september 2008

Færslur ritaðar í september 2008.

Dulúðin

Stjörnuspá

FiskarFiskar: Þú hefur ekkert að fela. Fyrir þér er líf þitt opin bók. Samt skaltu ekki að lesa upp úr þeirri bók fyrir neinn í dag. Haltu í dulúðina.

 

ég ætla ekki að segja meira í dag….

Í strætó í morgun naut ég þess að lesa brot úr væntanlegum jólabókum. Jólabókum… hmm.. þetta eru auðvitað bara bækur sem koma út fyrir jól, svo að ég ætti frekar að segja væntanlegum bókum.

Árni Þórarinsson, Guðrún Eva og Álfrún Gunnlaugs voru næst mér…

aðrir höfundar verða væntanlega á heimleiðinni.

Takk fyrir þetta kæri útgefandi – þetta var mjög skemmtileg lesning.

Ég er í Samfylkingunni. Ég er meira að segja í stjórn Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Ég verð að trúa ykkur fyrir því að ég kvíði því að hlusta á fréttirnar þessa dagana.

Mér finnst hörmulegt að vera í ríkisstjórn með fólki sem talar um rússneska björninn.

Mér finnst hörmulegt að vera í ríkisstjórn með fólki sem heimilar lögreglu að taka peninga af flóttafólki sem bíður hælis hér mánuðum og jafnvel árum saman vegna seinagangs í kerfinu.  Þetta eru peningar þessa fólks sem er hér að leita hælis, og þó að við séum að greiða fyrir veru þeirra, þá erum við um leið að banna þeim að vinna og sjá fyrir sér á meðan á biðinni stendur.

Mér finnst líka hörmulegt að vera í ríkisstjórn með fólki sem stefnir ljósmæðrum sem á í kjarabaráttu.

Mér finnst líka hörmulegt að vera í ríkisstjórn sem ætlar enn einu sinni að leyfa álversuppbyggingu, eins og það sé einhver redding. Þetta er rétt eins og alkinn sem fær sér afréttara, til að redda tímabundnum timburmönnum, í stað þess að hætta að drekka og snúa sér að öðru. Alkinn sem fórnar alvöru verðmætum eins og heilsu og fjölskyldu fyrir skyndilegan þorsta. Stjórnmálamaðurinn sem fórnar íslenskum auð, íslenskri náttúru og verðmætum framtíðarinnar fyrir skammtímaskuld… því ekkert er jú atvinnuleysið.

Mér finnst hörmulegt að vera í ríkisstjórn sem horfir á þjóðina tapa milljörðum, fyrirtæki fara á hausinn og fjölskyldurnar með vegna þess að fyrir tveimur árum var ákveðið að það mætti ekki tala um Evrópusambandið. Hagfræðingar hérlendis sem erlendis eru sammála um að það að halda krónunni gangandi kosti íslenska ríkið tugi milljarða á ári hverju. Samt sem áður er bannað að skipta um skoðun til bjargar íslenskri þjóð.

Þetta er auðvitað algjör hörmung.

Mér finnst gott að vera í stjórnmálaflokki þar sem að má setja fram gagnrýni. Vona að einhver fari að hlusta.

Afinn sem framdi kynferðisbrot gegn dótturdóttur sinni í rúmlega áratug fær það til refsilækkunar að vera tæplega níræður í dag.

Ég finn það að í málum eins og þessum hef ég ekki mikla samúð gagnvart gamalmennum.

Maðurinn misnotaði barnið frá fjögurra ára aldri til fimmtán ára aldurs, eða næ alla hennar barnæsku.

Mér finnst það bara ekkert koma málinu við hvað hann er gamall. Glæpurinn verður ekki minni fyrir vikið.

Hann var ekkert að spyrja að því hvað hún var gömul þegar hann misnotaði hana. Hann bara lét verkin tala.

Viðhorfið í 24 stundum í dag.

Já en ég er pabbi barnsins! 

Barnalög voru endurskoðuð fyrir nokkrum árum. Þá var sett inn sú pósitíva regla að móðir skuli feðra barn sitt þegar feðrunarreglur 2. greinar laganna eiga ekki við.

2. grein barnalaga segir til um það að eiginmaður eða skráður ambýlismaður móður barns verði sjálfkrafa talinn faðir barns.  

Réttur barna til að þekkja báða foreldra sína þykir ótvíræður og því þótti rétt að setja þessa skyldu á herðar mæðrum.

En hver er pabbinn?

En þá komum við að smá hnökrum. Í veruleikanum gengur ýmislegt á. Kona getur verið með barni þegar hún kynnist manni, jafnvel verðandi eiginmanni eða sambýlismanni. Maður sá á því með réttu ekkert í verðandi barni þrátt fyrir sambýlið við konuna.

Eftir að barnið er komið í heiminn er barnið sjálfkrafa feðrað, þrátt fyrir góðan vilja móður og föður að feðra barnið rétt. Það er ekki hægt að laga þetta nema að fara af stað með langt ferli, svokallað vefengingarmál, sem þeir einir geta höfðað sem tilgreindir eru í 21. grein laganna, eða móðir, skráður faðir og barnið sjálft.

Hinn eiginlegi faðir getur ekki höfðað vefengingarmál. Hann telst ekki aðili málsins. Hann getur ekkert gert til að breyta því.

Fari allt í hund og kött.

Lífið er ýmis konar og margbreytilegt og því ekki hægt að ganga að því sem vísu að allir séu réttlátir, sáttir og fallegir. Það er ekki hægt að ganga að því sem gefnu að móðir barnsins vilji feðra barnið sitt rétt né heldur að faðir barnsins vilji gangast við því. Þess vegna hefur verið boðið upp á það úrræði að hægt sé að höfða dómsmál til feðrunar barns. Þarf þá að sækja mál fyrir dómstólum sem fellir úrskurð um hver sé réttur faðir barnsins sem um ræðir. Þetta þykir sjálfsagt mál því eins og áður sagði þykir það sjálfsagður réttur hvers barns að þekkja báða foreldra sína. En þarna erum við aftur komin í hnút. Aftur segja barnalögin að þeir sem geti höfðað dómsmál séu móðirin, barnið sjálft og sá sem telur sig vera föður barns, enda hafi barnið ekki verið feðrað. Þessi síðastu orð „enda hafi barnið ekki verið feðrað“ skipta hér höfuð máli. Barn móður sem hefur sambúð eftir getnað er sjálfkrafa feðrað. Í þeirri stöðu getur réttur faðir ekki höfðað faðernismál því barnið er jú feðrað, þó ranglega sé. Því verður hann að treysta því að móðir barnsins eða barnið sjálft sé tilbúið til að höfða þetta mál. Réttur föðurins er enginn. Hann getur ekki krafist réttrar feðrunar á barni sínu, hvað sem hann reynir, nema með samþykki móðurinnar eða barnsins.

Breyttist í meðförum þingsins

Þegar frumvarp að breytingum á barnalögum var lagt fram á þinginu á sínum tíma var þessi fyrirvari um að barnið væri ófeðrað ekki til staðar. Frumvarpið tók breytingum í meðförum þingsins og það skilyrði sett inn að barnið yrði að vera ófeðrað til að faðirinn gæti höfðað faðernismál. Samt sem áður hafði Hæstiréttur í desembermánuði 2000 dæmt í faðernismáli sem faðir hafði höfðað. Hafði Hæstiréttur á orði að barnalögin brytu, með þessu ójafnræði um aðild að faðernismáli, gegn 70. grein stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.

Brot á stjórnarskránni enn við lýði

Þrátt fyrir þessa ábendingu á sínum tíma frá æðsta dómstól landsins hefur leiðrétting ekki orðið á þessu stjórnarskrárbroti í barnalögunum. Stjórnarskráin er æðsta réttarheimildin og ber að hafa það í huga við lagasetningu. Að þessu rituðu skora ég á Alþingi að kippa þessu óréttlæti gegn feðrum og börnum þeirra strax í lið, svo börnin fái rétti sínum um að þekkja báða foreldra sína framgengt.

Helga Vala Helgadóttir er áhugamanneskja um réttindi barna og feðra þeirra.

 

 

 

Rak augun í að Elías, núverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur, stingur upp á sameiningu Bolungarvíkur og Ísafjarðar nú þegar byrjað er að grafa göngin.

Datt í hug, því ég veit að einn maður er á lausu sem er feiknavinsæll karl og hörkudugleg kempa, hvort ekki væri ráð að dobbla Eirík Finn til að taka yfir stjórnina á þessum bæjarfélögum.

Þá fengju Flateyringar loksins eitthvað fyrir sinn snúð.

Og allir hinir líka, því hann er jú alveg þrælflottur hann Eiríkur.

Annars verð ég líka búin með skólann þegar göngin verða til, svo það er aldrei að vita hvað maður gerir… ég á jú hús í Víkinni…og… er þrælgóð á bassann….. múhahahaha

Nú verð ég að viðurkenna að ég horfi ekki mikið á sjónvarp.

Síðustu misseri sárasjaldan.

En að undanförnu hef ég kveikt nokkrum sinnum, í röð.

… ég hef greinilega misst af miklu. Það eina sem sýnt er í sjónvarpinu er dans. Öllum stundum. Á prime time á laugardagskvöldi, á mánudagskvöldi, á sunnudagseftirmiðdegi og þá örugglega líka alltaf þar á milli.

Missti ég af dansbyltingunni miklu?

Er einhver til í að láta mig vita þegar henni lýkur? Ætla að gera annað við tímann þangað til.

Að þessu var ég spurð í gær þegar ég sótti drenginn í rútuna úr sundkennslunni. Drengurinn er Arnaldur, sem bráðum verður sex ára og hann var að byrja í Vesturbæjarskóla. Hann hefur dáðst lengi að þessum skóla enda iðulega fylgt stóru systur þangað, sem nú var að byrja í þriðja bekk.

Arnaldur horfði í gær á eftir skólasystkinum fara úr rútunni og í röð, til að fara í Skýjaborgir – frístundaheimili það sem starfrækt er fyrir nemendur Vesturbæjarskóla. Suma nemendur Vesturbæjarskóla því það er ekki hægt að leyfa öllum börnum að vera þar. Bara sumum.

Það er vegna þess að það fæst ekki fólk til starfa. Þegar háskólafólkið, sem svo mikið hefur verið treyst á að ráði sig til vinnu, hringir og spyr um kaup og kjör er samtalinu fljótlega lokið.  Það borgar sig frekar að vinna nokkur kvöld í tíu ellefu heldur en að gefa sig þessum frábæru krökkum.

Starfið er skemmtilegt, en sértu að vinna með skólanum þá viltu væntanlega fá greitt fyrir það.

Þetta snýst ekki um húsnæði, þetta snýst um starfsfólk.

…. og þetta þurfti ég að útskýra fyrir Arnaldi.

… hann skilur það enn ekki af hverju hann má ekki fara eins og hinir í Skýjaborgir.

… eina jákvæða er að systir hans, Ásta Júlía, má heldur ekki fara í Skýjaborgir. Reyndar komst bara ein stúlka úr hennar bekk þar inn þetta haustið, svo að hún er ekki að horfa á eftir öllum bekknum ganga inn eins og bróðir hennar.

En hún bíður samt og vonar, því það var gaman þar í vor.

Við tókum þá ákvörðun á sínum tíma að veita þessa þjónustu. Það er algerlega óþolandi að hún bjóðist bara sumum. Við verðum að gera eitthvað í þessu kæri Kjartan Magnússon formaður ÍTR, Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi borgarstjóri og öll þið sem stýrið þessa stundina þessari borg!

Þetta er bara svo fjári ósanngjarnt fyrir börnin okkar.

Þetta finnst mér mjög sorglegt. Bolungarvík er dásamleg og ég skil vel að framsýnt fólk vilji byggja þar upp ferðaþjónustu.

Orð Þjóðverjans vekja sérstaka athygli mína.

Þessi klassíski frasi gæti reynst þessum ágæta manni svolítið öflugur. Sitjandi í örmum konu númer 76, mjálmandi „konan mín skilur mig ekki“ er líklega daglegt brauð hjá honum…

Trúarleiðtogi skilur við 86 eiginkonur sínar

mynd

Íslamskur trúarleiðtogi í Nígeríu hefur fallist á beiðni yfirboðara sinna um að skilja við 86 af eiginkonum sínum og halda aðeins fjórum þeirra eftir.

Æðsta ráð íslamskrar trúar í Nígeríu hafði dæmt leiðtogann til dauða vegna allra þessara eiginkvenna en sá dómur hefur nú verið dreginn til baka.

Leiðtoginn sem er orðinn 84 ára gamall segir að í Kóraninum sé hvergi að finna nein viðurlög við því að eiga fleiri en fjórar eiginkonur. Með konum sínum hefur leiðtoginn hingað til eignast að minnsta kosti 170 börn.