Húsmóðir í Vesturbænum

áskilur sér rétt til að hafa skoðun … jafnvel aðra en maðurinn hennar!

Fífl dagsins

23.1 2009 | 18:00 | 24 ummæli

Tíðindi af heilsufari Geirs Haarde eru grafalvarleg.

Að hans sögn var honum tilkynnt að æxlið er illkynja á þriðjudag. Daginn eftir var gerður að honum aðsúgur, hann kom fram í fjölmiðlum og sinnti sínu starfi. En andlegt álag á forsætisráðherrann hefur verið gríðarlegt og það veit sá sem allt veit að ekki hefur það haft góð áhrif á hið vaxandi mein. Geir hefur sýnt ótrúlegan andlegan styrk síðustu daga miðað við aðstæður. Margur hefði algerlega bugast.

Öllu hugsandi fólki er ljóst að þessi tíðindi eru grafalvarleg og ljóst að engan tíma má missa í meðferð þessa illkynja meins. Í því ljósi að forsætisráðherra verður fjarri störfum næstu vikur eiga veikindi hans fullt erindi við þjóðina og hann á þakkir skyldar fyrir að tilkynna okkur þetta svo fljótt. Ég ber virðingu fyrir þeim trúnaði sem Geir sýnir samborgurum sínum.

Það gera ekki allir, sbr. Hörð Torfason sem af stjarnfræðilegu gáleysi tjáir sig um málið af vanstillingu og tillitsleysi sbr. þetta; http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/23/haenuskref_i_retta_att/

Þar breyttist „maður ársins“ í fífl dagsins.

Ég óska Geir alls hins besta í erfiðri meðferð framundan og, já, bið honum og fjölskyldu hans guðsblessunar.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (24)

  •   Jón H. Eíríksson // 23.1 2009 kl. 18:31

    Ég sé enga ástæðu til að úthrópa Hörð þó hann hafi þessa skoðun á tilkynningu Geirs. Alveg er ég viss um að hans velvilji og óskir um skjótan bata liggi jafnt hjá honum eins og öðrum. En það má segja að þetta sé vanhugsað hjá Herði. Geir gat ekkert annað en tilkynnt þetta. Annars hefði þetta bara kvisast út með öllu sem því fylgir og það er sko ekki betra. En það er ekkert óeðlilegt þó menn hafi skoðun á stað og stund tilkynningu sem þessarar.

    Eftir stendur að kröfum stórs hluta mótmælenda hefur ekki verið að fullu mætt.

    Ég get sætt mig við að þessi ríkisstjórn sitji fram að vorkosningum EF byrjað verður strax á hreingerningunni í SÍ og FME. Samhliða því þá er ekkert óeðlilegt að til komi uppstokkun á Ráðherrum. http://jhe.blog.is/blog/jhe/entry/780824/

    Það er að heyra á Þorgerði að hún geri sér grein fyrir hvað þarf að gera til að þessi ríkisstjórn verði starfhæf fram að kosningum. Vonandi ná Sjálfstæðisflokkur og Samfylking saman núna um uppsagnir og afsagnir sem áttu að eiga sér stað strax eftir Hrunið.

  •   alla // 23.1 2009 kl. 18:48

    Held allt sæmilega þenkjandi fólk taki heilshugar undir þetta hjá þér.

  •   Potturinn.com » Blog Archive » Fífl Dagsins II // 23.1 2009 kl. 19:00

    [...] ætla að leyfa mér að birta færslu Önnu Sigrúnar um Fífl dagsins. Ég var búinn að vera að skrifa færslu, þegar ég rakst á þessa færslu. Ég hefði ekki [...]

  •   Friðrik // 23.1 2009 kl. 19:01

    Sæl Anna

    Já, Hörður er fífl dagsins númer 1.

    En Hörður Torfa á samt í harðir samkeppni við bloggara hér á eyjunni sem heitir Þráinn Bertelsson, http://thrainn.eyjan.is/, þar sem hann sýnir og sannar að aldur hefur ekkert með þroska að gera.

    Hvílíkt fífl og fáviti (afsakið orðbragðið). Maður sem lætur svona frá sér fara ætti að leita sér aðstoðar sem ALLRA fyrst því hans innra mein er greinilega illkynja og þarfnast meðferðar strax.

  •   friðrik // 23.1 2009 kl. 19:26

    Næstum sama dag og Geir er steypt úr stóli eftir að vera einn hataðasti maður Íslands síðustu 3 mánuði, fer hann í veikindafrí. Það kemur hvergi fram að Herði hafi verið tilkynnt um hversu alvarleg veikindin eru. Það er gert til að gera greinina athyglisverða fyrir fólk sem spyr aldrei spurninga, trúir öllu sem það les.

  •   Baldur // 23.1 2009 kl. 19:29

    Sé nú bara nákvæmlega ekkert athugavert við færslu Þráins. Vitað er að forsvarsmenn ríkisstjórnar hverju sinni eru undir miklu álagi. Og það er staðreynd að Davíð, Halldór, Ingibjörg Sólrún og nú Geir hafa greinst með erfiða sjúkdóma á meðan þau voru í starfi. Þetta kallar á læknisfræðilegar rannsóknir. Hlutur streitu sem krabbameinsvaka er lítt sem ekkert rannsakaður.

    Hvað mótmælin varðar, sem Hörður stendur að ásamt þúsundum annarra, þá munu þau halda áfram. Stjórnin situr enn, spillingaröflin eru enn að. Óljós dagsetning kosninga breytir þar engu um.

    Bataóskir til allra sjúkra. Megi kosningar forða okkur frá því að núverandi stjórn leggi heilbrigðiskerfið í rúst.

  •   Priscilla // 23.1 2009 kl. 19:38

    Á nú umræðan að detta niður á þetta plan?

    –Að úthrópa einstaklinga fífl?

  •   Húsmóðir í Vesturbænum // 23.1 2009 kl. 19:56

    Pricilla, settu netfangið þitt með.

  •   Haukur Sigurbjörn Magnússon // 23.1 2009 kl. 19:58

    Nafn og netfang meðfylgjandi.

    Tek undir með Priscillu.

    HSM

  •   Húsmóðir í Vesturbænum // 23.1 2009 kl. 20:07

    Ég stend við útnefninguna. Þetta var fyrir neðan allar hellur.
    Hins vegar er nýr dagur á morgun.

  •   Þórir Gunnar // 23.1 2009 kl. 20:16

    Óheppilega orðað.
    Auðvitað er ömurlegt að maðurinn sé með krabbamein en það kemur stjórnmál bara ekki neitt við.
    Ef hann er svona veikur verður hann bara taka sér leyfi frá vinnu.
    Það er algerlega óviðunandi að hafa báða leiðtoga ríkisstjórnarinnar fársjúka og viðkvæma í sífelldar aðgerðir út í heim.
    Á meðan landið er í upplausn.
    Mjög óábyrgt af þeim stjórum að reyna halda í völdin svona.

  •   Ibba Sig. // 23.1 2009 kl. 20:30

    Best að taka það fram að Hörður talar ekki fyrir neinn annann en sjálfan sig og ef einhver er óánægður með það sem hann segir er það í góðu lagi. En í guðanna bænum ekki láta eins og hann sé „rödd mótmælenda“. Hann er gæinn sem mætir með míkrafóninn, ekkert meira og ekkert minna.

    Að þessu sögðu langar mig að taka pínu ponsu undir með Herði. Af hverju að blanda einkalífinu og pólitíkinni saman í einn blaðamannafund? Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það sé undirliggjandi pólitísk ástæða fyrir þessu og þá hver hún sé.

    En ég vona að Geir gangi vel að takast á við þessi veikindi og verði stálsleginn áður en langt um líður.

  •   TómasHa // 23.1 2009 kl. 20:41

    Ef Hörður vissi ekki um alvarleika veikindanna hefði hann alveg getað sleppt því að tjá sig um þau. Honum hefði verið í lófa lagt að lýsa því bara yfir að þangað til ríkisstjórnin færi frá völdum yrði mótmælt, án þess að blanda veikindum Geirs inn í þetta mál.

  •   Hörður Már Karlsson // 23.1 2009 kl. 20:54

    Mikið er ég sammála þér. Hörður er farinn að stjórnast af hatri. Það skilar engu. Þessi litli maður ætti að láta sig hverfa.

  •   Sturla M // 23.1 2009 kl. 21:05

    Fáum stöðum annarsstaðar í heiminum en á Íslandi nýta stjórnmálamenn veikindi sín eða ættingja sinna sér til framdráttar. Kalla á meðaumkunn og frið. Gera sína persónu æðri pólitískum málefnum og þörfum þjóðarinnar. Ef sagan er skoðuð skilur fólk hvað ég á við. Því víðast hvar í hinum vestræna heimi fara veikir stjórnmálamenn frá án sérstakra skýringa, treysta heilbryggðu fólki betur. Persónulega líf þeirra er þeirra einkalíf og kemur stjórnmálum lítið við. Þetta er það sem þeir sjálfir, pólitíkusarnir hamra á. Geir Hilmar Haarde hefur sjálfur talað um þetta undanfarnar vikur. Nú hins vegar passar að draga einkalífið inn í pólitískar ákvarðanir. Báðir formennirnir eiga umsvifalaust að víkja. Þau eru ófær um að taka á málum, fár sjúk. Almenningur skilur það. Af hverju ekki þau?

  •   árni aðals // 23.1 2009 kl. 21:24

    en tímasetningin hjá Geir er nú svoldið útí hött,kemur út einsog afsökun fyrir kosningum,er hann ekki maðurinn sem sagði við skulum nú ekki persónugera vandamálin?annars hefði bara Hörður átt að halda sig við að stjórnin situr enn og enginn axlar ábyrgð svo að sjálfsögðu halda mótmælin áfram,klaufalegt hjá Herði og líka hjá Geir sem átti ekki að bera sín veikindi á borð um leið og hann tilkynnti um uppgjöf sjálfstæðisflokksins á stjórn ríkisismála

  •   Þráinn Kristinsson // 23.1 2009 kl. 21:29

    Veikindi Geirs eru alvarleg tíðindi fyrir hann og fjölskyldu hans. Fjöldi manns er að glíma við alvarleg veikind og fjárhagslega erfiðleika samtímis. Gangi honum vel og það þarf ekki að segja fleiri orð um það.

    þessi hystería er undarleg svona svipuð og hysterían út af imbunum sem réðust á lögguna.

  •   Birna P // 23.1 2009 kl. 23:06

    fólk, almennt, hefur þurft að sýna andlegan styrk og stillingu í þessum hremmingum. En svo kemur alltaf dagur eftir þennan…..

  •   Aldís B. // 23.1 2009 kl. 23:12

    Mjög óheppilega til orða tekið hjá Herði.

    En á vissan hátt verð ég að taka undir með honum. Geirs persónulega líf ætti að vera hans persónulega líf. Maður veltir fyrir sér þessari tilkynningu í dag og ég skil hana ekki. Mér hefði þótt viðeigandi að hann tilkynnti okkur um veikindi sín ef hann á sama tíma væri að tilkynna að hann færi frá strax. Því var hann að tilkynna okkur um veikindi sín? Hann ætlar að sitja áfram þótt svo hann sé veikur og með þeim gjörningi finnst mér eins og hann sé í sömu andrá að segja okkur að veikindi hans koma okkur ekki við. Soldið furðulegt.

    Ég óska honum bata en finnst stórkrítið að fársjúkur maður ætli að stjórna landinu.

  •   Aðalheiður Sigursveinsdóttir // 23.1 2009 kl. 23:32

    Sæl Anna,
    Mikið er gott að sjá þig aftur á blogginu, er einn af þínum reglulegu lesendum. Ég er algjörlega sammála þér varðandi ummæli Harðar T sem annars virkar á mig sem góður maður, réttsýnn og hefur verið heiðarlegur baráttumaður, en þessi ummæli hans eru óskiljanleg.

    Bestur kveðju,

  •   Hjörtur Howser // 24.1 2009 kl. 06:06

    Veikir menn eiga að taka sér veikindafrí, um það ætla ég að menn deili ekki. Krabbameinsmeðferð er, ein og sér, slíkt álag á þann sjúka að engu öðru er á bætandi. Því eiga þessir aðilar tafarlaust að segja af sér og snúa sér heilshugar að sínum veikindum og vonandi bata.
    Ef þið, sem teljið ykkur þess umkomin að úthrópa og ata auri Hörð Torfason, gætuð HLUSTAÐ á viðtalið umtalaða með eyrun opin og hugann stilltan á móttöku mynduð þið skilja það sem hann sagði.
    Skammist ykkar fyrir lágkúruleg ummæli ykkar um þann eina Íslending sem hafði kjark til að hefja mótmæli þau sem nú eru loks að skila árangri.
    Geir er veikur, Ingibjörg líka og nú ætlar Þorgerður að taka við en færri vita að hún stríðir einnig við alvarleg veikindi lítillar dóttur sinnar. Við þurfum mannskap með óskerta starfsorku og fulla einbeitingu í þeim hreingerningum sem framundan eru, ekki fólk sem á fullt í fangi með sjálft sig og sína.
    Og ef þið þurfið að fá sjokktrítment til að vakna til meðvitundar þá skulið þið kynna ykkur nýjustu tölur um sjálfsvíg í landinu og bera saman við fjölda víga undanfarin ár. Ætli samúð ykkar væri ekki betur varið hjá fjölskyldum þeirra sem hrunið mikla hefur svo snautlega lagt af velli?

  •   Húsmóðir í Vesturbænum // 24.1 2009 kl. 10:34

    Hjörtur,
    ég hlustaði á viðtalið Hörð og eiginlega varð það bara verra.
    Og svo því sé til haga haldið þá hef ég dáðst að framgöngu Harðar fram að þessu og hef ekki skipt um skoðun á því þó ég telji hann hafa misstigið sig illilega þarna.

  •   Húsmóðir í Vesturbænum // 24.1 2009 kl. 10:41

    Fleira, sem til haga skal haldið.
    Skoðun mín á ummælum Harðar hafa ekkert með afstöðu mína til stjórnmálaástandsins að gera.
    Um þá afstöðu má lesa víða hér á þessu bloggi.

  •   Guðrún Hlín // 24.1 2009 kl. 11:51

    Ég hef meiri áhyggjur af YFIRGANG og SKOÐANAKÚGUN en því sem Hörður sagði.Ég hef meiri áhyggjur FÁTÆKT hjá BÖRNUM LANDSINS.Óréttlæti er að við sjáum FJÖLSKYLDUR sökka æ DÝPRA í SKULDAFEN.ÁFRAM HÖRÐUR þú gerir meira gott en þessi FRÚ í vesturbænum.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og átta? Svar: