Milljónirnar frá Gulla

Hvernig er það, ætlar enginn fjölmiðill að skoða hvaða fólk er á bakvið þau félög sem fengu milljónirnar frá Gulla í Heilbrigðisráðuneytinu?

Ætlar enginn að benda á það að formaður Fjölnis í Grafarvogi, þ.e. ekki Gulli sjálfur því hann var formaður þar til fyrir þremur árum, heldur sá sem er þar núna,  fékk tæpar 11. milljónir í ráðgjafakaup.

Svo fékk varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins tæpa 1.5 milljón fyrir að semja tvö lagafrumvörp fyrir ráðuneytið. Er þetta kannski alvanalegt í stjórnkerfinu? Ef svo er – erum við þá ekki komin með massíva sparnaðarleið í kerfinu þegar starfsmenn ráðuneytanna fara jafnvel sjálfir að vinna í þessum málum í vinnutíma sínum… á launum hjá okkur.

Kannski hefur Gulli, þegar allt kemur til alls, gert okkur mikinn greiða, því hver veit nema við getum fundið fleiri svona pytti í ráðuneytunum þar sem taka má til.. hlakka til að sjá það.

12 ummæli

við verðum samt að muna að Dögg er ein af okkar helstu sérfræðingum í heilbrigðislögfræði, þannig að það er ekki óeðlilegt að leita til hennar jafnvel þó hún sé einnig varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Steinþór

Ja, hver á að fjalla um þetta. Mér sýnist nær öll fréttamannamafían vera komin í framboð fyrir Samfylkinguna.

Halldór Á

Smásálir eltast við smáar upphæðir. Þess vegna rúlla fjölmiðlar sér upp úr 90 þús kr. framsóknarboði Óskars Bergssonar og aðkeyptri ráðgjöf Guðlaugs Þórs. Smásálir spyrja ekki hvort notkun þessara fjármuna hafi gert skattgreiðendum eitthvert gagn. En er það ekki einmitt staðreyndin með aðkeypta ráðgjöf Guðlaugs – var hún ekki gerð til þess að spara okkur skattgreiðendum milljarða með hagræðingu í heilbrigðiskerfinu?

Steinþór ! Ég hélt að sjálfstæðismenn ættu í raun öll tök í nær öllum fjölmiðlum í landinu, þar með talið Fréttablaðinu (Er Þorsteinn Pálsson ekki ritstjóri þar? eða hvað?)
Halldór ! Þetta snýst ekki fjárhæðina per se, þetta eru svona bittlingar og klór, þ.e. þú klórar mér og ég klóra þér. Klóran sem notuð er, er hinsvegar kostuð af skattgreiðendum.

Hnífurinn

Merkilegt með hægri menn og mýtuna um „the left wing media“, hreint alveg magnaður andskoti

Hér er ágæt bloggfærsla sem ég rakst á áðan.

Halldór Á

Egill – það sem ég er að benda á er að yfirleitt eru það einhverjar smáupphæðir sem fá mesta athyglina. Árni Johnsen fór í fangelsi fyrir að stela 3 milljónum frá ríkinu. Friðrik Sophusson hélt einu sinni kokkteilboð fyrir gamla menntaskólabekkinn sinn á kostnað iðnaðarráðuneytisins og allt varð vitlaust. Og þekktasta sagan er auðvitað af grænu baunum Steingríms Hermannssonar.

Á meðan voru fjárglæframenn – eigendur fjölmiðlanna – að stela hundruð milljarða af okkur, en enginn sagði neitt. Meira að segja eftir hrunið er erfitt að fjalla um milljarðana, vegna þess að það er svo erfitt að skilja slíkar tölur. Hins vegar er auðvelt fyrir allan almenning að skilja smáu tölurnar, eins og 90 þús kr. kokteilinn hjá Óskari Bergssyni – svipað og ein fermingarveisla. Vissulega er öll ráðstöfun opinberra fjármuna af þessu tagi á gráu svæði eða hreinn þjófnaður, en samt er eitthvað svo grátlegt hvað þessi tittlingaskítur fær mikla athygli, meðan milljarðaþjófanðurinn hverfur í umræðu um skuldir þjóðarinnar.

Meiningin hjá mér er þessi – við skulum ekki æsa okkur of mikið yfir húsflugunum á sama tíma og hrægammarnir sveima yfir höfðum okkar.

Nei Halldór, upphæðirnar skipta engu máli. Það er hugsunin sem liggur þarna að baki sem er aðalmálið. Það er ekki í lagi að nota almannafé í eigin þágu eða til þess að hylla þeim sem standa manni nálægt, alveg sama hvað upphæðin er „lág“. Þetta er kallað svik og prettir alstaðar annarstaðar en á Íslandi virðist vera. Það gerir stuldin svo ekki réttmætari að einhver annar hafi stolið meiru en þú. Það þarf svo ekki mikil vísindi til að sjá það að fólk sem gerir svona einu sinni og kemst upp með það gerir það að öllum líkindum aftur og ekki óviðbúið að það verði reynt að slægjast eftir hærri upphæð í það skiptið.

Þetta snýst um það að fólk hafi siðferðiskennd til þess að greina munin á réttu og röngu og að hún sé það sterk að fólk fari eftir henni. Það er óþarfi að fara að telja upp þá íslensku stjórnmálamenn sem hafa sýnt það að siðferðið þvælist ekki mikið fyrir þeim, nógu marga er búið að telja upp hér að ofan. Íslensk stjórnmál verða ekki laus við spillingu fyrr en fólk fattar þessa hugsun og fer að fara eftir henni. Það verður hinsvegar seint ef að almenningur lætur svona vinnubrögð viðgangast og kýs alltaf sömu vitleysuna yfir sig aftur og aftur…

Guðrún Vestfirðingur

Hef aldrei lesið eftir þig eitthvað um það sem meintir útrásarvíkingar hafa stolið getur það verið af því að þeir hafa stutt þinn flokk vel í gegnum tíðina. Það voru peningar sem almenningur í landinu á. Ég er ekki samþykk því að ráðamen þjóðarinnar noti fé í sína eða vinaþágu. Og skiptir mig engu í hvaða flokki menn eru en vona ef samfylking verði áfram að hún þori að taka á sínum vinum

Það er eitt sem alltaf gleymist í umræðunni um fé sem haft er af almenningi og það eru svikin sem eru í svartri vinnu. Það kosta almenning meira en allir þessir bittlingar. Það er ótrúlegt hve litla umfjöllun þetta fær hjá þjóðinni. Kannski erum við orðin svo vön þessu að þetta er bara partur af lífinu, en á meðan svo er þá skerðist þjónustan okkar og við borgum meiri skatta fyrir þetta svindlara hyski. Hvernig væri að fólk gæfi þessu meiri gaum ? Við erum hreykin af því að henda eggjum í Davíð Oddson, en spörum eitthvað af eggjunum og sjáum hvað kemur í ljós þegar sést hvað kemur undan nokkrum steinum sem núverandi ríkisstjórn hefur heitið að velta við !

skrítið að menn telji þetta ekki skipta máli???. í dag er það þannig að allir aurar skipta máli og eiga auðvitað að skipta máli. og þetta hjá Gulla er alger skítur. Heildar útgj ráðuneytisins skiptir engu máli í samanburðinum.

Ps ég kaus hann síðast en ekki núna sorry Gulli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og sex? Svar: