Horfði á tvo þætti af Fangavaktinni í gærkvöldi. Mikið rosalega er ég ánægð með þessa þætti. Leikurinn er yfir línuna mjög góður, karakterarnir auðvitað stórskemmtilegir og framvindan óútreiknanleg.
Hef líka horft á Ástríði og Hamarinn. Söknum þess heima að fá ekki að sjá meira af Hamrinum, en gott er að minnast á það sem vel er gert. Ástríður er líka alveg hreint glimrandi, neyðarleg og rómantísk í senn. Ilmur á auðvitað senuna, en ég er sérstakur aðdáandi hennar, en ég er líka ánægð með frammistöðu Kjartans og Rúnars, já og Þóru og Þóris, en heima hjá mér bíður fólk spennt eftir kossinum…. Sagan finnst mér skemmtileg, minnir örlítið á Ally McBeal… svona klaufsk en samt sæt og sjarmerandi. Fíla þetta bara alveg hreint.
Innlenda efnið er eina ástæðan fyrir því að ég er með áskrift að Stöð 2. Ég horfi nánast aldrei á sjónvarp – en tók þá ákvörðun að splæsa í þetta í haust, ekki síst fyrir fjölskylduna, sem sest saman fyrir framan viðtækið á þessum stundum og hlær saman að þessum kostulegu uppákomum. Börnin mín litlu hafa helmingi meira gaman af því að horfa á innlent leikið efni en erlent, og er það ekki tungumálið sem þar skiptir öllu, því stundum er erlent leikið efni döbbað. Þau hafa bara miklu meira gaman af því að þekkja leikarana, sem þau hafa oft séð áður, bæði á förnum vegi og í öðrum þáttum, og það gefur þeim betra tækifæri á að skilja leikið efni, og skilja að þó að maður sé vondur í mynd eða deyji þá sé maður bara að leika…. og má þar nefna að börnin mín fengu ung að horfa á þann hrylling sem Hrafninn flýgur býður upp á… allt undir því yfirskini að sjá afa Helga bæði drepa og vera drepinn… (en afa náðu þau ekki að hitta í lifanda lífi, svo þau eru heldur betur heppin að fá samt að sjá hann þarna)
Nú er ég komin út fyrir efnið, sem er einfaldlega að hrósa fyrir leikna efnið, og vil ég eiginlega gefa Stöð 2 tvöfalt hrós fyrir þeirra skerf, því þetta er jú sjónvarspstöð á frjálsum markaði og ekki jafn skuldbundin, að mínu áliti, til að sinna svona menningarhlutverki.
Hlakka til að fylgjast með áfram í vetur – takk íslensku höfundar – takk íslensku leikarar og leikstjórar.

Helga Vala Helgadóttir
1 ummæli
kl
Sverrir
Finnst leikur fábrotinn og efnið einhæft og endurtekningasamt. Þó er framför frá því sem var þegar óhorfandi var á íslensk sjónvarpsleikverk. Má þar til nefna til dæmis Opinberun Hannesar sem var sérstök ófyndin lágkúra.