hægrivinstri snú?

Vert er að benda á þessar staðreyndir þegar ástandið á Alþingi er skoðað

Jón Gunnarsson 30.11.2009: “það er einlægur ásetningur okkar virðulegi forseti í meirihlutanum (svo!) að halda þessu máli gangandi svo lengi sem að þarf. Við ætlum einfaldlega ekki að hleypa því í gegn. Þarna eru vopn minnihlutans samkvæmt lögum … þarna er okkar vörn og okkar vopn, hún liggur í þessu.”

Guðlaugur Þór Þórðarsson 21.8.2009: “Varðandi það sem hv. þingmaður nefndi að það væri verið að setja pressu á okkur stjórnarandstæðinga að við munum tefja málið þá lýsi ég því hér yfir að ég er tilbúinn að tefja málið og menn geta kallað mig hvað sem er. Ég ætla ekki að fara héðan án þess að vera búinn að gera allt það sem ég get til þess að ganga þannig frá málinu að það sé eins skothelt og það getur orðið. Ef það þýðir að ég þurfi að halda gríðarlega margar ræður hér þá mun ég halda gríðarlega margar ræður hér. Ég mun gera allt til að sjá til þess að þetta verði unnið eins vel og mögulegt er og ég hvet alla þingmenn til þess að nálgast þetta verkefni með sama hætti.”

En fyrir þremur árum sagði þessi sami Guðlaugur:  Guðlaugur Þór Þórðarsson 10.3.2006: ”Virðulegi forseti. Það sem við horfum á og erum búin að horfa á undanfarna daga er að blygðunarlaust hefur stjórnarandstaðan beitt skipulegu málþófi til að hindra að meirihlutavilji Alþingis nái fram að ganga. Það er ekkert nýtt að stjórnarandstaðan sé ósammála stjórnarmeirihlutanum og ég vek athygli á því að stjórnarandstaðan hefur fullan rétt á því að hafa rangt fyrir sér og ég er alveg til í að leggja mikið á mig til að verja þann rétt. En það er algerlega fráleitt og samræmist engum lýðræðishugmyndum að menn geri hvað þeir geti við að beita hreinlega ofbeldi til að koma í veg fyrir að mál sem þeir eru ósammála og eru í minni hluta með komist í gegn. Það er nákvæmlega það sem hér hefur verið á ferðinni. Þetta snýst ekkert um efni máls. Allt hefur komið fram í umræðunni sem þarf að koma fram en áfram er haldið og menn hafa ekki farið dult með það að þeir ætla að stoppa þetta með því að vera með skipulagt málþóf.“

Guðlaugur Þór Þórðarsson 21.4.2006: ”Af hverju eru menn alltaf að fara upp undir liðnum um fundarstjórn forseta og ræða eitthvað allt annað? Það er pólitískur ágreiningur um eitt mál. Hann er mikill innan þingsins. Það er ekkert nýtt. Hér koma menn upp í fullri alvöru og fara fram á að ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hætti við ákveðið mál vegna þess að stjórnarandstaðan er í málþófi. (Gripið fram í: Málþófi?) Ástæðan fyrir því að við erum hér dag eftir dag að ræða fundarstjórn forseta, þótt það liggi fyrir að ekkert er athugavert við fundarstjórn forseta, er sú að stjórnarandstaðan er á móti viðkomandi máli. Það er ástæðan fyrir því að sumir þingmenn halda ræður klukkutímum saman. Ég vek athygli á því að þetta eru fínir ræðumenn. Þeir geta klárað mál sitt á mun skemmri tíma og þurfa ekki nein námskeið til þess. Jafnvel eru hv. þingmenn mjög góðir ræðumenn, sem halda ræðu í sex tíma vegna þess að þeir ætla með málþófi að reyna að koma málum frá sem meiri hluti er fyrir í þinginu.  Ég bið þingheim að hugsa þetta alla leið. Er það virkilega svo að mönnum þyki lýðræðislegt og réttlátt að svona vinnubrögð séu viðhöfð? Vilja menn, virðulegur forseti, að þingið okkar sé með þannig að þegar stjórnarandstaðan fer í málþóf geti hún stoppað mál sem meiri hluti er fyrir? Virðulegur forseti. Ég segi nei. Það liggur fyrir að ef menn halda langar ræður og eru með málþóf þá þurfum við að halda langa fundi. Ef menn vilja hafa þann háttinn á er ekkert annað sem réttkjörinn meiri hluti á þinginu getur gert, ekkert annað.”

15 ummæli

Agnar Hermannsson

Það er samt alveg grátlegt hvað hlutverkin eru forskrifuð. Stjórnarandstaðan virðist alltaf vera á móti öllum erfiðum málum hvort sem stjórnarandstaðan er til vinstri eða hægri hverju sinni. Þetta er ömurlegt. Hvernig getur t.d. þetta Icesave verið flokkspólitískt? Hvernig getur það verið að allir sjálfstæðis- og framsóknarmenn séu á móti? Væri það eins ef hinir væru í stjórnarandstöðu? Ég held að það væri þannig. Svona lýðræði er jafn girnilegt og grænn banani.

Erectus

Utanþingsstjórn takk.

Flott hjá þér. Veistu að þegar ég var þingfréttamaður var ég svo lánsamur að þegar málþófið var mikið, bjargaði húmoristinn Ólafur Þ. Þórðarson miklu. Einstaklega fyndinn. Ekki var mögulegt að missa af einu orði sem hann sagði. Blessuð sé minning hans. Svo voru fínir ræðumenn; Jón Baldvin, Ingibjörg Sólrún, Svavar, Ólafur Ragnar, SteingrímurJ., Frikki Soph. og eflaust er ég að gleyma einhverjum. Semsagt þá voru húmoristar og ræðusnillingar. Það hefur greinilega margt breyst.

Þeir sem eru á Fésinu eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér:

http://www.facebook.com/group.php?gid=204309438696

Hafrasprautur

Helgavalan. Hvor Guðlaugurinn þykir þér betri? Eða þótti þér báðar útgáfurnar asnalegar?

Þórður Ingi

Hvernig væri nú svona í framhaldinu að koma með ummæli vinstri manna í umræðum um vatnalögin, eða ríkisútvarpið, eða fjölmiðlafrumvarpið… Æ nei, þá var málþóf fullkomlega eðlilegt en þegar svona smámál eins og Icesave er til umræðu er fullkomlega eðlilegt að meirihlutinn drulli því í gegn og valti yfir minnihlutann, svona eins og stjórnarhættir hafa alltaf verið á Íslandi.

Maður verður að leyfa andstæðingum sínum að hafa þau réttindi sem maður krefst til handa sjálfum sér. Ég studdi réttinn til málþófs þegar íhaldið var í stjórn og ég styð hann þegar íhaldið er í stjórnarandstöðu. Þeir sem tala gegn réttinum til málþófs í þessu máli verða að muna að stjórnarandstaða dagsins í dag getur orðið stjórn dagsins á morgun.

Birgir

Einmitt að heyra þessa stjórn tala um lýðræði. Ætluðu að þröngva í gegn stjórnarskrárbreytingum án umræðu og án samstöðu fyrir apríl kosningar. Ætla núna að snúa skattkerfinu á haus og breyta 30 ára uppbyggingu þess þegar 14 dagar eru eftir af þingi.

Þetta lið ætti ekki að fá að taka sér orðið lýðræði í munn. Aldrei komst xd nálægt því að koma svona fram, nema mögulega einu sinni þegar þeir drógu til bara fjölmiðlafrumvarpið og lögðu það strax aftur fram.

Renegade

Já, þetta er sorglegt.

Sorglegra er að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn stærsti flokkur landsins á nýjan leik aðeins ári eftir hrun.

Íslensk sannar aftur og aftur að það er ENGIN tilviljun að hún sé í þessarri ömurlegu stöðu og að hún á það fyllilega skilið.

Það er EKKI hægt að hjálpa fólki sem vill ekki hjálpina.

Renegade

ath: Íslensk þjóð sannar…

Einar

Birgir 12:55. 30 ára uppbygging skattkerfisins? Hvað ertu að meina þegar þú segir að eigi að snúa því á haus? Þannig virkar það hjá mér eins og flestu fólki að ég mæti til vinnu, fæ útborgað fyrir störf mín og launagreiðandi heldur eftir staðgreiðslu. Þetta er ekkert sérlega flókið er það nokkuð?

Rauðhaus

Nú styttist í að frægur spádómur Nostradamusar um foringjann mikla úr norðri rætist. Barbarossa. Rauðskeggur.

Birgir

Já akkúrat Einar, og ótrúlegt að um þessi litla atriði þurfi heilar 124. gr. tekjuskattslaga.

Reyndar athyglisvert að með nýjum lögum er það raunar launamaður sem er gerður ábyrgur fyrir réttri staðgreiðslu sé hann að vinna á fleiri en einum stað að viðurlögðum allt að 10 faldri sektarfjárhæð…þannig að þú ættir kannski að fara passa þig.

Ingibjörg Stefáns

Er búið að samþykkja ný skattalög Birgir?

Halla

Áfram frænka – ég held að núna sé kominn tími þögla hópsins í þjóðfélaginu að láta heyra rækilega í sér – ég er alveg kominn með full nóg af kjaftæði margar á þingi og í borgarstjórn. það virðist sem þessir aðilar hafi enga samfélags-, siðferðis- eða rétllætiskennd. Ég bara trúi ekki að fólk ætli að kjósa þessa drullu yfir sig aftur.

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):