Kem auga á að Guðfríður Lilja er ræðukona kvöldsins hjá VG. Það verður að teljast sérstakt að kalla til manneskju sem ekki náði kjöri inn á þing. Hélt að VG hefði að skipa ágætis ræðufólk en þau hafa greinilega viljað kalla til utanþingskonu. Getur verið að Ömmi sé kannski fjarverandi? Það stendur amk ekkert um það á heimasíðu Alþingis.
Af hverju ætli Samfylkingin hafi ekki hringt í mig? Nei bara svona spurning… og nei ég er ekki spæld… ég er bara að reyna að vera fyndin.

Helga Vala Helgadóttir
Nýlegar athugasemdir