Hef verið hugsi síðustu daga vegna fréttaflutnings af fólki sem ekki hyggst greiða reikningana sína.
Ástandið í þjóðfélaginu er mjög slæmt, því verður ekki neitað. En ég er hugsi yfir því fólki sem kemur fram í fjölmiðlum og segist vel hafa efni á að greiða reikningana sína en ætli ekki að gera það.
Eitt dæmi sem ég heyrði um helgina var maður, sem á tvær íbúðir. Hann skuldar 9 milljónir í annarri og 5 milljónir í hinni. Hann er reiður því lánin hafa hækkað svo gríðarlega. Engu að síður hefur hann efni á að greiða af lánunum en ætlar ekki að greiða því hann vill mótmæla.
Ég veit líka af fólki sem gekk í gin bankanna, endurfjármagnaði íbúðirnar sínar, keypti svo bíl, nýja innréttingu og raftæki fyrir allan peninginn. Þetta fólk er líka reitt í dag því lánin hafa hækkað.
Nú veit ég að ég varpa fram sprengju, en.. mér finnst ótrúlega óréttlátt að þetta fólk sé að nýta sér neyð þeirra sem virkilega hafa það ferlegt. Það er nefnilega fólk á Íslandi sem hefur núna misst vinnuna, getur raunverulega ekki greitt af húsnæði sínu, hefur ekki efni á að borga nauðsynjar fyrir börnin sín. Þetta fólk er ekki endilega það fólk sem hvað hæst lætur núna. Það eru aðrir, sem græða minna sem hvað hæst láta.
Ég ætla mér ekki að hætta að borga alla reikninga. Ég ætla að borga það sem ég get borgað, og treysti því að verið sé að vinna hörðum höndum að því að koma landinu á rétta braut. Þetta var ekkert smáræðis hrun sem hér varð og það væri óeðlilegt ef búið væri að laga allt sem fór aflögu. En það bætir ekkert ástandið að segja fokk með ykkur öll og ég borga ekki mínar skuldir. Þó að þetta sé fúlt og ferlega óréttlátt allt saman. Við skulum halda áfram að standa okkar plikt. Höldum utan um börnin okkar og fjölskylduna og róum áfram. Á endanum komumst við fyrir vind og þá er nú betra að hafa róið með en ekki hoppað fyrir borð… því það er ekkert meira réttlæti í því að ég borgi fyrir jeppann eða hina íbúð mannsins sem ekki ætlar að borga…

Helga Vala Helgadóttir
Nýlegar athugasemdir