Af örlæti formanns velferðarráðs

Reykjavíkurborg ákvað af rausnarskap sínum, líklega eftir heldur háðuglegan samanburð sl. vikna, að greiða barnafjölskyldum, sem nutu fullrar fjárhagsaðstoðar árið 2009, heilar 6000 kr. í jólabónus með hverju barni.

Þessi „stórfrétt“ rataði í fréttir ríkissjónvarpsins og aðra miðla í gær. Fréttin snýst um að Reykjavíkurborg ætlar að punga út heilum 2,4 millljónum króna samtals til þessara fjölskyldna!

Til að setja þessa upphæð í samhengi að þá er þetta sambærilegt því að Eyja- og Miklaholtshreppur þyrfti að punga úr sveitarsjóði heilar 2.643 kr, Dalabyggð 14.300 kr. og Akranes 132.765 kr. í heildina. Við erum að tala um heilar 20 kr. á hvern skattborgara. Ekkert þessara sveitarfélaga fengi svo mikið sem dálksentímeter í Fréttablaðinu eða eina sekúndu  í ríkisútvarpinu fyrir slíka frétt.

Vissulega er fjárhagsaðstoð fyrirferðarmeiri í rekstri Reykjavíkurborgar en annarra sveitarfélaga. Það er hins vegar eðlilegt í landi sem er byggt upp eins og Ísland. Það er í rauninni aðeins ein borg og það er þannig út um allan heim að borgir soga til sín mannfjöldann – og félagslegir erfiðleikar verða þar fyrirferðameiri. Reykjavík greiðir hins vegar skammarlega lága upphæð í fjárhagsaðstoð og allt góðærið fylgdu hækkanir hvorki launavísitölu eða neysluvísitölu.

Árið 1995 fékk einstaklingur í Reykjavík 53.595 kr. á mánuði í fjárhagsaðstoð. Í dag er þessi upphæð 115.567 kr. Hefðu hækkanir fylgt neysluvísitölu væri fjárhagsaðstoðin í dag 165.076 kr. Hefðu þær fylgt launavísitölu væri fjárhagsaðstoðin í 196.054 kr.

Svona er þessu farið í velferðarborginni Reykjavík – höfuðborg Íslands. Það reyndi í rauninni lítið á velferðarkerfið á góðæristímunum en núna þegar á reynir kemur í ljós hvernig samfélagið er skrúfað saman.

Formaður velferðarráðs og meirihlutinn sem stjórnar Reykjavík gera sér litla eða enga grein fyrir raunverulegri stöðu mála í borginni. Þessi sérstaki jólabónus er til háðungar fyrir Reykvíkinga. Heildarfjárhæðin, sem formaðurinn tilkynnti af rausnarskap sínum jafngildir þrennum mánaðarlaunum hennar, svo dæmi sé tekið. Það bara hlýtur að vera hægt að gera betur!

6 ummæli

Stóra málið er að hún sá af sér. Það eru stórtíðindi að Sjálfstæðismaður hafi rangt fyrir sér.

Sigurður Jónsson

Hún gat ekki annað. Eftir að hún varð kjaftstopp í viðtali við RÚV um daginn. Viðtalið var um aðstoð annarra sveitarfélaga við fátækar fjölskyldur og fjölda fólks sem leitar til aðstoðar til Mæðrastyrknefnd og Fjölskylduhjálp Íslands. Batnandi mönnum/konum er best að lifa en styrkurinn þyrfti að vera meiri.

Agnar Hermannsson

Vissulega frábært að greiða meira til fátækra fjölskyldna. En þetta er með ólíkindum. Hvernig á fjölskylda sem fær 200.000 kr. á mánuði að reka sig? Gerir hún það með 212.000 kr. í desember? Og hvaða fjölskyldur eru að fá þessa aura? Fjölskyldur sem hafa verið lengur en 6 mánuði á fjárhagsaðstoð eða skemur? Reglan um 6 mánuði er algjörlega galin. Ég skammast mín.

ragnar

Hanna Birna er allt of sterk fyrir ykkur, hættið að væla og haldið áfram að berjast fyrir hækkun skatta á borgarbúa það virðist ykkar eina lausn í landsmálunum líka.

Margrét

Get nú ekki litið svo á það að HÚN hafi séð að sér. Þetta er svona til að reyna að klóra yfir hversu illa þessi borg býr að þeim sem minna mega sín.
Okkar aumi og ömurlegi borgarstjóri hefur sennilega hugsað sem svo, jæja, við verðum víst að henda eins og einu náttfatapari í þetta fátæka pakk, bara svona fyrir lookið.
Fjárhæðin er svo aum að hún gerir skömm borgarstjóra bara meiri.

awSHiOeZ http://wpbtmf.com/ fBwcKnZv [url=http://fysjml.com/]fBwcKnZv[/url]

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):