Nú er verið að höggva og höggva. Velferðarkerfið lafir á horriminni og áfram þarf að höggva. Skuldirnar griðarlegar og ýmislegt í pípunum.
Dómsmálaráðherra boðaði löngu tímabæran niðurskurð hjá sýslumönnum. Því fagnaði ég, enda algjör óþarfi að hafa tuttugu og fjóra sýslumenn á einu Íslandi.
En hvað? Af hverju er ekki verið að vinna í þessu þjóðþrifaverki? Hvaða þúfnapólitíkus tókst að koma í veg fyrir þetta? Hvernig stendur á því að það má bara skera niður hjá fjölskyldum í landinu, en þegar kemur að svona sjáfsögðum hlutum, þá fer allt á hliðina?
Ég fer fram á að fjölmiðlar taki sig til og spyrji Rögnu Árnadóttur að þessu á hverjum degi þar til þessi framkvæmd verður komin í gegn. Þetta er ekkert flókið. Förum í þetta – þarna liggja fjármunir sem við þurfum svo sannarlega að nota í annað.

Helga Vala Helgadóttir
7 ummæli
kl
Arnar
Ég held að ástæðan fyrir því að þetta hefur dregist sé sú að þessi sparnaður mun nást á kostnað landsbyggðarinnar á meðan vöxtur ríkisins hefur verið 90% á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugi. Tek fram að ég tel rétt að spara þarna en þetta er PR lega erfitt mál.
kl
kúlulánakrækir
4 flokkurinn skammtar sér 400 kúlur á ári. Ekkert skorið niður hjá alþingi eða utanríkisþjónustinni sem er ónýtt silkihúfubæli. 1200 kúlur í varnamálastofnun. 2500 milljónir í risnu og dagpeninga fyrir ríkisstarfsmenn og svona má endalaust telja.
kl
Ásta Hafberg
Ég legg til að fjölmiðlar spyrji Jóhönnu og Steingrím á hverjum degi hversvegna ekki er skorið vel niður í stjórnsýslunni almennt. Nefndir og ráð ýmisskonar sem eru algerlega ónauðsynleg. Svo er það rétt að mesti vöxtur hins opinbera hefur verið mestur á höfuðborgarsvæðinu, þar mætti nú heldur betur taka upp hnífinn.
Styð það sem kúlulánakrækir skrifar hér að ofan.
kl
Jens
Sameining sveitarfélaga á landsbyggðinni hefur sparað slatta nú þegar og gengið þokkalega víðast hvar.
Nú eigum við að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu! Þar eru sennilega nokkrir milljarðar sem hægt er að spara ÁN þess að það þurfi að bitna á þjónustu við íbúa.
kl
Helga Vala Helgadóttir
Er hjartanlega sammála með sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu!
Þetta með sýslumennina kom upp í huga minn í gær og í morgun og þess vegna skrifa ég um þá – en það þýðir ekki það að ekki megi skera niður annars staðar í kerfinu. Er einfaldlega að benda á þetta.
kl
Jens
Já, ég gleymdi mér aðeins.
Þetta með sýslumennina er sjálfsagt mál, að fækka embættunum.
Spurning bara hvort þetta sé aðgerð sem er hluti af heildstæðri byggðastefnu eða bara ein aðgerð út í loftið án samræmis við aðrar. Það er svo margt ógert og vanhugsað í byggðamálum.
kl
Agnar Hermannsson
Þeir sem vilja landsbyggðinni vel ættu að taka undir með Helgu Völu. Þar er varla betra að senda sýslumönnum út um allt land 20% sparnaðarkröfu á hverju ári næstu 3 árin. Það þýðir uppsagnir óbreyttra starfsmanna á gólfinu. Það er sem sagt verðið að segja upp starfsfólki á gólfinu í stað þess að taka til. Með þessu hvera sýslumennirnir og þeirra störf endanlega úr mörgum byggðalögum. Þeir sem halda að varnabáratta fyrir embættismennina sjálfa skili einhverju eru á villigötum. Með því að sameina embætta og samþætta verkefni væri þjónustan tryggð. Með því að grenja út í horni og verja úrelt fyrirkomulag skjóta menn sig í fótinn.
Hvers vegna þurfa 24 sýslumenn að starfa á Íslandi? Hvers vegna þarf aðeins einn í Reykjavík? Hvað heitir annars sýslumaðurinn í Reykjavík? Það veit enginn enda hittir hann enginn. Við hittum ekki þennan sýslumann við óbreytta starfsmenn. Það þarf að reka 4 óbreytta starfsmenn til að ná fram þeim sparnaði einn sýslumaður kostar. Þetta er algjört rugl…