Kvennafangelsi Arnarholti?

Kvennafangelsið í Kópavogi er algjör skandall. Það er skelfilega vondur staður til að vista fanga því aðstaðan þar er nákvæmlega engin. Ekkert er þar um að vera, útisvæðið er smánarlega lítið og fyrir almannaaugum, læknisherbergið minnir á kústaskáp og það er enginn möguleiki fyrir konur sem afplána langa dóma að fá tilbreytingu er varðar húsnæðið – því ekkert annað fangelsi á Íslandi hýsir kvenfanga. Því er það svo að sé kona dæmd til áralangrar fangelsisvistunar þá bíður hennar fangelsið í Kópavogi og ekkert annað. Ekkert vægara úrræði, ekkert annað en sama húsið með sömu litlu göngunum og nánast engri tilbreytingu.

Það er margoft búið að benda íslenskum stjórnvöldum á að þetta fangelsi, sem og fangelsið í Hegningarhúsinu séu ómannúðleg en því miður þá höfum við ekki haft ráð á að taka á málunum.

Í gær heyrði ég af því að verið væri að „skjóta“ þætti Ragnars Bragasonar, Heimsenda, að Arnarholti á Kjalarnesi. Þar var um árabil rekin geðdeild en mér skilst að ekkert sé þar í dag. Væri ekki ráð að kanna hvort nýta megi húsið sem fangelsi? Kvennafangelsið í kópavogi var hreint ekkert reist sem fangelsi á sínum tíma og hentar afskaplega illa. Það sér það hver sem vill að það fer mjög illa saman að hafa stóran leikskóla við hliðina á fangelsi, hvar girðingar veita ekkert skjól. Fangarnir eiga rétt á því að verða ekki fyrir áreiti innan veggja fangelsis og því hentar það mjög illa að hafa þetta svona inni í byggð. Kjalarnes er svo nálægt borginni að það er ekkert óhentugt. Nú veit ég auðvitað ekkert hvort það hentar sem slíkt, en það hlýtur að vera skárra en hörmungin í Kópavoginum.

Datt svona í hug að henda hugmyndinni fram. Eins má velta fyrir sér hvort ekki megi nýta fleiri hús í þessum tilgangi… t.d. uppi á velli… þar sem herinn var og hét… hvernig er það – eru öll húsin þar í notkun?

6 ummæli

Valur Bjarnason

Segja má að aðstæður í kvenna fangelsinu séu viðunandi fyrir fanga sem afplána styttri fangelsisdóma. Hins vegar eru aðstæður óviðunandi fyrir fanga sem afplána margra ára refsivist, meðal annars vegna þrengsla. Þegar litið er á stöðu kvenfanga þá er hún ekki í samræmi við stöðu karlfanga vegna þess að kvenfangar eiga ekki þess kost að afplána í opnu fangelsi eins og til að mynda Kvíabryggju og/eða á Bitru. Þess utan er vinna þeirra mun einhæfari og útivist er háð takmörkum.

Kærandi, sem var kvenfangi í fangelsinu að Kópavogsbraut, óskaði eftir því við kærunefnd jafnréttismála í máli nr. 6/2003, að nefndin tæki afstöðu til mismunandi vistunar karl- og kvenfanga í fangelsum landsins, þ.e. hvort aðstöðumunurinn brjóti gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Niðurstaða nefndarinnar var að stjórnvöld þyrftu að hafa ákveðna heimild til svigrúms við ákvörðun á fyrirkomulagi afplánunar, meðal annars eftir kynferði, búsetu, aldri og afbrotaferli fanga. Það var heildstætt mat að vistunarkostir fanga hér á landi þá feli vistun kvenfanga í Kópavogsfangelsi ekki í sér mismunun samkvæmt skilningi laganna. Rökin voru þau að úrræðin sem föngum stæðu til boða væru mismunandi eftir fangelsum. Til dæmis væri boðið upp á bóklegt nám í Kópavogsfangelsi en ekki á Kvíabryggju. Stjórnvöld yrðu að hafa þetta svigrúm og niðurstaðan því sú að Fangelsismálastofnun hafi ekki brotið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000

Ég hef aldrei skilið hvernig er hægt að hafa kvennafangelsi að Kópavogsbraut 17. Þarna er engin aðstaða til neins og sérstaklega ekki útivistar.

Var ekki Bitra eitt sinn kvennafangelsi? Af hverju hætti thad sem slíkt? (nú fær Ironmaster ad dvelja thar)

Fangelsismálayfirvöldum hefur verið bent á Arnarholt. Ég veit ekki nákæmlega með hvaða starfsemi í huga.
Hinu frétti ég af – frá áræðanlegum manni – að Páll W fangelsismálastjóri kom að Arnarholti til að skoða staðinn. Hann hafði ekki fyrir því að fara út úr bíl sínum og stoppaði stutt á hlaðinu. Enda hefur hann bara áhuga á einni lausn í fangelsismálum: Hólmsheiði. Aðrar lausnir henta honum því ekki.
Auðvitað er Arnarholt kjörin staður fyrir fangelsi, hvítflibba- eða kvenna eða jafnvel bæði. Ríkisspítalarnir ráða þar húsum í dag.

Ari – Bitra var blandað fangelsi kvenna og ósakhæfra brotamanna (þeir sem voru taldir hættulegir voru þó á Litla Hruani) síðar voru ósakhæfir vistaðir á Sogni og konur að Kópavogsbraut 17 sem áður var Unglingaheimili Ríkisins. Kópavogsbraut 9 var þá fyrir unglinga sem voru taldir þurfa meiri gæslu. Sumir kölluðu K 9 unglingafangelsi, en þar fór einnig fram afeitrun ungmenna.

Það sem batar kvennafangelsið í Kópavogi upp er að þar starfar gott fólk og manneskjulegt. Ég þekki ágætlega til þar. Samþykki auðvitað að aðstaðan er slæm, sérstaklega utanhúss, en er eitthvað manneskjulegra utanhúss á Litla Hrauni? Hafði ekki góða reynslu af starfsfólki þar, en það gæti hafa breyst.

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og átta? Svar: