apríl 2008

Færslur ritaðar í apríl 2008.

Lýður læknir á færslu dagsins.

Segi ekki meira.

Bang Bang með Nancy Sinatra… og Bang Bang með Iggy Pop…..

merkja þessi lög ekki bara eitt…

..farðu að vinna kona…

Bardot

Hún er auðvitað brjálæðislega fyndin söngkona þessi unnandi dýra og fegurðardrottning.

og svo síðast en alls ekki síst..

Langaði bara að setja þetta fallega lag inn. Mikið vildi ég eiga möguleika á að sjá bítlana á tónleikum. Það er nú ekki oft sem ég væri til í að hafa fæðst aðeins fyrr, en þarna væri ég til í að eiga möguleika á að vera.

Annars bara stuð. Það eru ansi margir sem hafa skoðun á Bolungarvíkur tjúttinu. Ég hef tekið þá ákvörðun að tjá mig … lítið… aldrei þessu vant. Það var þá loksins hún þagði.. næstum…. hún ég sko. Ætla í staðinn að vitna í eldheitan sjálfstæðismann sem ég hitti iðulega á Tárinu. Hann sagði einfaldlega “ Umsvif Soffíu Vagnsdóttur? Mætti segja mér að Einar heitinn Guðfinnsson snúi sér við í gröf sinni þegar talað er um að þetta séu umsvif“

Ylfa Mist, húsfrúin á númer tólf skrifar um skemmtilega uppákomu á bensínstöðinni í Bolungarvík á dögunum.

Þar er ákveðin kona, sem enginn þorir að nefna á nafn (pínu eins og Voldemort) sem stendur á bensínstöðinni og dásamar olíuhreinsunarstöð í hvert sinn sem einhver minnist á hátt eldsneytisverð.

Hún er svo dásamleg að fullyrða að olíuverðið lækki ef olíuhreinsunarstöð verður staðsett í næsta firði.

Hef ekki tekið eftir því að fiskurinn sé ódýrari í Víkinni fögru þó að vel fiskist á svæðinu. Samt eru eigendurnir staðsettir í Víkinni en ekki í Rússlandi eða hvar það nú er sem barónarnir eiga heima.

Annars er fjör á vesturvígstöðvunum. Það fer reyndar mörgum sögum af því hvers vegna slitið er, eftir því hvaða fjölmiðill er lesinn. Allt haft eftir oddvita A lista. Ýmist er ástæðan sú að oddviti K lista á í fyrirtæki eða að oddviti K lista hafi tjáð sig um téða olíuhreinsunarstöð.

já… mörg eru mannanna vandræði….. segi ekki meira í bili…

Heyrði af einstaklega orðheppnum stjórnmálamanni, Gísla Marteini Baldurrsyni, í gær. Hann ku hafa verið staddur á fundi með hundrað og eitthvað manns, til að ræða um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Mislæg gatnamót og gangnamunna.

Einhver var að viðra áhyggjur sínar af ljótum gangnamunnum við gatnamótin.

Þá á GMB að hafa sagt – þótt akfeit kona sé sett á háa hæla… er hún samt sem áður ljót!!!!

mjamm… svo fannst okkur línan um sætustu stelpuna vandræðaleg.. það læra greinilega börnin sem fyrir þeim er haft… segi ekki meira….

Heyrði á tal manna í vinnunni minni um jómfrúrræðu Guðnýjar Hrundar.

Mætur maður sagðist bera meiri virðingu fyrir henni en áður, að hún hefði vaxið í áliti við þetta. Af hverju. Jú því að þetta benti til þess að hún bæri ákveðna virðingu fyrir þessum stað, Alþingi, en færi ekki þarna um sali á skítugum skónum „eins og sumir þingmenn virðast gera“

Held ég verði bara að taka undir þessi sjónarmið.

Hvenær selur maður eign. Hvenær selur maður ekki eign? Er munur á hver það er sem ákveður að selja eign?

Nú hefur Gísli Marteinn gefið það út að það eigi að selja REI. Er einhver til í að spyrja hann hver sé munurinn á því og þessu sem var í gangi hér í nóvember?

Má selja REI núna? Hverjum á að selja? Er ekki verðmæti eignarinnar mun minni núna en það var í nóvember þegar öll geðveikin var í gangi?

Spyr sú sem ekki veit….

Horfði á Kompásinn í gær. Mikil og flott umfjöllun um olíuhreinsunarstöðina sem einhverjir huldumenn vilja planta niður á Vestfjörðum.

En þegar ég horfði á Ragnar Jörundsson bæjarstjóra í Vesturbyggð þá fékk ég smá hroll. Hann minnti mig óþægilega mikið á Ólaf Ragnar í Næturvaktinni þegar hann var á kafi í Nígeríuruglinu.

Það var á því mómenti í Kompási þegar Ragnar sagði frá því að þessir olíubarónar væru sko ekkert einhverjir glæponar eða með eitthvað vafasamt í pokahorninu, því honum hefði meira að segja verið boðið heim til sendiherra Rússa. Þetta var rétt eftir að Kompás hafði upplýst okkur um tengsl við KGB og mafíuna.

Ólafur Ragnar í Næturvaktinni reyndi að sannfæra Jörund, sem ég man ekki hvað hét í þáttunum en var starfsmaðurinn í þjálfun (en svo skemmtilega vill til að hann er sonur Ragnars bæjarstjóra) um að Nígeríupeningasendingin væri ekkert svind með þeim rökum að maðurinn hefði meira að segja hringt í sig. „sæll, heldurðu að hann færi að hringja í mig og senda mér mynd af sér ef hann væri að svindla á mér“

Þakka Kompási fyrir góða umfjöllun.

Kæra vor, sem læðist svona fallega inn?

Komdu fagnandi kæra vor. Hlakka til að leika við þig.

… ætla að færa þér ástarsöng

« Fyrri færslur