pólitísk aðför

já en… Davíð… ráðning þín var pólitísk aðför að Seðlabankanum…. það að losna við þig yrði þá til að rétta við þá aðför sem gerð var að þessari mikilvægu stofnun….

6 ummæli

Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur

Síðustu fréttir munu skaða orðspor Íslendinga verulega og ekki styrkja samningsstöðu þeirra erlendis. „Hvers konar bjánar eru þetta sem búa þarna ?“

Hafdís

Jæja, Helga Vala

Þú varst í forsvari þeirra sem sprengdu síðustu ríkisstjórn.

Er þetta partý meira spennandi?

Á Davíð Oddsson ekki að fá að sprengja þessa ríkisstjórn líka með þér og hinum Talibönunum?

Eða er byltingin bara andvana fædd eins og svo margir óttuðust?

Hafdís

Ps. Hvað hefur áunnist í raun og veru?

Niðurstaðan: Davíð rules… og allt púðrið fer í hann og hans smjörklípur enda karlinn vanur að vera miðdepill alls: líkið í jarðarförinni og brúðurin í brúðkaupinu… Líkt og þú sjálf.

Helvítis fucking fuck

Gústaf

En brottvikning Bolla Þórs úr forsætisráðuneytinu? Hagfræðingsins virta og reynda sem Jón Baldvin réði, Ólafur Ragnar, Friðrik Sophusson og Geir Haarde unnu með í sátt, og Halldór Ásgríms hækkaði í tign. Að hafa hann verkefnalausan á launum á meðan lögfræðingur úr félagsmálaráðuneyti stýrir efnahagsmálaráðuneyti þjóðarinnar, er það Jóhönnu til sóma?

Við bankahrunið sem varð í sept/okt ´08 mótuðust með miklum þunga , þrjár megin kröfur, með þjóðinni:
- Seðlabankastjórinn víki
- Fjármálaeftirlitið víki
- Ríkisstjórnin víki og boðað verði til kosninga hið fyrsta.

Við setningu alþingis að loknu jólaleyfi, sauð upp úr – mestu mótmæli í allri sögu þjóðarinnar leiddu til að ríkisstjórnin sagði af sér og kosningar verða 25. apríl 2009. Fjármálaeftirlitið sagði af sér og forstjórinn fékk reisupassann.

En Seðlabankastjórinn situr sem fastast og neitar að hlýða tilmælum forsætisráðherra- yfirmanni sínum.
Því miður munu mótmælin halda áfram og nú við Seðlabankann frá kl. 8 í fyrramálið- mánudag og um ófyrirsjánlegan tíma – búsáhaldamótmælin einskorðast við Seðlabankann. Nú fara fréttirnar út um allan heim… óskemmtilegt.

Í tilefni að pólitískum aðförum að Davíð í Seðlabankanum og fríi Baldurs Guðlaugssonar í forsætisráðuneytinu: Eru allir búnir að gleyma hinum alvöru pólitísku aðsóknum? : Þegar Davíð lagði niður Þjóðhagsstofnun því forstjórinn var ekki sammála útreikningum Davíðs á jákvæðri niðurstöðu afeigin hagstefnu og aðgerðum? Hva’ð kölluðu sjálfstæðismenn það? Dæmin eru mýmög önnur: Hvað fuku margir við einkavinavæðinguna?

Og : Er eitthvað athyglisvert að embættismenn sé sem eru gagnlausirfyrir land og þjóð og þar að auki verkfæri pólitískra flokka séu látnir fjúka? Á þessum forsendum mættu margir fjúka. Sennilega ætti dómsmálaráðherra að leggja fram lagafrumvarop um þetta efni…

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):