Þessi frétt fær mig til að hugsa hvort ekki sé einmitt rétti tíminn núna til að taka til. Ríkislögreglustjóraembættið er hluti af þessu, og þar má klárlega skera fitulagið burt. Lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu getur tekið við hluta verkefnanna, eins og sérsveitinni og efnahagsbrotadeildinni, en það sem mest er um vert þá gefst núna kjörið tækifæri til að fækka silkihúfunum sem hefur fjölgað gríðarlega á kostnað almennra lögreglumanna.
Meginhlutverk RLS er:
a. Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglunnar í umboði dómsmálaráðherra. út með þennan aukalið – inn í ráðuneyti með þetta.
b. Að flytja og kynna lögreglustjórum boð og ákvarðanir æðstu handhafa ríkisvaldsins, sem snerta starfsemi lögreglunnar með einum eða öðrum hætti og vinna að og fylgjast með að þeim ákvörðunum verði fylgt í starfi lögreglunnar. – út með þennan aukalið – inn í ráðuneyti með þetta.
c. Að láta dómsmálaráðherra í té upplýsingar um hvers konar lögreglumálefni sem hann getur notað til að undirbúa og byggja ákvarðanir sínar á. Lögreglustjóraembættin geta vel verið í góðu sambandi við ráðherrann án svona aukahækju.
d. Að gera tillögur til dómsmálaráðherra um almenn fyrirmæli til lögreglustjóra. út með þennan aukalið – inn í ráðuneyti með þetta.
e. Að vinna að og gera tillögur um hagræðingu, samræmingu, framþróun og öryggi í starfsemi lögreglunnar. Lögreglustjóraembættin geta vel verið í góðu sambandi við ráðherrann án svona aukahækju.
f. Að annast alþjóðasamskipti á sviði löggæslu.Hægt er að færa þetta undir Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu ef einhver einn á að sinna þessu. Nú eða ráðuneytið sem fær samskiptin við lögregluna aftur í fangið án varamanns.
g. Að veita lögreglustjórum aðstoð og stuðning í lögreglustörfum. Ráðuneytismál. Einn starfsmaður í ráðuneyti sem hefur þann starfa að vera í samskiptum við lögreglustjóra.
h. Að annast viðfangsefni sem vegna aðstæðna kalla á samhæfingu á landsvísu eða samstarf við lögreglu í öðru landi. Hér er sérsveitin – sem getur sinnt almennum löggæslustörfum en svo verið sérþjálfaðir og tiltækir þegar sérstakar aðstæður skapast.
i. Að hafa með höndum yfirstjórn eða gefa fyrirmæli um framkvæmd einstakra löggæsluverkefna sem krefjast viðamikils undirbúnings eða þátttöku lögreglumanna úr fleiri en einu umdæmi. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu getur tekið að sér skipulagningu þessa.
j. Ríkislögreglustjóra ber enn fremur að hafa með höndum sérstök verkefni sem snúa að rekstri lögregludeilda á sviði skatta- og efnahagsbrota, og tæknirannsókna, auk deildar sem rannsakar landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins. Þá skal starfrækja alþjóðadeild sem annist alþjóðleg boðskipti. Þessar deildir skal færa undir LHR.
k. Ríkislögreglustjóri stýrir starfsemi almannavarna í umboði dómsmálaráðherra að höfðu samráði við almannavarnaráð.
Að öðru leyti er sérstaklega hugað að eftirtöldum verkefnum:
- Þróun og viðhaldi tölvumálefna og upplýsingakerfa
- Starfsmannamálum og stjórnun lögregluliða
- Öryggi æðstu handhafa ríkisvaldsins, sendimanna erlendra ríkja og þjóðhöfðingja á ferðum um Ísland
- Samræmingu og stjórnun aðgerða vegna hermdarverka eða þegar almannavá eða hættuástand ber að höndum
- Samræmingu á störfum lögreglunnar við yfirstjórn leitar- og björgunaraðgerða á landi, sbr. 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga
- Eftirliti með lögreglustöðvum, tækjum þeirra og búnaði
- Forvörnum og samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir
- Samræmingu aðgerða í umferðarmálum
Spörum umtalsverða fjármuni, fjölgum almennum lögreglumönnum og fækkum millistjórnendum. Ég veit vel að nú tryllast margir enda er aðferðin drastísk, en… þetta eru þannig tímar að við bara getum ekki verið með einhverja viðkvæmni. LHR sinnir frábæru starfi þó naumur sé fjárhagurinn. Ég treysti því embætti vel til að taka við þeim hlutverkum sem ómögulegt er að leggja niður, önnur má færa inn í ráðuneytið að nýju. Sparnaðurinn yrði gríðarlegur og það er það sem þarf.
… svo í framhaldi af umræðu gærdagsins, langar mig að benda á þessa grein hér

Helga Vala Helgadóttir
6 ummæli
kl
Sigurður #1
Algerlega sammála þér.
Góður pistill
kl
Innherjir
Því miður er ein stór veila í þessu hjá þér, sparnaður næst ekki með tilfærslu á verkefnum. Eina sem breytist er kostnaðarfærslan í bókhaldi ríkisins, þ.e.a.s. gjöld A verða gjöld B.
Það verður því að hætta með verkefni eða deildir.
kl
Sigurður #1
Innherji.
Þú hefur með örfáum orðum lýst því yfir að það sé engin hagræðing í sameiningu, og stærri einingum.
Til hvers ætli fyrirtæki, einka og ríkis hafi verið að sameina og stækka einingar, í staðinn fyrir margar smáar úti um allt.
Ríkislögreglustjóri er punt djobb, búið tl af BB fyrir frænda sinn.
kl
Helgavalan
Það er tómt mál að tala um að það verði enginn sparnaður við þessar tilfærslur – því ég lagði einnig til niðurfellingu starfa, silkihúfa, sem vel er hægt að gera, verkefnin má setja á marga pósta sem fyrir eru…
Áætluð fjárþörf embættis ríkislögreglustjóra er 1.334,7 milljónir króna, eða eitt þúsund þrjúhundruð þrjátíu og fjórar milljónir!
fyrr má nú rota…
samkvæmt ársskýrslu RLS má sjá að launakostnaður ársins 2007 var 934 milljónir, ferða- og fundakostnaður 52 milljónir, aðkeypt þjónusta 151 milljón, húsnæði 78 milljónir og bifreiða og rekstrarvörur tæpar 80 milljónir það árið.
ég er hrædd um að ég hafi nokkuð til míns máls…
kl
Innherji
Ef við göngum út frá þessum launakostnaði og áætlum útfrá árskýrslu RLS
og svari ráðherra við fyrirspurn KH (sjá http://url.is/1th)
Sérsveit = 300 mill
Alþjóðadeild = 100 mill
Efnahagsbrot =80 mill
Almannavarnir = 50 mill
Fjarskipti=100 mill
Tölvur=80 mill
Tölfræði= 50 mill
tæknimál=20 mill
Greining =40 mill
Yfirstjórn=50 mill
Annað + skekkja = 114 mill
Annar kostnaður er væntanlega afleiddur í sambærilegum hlutföllum.
Punkturinn sem ég var með er að það sparast +300 mill við að taka ákvörðun að hætta með sérsveit en með sameiningu við LRH þá má kannski spara 3-10 mill.
Stóru tölurnar fást með því að taka ákvörðun um að hætta veita einhverja þjónustu eða að niðurgreiða einhver fríðindi t.d. má spara 800 mill á hverju ári næstu 35 árin með því að hætta við bygginu kreppuhallarinnar í reykjavíkurhöfn.
En því ekki að snúa þessi við og spara alla yfistjórn lögreglunnar með einni lögreglu sem skrifstofu í ráðuneytinu 20 x 10 mill = 200 mill sparnaður bara í lögreglustjórum og þá áttu allt hitt liðið eftir?
kl
jens
Það er kominn tími til að minna á þögnina sem ríkir hjá ykkur Samfylkingarfólki um styrkjamál flokksins.
Ég man að þú skrifaðir fjálglega um styrkjamál Sjálfstæðisflokksins og var því alltaf að bíða eftir einhverju svipuðu um styrkjamál Samfylkingarinnar.
Annars er þögnin líka ágæt – minnir mann á að það er samskonar fólk í öllum flokkum.