Hef fengið mikil viðbrögð við þeirri færslu sem var hér síðast. Færslan snérist um heimilisofbeldi og var vísað á síðu sem sett var í loftið í síðustu viku. Sú síða var kynnt sem síða fyrir fólk sem vildi opna umræðu um heimilisofbeldi, og er það gott. Það er ástæða þess að ég setti link á hana.
Engu að síður hef ég verið beðin um að taka þetta út, vegna þess að aðilar telja sig þekkjast á gögnum máls. Það var ekki ætlun mín.
Síðan sem ég setti inn inniheldur engin nöfn, og algerlega vita vonlaust fyrir mig sem konu út í bæ að vita um hvaða fólk er að ræða, enda er það ekki aðalatriði málsins að mínu mati.
En… eftir stendur umræðan sem ég vil halda á lofti sem snýr að heimilisofbeldi, sem aldrei, aldrei á að lifa í leynd innan fjögurra veggja heimila.
Engu að síður hef ég tekið þá ákvörðun að fjarlægja síðustu færslu, einfaldlega vegna þess að ég kæri mig ekki um að blandast frekar inn í þessa deilu þessara fyrrum hjóna. Ég þekki þetta fólk ekkert, og ætla mér ekki að kynna mér þetta tiltekna mál frekar.
En… áfram mun ég berjast gegn heimilisofbeldi hvers konar, hvort sem fólk telji „ástæðu“ fyrir ofbeldinu eða ekki. Sjálf tel ég aldrei nokkurn tímann vera ástæðu fyrir heimilisofbeldi, hvort sem ofbeldið beinist gegn börnum eða fullorðnum. Þess vegna mun ég ekki þagna þegar umræðan beinist að heimilisofbeldi.

Helga Vala Helgadóttir
Nýlegar athugasemdir