Negri í Þistilfirði


Facebook

Timarit.is er snilld, þar er hægt að grufla í gömlum dagblöðum. Félagi minn sendi mér þessa síðu úr dagblaðinu Degi frá 9. febrúar 1977. Þetta er líklega ein frægasta fyrirsögn íslenskrar blaðamennskusögu, 3dálkur á baksíðu. Birt hér í tilefni af tónleikum Bubba gegn rasisma. Smellið á til að lesa fréttina sjálfa:

negri.jpg

dagur1.jpgÞarna hafði fréttaritari Dags í Þistilfirði brugðið sér í heimsókn að Gunnarsstöðum (æskuheimili Steingríms J. Sigfússonar) til þess að líta eigin augum „negrann“ sem þar var orðinn vinnumaður. Það er greinilegt að ábúendur þar hafa verið víðsýnir og á undan sínum samtíma. Texti fréttaritarans er hins vegar löðrandi í afdalamennsku og fordómum. Smellið á og lesið, það er magnað að þetta hafi verið 3 dálkur á íslensku dagblaði fyrir 31 ári síðan. Smellið á þumalinn hér til hliðar til að sjá síðuna í heild.

Ummæli (6)

  1. Sveinn skrifaði:

    Þetta er náttúrlega dásamleg frétt og furðulegt að hún hafi verið skrifuð fyrir aðeins 30 árum. En hvað varð um „negrann í Þistilfirði“? Staldraði hann aðeins við í einn vetur á Íslandi eða fer einhverjum sögum af honum? Það ætti einhver að hringja í Jóhannes Sigfússon og fá fréttir af afdrifum þessa forvitnilega og allt að því goðsagnakennda manns.

    20.2 2008 kl 13:35 #
  2. Baldur McQueen skrifaði:

    Áhugaverður fundur :-)

    Svipaða afdalamennsku má sjá í celleb-“fréttum“ nútímans, sem alþýðan les til að fullnægja gluggagæju fíkninni.

    20.2 2008 kl 14:04 #
  3. Venni skrifaði:

    mér finnst þetta nú vera ósköp vinarleg frétt í Degi

    20.2 2008 kl 16:10 #
  4. Bryndís skrifaði:

    „Það er greinilegt að ábúendur þar hafa verið víðsýnir og á undan sínum samtíma. Texti fréttaritarans er hins vegar löðrandi í afdalamennsku og fordómum.“

    Má ég benda á að Ó.H. var Óli Halldórsson bóndi á Gunnarsstöðum þannig að skv. þér hefur hann verið víðsýnn afdalamaður fullur af fordómum og á undan sinni samtíð!
    Annars finnst mér þetta krúttleg frétt og skemmtileg heimild um samfélagið í Þistilfirði á þessum árum.
    Kv. Dísa

    20.2 2008 kl 16:27 #
  5. Siggi skrifaði:

    Fyrirsögnin er auðvitað klassísk. Gætirðu skýrt ögn nánar hvað í pistlinum er að þínu mati afdalamennska og hvað eru fordómar? Þá á ég við hvað myndi falla undir slíkar skilgreiningar á mælikvarða þeirra tíma sem fréttin var skrifuð á, en ekki á mælikvarða nútíma þéttbýlisbúa, sem væri marklaus samanburður.

    21.2 2008 kl 9:13 #
  6. Jón Steinar skrifaði:

    Það er nú ekki hægt að núa Þistilfirðingum fásinni um nasir, þegar hver stóratburðurinn rekur annan þar um slóðir. Fyrst dúkkar upp Negri og nú Ísbjörn!

    Gott að vita að við höfum sett heimamann á Gunnarstöðum til að ná samkomulagi um framtíð lands og þjóðar í Icesave. Betra getur það ekki orðið. Menn sem hafa alist upp í svona sviptingum eru færir í flestan sjó.

    30.1 2010 kl 0:52 #

Rita ummæli

Netfangið birtist ekki. Reitir merktir með * er nauðsynlegt að fylla út.

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):