„Jæja, það er mesta furða að maður sé enn á lífi eftir brekkusönginn í gær! Hef aldrei áður, og mun aldrei aftur sitja og hlusta á allt draslið (fyrr en skipt verður um forsöngvara)…sjitturinn titturinn, blessaður maðurinn er með tónlistarhæfileika á við heyrnarlausan hamstur! p.s. fyrst textarnir eru nú sýndir á risaskjám í Dalnum, væri þá ekki í lagi að hafa þá allavega rétta??“
Svo ritar Anna Björk Birgisdóttir útvarpsmaður (1.792 vinir) í Facebookstatus en hún er gift tónlistarmanninum Stefáni Hilmarssyni og ætti að vita hvað tónlist er. Anna Björk hreinlega hraunar yfir Árna Johnsen á Facebookvegg sínum. Að hennar mati var Brekkusöngurinn algerlega óbærilegur með Árna sem forsöngvara: „Alltaf stemmari en fólk var komið með hnefana í eyrun á sér til að meika þetta:-/ Við hliðina á mér voru menn sem drukku eins og þeir fengju borgað fyrir það (til að ná úr sér aulahrollinum)….“ skrifar Anna á vegg sinn og heldur áfram eftir að Eyrún Gunnarsdóttir spyr hver gæti tekið við af Árna: „Eyrún, það geta ALLIR tekið við af honum. T.d. apinn Níels….það er ekki hægt annað en að vera betri en Johnseninn… Persónulega myndi ég vilja sjá Eyfa þarna! Hann myndi rúlla þessu upp og allir færu óskaddaðir heim!“ Og: „Þetta var kannski fyndið fyrir 20 árum en brandarinn er lööööööngu búinn!“
Ef einhver heldur að Anna Björk hafi látið við svo búið sitja í lýsingum á ömurlegri frammistöðu Árna þá er það ekki svo: „Það skiptir engu hve mörgum koddum maður treður í eyrun og hve mikið áfengi maður drekkur….þetta er svo VONT að það er varla hægt að lýsa því!“ En, Anna Björk reynir þó: „Jahá, hann segist aldrei undirbúa sig. Það fer nú ekki framhjá neinum. Alger skandall að hann skuli ekki enn vera búinn að læra þessi lög sem hann tekur á hverju ári. Ekki eitt einasta lag var flutt skammlaust þarna í gær. Ekki eitt!!!! Eða jú annars…Úti í Eyjum var fínt enda tók Árni sér pásu þá og lét strákana um flutninginn. Og þá gat maður tekið hausinn úr rassgatinu á sér í smá stund.“


Jakob Bjarnar Grétarsson
Ummæli (37)
Ámundi Loftsson // 1.8 2011 kl. 21:32
Það magnaða er að landinn er búinn að kaupa þetta trall Árna Johnsens árum saman og þótt svo gott að hann gat ekki á heilum sér tekið þegar téður Arni fékk ekki að fara heim af Kvíabryggju hér um árið til að gaula þessi ósköp yfir gesti Herjólfsdals. Þó er kostulegra en allt annað að ekki skuli sjást í sjónhendingu neinn annar betri en Árni í þetta hlutverk. Lítið leggst fyrir Eyjamenn.
Kv. Á. L.
Doddia // 1.8 2011 kl. 21:54
Svo var þessu útvarpað og þegar kom að þjóðsöngum þurfti ég að stökkva að tækinu til að bjarga því að þurfa ekki að hlusta á hann líka.
Hann var svo fluttur á rás 1 á sama tíma mér til mikillar gleði.
Kristín // 1.8 2011 kl. 22:29
Hahahaha…. Ég held að þessi manneskja ætti nú bara að halda hausnum í rassgatinu á sér !! það er ekki að ástæðu lausu að 14-18 þúsund manns sitja og syngja með í brekkunni á hverju einasta ári og alltaf talað um hápunkt hátíðarinnar!! En gaman að vita af því að það var ein manneskja sem ekki var að fíla sig í brekkunni !!! Annars skemmti ég mér konunglega og hef gert 25 sinnum !!! Takk kærlega fyrir frábæra skemmtun Árni, Sæþór og Jarl
Guðlaug // 1.8 2011 kl. 23:23
ég var nú þarna í gær og ég sá ekki betur en að allir voru að skemmta sér konunglega þegar Árni johnsen sá um brekkusönginn. þannig þessi kona hefði alveg getað farið bara úr brekkunni og haldið þessum leiðindar skoðunum fyrir sjálfan sig þar sem hún hreinlega kann ekki góða stemmingu að meta!
Sigríður Kristinsdóttir // 1.8 2011 kl. 23:41
Fyrirgefið, er virkilega einhver sem getur sagt að Árni syngi vel. Ég var þarna í fyrra í brekkusöngnum og ef ekki hefði verið fyrir þá sem voru með Árna hefði þetta verið algjört klúður. Ótrúlegt hvað allir eru til í að verja þennan mann og halda merkjum hans á lofti. Það er fullt af góðum gítarleikurum sem geta haldið uppi stemmningu. Það var brekkusöngur víða um land þó ekki hafi þeir verið af sömu stærðargráðu og held að fólk hafi skemmt sér vel. Sá Árna líka einhvern tíma á Stokkseyri með brekkusöng og það var svo ömurlegt að orð fá því ekki líst. Enda var hann einn í það skiptið og enginn til að halda honum við efnið.
solla // 1.8 2011 kl. 23:54
Af hverju í ósköpunum fórstu ekki úr dalnum fyrst þú þoldir ekki við Anna Björk ,,, Stebbi hefði nú getað mæmað eitthvað fyrir þig í staðinn ,,, en þú kemur þá líklega ekki á fleiri þjóðhátíðar út af þessu reikna ég með
Jón Kjartan Ingólfsson // 1.8 2011 kl. 23:55
Eitt verður ekki af Johnsen tekið – hann hefur lag á að hrífa fólk með sér. Ég hef séð hann koma inní veislu og ná öllum með sér í söng á 3-4 mínútum – var eiginlega bara svolítið spooky.
En mér finnst hann samt alveg skelfilegur músikant. Vandséð hvort hann er verri gítarleikari eða söngvari. Þessi fjöldi sem situr í brekkunni og syngur er EKKI þarna til hlusta á Johnsen, heldur til að syngja. Það er gaman að syngja saman. Munurinn á brekkusöngnum árið sem Róbert Marshall var með hann og þegar Johnsen er er hann var bara sá að það komu réttir hljómar í lögin hjá Róbert – hann hafði auðheyranlega undirbúið sig, sem Árni er stoltur af því að gera aldrei.
Margrét Gunnars // 1.8 2011 kl. 23:55
Ég gæti ekki verið meira sammála Önnu ofl. Árni er og verður alltaf vondur VONDUR söngvari! Það myndi klárlega nást upp jafn góð ef ekki bara betri stemning með hæfileikaríkari söngvara í forsvari. Þetta snýr ekki að því hvort að það sé Árni J. per se sem stjórnar söngnum eða einhver ennar, 14 þúsund manns eru ekki mætt í dalinn á sunnudagskvöldi til að hlýða á SÖNG/spil Árna J. heldur upplifa ákveðna brekkusöngsstemningu sem hvaða api sæmilega lagviss og spilandi á gítar gæti búið til. Veit ekki betur en að Róbert M. hafi náð upp rokna góðri stemningu með brekkusönginn þegar Árni J. var fjarri góðu gamni……
solla // 2.8 2011 kl. 00:33
Er ekki gott að allir syngi með sínu nefi ??? ætlið þið að halda því fram að allir í þessari brekku séu svona lagvissir ??? engin feilnóta neinsstaðar ,,,,, róið ykkur gott fólk og hafið bara gaman af þessu
Anna Björk hefur bara verið eitthvað illa fyrir kölluð
sigurborg // 2.8 2011 kl. 01:18
Ha ha
Hafdís Jónsdóttir // 2.8 2011 kl. 01:23
Það er eitthvað mikið að hjá þér Anna Björk!
Baldur // 2.8 2011 kl. 01:30
Þetta er nú full ýkt lýsing hjá Önnu Björk en margt til í henni. Ég hef aldrei skilið afhverju Árna er stillt upp þarna á hverju ári, manninum sem hefur gjörsamlega ekkert tóneyra og spilar öll lög nánast vitlaust. Og ekki spennandi söngvari heldur þótt það sé nú ívíð skárra.
Leiðinlegt fyrir afkomendur t.d Oddgeirs að heyra hann misþyrma lögunum hans á heimavelli á hverri þjóðhátíð. Ef Vestmannaeyingar skulda einhverjum þá eru það ekki síst þeir félagar Oddgeir og Ási. Hefur Árni ekki haft áratugi til að læra nú þessi fallegu lög almennilega?
Þetta er kannski í lagi í „fullri brekku“ í Eyjum en þegar farið er að senda þetta út um allan heim þá hrekkur heimsbyggðin við.
En Árni hefur líka kosti. Við skulum ekki gleyma því. Hann getur ennþá „stungið í Marshallinn“ og lært að spila þessi helstu lög án þess að skaða nokkurn.
Tómas // 2.8 2011 kl. 01:44
Þetta er nú svolítið eins og að hafa eftir einhverjum umræður úr samkvæmi og setja fram sem pistil á opinni fréttaveitu.
Mér finnst það undarlegt hvað facebook-statusar eru að detta inn í almenna fréttaumræðu. Ég hefði haldið að Facebook væri ekki opinnber vettvangur og að skoðanir fólks og skrif mætti ekki (siðferðislega) taka og birta almenningi án leyfis.
En það má raunar vel vera að Anna hafi gefið leyfi fyrir notkun á þessum texta, mér finnst það ólíklegt, en ég veit náttúrulega ekkert um það. Hefði haldið að betra hefði verið að fá viðtal við hana um sönginn, frekar en að apa upp statusa skrifaða milli „vina“ á Facebook.
Hvað efnið varðar, þá skiptir það mig engu. Mér er alveg slétt sama hvernig Árni syngur – ég vil hins vegar helst ekki heyra til hans. Hann er engan veginn búinn að hljóta uppreisn æru fyrir mér síðan hann stal úr ríkiskassanum og þykist nú vinna í mína þágu.
Anna // 2.8 2011 kl. 01:55
Algjörlega sammála þér Anna Björk. Maðurinn kann ekki að syngja og kann í mesta lagi þrjú grip á gítarinn. Það er hreinasti hryllingur að hlusta á hann. Afhverju eru Vestmanneyingar alltaf að hampa honum svona? Getur ekki verið að mun færri hafi mætt á Þjóðhátíð í Eyjum þetta árið miðað við fyrri ár, hreinlega vegna þess að fólk nennir ekki að hlusta á illa syngjandi fyrrum Kvíabryggjumann gaula og misþyrma lögum Oddgeirs og Ása í Bæ? Þetta er óforskammað þeirra vegna. Eyfa næst takk!
Margrét Sigurðardóttir // 2.8 2011 kl. 02:16
Var unglingur í Lindargötuskóla fyrir 40 árum síðan þegar Árni kom inn í tíma og söng fyrir okkur eitthvað ömurlegt lag um mexíkanahatt. Þarna var örugglega um vinargreiða að ræða að leyfa honum að syngja inn í kennslutíma. Það var engin ástæða fyrir þessu og ekkert okkar skildi hvað var að ske.
Þetta er náttúrulega bara vinargreiðvikni: Árni vill syngja og FLokkurinn sér um sína. Skólar og íþróttafélög undirlögð af FLokksmönnum. Við hin bara megum éta það sem úti frýs og láta yfir okkur ganga það sem klíkunni dettur í hug.
Sálþjáður // 2.8 2011 kl. 06:26
Ég hef slegið Íslandsmet innanhús við að ná til viðtækisins til að slökkva á enn einu vælu Stebba Hilmars laginu. ‘Óþolandi tónlist!
Petur // 2.8 2011 kl. 07:15
………ætlar kallinn hennar aldrei að fara í mútur?
Bubbi morthens // 2.8 2011 kl. 09:01
Árni hefur kanski ekki fullkomna Popp rödd. Hann er ekki snjallasti Gítarleikari landsins. En hann hefur eithvað sem er svo samofið öllu liðinu sem spilar í tjaldinu og heima hjá sér í stofunni að það virkar. Eyfi er Rúrtineraður Pöbba Spilari þannig að hann gæti alveg tekið brekkuna og gert hana að sínu. En Árni er það sem hann er og það er óþarfi að Níða hann niður í svaðið.ég tók þátt í þeim leik á sínum tíma og sé eftir því. Árni hefur ef grant er skoðað orginaltet sem er sjarmerandi og hann setur lit á flóruna.
Björn Karl Þórðarson // 2.8 2011 kl. 09:18
Skildi blessuð konan alldrei hafa hlustað á Stebba píku (Sefám Hilmarsson)
en þar er einhver sá leiðinlegasti söngvari islands með öllu litlaus á sviði og ram falskur ,mætti þá frekar byðja um hóruna af þingi sem allir gera grín að enda
bara trúður
Sigríður Einarsdóttir // 2.8 2011 kl. 09:29
Sammála Önnu Björk hrikalegur söngvari, bjórauglýsingin er góð með Árna.
Tómas // 2.8 2011 kl. 09:40
Hvað í ósköpunum fær þig Björn til að uppnefna ágætis mann „píku“ (því þér líkar ekki tónlistin hans?) eða heiðvirða konu „hóru“ sem er að gera sitt besta, í okkar þágu og umboði, til að rétta úr kútnum (ert þú eða flokkurinn þinn (hver sem það er) með einhverjar töfralausnir á skuldavandanum?).
Myndir þú í alvöru, ef þú hittir Jóhönnu eða Stefán í Kringlunni eða á Austurvelli, hrópa þetta að þeim, í eigin persónu?
Það er nú litlu skárra að birta ummæli Önnu hérna, en Anna skrifaði sín orð ekki á opinberum vettvangi, heldur á lokaðri síðu sem vinir hennar hafa aðgang að. Þú, Björn, hefur þessi meinyrði eftir, undir nafni, á opinni fréttasíðu. Mér finnst þetta skrýtið og ósmekklegt.
Ari // 2.8 2011 kl. 09:46
Heimski hluti þjóðarinnar finnst smekklegt að horfa á dæmdan þjóf sem hefur verið kosinn aftur á þing tralla falskt. Afsakið meðan ég æli og íhugi að flytja til Svíþjóðar
Þorsteinn Úlfar Björnsson // 2.8 2011 kl. 10:00
„Svo ritar Anna Björk Birgisdóttir útvarpsmaður (1.792 vinir) í Facebookstatus en hún er gift tónlistarmanninum Stefáni Hilmarssyni og ætti að vita hvað tónlist er. “
Hverslags röksemdarfærsla er þetta? Ef ég væri kvæntur t.d. lækni, ætti ég þá að vita allt um sjúkdóma?
Páll Gestsson // 2.8 2011 kl. 11:20
Óþverra umræða.
Páll Gestsson // 2.8 2011 kl. 11:21
Óþverra umræða og engum sæmandi.
Jón Kjartan Ingólfsson // 2.8 2011 kl. 11:43
Tómas – smá misskilingur í gangi sýnist mér, misskilningur sem maður rekst oft á. Ég er nefnilega býnsa viss um að það að birta eitthvað á bloggsíðu eða Facebook síðu telst til opinberrar birtingar.
Tómas // 2.8 2011 kl. 12:00
Jón: Sumir hafa vegginn sinn opinn á Facebook. Aðrir loka honum svo aðeins vinir viðkomandi sjá hvað eigandinn skrifar. Það er því ekki beint ólöglegt að opinbera hvað einhver skrifar á lokaðan vegg sinn, en það er bara ósiðlegt, því viðkomandi aðili vill, að öllum líkum, halda skoðunum sínum út af fyrir sig og sinn vinahóp.
Að birta eitthvað á bloggsíðu telst opinber birting, nema síðan sé læst á einhvern hátt. Væri þér þá alveg sama þótt einhver tæki allar myndir sem þú settir inn á Facebook, þótt þú hafir aðeins ætlað vinum að sjá þær, og setti þær á einhverja bloggsíðu?
Finnur // 2.8 2011 kl. 12:58
Mér finnst með ólíkindumj að fólk sé hér að drulla yfir mann sem komið hefur fram á þjóðhátíð lengur en elstu menn muna og haldið uppi góðri stemmingu í brekkusöng (óháð því hvort hann sé besti söngvari á landinu) og gert það án þess að þyggja greiðslu fyrir. Ég hef mist af 3 þjóðhátíðum um ævina, og var í dalnum umtalaða þjóðhátíð þegar Róbert Marshall stóð og glammraði. Hann reyndi kall greyið, en náði engan veginn upp réttu stemmingunni.
Þó svo að Anna Björk sé gift Stefáni Hilmarssyni gerir það hana ekki að neinum tónlistar spekúlerant. Get ekki séð það að kona sem er gift kokk sé betri í eldhúsinu en kona sem er gift kennara til samanburðar.
Margrét Sigurðardóttir skrifar að flokkurinn sjái um sína!!! IBV heldur þjóðhátíðina. IBV er ekki flokksbundið í sjálfstæðisflokknum, og ef hún hefði kannað málið hefði hún komist að því að Páll Scheving formaður þjóðhátíðarnefndar er flokksmaður v-listans, vinstri hreyfingarinnar í eyjum, enda skil ég ekki hvað pólitík ætti að koma brekkusöngnum við!
Ég sat líka uppí brekku og hlustaði á Stebba Hilmars og Guðrúnu Gunnarsdóttur gera Oddgeris lögunum mis góð skil, en ég ætla ekki að hrauna yfir þau persónulega fyrir það, en Anna Björk hefur eflaust verið yfir sig hrifin af gaulinu í sínum heitt elskaða.
Birgir // 2.8 2011 kl. 15:27
þessi grein er nú bara skrifuð eins og ritari sé ekki mikið eldri en 14 ára “ Hef aldrei áður, og mun aldrei aftur sitja og hlusta á allt draslið (fyrr en skipt verður um forsöngvara)…sjitturinn titturinn, blessaður maðurinn er með tónlistarhæfileika á við heyrnarlausan hamstur! “ bara að lesa þetta þá var mér skitsama hvað þessi kona hefði meira að segja, en mikið leiðist þér í lífinu Anna Björk… lengi lifi Árni og þjóðhátiðin
Birkir Thór Högnason // 2.8 2011 kl. 16:52
Það má ýmislegt segja um Árna Johnsen og hans söng. Ætla ég að halda skoðunum mínum á honum og hans hæfileikum fyrir mig.
Ég er hinsvegar yfir mig hneikslaður á framkomu Önnu Bjarkar á síðu sinni. Þetta orðbragð og þettta drullukast frá konu í hennar stöðu stingur og segir kannski meira um hennar persónu en nokkurn annan og vekur mann til umhugsunnar á hvernig farið er með aðra inni á Facebook. Algjör óþverraumræða.
Við skulum ekki gleyma því að Anna Björk hagnast sjálf fjárhagslega á þjóhátíð þar sem hún er eiginkona „aðkeypts atriðis“ á hátíðinni. NB atriði í gjörsamlega DRAP alla stemmningu í brekkunni á föstudagskvöldið.
Held að Anna Björk ætti að líta sjálfri sér nær áður en hún fer að mæla með besta vini mannsins síns sem arftaka Brekkusöngsins. Myndi nú kjósa að við Eyjamenn myndum halda honum í okkar röðum.
Anna Björk // 2.8 2011 kl. 17:09
Ja hérna hér!
Þetta var asnalegt netspjall á læstum vegg. Aulahúmor minn og nokkurra vina…sem betur hefði verið sleppt, það viðurkenni ég fúslega!
Lýsingarnar voru auðvitað yfir strikið, (enda aulahúmor, hélt að það væri auðsjáanlegt) og til þess gerðar að framkalla nokkrar brosviprur hjá ákveðnum hópi. Asnaskapur sem var „fyndinn“ þá stundina eftir lítinn svefn en bráðskemmtilega stund í Dalnum!
Það var aldrei meiningin að láta þessa færslu standa lengi eða fara víðar, enda eyddi ég henni eftir ca 2 klst. því þá var djókið búið! Og að sjálfsögðu var þetta ekki ætlað alþjóð!!
Jakob Bjarnar reynir að gera úr þessu „frétt“ með því að taka þetta af síðunni minni og kenna mig við manninn minn, sem kemur þessu máli ekkert við. Það er óþarfi að hnýta í Stefán fyrir aulaskapinn í mér!
Solla, ég mun áfram fara á Þjóðhátíð enda er það ein albesta skemmtun sem ég hef sótt og hef ég farið á þær margar. Og mun örugglega syngja hástöfum með í Brekkunni eins og ég gerði jú í fyrrakvöld.
En hér eftir munu Facebook-statusar mínir sennilega flestir fjalla um hvað ég ætla að elda í kvöld eða hvort ég hafi farið í ræktina í morgun.
Þetta kennir manni….
Bestu kveðjur til ykkar allra
Hlynur Guðmundsson // 2.8 2011 kl. 20:12
snilldin við Árna Johnsen er að hann er jafnslæmur söngvari og william hung og syngur lög sem jafnvel leikskólakrakkar ættu að kunna. og það er þess vegna sem við elskum þennan kjána og hann verður þarna aftur , nema ef hann mundi lenda í steininum aftur þá kanski sleppum við…
Elvar Atli Konráðsson // 2.8 2011 kl. 20:35
Anna Björk hlítur að hafa verið mjög drukkin, ég var þarna og það var rífandi stemming hjá meistara Árna, það er dapurlegt hvað sumt fólk er alltaf að skammast yfir Brekkusöngnum. Þetta er einn af hápunktum hátíðarinnar og unga fólkið talar almennt um að þetta sé skemmtilegasti hluturinn á hátíðinni. Árni er afar góður að ná stemmingunni upp og gerir það með sínum hætti, Árni er eitt aðal kennileiti Þjóðhátíðarinnar og mun vonandi spila mörg ár í viðbót.
Berglind // 2.8 2011 kl. 23:23
sko fyrir það fyrsta þá er þetta hátíð EYJA manna enn auðvitað eru allir velkomnir,ef þú vilt 101 stemmingu farðu þá annað,Árni er partur af þessari hátíð sem gerir hana svo skemmtilega,þetta er ekki söngvakeppni enn það er þvílíkt stuð og stemmari í brekkunni þegar árni tekur lagið,þú greynilega kannt ekki að skemmta þér,vertu heima næst því það ætla ég að gera ef Eyfi tekur við einsog þú lagðir til
Elín // 3.8 2011 kl. 01:16
Þú kallar þetta aulahúmor…þú skalt fara varlega með það sem þú skrifar á Facebook og það er greinilega meining í þessu hjá þér. Árni Johnsen er bara langbestur í að sjá um brekkusönginn og vonandi mun hann sjá um hann sem lengst, það skiptir ekki máli hvort fólk heldur lagi eður ei, aðalatriðið er að skemmta sér og syngja með. Þetta er ekki söngvakeppni!
thorgrimur sigfusson // 4.8 2011 kl. 05:50
Veit ekkiekki hvernig manni lidur med høfudid upp i rassgatinu å ser, å eftir ad reyna tad en ad hlusta å Årna johnsen å sama tima hlytur ad vera sårsaukafullt,allt i tessu fina ad kritisera en tetta skitkast å ekki ad eiga ser stad.
Guðný // 8.8 2011 kl. 19:20
Eitt af því alskemmtilegasta sem ég geri í lífinu er að syngja í góðra vina hópi. Ég er því miður svo óheppin að hafa fæðst með fatlaða söngrödd og held mjög illa lagi. Til að gera ekki útaf við vini og vandamenn get ég ekki látið þá ánægju eftir mér að syngja – nema þennan eina klukkutíma á ári, í Brekkunni með Árna. Hann hefur þannig rödd og tónhæð að fólk með mína fötlun getur flotið með án þess að eftir því sé tekið.
„Fagfólkið“ fær að syngja alla hina klukkutíma ársins allstaðar útum allt. Plís leyfið okkur hinum að eiga áfram þennan eina klukkutíma á árinu.
Rita ummæli