Þar sem ég er byrjuð í próflestri ætlaði ég mér að halda mig frá þessum fjára, þ.e. blogginu.. en oft var þörf en nú er það algjört möst… að skrifa smá línu. geri því svona topp tíu.. og sé svo hvort ég endist í tíu… kannski verður þetta bara svona topp fimm… eða þrír.
1. HR – Egill Helgason fer mikinn á síðunni sinni um Háskólann í Reykjavík.Það er vegna þess að einhverjir krakkar tóku upp á því að mótmæla á facebook-inu ræðu Katrínar Oddsdóttur, laganema við HR. Krakkarnir mótmæla því að ræðan sé sett á heimasíðu HR.
Egill kýs að drulla yfir allan skólann vegna þessara krakka. Persónulega finnst mér það fáránlegt af þeim að vera að skipta sér af því hvað skólinn setur á heimasíðu sína, því ef skólinn ætlar að birta á síðunni greinar og ræður eftir nemendur og kennara þá ræður hann því, og á þá ekki að ritstýra því sem þangað fer inn eftir skoðunum vefstjóra. Skólinn hefur ákveðið að nota svæðið undir svona hluti og er það bara flott mál. En mér finnst líka fáránlegt af Agli að dæma heilan skóla vegna nokkurra krakka. Það hafa, Guði sé lof, alltaf verið alls konar einstaklingar í Háskólum landsins og heimsins og það að ætla að dæma heilan Háskóla vegna skrifa nokkurra einstaklinga er út í hött. Ég get allt eins sagt, hvað er að þessum ÍSLENDINGUM sem leyfa ekki ungri lagastúdínu að segja orð sín á Austurvelli án þess að gagnrýna. Ég gæti allt eins sagt, hvað er með þessa villinga í Vesturbæjarskólanum.. og jafnvel bara hvað er með þessa villinga í fyrsta bekk í Vesturbæjarskóla bara vegna þess að einhverjir tveir slást eða kasta snjóbolta í gamla konu…. (Egill liggur vel við höggi þarna eigandi fagran dreng í 1. bekk vbs). Ég spyr því sömuleiðis – hvar er frelsi einstaklingsins til að hafa sína skoðun, hver svo sem hún er? Þetta hefur ekkert með akademíu að gera. Þetta er skoðun þessara einstaklinga og mér finnst það frábært. Egill hefði kannski frekar átt að hrósa skólanum fyrir þessa ungu ræðukonu sem veigrar sér ekki við að standa fyrir framan alþjóð með SÍNA SKOÐUN!
Varðandi fjármál skólans þá hvet ég Egil til að fá Svöfu í þáttinn til sín. Þá getur hún sýnt honum svart á hvítu hvernig á að reka fyrirtæki! Mættu margir læra af henni.
2. BB. Hann var ekki menntamálaráðherra þegar ég átti samtalið við hann, á ganginum fyrir utan dyrnar inn á dagskrárdeild útvarpsins, heldur dómsmálaráðherra. Það að hann hafi ekki oft verið spurður í Spegilinum kom nú einnig til af því að þegar eftir svörum var leitað var hann oftar en ekki of upptekinn, rétt eins og á mánudaginn var þegar borgarafundurinn var haldinn, til að komast í þáttinn eða taka á móti okkur. Það var líklega ekkert persónulegt, bara mjög upptekinn maður enda nóg að gera.
3. Kjósendur var með vísan í hann en ekki mig. Kjósendur átti að vísa í eitthvað með lýðræðið og eigendur útvarpsins… – hefði mátt skýra betur.. en óyfirfarið blogg fór svona og í raun ekkert sem ég þarf að útskýra betur með það… þetta voru vissulega hlustendur mínir en kjósendur hans enda ég ekki í framboði.
4. Agnes – heyrði í henni í morgunþættinum á Bylgjunni í gærmorgun þar sem hún bísnaðist þessi ósköp yfir ófagmennsku G. Péturs Matthíassonar og því að þetta væri eins og hún færi að draga upp alls konar viðtöl frá löngu liðnum tíma. Ég vænti þess að hún hafi að minnsta kosti sömu skoðun á fyrrum ritstjóra sínum Matthíasi Johannesen, sem ekki tók gömul viðtöl og birti – heldur gömul einkasamtöl.. sem alls ekki voru ætluð til birtingar, hvorki þá né nú. Það að eitthvað gerist í anddyri forsætisráðuneytis í vitna viðurvist er nú ekki beint brot á trúnaði.
5. Pétur Blöndal – heyrði í honum í morgunþættinum á Bylgjunni í morgun. Þar spurði Kolla hann út í grein Jóns hagfræðings í bretlandi og þau orð að lagaumhverfið hér varðandi viðskipti á fjármálamarkaði hafi einfaldlega verið allt of rúm og mun rýmri en víða í kringum okkur. Pétur var fljótur til, kannski full fljótur, og hélt hann væri kominn í feitt. Svaraði því til að þetta væri nú allt ESB mál, því við hefðum bara tekið þá löggjöf sem hentaði okkur ekkert og sett inn sem hluta af EES. Þá benti Kolla honum á að reglurnar í löndum eins og Danmörku og Bretlandi væru mun strangari og væru þar þó um ESB ríki að ræða. SVaraði Pétur þá, eftir stutt hik „Já að hans mati“ eins og fyrst hann væri ekki að drulla yfir ESB þá væri þetta „bara að hans mati og lítið mark á takandi“ Hann byrjaði svo að tala eitthvað um skattheimtu sem væri strangari og eitthvað sem átti að afvegaleiða en þau Heimir og Kolla náðu að benda honum á að verið væri að ræða löggjöf og regluverk á fjármálamarkaði.
6. Morgunþátturinn á Bylgjunni – Í býtið – Heimir, Kolla, Þráinn og Gissur – Þið eruð að standa ykkur alveg ferlega vel! Ég er mjög ánægð með ykkur og hlusta orðið alltaf á ykkur. Ég hef verið algjör Rúvari – og er í grunninn algjör rúvari (tala eins og þetta sé einhver þjóðflokkur .. sem þetta er að vissu leyti) en þarna eruð þið algjörlega að skora. TAKK!
7. Grímur – segir ýmislegt um ósýnilega og óþekkta vestfirska drengi…. ekki fleira um það. Látum hann um það.
þetta varð þá topp sjö… í bili..
Nýlegar athugasemdir