir að krossa sig. Það er þó bara kynlíf. Ég hef aldrei geta skilið eigendur leikfangabúða sem fylla búðina af stríðstólum. Sú leikfangabúð sem yrði fyrst til að auglýsa sig stríðstóla laust ætti annsi trygga framtíð.
Líf // 10.12 2009 kl. 14:36
Þetta er líka sorterað fyrir foreldra í bæklingum – strákasíður – stelpusíður. Fyrirframgefnar hugmyndir af því hvað kynin vilja eru lagðar fram og viðhaldið af markaðsvöldunum, fyrirtækjum og kapítalistum. Svo lengi sem það er til neikvæður og óþarfur kapítalismi verður jafnrétti aldrei komið á fót.
núman // 10.12 2009 kl. 16:02
Strákar léku sér með tindáta og trébyssur löngu fyrir daga sjónvarpsins.
Þið eruð að afneita mannlegu eðli.
Elskurnar mínar.
Leikfangabyssur skemma ekki neitt!
Fimmta valdið // 10.12 2009 kl. 22:24
Getur verið að þú hafir sjálf álpast út í kyngreiningu í búðinni, út frá eigin mótun? Var bleika dúkkustöffið merkt stelpum og krómtólin merkt fyrir stráka?
Jenný Anna Baldursdóttir // 10.12 2009 kl. 22:54
Fimmta valdið: Álpast þú í að sækja um sjötta valdið og vertu í því bara.
Edda A. // 13.12 2009 kl. 14:35
Snillingur – villingur!
SAG // 15.12 2009 kl. 23:04
http://www.pinkstinks.co.uk/
Rita ummæli