Blessuð sé minning þessa mikla meistara
Takk fyrir verk þín kæri.

blogg á eyjan.is
Færslur ritaðar í desember 2008.
Það er nú bara pínlegt að hlusta á Pál útvarpsstjóra margtyggja á eigendavaldinu á Fréttablaðinu.
Það er nefnilega þetta með fréttamatið.
Hvenær er frétt frétt. Er það frétt að annað af stærstu blöðum landsins, Morgunblaðið, er með forsíðugrein og opnu, fréttaskýringu, sem ekki er rétt? „Fréttaskýringu“ þar sem slegið er upp ýmsum staðreyndum sem „óvart“ eru rangar?
Já það myndi maður halda.
Er það frétt þegar Seðlabankastjóri vill koma og skýra sína hlið í miðri bankakreppu?
Já það myndi maður halda.
Jón Ásgeir fékk að koma inn fréttinni á stað í blaðinu – sem tekið er frá fyrir aðsendar greinar. Sjálf hef ég, sem er þó algjört nóboddí, komið inn grein í fréttablað og mogga með stuttum sem engum fyrirvara þegar um var að ræða svar við annarri grein og málið þótti þannig séð það brýnt að gott var að fá grein mína inn í samfellu við fyrri grein.
Davíð Oddsson fékk að koma í Kastljós Rúv, með engum fyrirvara, til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Í því tilfelli var öllum öðrum liðum þáttarins ýtt til hliðar. Ég talaði um það á sínum tíma að hann hafi verið í sínum sjálfskipuðu drottningarviðtölum, en var algjörlega sammála því að það hefði enginn fjölmiðill sagt nei við karlinn á þessum tímapunkti. Ekki heldur Rúv. Fréttablaðið hefði heldur ekki gert það.
Svo ég held að Palli ætti aðeins að róa sig á fimmtu hæðinni…..
Það er ekki tími til að blogga mikið þessi dægrin. En þegar komið er komið eftir lestur dagsins, þá finn ég mig knúna til að setja nokkur orð hér inn.
Mig langar til að koma á framfæri hrósi – og það er Rúv sem á hrósið og Bogi Ágústsson.
Náði að sjá meirihlutann af viðtalinu við Göran Persson, og bara langar að þakka fyrir það. Ég er svo þakklát fyrir það að okkur er boðið upp á svona hófstillt faglega tekin viðtöl öðru hverju. Ekkert skraut – ekkert vesen – bara heiðarlegt viðtal við erlenda einstaklinga sem kunna margt, vita annað og hafa bara gert margt áhugavert úti í heimi.
Mér fannst reyndar svolítið fyndin spurningin – „af hverju sögðust þjóðir styðja Íslendinga en snérust svo á sveif með ESB gegn Íslendingum þegar kom að Alþjóðagjaldeyrissjóðsláninu“. Ég skildi ekkert í því af hverju Göran svaraði ekki bara – „vegna þess að þið hafið ákveðið að taka þátt í samfélagi þjóðanna, hafið undirgengist ákveðinn samning og verðið að standa við hann. Það þýðir ekki að við séum á móti ykkur – heldur bara að það verða allir að standa við samninga sem þeir gera“. … En Göran svaraði ekki svona, hann talaði bara um esb og hvað hann hlakkaði til þegar allar norðurlandaþjóðirnar yrðu komnar inn…. eða eitthvað álíka…
En.. já takk fyrir mig Bogi og takk fyrir mig Rúv.
… já og stýrivextir hjá Seðlabankanum í USA er kominn niður í 0 – 0,25%…hvað eru stýrivextirnir aftur háir hjá okkur?
mér er nokk sama um margt þessa dagana sökum próftarnar – sem tekur frá manni allt og allt…
… en mér er ekki sama um það ef einhver stóriðjuhegrinn verður settur í umhverfisráðuneytið.
Mér finnst það fáránleg hugmynd ef skipta á Þórunni Sveinbjarnardóttur út.
… þá hef ég sagt það…
Mikið fannst mér undarlegt að hlusta á sjónvarpsfréttaflutning Rúv í gær af fundi hjá VG.
Þar tók fréttamaður fram, að mörg kunnugleg andlit væru á staðnum, sem þekkja mætti úr mótmælum liðinna vikna.
Sú ályktun sem draga mátti af þessu innskoti fréttakonunnar var: VG liðar eru að mótmæla. Mótmæli undanfarinna vikna eru pólitísk. Mótmælendur eru flokksbundnir og því í stjórnarandstöðu. ERGO – ekkert að marka mótmælin fyrst þau eru bara pólitísk.
Sannleikurinn er hins vegar sá að mótmælendur koma úr öllum flokkum. Það er ótrúlegt að ekki sé meira gert úr því þegar mörg þúsund Íslendingar mæta til að mótmæla á okkar fámenna landi, helgi eftir helgi í fimbulkulda og byl.
Ef við notum sömu líkingu og notuð voru til að mikla fjölda Falun gong liða á sínum tíma – þ.e. færa þetta yfir á fólksfjölda í USA – þá væri þetta eins og milljónir kæmu saman til að mótmæla.
En þarna gerir hins vegar fréttamaður tilraun til að smækka mótmæli, mótmælendur og alla andstöðu við það stjórnleysi sem er í gangi á Íslandi – eða stjórnun einstakra manna sem eru ekki kjörnir til að stjórna.
Ég mótmæli þessu, því ég hef mætt á næstum alla mótmælafundi og er ekki í VG. Leyfi mér að auki að fullyrða að mikill meirihluti þeirra sem þarna mæta eru ekki flokksbundnir VG liðar eða í öðrum flokkum.
smugan.. skemmtilegt…
Mikill meistari fallinn frá. Rúnar Júlíusson, konungur íslenskra rokkara.
Langar að setja inn nokkrar myndir frá því í Liverpool í vor, þegar Hljómar léku í Cavern club, og hópurinn sá einnig Sir. Paul McCartney á Anfield.
Hljómar við Penny Lane.
Fékk ótrúlegt tilboð, um að syngja með þessum meisturum lagið „Ég elska alla“ í Cavern Club. Þarna hófst minn ferill í rokkinu, og honum lauk sömuleiðis þarna. Hljómarnir gáfu það út eftir giggið að þetta hefði verið þeirra síðasta. Þeir spiluðu síðasta giggið í sjálfum Cavern Club þeirra Bítla, það var vel við hæfi. Hvað mig sjálfa varðar, þá held ég að það sé ekki hægt að toppa það að fá að syngja með sjálfum meistaranum þennan ástaróð. Best að byrja og enda á toppnum.
Rúnar og Grímur ræða við konu um Bítlana og áhrifin á samfélagið í Liverpool.
Dásamlega falleg eru þau María og Rúnar.
Vil ég votta aðstandendum mína innilegustu samúð, um leið og ég þakka Rúnari fyrir óendanlegt innlegg hans í íslenska tónlistarflóru.
Getur verið að ég hafi heyrt í gær, í samhengi við fréttir um sameiningu sparisjóða að væntanlega myndi ríkissjóður koma eitthvað að málinu?
Er möguleiki að einn eiganda sparisjóðanna, fjármálaráðherrann Árni M, ætli að koma þar eitthvað nærri?
Má það?
Ég hef ákveðið að bera fyrir mig bankaleynd ef ég verð spurð að einhverju óþægilegu í næsta prófi.
Næsta próf er einmitt í verðbréfamarkaðsrétti..
banki – verðbréfamarkaðsréttur – ég bara hlýt að geta það.
Vona bara að Aðalsteinn, kennarinn minn, sjái ekki þessa færslu.
Hvet alla til að horfa á Rúv í kvöld klukkan 20.55.
Þá verður sýnd myndin „úr vísnabók heimsins“ sem gerð var sumarið 2006. Innihaldið – ferð Ellenar Kristjáns og Eyþórs Gunnarssonar til Malaví – til að fylgja eftir disknum sem þau gerðu til styrktar fátækum fjölskyldum í Malaví.
Í þessari mynd sést til dæmis glögglega hvað við Íslendingar höfum það fjári gott… jafnvel í dag þegar allt virðist svart.
Nýlegar athugasemdir