ágúst 2009

Færslur ritaðar í ágúst 2009.

Mér var að berast bréf. Bréfið er frá Sjúkratryggingum Íslands, og er það sent vegna slyss sem næst yngsta barnið, Ásta Júlía lenti í fyrir tveimur árum.

Dóttir mín, átta ára, missti báðar nýju framtennurnar sínar í þessu slysi. Af þeim sökum þarf hún að gangast undir aðgerðir til að reyna að bæta það sem bætt verður, og erum við að tala um heilmiklar aðgerðir fyrir stúlkuna.

Guði sé lof vorum við með heimilistryggingu – eða fjölskyldutryggingu eða hvað þetta nú heitir, því annars værum við á götunni. Sjúkratryggingarnar hafa til þessa tekið að örlitlum hluta þátt í þessum framkvæmdum öllum, þar til fyrir stuttu.

Núna nefnilega eru reikningarnir að verða hærri, vegna þess að senn líður að stóru aðgerðinni, þegar flytja á jaxla úr neðri góm upp í stað framtanna barnsins með tilheyrandi aðgerðum og flutningum og skurðum.

Núna hefur sjúkratryggingakerfið ákveðið að taka engan þátt í þessari aðgerð. Ekki eina krónu.

Það er vegna þess að við erum tryggð! ástæða synjunarinnar svona upp úr þurru og í miðri framkvæmd er eftirfarandi:

„mega Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við nauðsynlega meðferð hjá tannlækni vegna tannskaða af völdum frístundaslysa ef bætur fást sannanlega ekki hjá öðrum, þ.m.t. tryggingafélögum. Fyrir liggur að umsækjandi á rétt á bótum frá tryggingafélagi og verður, skv. framansögðu, að nýta þann rétt til fulls áður en bætur Sjúkratrygginga koma til álita. Afgreiðsla þessi veðrur endurskoðuð þegar og ef lokauppgjör tryggingafélagsins og reikningar vegna tannlækninga verða sendir okkur“

af þessum sökum taka Sjúkratryggingar engan þátt í greiðslu vegna slyss dóttur minnar. Hefði hún brotið tennur væri þetta afgreitt á annan hátt, því fyrir helgi fékk ég þær upplýsingar að þetta væri vegna þess að nú er hún komin frá tannlækni og til sérfræðings og sem sér um tannréttingar, brúarsmíði og innplant, eins og það var orðað af sérfræðingum sjúkratrygginga.

niðurstaðan:

- ef þú ert tryggður – tekur íslenska heilbrigðiskerfið engan þátt

- ef þú ert ekki tryggður – tekur íslenska heilbrigðiskerfið örlítinn þátt, þ.e. með vísan í gjaldskrá ráðherra sem er ekki í neinum tenslum við raunverulega gjaldskrá tannlækna

- ef þú lendir í slysi, reyndu að brjóta á þér nef eða kinnbein en ekki tennur – því þá borgar heilbrigðiskerfið lækningar að öllu leyti,

- ef þú ert svo óheppin að lenda í tannslysi – reyndu þá að brjóta tennurnar en ekki missa þær í heilu lagi – því þá tekur heilbrigðiskerfið þátt í lækniskostnaði – en þó bara að örlitlum hluta eins og að ofan greinir.

Hitti um helgina konu sem á dóttur sem fæddist holgóma. Þessi fjölskylda hefur mátt greiða formúgu í kostnað vegna dótturinnar, vegna þess einmitt að þar er um að ræða fæðingargalla á tönnum, og þurfti þar inplant og hvaðeina.

Má ég frekar biðja um hærri skatta en þetta bölvaða rugl!

Hvernig er það með þetta fólk sem kom að rekstri og stjórnun landsbankans – er því ófært að segja satt frá?

Nú kemur Sigurjón fram, í kjölfar yfirlýsinga Kjartans Gunnarssonar, og fullyrðir að ekki hafi verið ríkisábyrgð á Icesave reikningunum.

Hvað er þá þetta?

Jú þetta er einmitt bréf frá þessum sama Landsbanka um ríkistryggingu á innistæðunum. Seinna sagðir þú svo þetta.

Hvenær laug Sigurjón þá?

Var það á þessum tíma eða núna?

Nei… Sigurjón… við erum ekki fífl! Þessu bréfi flaggaðir þú fyrir rúmu ári, til að ná í meiri og meiri peninga frá fólki úti um heim.

meira, meira

Skemmti mér konunglega á menningarnótt. Fórum í bæinn strax upp úr hádegi og sáum fullt af frábærum hljómsveitum um alla miðborg, fór á ljósmyndasýningu, í heimsókn til UNIFEM og svo auðvitað hitti ég fullt af fólki úti um allt. Mér fannst þetta alveg glimrandi skemmtilegt.

Um kvöldið var svo farið í Hljómskálagarðinn og snætt. Horfðum á flugeldasýningu og hvaðeina.

Í gær bárust mér svo fregnir dagsins. „flugeldasýningin of tíkaleg – allt of stutt“ „allir fullir – menningarnótt ömurleg“ og reyndar líka „100 þúsund manns í miðborginni og allt fór vel fram“

Mér finnst sérstakt að kvarta undan flugeldasýningu. Mér fannst þetta bara frábært – og þakka fyrir mig. Veðrið var frábært – fólkið sem ég hitti skemmtilegt og tónlistin mögnuð. Þarf eitthvað meira? Takk menningarborg.

Svo virðist sem kreppan hafi nokkur áhrif hér í götunni hjá mér, og það á jákvæðan hátt. Það virðist sem allir sem það geta hafi ákveðið að gera upp hús sín nú í sumar. Í dag má sjá vinnupalla við þrjú hús í götunni, sem væri kannski ekkert mikið ef um væri að ræða risagötu, en við götuna standa líklega 9 hús. Verið er að mála, pússa bárujárn, skipta um glugga og hvaðeina, fyrir utan allt sem verið er að gera innandyra.

Þetta hefur mjög jákvæð áhrif á samfélagið. Það er einhver bjartsýni í þessum degi.

þess vegna var alveg ferlegt að skoða forsíðu Fréttablaðsins í dag. Nú skal það tekið fram að ég er ekki það veruleikafirrt að ég átti mig ekki á stöðu mála á Íslandi, heldur finnst mér tónninn í fréttinni sérstakur. Það er látið að því liggja að stjórnvöld hafi bara ekkert verið í vinnunni að undanförnu!

Stjórnvöld hafa nú komist inn fyrir hinn gríðarstóra brimskafl, og við sem fylgjumst með fréttum vitum sem er að þetta fólk hefur hreint ekki legið á liði sínu undanfarnar vikur og mánuði við að koma þjóðarskútunni af skerinu. Þau eru beinlínis dag og nótt í vinnunni, og þess vegna finnst mér ábyrgðarhluti af fjölmiðlum að svo mikið sem ýja að því að þetta fólk sé á einhvern hátt að slá slöku við, á strandstað. Nógu slæmt er ástandið þó fjölmiðlar máli það ekki enn svartara en það er.

Þessi frétt fær mig til að leiða hugann að bréfinu sem ég og aðrir foreldrar barna í 2. bekk Vesturbæjarskóla fengum í vikunni. Þar kemur fram að vegna manneklu sé barnið mitt á biðlista???

Verð að segja að mér fannst eiginlega algjörlega fáránlegt að fá þetta bréf viku áður en börnin mín byrja í skólanum. Þetta hlýtur að hafa legið ljóst fyrir lengi og því óþolandi að fá upplýsingar um að barnið komist ekki á frístundaheimilið með svona stuttum fyrirvara. Það skal tekið fram að ég sótti um fyrir börnin á fyrsta degi umsóknar þetta árið því ég lenti einmitt í tómu tjóni síðasta haust.

En núna, þegar atvinnuleysi er og fréttir berast af því að skólar og frístundaheimili séu fullmönnuð verð ég að segja að mér finnst þetta bréf með ólíkindum. Veltir maður fyrir sér hvort þetta sé átómatísk útsending að hausti, að koma foreldrum í skilning um hversu mikið forréttindafólk þeir eru að koma börnunum loksins að eða hvort verið sé að draga svo mikið saman í frístundaheimilakerfinu að eingöngu börn í fyrsta bekk komist að.

Að minnsta kosti ber sögum sem við foreldrar fáum ekki saman við þær fregnir sem borgin veitir í fjölmiðlum…

Matti setur inn þessa færslu – afrita og birti hér til að hafa þetta sem víðast – Hafðu þökk fyrir Matti!

Bakkabræður

Exista hf                                               791,2 (143,1 milljarður)

Stærstur hluti lánanna er ótryggður

Bakkabrædur Holding BV             252,5 (45,6 milljarðar)

Kaupþing hefur yfirtekið hlut félagsins í Exista

Guro Leisure Ltd.                              198,3 (35,8 milljarðar)

Veð í bréfum JJB Sports sem hafa fallið gífurlega

Bakkabrædur Group                       128,73 (23,3 milljarðar)

Lán til fasteignakaupa í London fyrir 12,5 milljónir punda (2,6 milljarðar) (hús Lýðs á 68 Cadogan Place) – Lýður í persónulegri ábyrgð

Lán til að kaupa á flugvél 23 milljónir dollara (2,9 milljarðar) – forgangsveð á flugvélinni

Lán til fasteignauppbygginga í Frakklandi til Ágústs Guðmundssonar upp á 8,9 milljónir evra (1,6 milljarð) – fyrir liggur að taka veð í húseignunum

Exista Sub Group                              35,37 (6,4 milljarðar)

Skipti                                                     296,7 (53,6 milljarðar)

Allar eignir Skipta eru veðsettar fyrir láninu, til að mynda bréf í dótturfélögum eins og Símanum.

Sirius IT Holding A/S                        21,0 (3,8 milljarðar)

On-Waves ehf                                   1,7

Bakkavör Group hf                          95,5 (17,3 milljarðar)

Skammtímalán sem rann út í nóvember á síðasta ári.

Bakkavör (London) Ltd.                                19,9 (3,6 milljarðar)

Samtals                                                1840,1 (332,7 milljarðar)

Robert Tchenguiz

TDT                                                        1374,0 (248,4 milljarðar)

Veð í öllum eignum Oscatello Investments sem og í hlutum TDT í Mitchells & Butler kráarkeðjunni og Somerfield. Kaupþing búið að taka þetta allt yfir

Samtals                                                1374,0   (248,4 milljarðar)

Vincent Tchenguiz

Pennyrock Limited                           128,7 (23,2 milljarðar)

Veð í leigutekjum af fasteignum í eigu félagsins í Bretlandi.

Elsina Ltd.                                            80,0 (14,5 milljarðar)

Samtals                                                208,7 (37,7 milljarðar)

Samvinnutryggingasjóðurinn

Gift fjárfestingafélag                     166,8 (30,2 milljarðar)

Veð í bréfum félagsins í Kaupþingi og Exista

Samtals                                                166,8 (30,2 milljarðar)

Skúli Þorvaldsson

Skúli Þorvaldsson                             651,7 (117,8 milljarðar)

Stærsti lántaki Kaupþings í Lúxemburg. Helstu eignir voru skuldabréf í Kaupþingi, og hlutabréf í Sampo.

Holt Investment Group                  138,6 (25,1 milljarður)

Hlutir í Kaupþingi og Exista teknir í veð. Verðlausir í dag

Samtals                                                790,3 (142,9 milljarðar)

Ólafur Ólafsson

Kjalar hf                                               478,4 (86,5 milljarðar)

Bréf í Kaupþingi, HB Granda og Alfesca veðsett fyrir láni.

Iceland Seafood Intern. ehf         70,7 (12,8 milljarðar)

Veð í starfsemi og öllum dótturfélögum

Samskip Holding BV                        32,0 (5,8 milljarðar)

Fengu nýtt 10 milljón evra lán í júní 2008 til að fjármagna starfsemi. Veð í öllum bréfum í Samskip Holding BV

Samskip hf                                          6,0

Veð í öllum bréfum Samskip

Ólafur Ólafsson                                                48,9 (8,8 milljarðar)

Meðal annars lán til þyrluflugfélags  – veð í félögunum sjálfum sem heyra undir Ólaf

Alfesca                                                 147,8 (26,7 milljarðar)

Allt fyrirtækið veðsett

Samtals                                                783,8 (141,7 milljarðar)

Jón Ásgeir Jóhannesson

Baugur Group                                   180,5 (32,6 milljarðar)

Veð að mestum hluta í skráðum og óskráðum félögum í eigu Baugs. Hafa verulegar áhyggjur af skuldum Baugs sem nema 1,6 milljarði evra (289,3 milljarðar)

F-Capital ehf                                      78,9 (14,3 milljarðar)

BG Equity 1                                         22,6 (4,1 milljarður)

Fjárfestingafélagið Gaumur        17,9 (3,2 milljarðar)

BGE eignarhaldsfélag                     14,2 (2,6 milljarðar)

1998 ehf                                               263,5 (47,6 milljarðar)

Veð í 95,7% hlut í Högum og 35% hlut í Baugi. Hlutur í Högum keyptur á 30 milljarða frá Baugi .

Eignarhaldsfélagið ISP                   19,8 (3,6 milljarðar)

Veð í bréfum, skráðum og óskráðum.

Hagar hf                                              5,8

Aðrar eignir                                        6,7

Gaumur Group                                  23,0 (4,2 milljarðar)

Mosaic Fashion                                                522,0 (94,3 milljarðar)

Kaupþing hefur tekið yfir Mosaic Fashion

Landic Property ehf                         280,0 (50,6 milljarðar)

Veð í helstu eignum félagsins eins og Hótel Nordica og Kringlunni

101 Skuggahverfi ehf                     22,9 (4,1 milljarður)

Veð í núverandi og fyrirhuguðum framkvæmdum í Skuggahverfi og skrifstofubyggingu að Borgartúni 26.

Þyrping ehf                                         10,9 (1,9 milljarður)

Veð í lóð við Bygggarða á Seltjarnarnesi sem ekki fæst leyfi til að byggja á.

AB 106 ehf                                           3,6

AB 113 ehf                                           3,6

Akraland ehf                                      0,4

Stoðir hf                                               252,1 (45,6 milljarðar)

Veð í bréfum Stoða í Glitni sem eru einskis virði.

Unity Investment                             75,0 (13,6 milljarðar)

Stoðir (37,5%) ábyrgjast 15 milljónir punda, Baugur Group (37,5%) 15 milljónir punda og Kevin Stanford (25%) 35 milljónir punda.

Samtals                                                1803,01 (326 milljarðar)

Kevin Stanford (viðskiptafélagi Baugs)

Kevin G. Stanford (LUX)                                374,8 (67,7 milljarðar)

Var annar stærsti viðskiptavinur KB í Lúxemburg og fjórði stærsti hluthafi Kaupþings. Helstu eignahlutir voru í Kaupþing, Baugi Group og Mulberry sem átti All Saints.

Kevin G. Stanford                             102,6 (18,6 milljarðar)

Trenvis Ltd.                                         41,7 (7,5 milljarðar)

Materia Invest                                  51,3 (9,3 milljarðar

Bréf í Stoðum sem og persónuleg ábyrgð eigandanna þriggja, Kevins Stanford, Magnúsar Ármanns og Þorsteins M. Jónssonar að hámarki 2 milljónir evra á mann.

Samtals                                                570,4 (103,1 milljarður)

Þorsteinn M. Jónsson (viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs)

Vífilfell                                                  16,1 (2,9 milljarðar)

Veð í öllum fasteignum félagsins

Stuðlaháls ehf                                   14,9 (2,7 milljarðar)

Sólstafir                                               41,9 (7,6 milljarðar

Veð í bréfum félagsins í Bakkavör, Kaupþingi og Existu auk Vífilfells.

Samtals                                                72,9 (13,2 milljarðar)

Björgólfsfeðgar

Empennage Inc                                 65,6

Félag sem hélt utan um hluti starfsmanna í Landsbankanum í bankanum sjálfum. Veð í bréfum og baktryggt af Landsbankanum.

Samson eignarhaldsfélag            39,2

Fallið á gjalddaga. Var með veð í bréfum í Landsbankanum og algjörri persónulegri ábyrgð Björgólfsfeðga sem hafa verið í samningaviðræðum um afskriftir á hluta af þessu láni.

Rauðsvík ehf                                      19,9

Stofnað í kringum reitinn í miðbænum. Veð í verkefninu sjálfu og baktryggt af móðurfélaginu Novator Properties.

Samson Properties                          0,8

Samtals                                               125,5 (22,7 milljarðar)

Antonios Yerolemou (viðskiptafélagi Bakkabræðra)

AY                                                           365,0 (66 milljarðar)

Helstu eignarhlutir voru í Kaupþing, Sampo og Bakkavör. Veð í eignarhaldsfélögum sem áttu þessi bréf.

Samtals                                                365,0 (66 milljarðar)

Jón Helgi Guðmundsson

Smáragarður ehf                             126,2

Veð í húseignum sem hýsa meðal annars Krónuna, Byko, Nóatún, Intersport og ELKO.

Straumborg ehf                                                75,1

Ótryggt en stærstu hlutir í Kaupþingi og Norvik Banka.

JSC Norvik Banka                             50,6

Ótryggð

Norvik hf                                             2,6

Byko hf                                                 0,4

Samtals                                                254,9 (46,1 milljarður)

Jákub Jakobsen

Jysk Linen‘n Furniture Inc             29,5

Lagerinn Dutch Holding                 66,8

Öll bréf félaga í eigu LDH eru veðsett fyrir láninu. Þau eru Rúmfatalagerinn, Jysk, Nif ehf, HC Bik og Jóska ehf.

Lagerinn ehf                                       10,6

Xxxx

Rúmfatalagerinn                             7,7

Nif ehf                                                  7,0

Holding Company Bik                     4,7

Ilva A/S                                                                99,1

Gjaldþrota

SMI ehf                                                                92,6

Aðaleignir eru Smáratorg, Smáratorgsturninn og Korputorg sem eru öll veðsett fyrir lánum.

Samtals                                                318,0 (57,5 milljarðar)

Saxhóll og BYGG

Saxbygg Invest                                 207,2

Veð í bréfum í Glitni og Fasteignafélagi Íslands.

Saxhóll ehf                                          12,3

Saxbygg ehf                                       13,5

Samtals                                                233,0 (42,1 milljarður)

Össur hf

Össur hf                                               218,7

Samtals                                                218,7 (39,5 milljarðar)

Í stuttu máli

Félög tengd Bakkabræðrum                       332,7 milljarðar

Félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni  326 milljarðar

Félög tengd Tchenguiz-bræðrum             286,1 milljarður

Félög tengd Skúla Þorvaldssyni                 142,9 milljarðar

Félög tengd Ólafi Ólafssyni                         141,7 milljarður

Félög tengd Kevin Stanford                        103,1 milljarður

Antonios Yerolemou                                     66 milljarðar

Félög tengd Jákubi Jakobsen                      57,5 milljarðar

Félög tengd Jóni Helga Guðmundssyni  46,1 milljarður

Saxhóll                                                                                 42,1 milljarður

Össur                                                                    39,5 milljarðar

Samvinnutryggingasjóðurinn                     30,2 milljarðar

Félög tengd Björgólfsfeðgum                    22,7 milljarðar

Félög tengd Þorsteini M. Jónssyni           13,2 milljarðar