september 2009

Færslur ritaðar í september 2009.

Það er greinilegt að Ögmundur er á leið úr heilbrigðisráðuneytinu, enda niðurskurðurinn honum gríðarlega þungur.

Í gærkvöldi var krísufundur haldinn á heimili Ögmundar Jónassonar, þar sem mættir voru Jón Bjarnason og Árni Þór Sigurðsson. Í morgun var fundur hjá fjárlaganefnd, þar sem fulltrúi VG, Þuríður Backman var kölluð út af fundi af Árna Þór.

Og þegar þessi orð eru rituð, er Ögmundur á fundi með Jóhönnu.

Svo nú er það spurning, hver fer í heilbrigðisráðuneytið? Má ekki ætla að það verði Svandís sem fari í það gríðarstóra ráðuneyti?

Uppsögn á Mogga

Þetta bréf var sent á Moggann og birt í dag. Þar sem langflestir eru hættir að lesa það blað, fékk ég leyfi til að birta þetta hér, og er ástæða þess að ég nenni yfirleitt af minnast á þennan snepil í mínum ágæta fjölmiðli sú, að mér finnst höfundur komast ansi vel að orði við útskýringu á því hvers vegna það er ekki í lagi að ráða þennan höfund ógæfu okkar sem ritstjóra blaðsins.

Ég undirritaður segi hér með upp áskrift að Morgunblaðinu.

Öllum er ljóst að við endurreisn íslensks þjóðfélags eftir hrun eru ábyrgir fjölmiðlar höfuðnauðsyn. Að hér sé komið á opnara, gegnsærra og réttláttara þjóðfélagi.

Nú hefur stjórn Árvakurs ákveðið að ráða sem ritstjóra blaðsins þann mann sem öðrum fremur kveikti þá elda sem nú brenna á þjóðinni allri, – og hellti síðan olíu á eldinn með veru sinni í Seðlabankanum og margfaldaði þar það tjón sem lendir á börnum okkar af bankahruninu. Sami maður hefur um árabil stundað aðferðir í pólitík sem einkennast af skrumskælingu, útúrsnúningi og smjörklípum ásamt dæmafárri langrækni og hefnigirni.

Með þessari ákvörðun hefur Morgunblaðið endanlega dæmt sig úr leik í því verkefni að stuðla að uppbyggingu og trausti í samfélaginu. Hún er gerð til að þjóna þröngum sérhagsmunum en er um leið stríðsyfirlýsing við þá viðleitni að byggja hér upp heilbrigðara þjóðfélag. Mikil er þar ógæfa hinna seinheppnu eigenda blaðsins. Trúverðugleiki er vitaskuld verðmætasta eign hvers fjölmiðils. En hér eftir verður því naumast treyst að ein einasta frétt, umfjöllun eða áhersla blaðsins sé fram sett undir formerkjum ómengaðrar blaðamennsku.

Ég kæri mig altént ekki um slíka sendingu inn á heimili mitt og minna framvegis.

Vinsamlegast,

Hallgrímur Helgi Helgason,

Unnarbraut 5

Vændi

Vil benda lesendum síðunnar á magnaða þætti um vændi sem fluttir hafa verið á rás eitt

þáttur eitt er hér

þáttur tvö er hér

þriðji þáttur verður svo fluttur um næstu helgi…

hamingjusama hóran virðist þó vera fjarri góðu gamni, enda líklega vandfundin…

121. gr. Innherji.
Með innherja er átt við:
1. fruminnherja, þ.e. aðila sem hefur að jafnaði aðgang að innherjaupplýsingum vegna aðildar að stjórn, rekstri eða eftirliti eða vegna annarra starfa á vegum útgefanda fjármálagerninga,

123. gr. Innherjasvik.
Innherja er óheimilt að:
1. afla eða ráðstafa fjármálagerningum með beinum eða óbeinum hætti, fyrir eigin reikning eða annarra, búi hann yfir innherjaupplýsingum,

126. gr. Tilkynningarskylda fruminnherja.
Fruminnherji skal áður en hann, eða aðili fjárhagslega tengdur honum, á viðskipti með fjármálagerninga útgefandans, tilkynna það aðila sem tilnefndur hefur verið í samræmi við reglur sem útgefnar eru skv. 130. gr. (regluverði). Fruminnherji skal með sama hætti tilkynna án tafar hafi hann eða aðili fjárhagslega tengdur honum átt viðskipti með fjármálagerninga útgefandans. Viðkomandi útgefandi skal samdægurs tilkynna um viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins.