Síðustu mánuði hefur verið dregið fram við öll möguleg og ómöguleg tækifæri allskyns fólk sem sagt er hafa spáð fyrir um hrun bankakerfisins. Það hefur verið afar skemmtilegt og áhugavert að hlusta á marga þessa fræðimenn (spámenn?) og auðvitað vildi maður að almennt hefði verið meira tekið til varnaðarorða þeirra. Sumir spáðu hruninu í fyrra, aðrir strax á árinu 2006, sumir jafnvel á árinu 2003!
Þess vegna fannst mér magnað að rekast á þessi skrif;
„Owners of capital will stimulate the working class to buy more and more of expensive goods, houses and technology, pushing them to take more and more expensive credits, until their debt becomes unbearable. The unpaid debt will lead to bankruptcy of banks, which will have to be nationalised, …“
ég auðvitað hugsaði – „hey, þarna er maður sem þyrfti að fá pláss á sjónvarpsskjánum, Kastljósinu eða jafnvel Silfrinu, hann sá þetta greinilega allt fyrir“. ! Og hann hélt áfram:
„… and the State will have to take the road which will eventually lead to communism. “
En að líkindinum á hann ekki heimangengt, enda skrifaði hann þetta ekki í fyrra, ekki árið 2006 og ekki einusinni árið 2003. Heldur … árið 1867.
Já, maðurinn er einn umtalaðasti hagfræðingur allra tíma, sjálfur Karl Marx og skrifaði þetta í höfuðrit sitt, Das Kapital.

Anna Sigrún Baldursdóttir
Ummæli (10)
Héðinn Björnsson // 7.5 2009 kl. 01:02
Og þar ertu komin með það plan B sem þú varst að lýsa eftir.
Húsmóðir í Vesturbænum // 7.5 2009 kl. 01:12
Nja, Plan B sem ég lýsti eftir var plan B sem myndi tryggja ESB-aðild … en án þess stefnir sannarlega í að Marx verði full-sannspár!
Aðalsteinn J. Halldórsson // 7.5 2009 kl. 08:26
Hann sagði nú örugglega líka að kommúnisminn myndi fyrst spretta upp í Bretlandi og síðast í Rússlandi! Það verður líklega ekki hermt upp á hann að það hafi gengið eftir.
Húsmóðir í Vesturbænum // 7.5 2009 kl. 08:44
Aðalsteinn: já, og hvað? Skil ekki alveg hvað þú ert að fara …
bjarki // 7.5 2009 kl. 09:37
Það er bara verst að þetta er feik.
http://www.garynorth.com/public/4684.cfm
bjarki // 7.5 2009 kl. 09:40
Sjá einnig hér: http://bespokebrands.blogspot.com/2009/01/karl-marx-quote-1867.html
Arnar // 7.5 2009 kl. 09:54
Þessi tilvitnun finnst að ég held hvergi nokkurs staðar í ritum gamla mannsins. Þótt hann hafi verið spámaður að mörgu leyti, og ótrúlega glámskyggn í sumu, þá hafa einhverjir prakkarar skrifað þetta fyrir hann og sett á flot á netinu.
Andri // 7.5 2009 kl. 10:23
Lestu þetta:
http://liberation.typepad.com/liberation/2009/01/did-marx-predict-the-current-economic-crisis.html
Húsmóðir í Vesturbænum // 7.5 2009 kl. 16:26
Allt í plati?
Nú hef ég ekki lesið „Das Kapital“ og geld venjulega varhug við samsæriskenningum eins og þeim sem ágætir lesendur hafa komið hér á framfæri … sjálf fann ég fullyrðingar um að þetta væri fals á einhverju sem heitir „Free Utah“.
Væri gaman ef einhver fróður um Marx myndi skera úr um þetta …
Sigurður // 7.5 2009 kl. 17:55
Marx hafði oft rétt fyrir sér.
En í þriðja ritinu das Kapital skrifa Marx um fjármálakreppur, offramleiðslukreppur. Og hann skrifa líka um það að þegar kapítalistarnir fara að versla með bréf sem engin raunveruleg verðmæti liggja á bak við. Hlutir sem við þekkjum vel.
En platið hérna að ofan er greinilegt vegna þess að lánastarfsemi til launþega á tímum Marx var nánast engin.
Rita ummæli