5.5 2012 | 13:06 | 3 ummæli
Fjölmiðlar eru áhrifamestu íslenskukennararnir. Eða eins og ég hef sagt áratugum saman: Langtum áhrifameiri en allir íslenskukennarar í skólum samanlagðir.
Gaman að nýyrðum sem fjölmiðlarnir skapa. Ríkisútvarpið reið á vaðið núna í morgun með nýyrðinu lóðsmaður. Vefurinn mbl.is fetaði í sporið enda ætti að vera hægt að treysta sjálfu Ríkisútvarpinu, lögskipuðum varðhundi íslenskrar tungu.
Fetaði í sporið, sagði ég hátíðlega.
Át upp, hefði mátt segja.
Nema svona ótrúlegir frumkvöðlar íslenskrar tungu hafi verið á vakt á báðum þessum miðlum.
Fram að þessu hefur verið talað um lóðs eða hafnsögumann.
Ríkisútvarpið og vefurinn mbl.is eru áhrifamestu fjölmiðlar landsins.
Þeir eru áhrifamestu íslenskukennararnir.
Tek fram, að ég er ekki Eiður Guðnason.
Flokkar: Óflokkað
29.4 2012 | 20:35 | 5 ummæli
Er með höfnunarkennd varðandi skoðanakannanir. Ár eftir ár, áratug eftir áratug og bráðum öld eftir öld er verið að birta niðurstöður skoðanakannana. En: Aldrei er ég spurður. Þó hefur sími verið á mínu heimili samfellt a.m.k. frá bernsku minni laust eftir andlát Hitlers. Þó hef ég verið með netfang frá upphafi netfanga. Þó hef ég verið með póstfang alla ævi. Þó hef ég jafnan verið á ráfi á almannafæri.
En enginn spyr mig.
Mér fór að að þykja þetta skrítið – fékk höfnunarkennd – og þess vegna hef ég spurt fólk öðru hverju seinni ár.
Enginn sem ég hef spurt hefur lent í skoðanakönnun. Ekki frekar en ég.
Einu sinni spurðist ég fyrir um þetta hjá skoðanakönnunarfyrirtæki. Var bara sagt að bara svona bara væri bara tölfræðin bara svona bara.
Kannski yrði ég spurður eftir mánuð. Kannski yrði ég spurður eftir tvö hundruð ár. Kannski aldrei. Bara svona bara svona bara.
Hefi ákveðið að stofna skoðanakönnunarfyrirtæki. Hefi reynslu af áðurgreindum spurningum mínum um þátttöku í skoðanakönnunum.
Sendið mér óskir um spurningar og niðurstöður. Verð krónur milljón pr. könnun. Skila niðurstöðum innan fimm mínútna.
Fyrirtæki mitt lofar þeim sem verða ekki spurðir eftir tvö hundruð ár að þeir verði spurðir eftir þrjú hundruð ár.
Bara svona bara.
Flokkar: Óflokkað
21.4 2012 | 21:46 | 4 ummæli
Eignarhaldsfélag mitt missti af Kerinu í Grímsnesi.
Þó er nóttin ekki úti.
Mývatn, varpstöðvar fugla við Breiðafjörð, Gullfoss, angan úr nýslegu grasi um land allt, norðurljósin.
Hver er memm? Moggaforstjórinn? Huang Nubo? Landsbankinn? Einhver?
Ríkið kostar bílastæðin en ég sel hamborgara og smokka og franskar og allan andskotann og merki styrktaraðila (eins og það heitir á málleysi aðila sem eru með aðila á heilanum) og rukka fyrir stæðin.
Hvar er best að hafa bílastæði fyrir norðurljósin?
Flokkar: Óflokkað
17.4 2012 | 19:03 | 3 ummæli
Þótt ég hafi orð á mér fyrir fáránshúmor vil ég ekki nefna hér dæmi um úrskurði mannanafnanefndar enda toppa þeir minn húmor.
Samt vildi ég komast í nefndina og fá peninga og öl og snittur og starfa mér til gamans með Æra-Tobba, Franz Kafka og Sigurði Guðmundssyni málara (báðum) og öðru skemmtilegu og ábyrgu fólki.
Sakborningar eru skikkaðir í geðrannsókn en samt ekki mannanafnanefnd.
– Evan Friedrich Stalín Jónsson, p.t. Reykhólum við Breiðafjörð.
Flokkar: Óflokkað
9.3 2012 | 21:42 | 1 ummæli
Mikið er gaman í Safnahúsinu við Hverfisgötu þessa dagana.
Líflegra en þegar þar voru bara minjar og skræður og verðir þar til gerðir sem litu út eins og minjar og skræður og voru það.
Kom þangað stundum þegar úngur ég var fyrir hálfri öld.
Gaman að fylgjast með beinum lýsingum núna. Viðtöl í leikhléi. Allir kátir (nánast allir), vitni og dómarar tæta af sér brandara. Missti af yfirheyrslu yfir Sakborningnum Eina Jesú Kristi en á myndum er hann glaður eins og aðrir og heilsar og blessar í bak og fyrir. Mikið ef hann breytir ekki vatni í vín og gengur á vatninu áður en hann breytir því í vín.
Þyrnikórónur særa ekki, þær kitla notalega, einkum upp á framtíðina.
Var verið að líkja við eitthvað í Þjóðleikhúsinu?
Nánast allir brosa gleitt og „veita fjölmiðlaviðtöl“ eins og það kallast á fjölmiðlaveitingamannamáli.
Nema einn sem ég sá.
Hreiðar Már Sigurðsson eða hvað hann heitir sá.
Að mér læðist fól: Skyldi hann vera sá eini sem er þarna í alvöru?
Tekið skal fram, að síðuhaldari er óskyldur og ótengdur Hreiðari Má þessum (gildir líka um Victor Hugo), hefur aldrei hitt hann eða talað við hann (gildir líka um Victor Hugo) og var aldrei í neinum viðskiptum við hann (las þegar úngur ég var eitthvað eftir Victor Hugo).
Flokkar: Óflokkað
7.3 2012 | 01:28 | 2 ummæli
Kvinnurnar grétu sárt með sút, sem hans kvöl aumka gjörðu.
Landsdómur er að störfum í fyrsta sinn frá því að honum var komið á fót fyrir hundrað og sjö árum að danskri nítjándu aldar fyrirmynd. Kannski er við hæfi að réttarhöldin skuli fara fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu, sem var byggt rétt eftir stofnun Landsdóms. Þar voru lengi vistaðar þjóðminjar og náttúrugripir. Með nokkrum rétti má skilgreina dóminn og dómendur sem þjóðminjar og náttúrugripi.
Kvartað hefur verið yfir þeirri ráðstöfun að ekki skuli vera útvarpað og sjónvarpað frá þessum einstæðu réttarhöldum. Lög heimila það, sækjandinn heimilar það fyrir sitt leyti, vörnin heimilar það fyrir sitt leyti. Samt er það ekki leyft.
Kannski ekki við slíku að búast hjá nítjándu aldar fyrirbæri.
Hvers vegna nota dómritarar ekki fjaðurpenna og sortulyngsblek?
Kvartað er yfir þrengslum þar sem réttarhöldin eru háð. Fréttamenn riðlast hverjir á öðrum og heyra illa það sem fram fer. Magnarakerfið hefur orðið eftir þegar gripir Þjóðminjasafns voru fluttir vestur á Mela fyrir rúmum sextíu árum.
Á einum fréttavef er talað um áhorfendur en ekki áheyrendur. Trúlega Freudian slip.
Myndi Þorláksbúð Árna Johnsens ekki hæfa Landsdómi ennþá betur en Safnahúsið?
Fyrir liðlega áratug var Jóhanna nokkur Sigurðardóttir fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um endurskoðun laganna um Landsdóm, og segir þar í greinargerð: „… sem orðin eru úrelt og hafa ekki fylgt eftir þeirri þróun sem orðið hefur á dóms- og réttarkerfinu“. Tillagan sofnaði í nefnd og hefur ekki vaknað aftur.
Á þeim tíma og bæði fyrr og síðar hefur verið talað um að leggja Landsdóm niður.
Þvert á móti væri réttast að friðlýsa Landsdóm. Fara með hann vestur á Mela um leið og magnarakerfið. Gæti verið í herbergi með vaxmyndasafni Íslandsbersa – er það ennþá til sýnis?
Á sínum tíma orti séra Hallgrímur passíusálma um þessi merku réttarhöld og segir þar á einum stað (Um útleiðslu Kristí úr þinghúsinu): Landsdómarinn þá leiddi / lausnarann út með sér. / Gyðingum andsvör greiddi …
Að líkindum tekur Geir H. Haarde ekki undir eftirfarandi orð séra Hallgríms: Mér virðist svo sem mín misgjörð / sé meiri að þyngd en himinn og jörð.
Og líklega fær hann ekki þyrnikórónu.
Nema í huga nokkuð margra, geri ég ráð fyrir.
Flokkar: Óflokkað
5.3 2012 | 11:04 | 1 ummæli
Ummæli sem Pútín hefur látið falla sýna að hann álítur sig ómissandi. Slíkar skoðanir á sjálfum sér einkenna þá sem hafa setið of lengi í of háum sætum.
Að jafnaði verður með tímanum styttra og styttra í ókomna atburði.
Þar er vitjunartími merkileg undantekning.
Vitjunartími á það til að færast lengra og lengra inn í framtíðina.
Athugasemdir eru velkomnar, að því tilskildu að þar sé ekki minnst á Albaníu.
Flokkar: Óflokkað
26.2 2012 | 15:04 | 29 ummæli
Afskaplega er þetta óheppilegt.
Maður sem hefur verið mikils virtur og vinsæll í opinberu starfi – einn af æðstu mönnum lögreglunnar – býður sig fram til varaformennsku í stjórnmálaflokki og kemur svo strax á eftir með stórpólitíska yfirlýsingu varðandi atburði sem hann á að hafa fengið vitneskju um í starfinu.
Kveðst vera að gera skýrslu um téða atburði fyrir lögreglustjóra.
Hefði ekki verið réttara að klára skýrsluna og skila henni til lögreglustjóra áður en farið var með niðurstöður hennar í fjölmiðla?
Hefði ekki verið betra að segja sig frá verkinu áður en framboðið var tilkynnt?
Afskaplega óheppilegt, að ekki sé meira sagt.
Úr því sem komið er verður trúverðugleiki skýrslunnar enginn nema rannsóknin verði falin einhverjum öðrum.
Er það náttúrulögmál að um leið og fólk er komið í pólitík sé dómgreindin á bak og burt?
Stundum gæti manni dottið það í hug.
Sjálfsagt verður hann ágætur varaformaður.
Flokkar: Óflokkað
Árétting eftir á – að gefnu tilefni:
Nei, þetta með „dáleiðslutækninn“ hér fyrir neðan er sko ekkert grín hjá mér. Auglýsingin hangir uppi í búðum a.m.k. bæði hér á Reykhólum og í Búðardal.
Í henni kemur fram nákvæmlega það sem ég tala um. Gamla auglýsingin sem hér fylgir er allt annar handleggur – en þó í rauninni sami handleggurinn. Finnst mér.

„Dáleiðslutæknir“ úr Reykjavík auglýsir þjónustu sína núna í tvo daga hérna við innanverðan Breiðafjörð. Með dáleiðslu get ég – samdægurs – hætt að reykja, losnað við áhyggjur, kvíða, verki og þreytu, margfaldað sjálfstraustið og bætt árangur minn í íþróttum og listum.
Þá er ekki allt upp talið – vefjagigtin, upprifjun minninga o.fl.
Ef marka má auglýsinguna.
Titlaskrá dáleiðslutæknisins er traustvekjandi – mér kemur í hug Sigurður Nordal heitinn sem var dr. phil. & litt. & jur. en náði því að vísu ekki að verða óperusöngkona:
Reikimeistari, óperusöngkona, Dip.CH., FaFDT, BA Dáleiðslutæknir (Clinical Hypnotherapist).
Kannski ég reyni að fá tíma á morgun. Gæti þá sagt frá því annað kvöld að ég sé hættur að reykja, laus undan áhyggjum, kvíða, verkjum og þreytu, kominn með margfalt sjálfstraust (einhverjum þætti víst ekki á það bætandi) og strax búinn að bæta mig í íþróttum og listum.
Því miður er ég ekki með vefjagigt.
Þetta er væntanlega meinlítið í samanburði við þá snákaolíu sem ýmsir aðrir selja fólki. Og varla eins dýrkeypt og ráð fjármálaráðgjafa og ýmissa annarra prangara stundum.
En ef þetta sem lofað er gengi ekki eftir? Fengi ég endurgreitt?
Líklega væri það þá bara mér að kenna.
Er annars hvergi hægt að fá Kína-Lífs-Elixírinn lengur?
____________________________________
En svo er það hin hliðin eins og venjulega.
Trúin flytur fjöll. Trú þín hefur gjört þig heilan. Placebo og allt það. Virðulegir og þó allra helst óskiljanlegir titlar þeirra sem færa hjálpræðið.
Ekki efast ég um einhverja virkni þess sem fólk trúir að gagnist.
Sjálfur trúi ég því að fenginni reynslu að aspirín slái á hausverk. Trúi því líka að hveitipilla sem ég héldi að væri aspirín myndi slá eitthvað á minn hausverk.
Hið besta mál – bara að það sem trúað er á sé ekki skaðlegt.
Sennilega er trúgirni ennþá gagnlegri í baráttu við ímyndunarveiki en nokkurn annan kvilla. Einmitt vegna þess að hún er orsök hans.
____________________________________
Sigurður Nordal var ekki aðeins þrefaldur doktor. Hann var líka prófessor og síðan sendiherra. Ekki furða þó að jafnvel fræðimenn migu á sig frammi fyrir slíkum manni – annar eins maður og Oliver Lodge - og tryðu öllu sem hann hafði fram að færa og dirfðust ekki lengi vel að kanna neitt frekar þau viðfangsefni sem hann hafði afgreitt í eitt skipti fyrir öll.
Flokkar: Óflokkað
19.2 2012 | 13:26 | 3 ummæli
Hvernig færi ef hersveitir lögfræðinga og endurskoðenda væru settar í lúsaleit á ferli stjórnmálamanna áður en þeir setjast í ráðherrastól?
Að ekki sé minnst á siðfræðinga.
Þá yrði aldrei neinn ráðherra.
Nema kannski ef fenginn yrði einsetumunkur í Tíbet.
Flokkar: Óflokkað