Er flottasta og gáfaðasta stúlka sem ég þekki.
Færslur ritaðar í janúar 2008.
Er búin að vera að bíða eftir því hvenær Staksteinar fara að pönkast í VG. Í dag kom það og þá nákvæmlega eins og maður átti von á.
Ekki næstum – heldur nákvæmlega.
Þegar þeir segja Svandísi hafa klikkað á því að hoppa ekki upp í rúm með Sjálfstæðisflokknum.
Þessi ritstjórnarstefna Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu er að verða hálf pathetic
Er að spá í úr hvaða ungliðahreyfingu mótmælendur eins og Lísa Kristjánsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór Gunnarsson, Hörður Torfason, Rúnar Guðbrandsson, Arndís Steinþórsdóttir, Ilmur Kristánsdóttir, Haukur Már Helgason og fleiri koma. Hrein og klár lína frá sjöllunum – en eitthvað aumingjalegt að sjá „línuna“ komna inn í meinta fréttaskýringu málgagnsins.
Vefurinn hefur legið niðri hund lengi – óþolandi. Mig langaði að horfa á meira úr borginni…
Í menningar og ferðamálaráð??? Heyrði ég rétt??
Það var enginn sem átti frumkvæðið að þeim meirihluta sem nú hefur verið myndaður í borginni.
Samt var það bara Ólafur sem kom til þeirra að sögn Villa
En að sjallar hafi leitað annað er helber lygi.
En samt segir Ólafur F. að svo hafi verið.
Villi segir s.s. að Ólafur hafi leitað til sjallanna. Er einhver til í að spyrja Ólaf hvort það sé rétt? Hvort hann muni eitthvað eftir þessu?
Kasper, Jesper og Jónatan
Villi, Óli F og Ástþór
Halli, Laddi og Gísli Rúnar
Gísli, Eiríkur og Helgi
Olsen bandet
Davíð, Kjartan, Hannes
Rip, Rap og Rup
…..
Skúli skrifar flottan leiðara á Samfylkingarvefinn í dag.
Stel honum og birti hér:
Aukaþingflokksfundur Samfylkingar að hefjast. Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með hvað gerist.
Mér skilst að Geir, Hanna Birna og Villi eigi heiðurinn að þessu samstarfi sem nú er hafið í borginni. Með það í huga er meira en lítið undarlegt að Geir vilji ekki tjá sig um hinn nýja meirihluta. Þögnin ein ríkir þar. Varaformaður Sjalla, Þorgerður Katrín, kýs einnig að þegja þunnu hljóði. Hún vill ekki tjá sig. Er hægt að skilja það á annan hátt en að hún sé ekki sátt við þessa skipan mála?
Annars er hafin söfnun undirskrifta til að mótmæla þessum skrípaleik. Svo var verið að hvetja fólk til að mæta niður í Ráðhús Reykjavíkur á fimmtudag og mótmæla hástöfum á pöllunum. Þetta verður athyglisverð vika. Mig grunar að ýmislegt sé í vændum og þá er ég ekki bara að tala um veðrið.
Innskot: Nú hefur Geir tjáð sig. Á blaðamannafundi. Býður Ólaf F. Magnússon velkominn aftur í flokkinn. Magnað alveg hreint. Heyri að krafan um nýja ríkisstjórn gerist æ háværari.
Mér finnst sérstakt að formenn ríkisstjórnarflokkanna tjái sig ekki um nýjan meirihluta í borgarstjórn.
Eitt er að ISG geri það ekki, en mér finnst eiginlega enn undarlegra að GHH geri það ekki heldur. Sjálfstæðisflokkurinn var að ná aftur völdum í borginni og GHH segir ekkert. Hélt þetta væri tilefni til að fagna en nei, Geir kýs að láta aðstoðarmann sinn segja að hann vilji ekki tjá sig.
Mér finnst þögnin segja meira en mörg orð. Held að Geir sé sammála mörgum. Að honum lítist ekkert meira en svo á þennan sérstaka meirihluta – að við tölum nú ekki um borgarstjórann…..

Helga Vala Helgadóttir
Nýlegar athugasemdir