Fréttir af …

blogg á eyjan.is

Egill fær það óþvegið

12.4 2011 | 20:28 | 2 ummæli

Lobbi

Lobbi. Efast um að Egill Helgason kunni fimm sinnum töfluna hvað þá meira.

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason hefur marga fjöruna sopið og nú hann fær það óþvegið á Facebook en úr óvæntri hátt. Hagfræðingurinn Guðmundur Ólafsson (1.930 vinir), sem margir þekkja sem Lobba, lætur hann kenna til tevatnsins: „Loksins sýnir fjölmiðlamaðurinn á sér sitt rétta andlit, maður sem aldrei hefur skiliðö neitt flóknara en 5 sinnum töfluna. Hleypidómar og hroki um fræði sem hann veit ekkert um. Hvað ætli hann segi um jarðfræðingana sem spáðu ekki gosinu,“ skrifar Lobbi í Facebook-status um leið og hann krækir í færslu Egils sem ber yfirskriftina: „Hagfræðingar eru hjarðdýr„.

Nokkur umræða spinnst um hagfræðiþekkingu Egils á vegg Lobba og eru menn almennt á einu máli um að hann sé ágætlega að sér um bókmenntir en ætti líklega að forðast að tjá sig um hagfræði og efnahagsmál. Eigandi veggsins bætir í þegar hann segir á athugasemdakerfinu að menn eigi svo sem ekkert að trúa hagfræði sem nýju neti eða skoðunum en þeir geti verið öruggir um … „Egill Helgason hefur rangt fyrir sér í efnahagsmálum og skipar sér þar í flokk með Jónasi frá Hriflu og Halldóri Killjan“.

Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: , , , , ,



Ummæli (2)

  •   Gústaf Níelsson // 12.4 2011 kl. 22:59

    Mér sýnist þetta vera í aðalatriðum rétt hjá Guðmundi Ólafssyni.

  •   Björn Ragnar Björnsson // 12.4 2011 kl. 23:03

    Aðall Egils er að hann er góðum gáfum gæddur og allir sem koma til hans fá að njóta sín. Frá honum fer heldur enginn meiddur. Svo ég taki smá EB stíl á’etta: Looks easy, but who else does it better, or at all for that matter?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og sex? Svar: