júlí 2008

Færslur ritaðar í júlí 2008.

Er það ekki núna sem maður á að hlusta á þennan fallega Neil.

Á baksíðu Moggans er stórfrétt um það að Einar Bárðarson segi skilið við Garðar Thór Cortes eins og það er orðað í undirfyrirsögn. Lok fréttar fjallar reyndar um það að hann ætli þó ekki alfarið að segja skilið við Garðar. En það er ekki það sem ég hnaut um. Það sem vakti athygli mína er að samkvæmt fréttinni er ástæða skilnaðarins sú að kona Einars á von á barni innan fárra vikna! Kona Einars! Ekki er þess getið að Einar eigi sjálfur von á barni heldur eingöngu tilgreint að kona Einars eigi von á barni. Veit ekki hvort á að lesa eitthvað úr því – nei, þetta var asnalegur brandari því að ég veit að það á ekkert að lesa neitt út úr þessu nema klaufaskap blaðamannsins sem skrifaði fréttina.

Til hamingju Einar og Áslaug með væntanlegan erfingja.

… varúð… sprengja…

… mér finnst hörmulegt að forsetinn okkar sé á leið á Ólympíuleikana. Miðað við þann langa lista af einstaklingum sem er óvelkominn á þessa íþróttahátíð finnst mér ótrúlegt að forsetinn skuli ekki falla undir einhvern þeirra flokka. Þessi listi Kínverja er ekkert annað en mannréttindabrot, því alþjóðasamfélagið hefur sett sér ákveðnar leikreglur og svo virðist sem Kínverjar gefi þeim reglum langt nef þegar kemur að gestavali í land sitt. Mér finnst semsagt alveg glatað að hann hafi ákveðið að mæta og styðja þar með stefnu kínverskra stjórnvalda.

Eitt fyrir Siggu Dögg sem núna horfir á mig dilla mér við skrifborðið mitt. Get ekki splittað disknum svo að hún fær eitt lag hér. Þetta er geðveik tónlist – The Ting Tings… algjört mega takk

Shut up and let me go

Var fjarverandi og skelli þessu inn hér núna. Þetta er pistill föstudagsins

Ekki frétt vikunnar

Það er ljóst að það er gúrka í fjölmiðlum. Þetta merki ég á því að ekki fréttir verða að fréttum.

Ekki frétt vikunnar er um Björn og evruna. Björn Bjarnason fjallaði um það á heimasíðu sinni að jafnvel væri málið fyrir Ísland að taka upp Evru án þess að ganga í Evrópusambandið. Hvaða della er þetta. Það er búið að tala um þetta margsinnis og jafnoft þeyta þessu út af borðinu. Þetta er ekki framkvæmanlegt. En ráðherrann ákveður samt að skella fram þessari hugmynd eins og hún sé alvöru hugmynd nú í miðri niðursveiflunni. Þannig verður þessi ekki frétt í raun að frétt, því maðurinn er jú ráðherra á Íslandi. Það er kannski helst það sem er frétt, að maðurinn láti annað eins frá sér fara.

Ábyrgð stjórnmálamanna

Mér finnst það harla óábyrgt af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra, sem alla jafna vill láta taka mark á sér, að slengja fram þessari hugmynd sinni. Oft hefur verið rætt um það fjálglega að iðnaðarráðherra bloggi í skjóli nætur um hluti sem hann ætti að láta ósagða en ég sé ekki betur en að nú hafi dómsmálaráðherra gerst sekur um slíkt hið sama, nema að þessir hlutir eru sagðir í fullri dagsbirtu og endurteknir dagana á eftir. Það er alvarlegt mál þegar svo hátt settir aðilar í ríkisstjórn Íslands setja fram viðlíka hugmynd vitandi að hún er alvitlaus og ekki framkvæmanleg. Þegar þessi pistill er ritaður hefur Björn bætt í ef eitthvað er, hann hefur margeflst í skoðun sinni og svarar fulltrúum Evrópusambandsins af fullum hroka.

Snýst bara um pólitík

Síðastliðinn miðvikudag skýrði Percy Westlund, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Íslandi frá því að það væru lögheimildir fyrir því að semja við ríki utan sambandsins um upptöku Evru ef sérstakar aðstæður lægju fyrir.

Hann sagði jafnframt að þær aðstæður næðu ekki yfir Ísland. Ljóst er að Svartfjallaland tók upp Evruna einhliða á sínum tíma, en þá var ríkið án gjaldmiðils og varð að koma sér upp mynt. Þessi gerningur var ekki vinsæll innan sambandsins en fallist á að aðstæður væru sérstakar. Evra er því óopinber gjaldmiðill í Svartfjallalandi. Sömu sögu má segja um Kósóvó, sem notar líka evruna. Engu að síður telur Björn, miðað við orð hans á heimasíðunni Björn.is, að þetta sé bara spurning um pólitík. Að reglunum megi breyta sé pólitískur vilji fyrir því. Að aðstæður Íslands séu svipaðar og í þessum ríkjum sem hafa þar til fyrir skömmu barist fyrir sjálfstæði sínu eða berjast enn.

Staða Íslands

Með þessari umræðu finnst mér Björn vera að smækka stöðu Íslands. Mér finnst vont til þess að hugsa að svona vitleysisumræða íslenskra ráðamanna berist út fyrir landsteinana. Látum vera ef almenningur veltir þessu fyrir sér í bloggi sínu og spjallþráðum en hér er um að ræða mann sem ku vera fremstur meðal jafningja í Evrópuþekkingu innan Sjálfstæðisflokksins. Hann á að vita betur. Hann á að vita sem er að það er ekki vilji fyrir því innan sambandsins að veita löndum utan þess aðgang að myntbandalagi Evrópusambandins. Þegar hann slær þessu fram með þessum hætti er hann að slá ryki í augu þeirra sem vilja alvöru umræðu um Evrópusambandsaðild. Þeirra sem vilja svo mjög mynda sér skoðun á því hvort við eigum að skoða möguleika á sambandsaðild. Legg ég til að Björn snúi sér heldur að því að aðstoða við að bjarga því sem bjargað verður í efnahagsmálum þjóðarinnar í stað þess að mála okkur fávísari en þarf úti í hinum stóra heimi.

Helga Vala Helgadóttir er áhugakona um ábyrga landsstjórn.

Þessi er ný í mínum heimi. Santogold. Algjört dúndur. Mæli með og vessgú

Hef ákveðið að kæla mannskapinn og leggja inn eina könnun. Svörin verða að vera á athugasemdakerfinu því að ég er svo illa gefin að ég kann ekkert að búa til svona fallega könnun sem maður hakar við. En spurningarnar eru eftirfarandi:

Hvaða farartæki á ég að nýta mér frá haustinu:

a) Reiðhjól, ekki spurning, börnin ganga sjálf í skólann og þú hefur gott af því að hreyfa þig stelpa.

b) Mótorhjól, ekki spurning. Fljótari á milli staða, en samt ekki á bensíneyðandi bíl. Auðveldara í vondu veðri að vera á mótorhjóli en reiðhjóli og blessuð vertu… lærin… þú ferð bara í ræktina.

c) Bíll, börnin og bónus.. ekki spurning. Skítt með bensínið og lærin.

d) Strætó. Ertu ekki námsmaður? Er ekki frjáls mæting í HR? Skiptir einhverju máli hvort þú kemur hálftímanum fyrr eða síðar í skólann? Kostar ekkert og sameiginlegur útblástur. Klárt mál.

Agnes Bragadóttir dettur í drullupoll í Morgunblaðinu í dag. Hún er þar að skrifa fallegan pistil um Einar Odd Kristjánsson, sem minnst var um helgina á Flateyri á mjög fallegan hátt. Í stað þess að láta það nægja, að minnast hans líka á fallegan hátt, ákveður hún að sverta pistil sinn með því að draga andúð sína á forsetanum inn í hann. Fer hún mikinn í að bera saman forsetann og Einar Odd, bara … af því bara. Reyndar segist hún ekki ætla að fara í nenn mannjöfnuð í þessum pistli sínum… en gerir það samt og það svona fáránlega. Það er ekki eins og þeir séu báðir fallnir frá. Það er ekki eins og þeir séu báðir á lífi. Það er ekki eins og þeir séu á einhvern hátt sambærilegir, að þeir séu að berjast um sama bitann, sömu stöðuna eða sömu vegtylluna. Ó nei. Á Flateyri safnaðist fjölskyldan og vinir saman til að minnast þessa manns og finnst mér í hæsta máta ósmekklegt af Agnesi að vera að maka sinni skoðun á alls óskildum einstaklingi inn í þessa fallegu stund.

Rak augun í það að fjölskyldufulltrúi HÍ vill afnema sumarfrí í leikskólum sem þjónusta námsmenn. Þetta komi sér svo illa fyrir þá námsmenn sem ráða sig í sumarvinnu.

Við þessu vil ég segja, hvers eiga aumingja börnin þeirra að gjalda? Eiga þau ekki rétt á að vera í sumarfríi eins og aðrir? Væri ekki einmitt frábært ef námsmenn gætu tekið sumarfrí með börnum sínum eftir sturlaða próftörn, eða áður en sturlunin hefst að nýju. Sturlun segi ég því að ég er í lögfræði í HR og veit hvers konar ómennskt álag getur verið þar á köflum.

Ég legg því eftirfarandi til:

Að LÍN sjái til þess að námsmenn geti tekið sumarfrí með börnum sínum. Að gert verði ráð fyrir einum auka mánuði í framfærslu fyrir þá námsmenn sem eru með börn.

Þetta held ég að væri mun mannúðlegra en sú tillaga að hleypa námsmannabörnum ekki í neitt sumarfrí.

Líf mitt einkennist af æðislegri tónlist þessa dagana. Jeminn hvað það er skemmtilegt. Sá Bonnie Prince Billy í Tívolíinu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Algjör snillingur þar á ferð og hrein unun að sjá hvað hann var í miklu stuði. Sá hann líka á Hróarskeldunni en það var allt öðru vísi. Hann er svo lágstemmdur karlinn að sunnudagskvöld á Keldunni var ekki alveg málið… eða jú… en sko… bara öðruvísi.

Svo núna er ég að hlusta á nýja diskinn hennar Cörlu Bruni. Hin franska söngkona er búin að heilla mig og ég veit fleiri upp úr skónum. Hún býður einlægum aðdáendum að hlusta á nýja diskinn á netinu; www.carlabruni.com  Mæli með því að þið farið þar inn, inn á VIP síðuna og þá fáið þið aðgang að disknum í tvo klukkutíma. Hún er æðisleg, vitiði… mig langar eiginlega að hafa hana bara alltaf í tækinu. Verst að ég fæ bara að njóta hennar í tvo tíma. Þetta gerir mig bara tryllta. Hún er greinilega tíser hún Carla….

« Fyrri færslur