1.8 2011 | 15:51 | 37 ummæli

Árni Johnsen. Misþyrmdi hlustum Þjóðhátíðargesta í gær, að sögn Önnu Bjarkar.
„Jæja, það er mesta furða að maður sé enn á lífi eftir brekkusönginn í gær! Hef aldrei áður, og mun aldrei aftur sitja og hlusta á allt draslið (fyrr en skipt verður um forsöngvara)…sjitturinn titturinn, blessaður maðurinn er með tónlistarhæfileika á við heyrnarlausan hamstur! p.s. fyrst textarnir eru nú sýndir á risaskjám í Dalnum, væri þá ekki í lagi að hafa þá allavega rétta??“
Svo ritar Anna Björk Birgisdóttir útvarpsmaður (1.792 vinir) í Facebookstatus en hún er gift tónlistarmanninum Stefáni Hilmarssyni og ætti að vita hvað tónlist er. Anna Björk hreinlega hraunar yfir Árna Johnsen á Facebookvegg sínum. Að hennar mati var Brekkusöngurinn algerlega óbærilegur með Árna sem forsöngvara: „Alltaf stemmari en fólk var komið með hnefana í eyrun á sér til að meika þetta:-/ Við hliðina á mér voru menn sem drukku eins og þeir fengju borgað fyrir það (til að ná úr sér aulahrollinum)….“ skrifar Anna á vegg sinn og heldur áfram eftir að Eyrún Gunnarsdóttir spyr hver gæti tekið við af Árna: „Eyrún, það geta ALLIR tekið við af honum. T.d. apinn Níels….það er ekki hægt annað en að vera betri en Johnseninn… Persónulega myndi ég vilja sjá Eyfa þarna! Hann myndi rúlla þessu upp og allir færu óskaddaðir heim!“ Og: „Þetta var kannski fyndið fyrir 20 árum en brandarinn er lööööööngu búinn!“

Anna Björk. Brandarinn með Árna Johnsen er fyrir löngu búinn.
Ef einhver heldur að Anna Björk hafi látið við svo búið sitja í lýsingum á ömurlegri frammistöðu Árna þá er það ekki svo: „Það skiptir engu hve mörgum koddum maður treður í eyrun og hve mikið áfengi maður drekkur….þetta er svo VONT að það er varla hægt að lýsa því!“ En, Anna Björk reynir þó: „Jahá, hann segist aldrei undirbúa sig. Það fer nú ekki framhjá neinum. Alger skandall að hann skuli ekki enn vera búinn að læra þessi lög sem hann tekur á hverju ári. Ekki eitt einasta lag var flutt skammlaust þarna í gær. Ekki eitt!!!! Eða jú annars…Úti í Eyjum var fínt enda tók Árni sér pásu þá og lét strákana um flutninginn. Og þá gat maður tekið hausinn úr rassgatinu á sér í smá stund.“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Anna Björk Birgisdóttir, apinn Níels, Árni Johnsen, Brekkusöngur, Eyrún Gunnars, Eyvi, forsöngvari, Stefán Hilmars

Stefán Pálsson. Drakk landa af bestu lyst.
Svo virðist, ef marka má sagnfræðinginn Stefán Pálsson (1.202 vinir), að Norðfirðingar séu býsna glúrnir við að brugga landa. Eða eins og segir í statusi hjá Stefáni: „drakk besta landa sem hann hefur fengið. Norðfirðingar kunna þetta.“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: landi, Norðfjörður, Stefán Pálsson
1.8 2011 | 09:44 | 2 ummæli

Árni Pétur. Verður kvensamur í Færeyjum.
Árni Pétur Guðjónsson (1.791 vinir), sá vinsæli leikari, ætlar að reyna við færeyskar konur sem rófulaus hundur á næstunni. Þetta kann að koma vinum hans á óvart en fiskur liggur undir steini. Eða eins og segir í Facebookstatus hans: „er farin til Færeyjar í fyrramálið vegna Hæ Gosa vonandi verð ég ekki laminn ætla að reyna grimt við færeysku dömurnar til að villa á mér heimildir“.
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Árni Pétur, dömur, Færeyjar, villa á sér heimildir

Eva. Finnur enga hormóna á Google plús.
Þeir voru ýmsir snillingarnir sem létu ljós sitt skína í vikunni sem var að líða með snjöllum statusum. Þeir eru eftirfarandi:
Sindri Freysson: Stormur að bresta á í Vestmannaeyjum – vonast er til að Árni Johnsen fjúki á haf út með gítarnum.
Lára Björg Björnsdóttir: þið getið tekið þessa helgi og troðið henni.
Einar Bárðarson: Stærsta Facebook Verslunarmannahelgi allra tíma framundan – grenjandi rigning og allir inni a Facebook í símum, laptops med pungsa og heima a borðtölvum !!! Enjoy
Auður Húnfjörð: skoðar Tekjublað DV með framtíðar makaval í huga !
Eva Hauksdóttir: Það einkennir gott partý að einmitt þegar maður er búinn að ná góðum kontakt og er virkilega farinn að fíla sig, fer einhver að tala um að fara eitthvert. Venjulega á hundleiðinlegan skemmtistað eða í slappara partý. Ég skil það því venjulega eru hormónar þar að verki. Ég skil hinsvegar ekki hversvegna þetta ágæta partý ætti að færa sig á google plús. Ég er búin að gá, það eru engir hormónar þar.
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Árni Johnsen, Auður Húnfjörð, DV, Einar Bárðarson, Eva Hauksdóttir, Lára Björg, Sindri Freysson, tekjublað, Verslunarmannahelgi

Dr. Gunni. Meðal þess sem varð til að vekja ótta með Doktornum voru blindfullir KR-helmútar.
Fjölmiðlamaðurinn Gunnar L. Hjálmarsson (1.487 vinir), sem flestir þekkja betur sem Dr. Gunna, lenti heldur betur í hremmingum nú í dag þar sem hann fór um á sínum reiðfák: „Óshlíð á hjóli, sturlaðar kríur, blindfullir KR helmútar á fótboltaleik. Skerí sunnudagur að kvöldi kominn.“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: brjálaðar kríur, Dr. Gunni, fótboltaleikur, KR-helmútar, Óshlíð, skerí sunnudagur
28.7 2011 | 17:24 | 2 ummæli

Helgi Seljan. Einhver greindasti, hugrakkasti og húmorískasti Íslendingur vorra tíma.
Ritstjóri hins væntanlega vikurits á Akureyri, Björn Þorláksson (1.362 vinir), er einlægur aðdáandi sjónvarpsmannsins Helga Seljan. Björn fer hvergi leynt með þessa hrifningu því hann skrifar í nýlegum Facebookstatus: „er á því að Helgi Seljan fréttamaður sé í hópi mikilvægustu Íslendinga landsins. Hann er bæði skarpur, húmorískur og hugrakkur. Slík mannlýsing er fágæt á Íslandi hinna síðari tíma…“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: aðdáun, Björn Þorláksson, dýrkun, Helgi Seljan, hrifning, hugrakkur, húmorískur, mikilvægur, skarpur

Bubbi Morthens. Mjög ósáttur við að álagningaseðlar liggi frammi.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens (1.259 vinir) er skoðanabróðir þeirra í SUS og Heimdalli hvað varðar að útsvar manna liggi í þagnargildi. Hann segir í nýjum Facebookstatusi: „Djöfull er mér slétt sama hvað Pétur- Jón -skúli- Magga- Sigga eru með í tekjur hvað er að þessu lið sem básúnar við verðum að vita hvað þú hefur í tekjur.hvað kostaði eldhúsborðið þitt Klósettið bla bla þetta er að verða einn Stóri bróðir þetta þjóðfélag og af öllum er DV. að reina sannfæra mig um að þetta sé eitt mesta rélættis mál seinni tíma Nei er ekki sammó.“

Helgi Seljan. Vill byltingarmaðurinn sem heimtar allt uppá borð - sitt undir borð?
Helgi Seljan sjónvarpsmaður er ekki á sama máli og skrifar í athugasemd hjá Bubba: „Þessar upplýsingar hafa verið birtar síðan áður en ég byrjaði að muna eftir mér. Finnst þér þetta í alvörunn vera issue? Hvað er svona skammarlegt við að einhver viti hvað maður hefur í laun?“ Og bætir við: „Væri ekki tortryggnin og þá öfundin enn meiri ef ekki væri fyrir þessa birtingu? Er nú byltingarmaðurinn sem heimtaði allt upp á borðið farinn að heimta sitt undir borðið?“ En Bubbi hefur svörin á reiðum höndum og líkir þessari upplýsingagjöf við það að einhver sé að gæjast inn í svefnherbergi sitt: „Helgi ég vil hafa mína hluti í friði. Hvað ég geri í rúminu hvað ég er með í laun og önnu smá mál það kemur öngvum við hvað ég er með í laun öngvum, hef altaf talið þetta bull.Núna eru þeir farnir að fylgjast með kerdikortinu mínu þetta er Stóribróðir og þetta vesnar bara.,“
Helgi svarar þessu til svo: „Hver er að fylgjast með kreditkortinu þínu sem hefur ekki alltaf gert það? Á þá ekki jaffnt yfir alla að ganga. Eigum við ekki að gera fyrirtækjum það valfrjálst að skila ársreikningum, eins og það hefur reyndast næstum verið, og bannað skattinum að skoða kortanotkun þeirra sem mesta monningana eiga.“ Og hnýtir við: „Svo held ég að þú ofmetir stórkostlega áhuga minn og annarra á því að vita hvað þú gerir í rúminu þínu Bubbi minn.“ En þá er líka Bubba nóg boðið og er farinn út í garð: „strákar þið getið gargað og hvabbað og pönkast og rabbað en ég legg það að jöfnnu sjúklegur áhugi ykkar á fjármálum annar og hvað menn gera í rúmminu hvatin er sá sami og þar með loka ég á ferkari spjall um þetta er farin í útí milda riggningu og tína upp arfa.“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Bubbi, Heimdallur, Helgi Seljan, skattur, Stóri bróðir, SUS
27.7 2011 | 12:59 | 7 ummæli

Þórarinn Leifsson. Hefur illan bifur á Erni Johnson byssusmiði.
Þórarinn Leifsson (1.225 vinir), teiknari og rithöfundur, fylgist grannt með á Internetinu og liggur yfirleitt hvergi á skoðunum sínum. Hann krækir í blogg Björvins Vals Björgvinssonar á Facebooksíðu sinni sem býsnast á Erni Johnson byssusmiði, sem hefur verið mjög á milli tanna Netverja eftir að hann lét óviðurkvæmilega athugasemd falla við pistil Karls Th. Birgissonar ritstjóra. (Örn tekur reyndar fram að hann hafi beðið Karl afsökunar á þeim ummælum í athugasemd við blogg Björgvins.)
Þórarinn upplýsir í Facebookstatus, sem fylgir krækjunni, að hann hafi átt í samskiptum við téðan Örn og ber honum ekki vel söguna: „Örn Johnsen er náunginn sem ég hringdi í frá Barcelona eftir að hann skrifaði óbeina hótun til konu minnar [Auður Jónsdóttir] þegar hún og fleiri stóðu í hasar út af fræðibók um Íslam. Johnsen var auðvitað eins og asni í símanum enda ekki vanur að þurfa að taka ábyrgð á neinu. Byssusmiður, það var og. Breytir byssum?“ Þórarinn bætir svo við í athugasemd: „Svo ári seinna var hann eitthvað að abbast upp á mig fullur í Þjóðleikhúskjallaranum.“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Auður Jónsdóttir, Björgvin Valur, byssusmiður, fullur, Karl Th. Birgisson, Örn Johnsen, Þjóðleikhúskjallarinn, Þórarinn Leifsson

Baldur og Felix. Ósvífnir starrar reyndu að stela rifsberjum þeirra í nótt.
Felix Bergsson (4.842 vinir), fjölmiðlamaður og skemmtikraftur, greindi frá dramatískum slagsmálum sem eiginmaður hans, Baldur Þórhallsson prófessor, lenti í í nótt, í nýjum Facebookstatus: „eiginmaðurinn lenti í slag við þjófa í fyrrinótt. það voru starrar að reyna að stela öllum rifsberjunum okkar, undan netinu sem við erum búnir að setja yfir þau!! þvílík ósvífni! eiginmaðurinn fór út um 4 leytið til að lesa þeim pistilinn.. næst köllum við á lögregluna..“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Baldur Þórhallsson, Felix Bergsson, ósvífni, rifsber, slagsmál, starrar
26.7 2011 | 19:10 | 1 ummæli

Þórunn. Henni þykir ómerkileg umræðan sem Eygló Harðardóttir efnir til - um laun þingmanna.
Þórunn Sigurðardóttir (931 vinir), stjórnarformaður Ago, sem sér um rekstur Hörpu tónlistarhúss, krækir í frétt Eyjunnar sem spunnin er um blogg Eyglóar Harðardóttur alþingismanns. Eygló gerir laun þingmanna að umtalsefni en Þórunn lætur sér fátt um finnast því krækjunni fylgir eftirfarandi Facebookstatus: „ótrúlega óinteressant umræða, það eru bara aumingjar sem vilja ofurlaun – ofurlaun eru fyrir aumingja – munið það!“
Eyvindur Karlsson, spaugari með meiru, segir í athugasemdakerfi: „Þingmenn ættu að fá lægri laun en leikskólakennarar, enda töluvert ómerkilegri vinna.“ Og Þórunn er frekar á því: „óskiljanlegt að þingmaður skuli bera sjálfa sig saman við aðra með þessum hætti – já líklega eru það svona konur sem lækka laun þingmanna!“
Flokkar: Óflokkað
Efnisorð: Eygló Harðardóttir, Eyjan, Eyvindur Karlsson, laun, þingmenn, Þórunn Sigurðardóttir