Smá fagmennsku á þing takk!

Getum við beðið um smá fagmennsku takk!

Ég veit að það er mikið að gera hjá þingmönnum, er er til of mikils mælst að þeir kynni sér lögin áður en farið er af stað og eftirlitsstofnanir Alþingis misnotaðar að því er virðist til þess eins að slá pólitískar keilur.

2. gr. Stjórnarskrár íslenska lýðveldisins fjallar vissulega um þrígreiningu ríkisvaldsins, en hér á landi er það regla frekar en undantekning að ráðherrar sitji jafnframt á þingi. Sem þingmenn hafa þeir því kosningarétt þegar greiða skal atkvæði með eða á móti frumvörpum og er sá réttur ekki af þeim tekinn setjist þeir í ráðherrastól. Þetta má sjá í 51. gr. sömu stjórnarskrár:

51. gr. Ráðherrar eiga samkvæmt embættisstöðu sinni sæti á Alþingi, og eiga þeir rétt á að taka þátt í umræðunum eins oft og þeir vilja, en gæta verða þeir þingskapa. Atkvæðisrétt eiga þeir þó því aðeins, að þeir séu jafnframt alþingismenn.

Nú hafa þingmenn hreyfingarinnar kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna þess að Steingrímur J. þingmaður VG tók þátt í atkvæðagreiðslu eins og lög gera ráð fyrir. Hann skal mæta á þingfundi og honum ber að taka þátt í störfum þingsins, þ.á.m. kosningum um frumvörp.

Þetta eiga þingmenn hreyfingarinnar að vita, og vona ég að þau láti nú verða af því að lesa stjórnarskrána… og jafnvel lög um þingsköp alþingis í leiðinni. Það er fróðleg lesning… hvort tveggja… ekki síst fyrir þingmenn!

3 ummæli

Gunnar G.

Væri líka til í fagmennsku í ráðuneytin.

Að láta Yngva Örn Kristinsson útbúa sennilega síðstu leiðina af þeim öllum til byggingar skjaldborgar ber vott um litla fagmennsku.

ergo: Þessi greiðslujöfnunarleið er brandari.

Með vegsemd og virðingu,
Gunnar Gíslason

Kvalveiðimaður

Nú vitum við hver reyndi að smeygja skattalagabreytingum í gegnum frumvarp háttv. félagsmálaráðherra. Stoppað á síðustu stundu.

Jóhanna

sá nefndin ekki að fullu um það klúður sjálf, herra kvalveiðimaður?

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):