Ef það er eitthvað sem gerir mig bandbjálaða úr reiði þá eru það skinheilagheit trúarnöttara.
Bæði í hópum og einkaframtaki. Nóg er af þeim.
Í morgun fór ég inn hjá Eiríki „Séðogheyrtmanni“ og sá þar mér til lítillar gleði að hommarnir fá ekki að syngja á jólatónleikum trúarnöttaranna hjá Fíladelfíu sem er sjónvarpað um allt land á jólunum hjá RÚV.
Halló!
Hvað er að þessu klikkaða liði sem heldur að það sé með dilkadráttarumboð frá Guði almáttugum?
Hverjir mega vera með? Rauðhærðir? Mígrenisjúklingar? Haltir? Bláeygir? Hávaxnir? Kynvísir?
Klikkað orð annars, kynvísir. Minnir mig á orðið „fundvísir“. Fundvísir á hvern andskotann? G.. nei, förum ekki nánar út í það.
Ég er komin með upp í kok af þessari fjárans mannfyrirlitningu sem veður uppi í flestum trúarsamfélögum á landinu.
Kvenfyrirlitning, hommafóbía, miðaldahugsunarháttur og kreddur er lofsungið af heittrúðum mannvinunum.
Er það nema von með eldgamla bók sem leiðbeiningarrit af lífinu?
Nú ætlast ég til að RÚV sem segir okkur hátt og í hljóði að það sé okkar allra, enda allir bæði hommar, lesbíur og þeir sem teljast „normal“ með skylduáskrift að stöðinni, taki ekki í þátt í þessari mismunun.
Út með Fíladelfíu úr sjónvarpinu á jólum allra landsmanna.
Sjónvarpið getur ekki og má ekki gerast samsekt í þessum ofsóknum á góðum hluta þjóðarinnar.

Jenný Anna Baldursdóttir
Ummæli (20)
rektor // 26.11 2009 kl. 10:28
..á hendur fólki.
Jón H. Eiríksson // 26.11 2009 kl. 10:51
Sammála þér Jenný.
Það sem er sorglegast við Fíladelfíu að vanskilningurinn og áróðurinn gegn samkynhneigð er meira falinn en hjá flestum kristnum sérkirkjum. Hvítasunnusöfnuðirinn Fíladelfía byggir sitt safnaðarstarf á fjölskyldustemmingu og kærleika og þess vegna læðast svona fordómar að fólki eins og ljótur skuggi sem ekki er hægt að koma sér undan. Svo hryllilega lúmskt.
Ég kalla þetta kristilega slepju! Hugmyndin að það sé hægt að afhomma og aflesbíska fólk er svo eitthvað aftan úr forneskju og fáranleg að það tekur ekki nokkru tali. En hún er þarna. Hún er þarna í Fíladelfíu alveg einsog í Krossinum. Nema hvað Gunnar í Krossinum gapir á torgum um sínar skoðanir en ekki Safnaðarhirðir Fíladelfíu.
Veit ekki hvort er verra!!!
En það má ekki gleyma því að Íslenska þjóðkirkjan er langt í því frá óflekkuð þegar kemur að málefnum samkynhneigðra! Það þarf ekki sértrúarhópa til!
HF // 26.11 2009 kl. 10:57
Hjartanlega sammála þér!
Hitt vil ég þó benda á að mér finnst þessi minnihlutahópur, samkynhneigðir, alveg sérstaklega duglegur við að vekja á sér athygli í þjóðfélaginu. Umræðan um þetta fólk er miklu meiri en stærð hópsins gefur tilefni til. Ekki nóg með það, samkynhneigðir eru búnir að koma því til leiðar að venjulegt fólk er ekki með venjulega eða eðlilega kynhneigð, nei það er gagnkynhneigt. Halló ég er ekki venjulegur maður ég er gagnkynhneigður.
og? // 26.11 2009 kl. 10:58
Þau sem eru í Fíladelfíu söfnuðinum hafa ákveðna skoðun á Bíblíunni og þeim orðum sem eru þar. Þau túlka Bíblíuna þannig að samkynhneigð sé ekki Guði þóknanleg og ber ég fulla virðingu fyrir þeirri skoðun þeirra þó svo að ég sé ekki sammála þeim. Er það ekki þeirra sem í Fíladelfíu eru að ráða því sjálf hvaða fólk syngur í kórnum? Þau trúa því að samkynhneigð sé ekki Guði þóknanleg og þá finnst mér skiljanlegt að samkynhneigðir séu ekki í kórnum þeirra út frá þeirra eigin skoðunum.
Ef að ég væri með fórdóma gagnvart rauðhærðum þá myndi ég líklega útiloka rauðhærða frá öllum mínum verkefnum.
Það missa sig alltaf allir af því að þetta er kirkja og trú manna sem á í hlut. Berum virðingu fyrir þeirra skoðunum og þau eiga líka að bera virðingu fyrir okkar skoðunum.
Jenný Anna Baldursdóttir // 26.11 2009 kl. 10:59
Og: Berður fulla virðingu fyrir skoðunum Fíladelfíumanna þó þú sért ekki sammála þeim? Er það bara eins og hver önnur skoðun að brjóta mannréttindi og þú alveg sátt/ur við það?
Þetta kalla ég kæruleysi.
Jón: Jamm, ótrúlegt.
Og kæri náfrændi farðu nú að skrifa undir nafni.
Hannes // 26.11 2009 kl. 11:01
Já ef Fildadelfia vill ekki leyfa samkynhneigðum að syngja þá gerar þeir það, á meðan eigum við ekki að koma nálægt þeim með RUV eða öðrum styrkjum.
Ég er á því að hver sá trúarstofnun sem boðar missmunun, hver sem hún er á ekki að fá krónu frá ríkinu beint eða óbeint.
og? // 26.11 2009 kl. 11:04
Jenný eru það virkilega mannréttindi að fá að syngja í Fíladelfíukórnum?
Er verið að brjóta á mér mannréttindi af því að ég get ekki gengið í kvennfélag af því að ég er karlmaður?
Það hljóta að ráða því sjálf í Fíladelfíu hvort að samkynhneigðir syngi í kórnum þeirra, þeirr mættu þess vegna banna örfættum að syngja líka.
Jenný Anna Baldursdóttir // 26.11 2009 kl. 11:13
Jamm, þeir í Fíladelfíu mega svo sannarlega ráða því þó þeir mismuni fólki og ástundi mannfyrirlitningu. Ekki gott PR vissulega en það er flott, kannski fækkar aðdáendunum eitthvað og fólk snýr sér að skynsemi í staðinn.
En, það sem má ekki og á ekki að eiga sér stað er að þeir sem brjóta mannréttindi fái inni í ríkissjónvarpinu á prime time á kærleikshátíð landsmanna.
Þangað hafa mannhatarar ekkert að gera.
Eva // 26.11 2009 kl. 11:40
Ég er hjartanlega sammála þér Jenný Anna. Það er út af fyrir sig nógu slæmt hvað sérhagsmunahópar á borð við kristileg trúfélög eiga greiðan aðgang að ríkisfjölmiðlum og ríkisstofnunum en þó tekur steininn úr þegar félög sem hafa mannréttindabrot að markmiði fá þar inni. Ég sé ekki fyrir mér að t.d. karlrembufélag sem meinaði konum þáttöku í starfi sínu, fengi aðgang að rúv, nema þá til að svara fyrir skoðanir sem fáum finnst ástæða til að virða.
Sú hugmynd að maður geti borið virðingu fyrir skoðunum sem maður er ósammála hlýtur að takmarkast við að þær snúist um hluti sem gengur ekki í berhögg við réttlætiskennd manns. Ég virði þá skoðun að Árni Johnsen sé skemmtilegur tónlistarmaður, þótt ég sé því fullkomlega ósammála. Fólk má alveg hlusta á gaulið í honum mín vegna. Ég virði hinsvegar ekki þá skoðun að samkynhneigðir eigi öðru fólki minna tilkall til að njóta virðingar og þá skoðun ætti enginn að fá að praktísera í friði.
Stefán // 26.11 2009 kl. 11:47
Er ekki fyrrverandi Landsbanka/Icesave-stjóri Halldór J Kristjánsson ( Kumbaravogssonur )einn aðalmaðurinn í Fíladelfíu ? Svo er mér sagt, en líklega er hann flúinn land eins og hinir bankaræningjarnir.
Svanur Sigurbjörnsson // 26.11 2009 kl. 13:02
Í lögum um Skráð trúfélög frá 1999 segir:
Er að það ekki gagnstætt góðu siðferði og allsherjarreglu að útiloka samkynhneigt fólk?
Helgi Þór // 26.11 2009 kl. 14:23
Hvað eru samkynhneigðir að vilja þangað inn til að byrja með? Ef ég, sem rauðhærður, væri útil0kaður úr einhverju félagi, myndi ég einfaldlega gefa skít í það og leita eitthvað annað.
Guðsteinn Haukur // 26.11 2009 kl. 14:24
Nú verð ég að tjá mig og kemur þessi skoðun mín kannski á óvart, því ekki verð ég vinsæll með trúfólks fyrir vikið, en er það svo sem ekki í fyrsta sinn sem það gerist.
Ég verð að lýsa yfir algerri vanþóknun minni á þessari ákvörðun Hvítasunnumanna.
Auðvitað á að leyfa honum að syngja með í kórnum eins og hverjum öðrum! Það er eitt að vera ósammála fólki og annað að bókstaflega mismuna þeim.
Samkynhneigðir eru ekki með síðri söngraddir en gagnkynhneigðir, og sé ég ekki hvernig þeir eru að „leggja blessun sína yfir líferni þeirra“ með því að leyfa honum að syngja með.
Það er skömm af þessu, og er ég á þeirri skoðun að það eigi að taka við samkynhneigðum fagnandi inní kirkjunar og ræða við þau á jafnréttisgrundvelli, án allra fyrirdæminga og haturs.
Og hananú! Takk fyrir að vekja máls á þessu Jenný Anna.
Gamli // 26.11 2009 kl. 14:46
En þarftu ekki að vera meðlimur í trúflokknum til að geta sungið í kórnum? Ef svo er – eru það ekki brot á mannréttindum líka? Annars er mér skítsama hver syngur í þessum kór. Hversvegna að vera að púkka upp á eitthvað ofstækislið?
Jenný Anna Baldursdóttir // 26.11 2009 kl. 14:58
Mér er sama hver syngur í þessum fjárans kór.
Það er ekki málið.
En mér er ekki sama um að ríkissjónvarpið sendi út frá svona mannfyrirlitningarsamtökum á jólunum.
Bara alls ekki.
Guðsteinn: Bara sú staðreynd að samkynhneigðir séu þeim (guði?) ekki þóknanlegir nægir mér til að hálfvita gera þá.
Þetta er eins og aftan úr grárri forneskju.
Hvaða óður til fáfræði viðgengst eiginlega í þessum hópum öllum saman?
Einar Tvennar // 26.11 2009 kl. 17:23
Því meir sem ég kynnist mannskepnunni,
Þvi vænna þykir mér um köttinn minn.
Guðsteinn Haukur // 26.11 2009 kl. 17:44
Jenný Anna - stöldrum aðeins við, ig gefum þessu tækifæri. Það getur vel verið að um sorpblaðamennsku Seð og Heyrt sé að ræða. Skoðaðu við Varðar Leví við þessum ásökunum:
Hér er heimildin
Það getur verið að þetta sé hans upplifun fremur en að honum hafi verið bannað að syngja með Fíladelfíu kórnum, því eftir orðum hans Varðar að dæma, þá veit hann ekki hvað Friðrik Ómar er að tala um. Gefum þessu tækifæri áður en fullyrt er meira um eitthvað sem reynist svo ekki satt.
Guðsteinn Haukur // 26.11 2009 kl. 18:02
Afsakaðu villurnar Jenný Anna, en hér er rétt slóð:
http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/fridrik-omar-ekki-velkominn-nema-eg-fari-aftur-i-skapinn—rangt-segir-forstodumadur
Þorsteinn Úlfar Björnsson // 26.11 2009 kl. 18:06
Mér virtist nú Vörður Leví vera með böggum hildar að reyna að verja þetta í Síðdegisútvarpinu áðan. Það var greinilegt að hann hafði vondan málstað að verja og reyndi eins og hann gat að drepa málum á dreif. Mætti kannski segja að hann hafi pissað bæði til hægri og vinstri. Þetta var aumt yfirklór hjá honum greyinu.
Maggi // 26.11 2009 kl. 21:19
Flott grein hjá þér Jenný, það þarf að vekja athygli á svona misrétti. Fíladelfíusönuðurinn hefur að sjálfsögðu rétt á sínum kenningum, en svo lengi sem þeir mismuna fólki á þennan hátt eiga þeir ekkert erindi í Ríkissónvarpið. Með því að sýna tónleikana er Ríkissjónvarpið á vissan hátt að samþykkja slíka mannfyrirlitningu og slíkt þykir mér engan vegin hæfa ríkisrekinni sjónvarpsstöð.
Rita ummæli