apríl 2007

Færslur ritaðar í apríl 2007.

Vestfirðingar eru ennþá til. Vestfirðir eru ennþá hluti af landinu! Ákvað bara að segja frá þessu svona í framhjáhlaupi vegna þess að fyrir einum og hálfum mánuði var haldinn magnaður borgarafundur á Ísafirði undir yfirskriftinni Lifi Vestfirðir.

Fjöldi fólks sótti fundinn, heimamenn sem og stöku gestir: stjórnmálamenn.

Enginn fulltrúi ríkisstjórnarinnar sá ástæðu til að mæta á fundinn. Magnús Stefánsson var þó löglega afsakaður, enda átti hann við veikindi að stríða og sendi fundinum kveðju. Enginn kom þó í stað hans. Enginn kom frá Sjálfstæðisflokki og þeir sendu ekki kveðju.

Tveimur dögum síðar er tilkynnt að forsætisráðherra hafi ákveðið að skipa nefnd. Ástandið á Vestfjörðum er sett í nefnd. Nefndina skipuðu vel valdir sjálfstæðismenn sem skiluðu vægast sagt ótrúlega slappri skýrslu 11. apríl. Innihald hennar er flestum á huldu. Þennan sama dag var nefnilega blásið í herlúðra: Olíuhreinsunarherlúðra. Vestfjarðaskýrslan datt dauð og engum dettur í hug að minnast orði á þessa hörmung.

Þar til núna þegar meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðar finnur sig knúinn til að minna á hana og fagna. Þess ber að geta að bæjarstjórinn á Ísafirði sat í blessaðri nefndinni. Honum hefur ekki fundist nóg með skýrsluna gert og hefur viljað minna á. Þetta gerist ekki pínlegra – að senda tilkynningu þar sem maður hrósar eigin störfum. Og um það er fjallað á BB og vitnað í fréttatilkynningu meirihlutans:

„Undirrituð fagna skýrslu nefndar á vegum forsætisráðherra. Þar koma fram mikilvægar tillögur sem samþykktar hafa verið í ráðuneytum….

…Forsætisráðherra hefur fylgt skýrslunni úr hlaði og ber að fagna því að ríkisstjórn hafi samþykkt þessa skýrslu, sem markar nýtt og jákvætt upphaf varðandi fjölgun starfa á Vestfjörðum.

Umræða um atvinnumál og ákvörðun um skipan nefndarinnar var tekin áður en almennur borgarafundur var haldinn í Hömrum. Sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum funduðu með ríkisstjórn 2. febrúar s.l. og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar fylgdi eftir samþykktum bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar á fundi með forsætisráðherra. Borgarafundur á Ísafirði var góð og þörf viðbót við fyrri samþykktir og fundi með ríkisstjórninni.

Hvaða brandari er þetta? Af hverju er meirihluti bæjarstjórnar á Ísafirði að tala um þetta – að það hafi verið ákveðið að skipa þessa nefnd fyrir borgarafundinn, þó að ekki hafi nokkur maður vitað af því fyrr en tveimur dögum eftir áðurnefndan baráttufund þar sem hart var deilt á stjórnarherrana? Af hverju er ekki frekar reynt að gera eitthvað í málunum? 

Í Bolungarvík var verið að segja upp 50 manns. Það er svipað eins og 5000 manns hefðu misst vinnuna í henni Reykjavík. En það virðist vera sem stjórnarherrum standi hjartanlega á sama. Þess í stað er nefndarmaður í Vestfjarðanefndinni að klappa sjálfum sér á öxl. Er það smjörklípa til að reyna að moka yfir uppsagnir í nágrannasveitarfélaginu? Eða til hvers var þetta eiginlega gert?

Ósköp var Geir Hilmar lúinn í kvöld. Hann hefur óskaplega fátt fram að færa þessi dægrin. Jóhanna Vigdís stóð sig vel í upphafi þegar hún ítrekað benti honum á að flokkurinn væri búinn að sitja í 16 ár í ríkisstjórn og Helgi Seljan sömuleiðis.

Áhorfendur fengu að spyrja Geir en auk þess Helgi og Jóhanna. Hér eru nokkrir punktar:

Geir Hilmar sagði að fjármagnstekjuskatturinn væri mjólkurkýrin og því mætti ekki hækka hann! En ætli honum finnist ekkert óeðlilegt við það að sveitarfélögin fá ekki krónu af þeirri „mjólk“ sem undan þeirri kú kemur! Hvenær ætlar Geir að leiðrétta tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga svo að sveitarfélögin neyðist ekki til að minnka grunnþjónustuna vega ónógra tekna í bæjar og sveitafélaginu? Svo að ekki breikki enn bilið á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins.

Spurning frá íbúa landsins: Myndi Geir treysta sér til að lifa á þeim ellilífeyri sem gamla fólkinu er skammtaður?
svar: þetta er nú klassísk spurning fyrir kosningar

Sjávarútvegurinn stendur á mjög traustum grunni að mati forsætisráðherra. Ég vísa á færslu hér að neðan þar sem sagt er frá uppsögnum 50 starfsmanna Bakkavíkur í Bolungarvík.

Geir finnst ekki eðlilegt að útlendingalögin bitni á fólki sem ekki er í málamyndahjónaböndum????

Álversmál – umhverfismál – ekki lengur á hendi ríkisins… hefur ekkert meira um málið að segja

Engin skólagjöld í framhaldsskólum að mati Geirs. Ég held að ég sé að fara að greiða 35 þúsund í haust þegar Snærós mín byrjar í MH. Leiðréttið mig ef þetta er rangt. 35 þúsund er bara slatti fyrir marga. Kannski ekki fólkið sem neyðist til að vera fátækt alla ævi vegna þess að það ákvað að  helga sig stjórnmálum, eins og DO komst svo skemmtilega að orði, heldur meira svona okkur hin.

Heyrði af góðri konu í gær sem því miður á ekki marga daga eftir hér á jarðkringlunni. Hennar bíður því að enda ævina á Líknardeild. En því miður þá er biðlisti eftir því að fá að komast inn á líknardeildina.

Getur ástandið orðið mikið verra? Þegar hinir deyjandi eru farnir að bíða á biðlistum eftir því að fá að deyja með reisn?

Af gefnu tilefni birti ég hér grein sem ég skrifaði líklega fyrir einu til tveimur árum. Hef fátt við hana að bæta en hún var rituð í tilefni skrifa um hjónabönd samkynhneigðra. Ég vil bara birta hana aftur og aftur og aftur. Ég hef alla tíð verið meðlimur í þjóðkirkju Íslendinga. Mér hefur bara fundist það ágætt. En nú er mér nóg boðið. Ég ætla að hugsa mig um næstu daga.

En hér er greinin:

Hver á þennan Guð sem svo oft er flíkað? Hvers vegna má bara blessa hjónaband gagnkynhneigðra fyrir augliti Guðs en ekki samkynhneigðra?  Hver segir að hann Guð sé andsnúinn því að hugsa fallega um samkynhneigð hjón? “Hjónabandið er hinn ævaforni rammi utan um æxlunarhlutverk mannsins” skrifaði ein sómakona í Morgunblaðið um helgina. Má vera – en ég tel að í nútímanum sé hjónabandinu ætlað enn stærra hlutverk en það. Í Biblíunni má lesa sig til um fjölkvæni, hjónaband eins karlmanns og margra kvenna,  þó að ekki sé það leyfilegt í dag. Hvers vegna það? Má vera að það henti ekki í nútímaþjóðfélagi. Í Kóraninum má sjá setningu á borð við “Konan er þitt akurlendi, gakktu þar til sáningar að vild” Hlutverk hjónabandsins er ekki síður að halda uppi aga og reglu hjá mannfólkinu. Þú skalt elska þinn eiginmann/ þína eiginkonu og ekki hafa annan /aðra á meðan. Þú skalt bera ábyrgð á viðkomandi og hugsa fallega um hann í blíðu sem stríðu  allt þar til yfirlýkur. Þetta er falleg hugsun – svona sér náttúran um sig, við sjáum með þessu móti um hvort annað, berum á einhvern hátt ábyrgð hvort á öðru sem og okkar niðjum umfram aðrar manneskjur. Regluverk stórfjölskyldunnar er vissulega veikara í dag en það var á árum áður og hjónabandið og ábyrgðin sem á því hvílir kannski þeim mun mikilvægara.

Sem betur fer er margt breytt í dag miðað við hvernig heimurinn var þegar Biblían var rituð. Ef við tökum bara stöðu konunnar sem dæmi þá var það t.a.m ekki hennar hlutverk að koma fram opinberlega. Væri ég uppi þá en ekki nú sæti ég ekki við skriftir heldur eftirléti Grími, eiginmanni mínum það verk – enda hann höfuð fjölskyldunnar. Sem betur fer breytast tímarnir og mennirnir með.

Í Mattheusarguðspjalli segir “hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði: “Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.” Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður.“  Þarna er vissulega ekki verið að tala um að konur giftist konum og menn mönnum – en þarna er verið að segja að þau hjónin verði einn maður. Og í þá daga þýddi það bara það að konan varð undirgefin sínum manni. Hann réð, hún hlýddi. Viljum við það líka í dag. Í þá daga skyldu menn ekki stjórnast af hvötum heldur eingöngu af praktík. Til að viðhalda mannkyninu… í orði… en auðvitað ekki í verki. Auðvitað elskaði fólk þá …líkt og nú… en það mátti bara ekki hafa orð á því. Þess vegna var hjónabandið viðhaldsfyrirtæki, í orði en ekki í verki.
Í dag tel ég hjónabandið ekki síður tæki fullkomnunar. Tæki til að fullkomna samband tveggja einstaklinga sem lofa að vera trúir, lofa að gæta og styðja þegar á móti blæs og gleðjast með þegar allt gengur í haginn.
Og þetta fer fram fyrir augliti Guðs, fyrir þá sem á hann trúa. Og ég trúi að Guð sé þannig innrættur að hann vilji öllum mönnum á jörðinni vel. Hann er hinn almáttugi sem öllu ræður og hann innrætir ekki hatur í brjóst okkar, óréttlæti eða mannvonsku. Hann leiðir okkur að sannleikanum ef við hleypum honum að. Þegar við sleppum, þegar við leyfum honum að stjórna, þá verður hans vilji. Og hans vilji er að mennirnir séu jafnir. Þess vegna trúi ég að það sé ekki vilji Guðs að við meinum samkynhneigðum að fá blessun hans fyrir hjónabandi sínu. Að þeir samkynhneigðu strákar og stelpur sem þess óska fá ekki að upplifa þessa fullkomnun á loforðinu sem við gefum hvort öðru. Þær eru margar hefðirnar sem við höfum kosið að láta víkja vegna skynseminnar, þessi á að vera ein þeirra.  

Þegar ég vann á Talstöðinni sálugu þá vorum við Halli Thorst oft með svona topp tíu. Hann langaði mikið að hafa þetta alltaf en ég gleymdi því yfirleitt. Svona topp tíu er fínt eins langt og það nær. Ég skemmti mér við svona topp tíu þegar heilinn er algerlega soðinn uppúr eins og gerist þegar maður er rétt búinn með prófin. Þess vegna er gott, þegar maður er á leið aftur inn í bloggheima, að koma með svona smá topp tíu síðustu daga.

10. Sagði Jón Baldvin í alvöru ljóska um Menntamálaráðherran okkar?  Megum við þá ætla að næst þegar hún tekur til máls að hún fari að ræða um gamla karlinn í Mosó…. þegar hún vill ræða um þennan fyrrum sendiherra og utanríkisráðherra?

9. fyrst ég er farin að tala um þann ágæta mann – þá finnst mér svo undarlegt með færsluna sem hvarf frá Denna? Hvað var Denni að gera með þetta „þættinum hefur borist bréf“ ef hann svo þorði ekki að hafa þetta inni? Hvað var í þessu bréfi og að hverju var verið að ýja?

8. Menn á stórum stórum bílum halda að þeir eigi götur borgarinnar og bílastæði.

7. Það emja allir deildarstjórar hjúkrunarheimila og annara heilbrigðisstofnana undan því að ógerlegt sé að manna staðina starfsfólki. Á Skjóli, hvar ég þekki til, starfar margt gott fólk. Þar er mikið ástand því að það er svo erfitt að manna helgar og nætur því að Íslendingunum í þessum störfum fækkar svo og það er ekki hægt að hafa tvo erlenda starfsmenn sem jafnvel skilja lítið í málinu þá einu á vakt um nætur og helgar. Það mætti kannski benda Siv á það, þegar hún tekur enn eina skóflustungu að meintri byggingu hjúkrunarheimilis, að það sé ekki nóg að huga að steinsteypunni þegar enginn fæst til að starfa á þeim lúsarlaunum sem í boði eru í þessum geira.

Við í Samfylkingunni gerðum stóran skurk í þessum málum í Reykjavík þegar lægstu launin voru hækkuð þrátt fyrir upphrópanir sjálfstæðisbæjarstjóranna allt í kring um að nú færi þjóðfélagið á hausinn. Þetta munum við líka gera þegar við komumst í ríkisstjórn og því verða allir að fylkja liði í kringum Samfylkinguna.

6. Barnaheimilið Ós er líklega besti leikskóli á landinu!

5. Sigurður Tómas Magnússon og Jón Steinar Gunnlaugsson eru mjög skemmtilegir kennarar.

4. Þegar Agnes Bragadóttir segir að stjórn vinstri flokkanna yrði það hræðilegasta sem komið gæti fyrir þjóðina verður mér hugsað til þeirra „fréttaskýringa“ sem hún skrifar um pólitík í Morgunblaðið. Hvað er mogginn að spá? Það er margt hálf bjagað þarna á þessum tímum, eins og alltaf fyrir kosningar en þetta er nú engin smá gengisfelling. Ætli það sé eitthvað að marka þetta blað? Hvað með erlendu fréttirnar? Hver ætli sé skoðun blaðamannsins sem skrifar erlendu fréttirnar á heimsmálunum? Já eða viðskiptafréttirnar? Má ætla að þeir sem riti viðskiptafréttir séu sjálfir stórir hluthafar í þeim félögum sem þeir fjalla um? Svo frussar konan bara að hún megi hafa skoðanir ef hún bara lofar að blanda þeim ekki inn í fréttaskrifin sín??? AHAHAHAHAHAHA En hún blandar þeim inn í fréttaskrifin sín. Má hún þá hafa þær áfram og vera jafnframt einn helsti „fréttaskýrandi“ blaðsins? Ætlast hún til þess að við trúum orði af því sem hún skrifar?

3. Hvað ætli Sóley Tómasdóttir hafi gert Ómari R Valdimarssyni annað en að mótmæla klámráðstefnunni? Leikur hennar í því máli hefur greinilega komið illa við kauninn á þeim annars ágæta manni.

2. Olíuhreinsunarstöð?? Er ykkur alvara? Af hverju týndist vestfjarðarnefndarskýrslan algerlega í þessu bulli? Má vera að það sé vegna þess að það var ekkert í henni? Ekkert sem vakti athygli fólks sem raunverulegar tillögur til að efla mannlíf og atvinnulíf á Vestfjörðum. Sá ég einhvers staðar minnst á Suðurfirðina í þessari skýrslu? Eða eru þeir bara ekkert með?

1. Það eru ótrúlega margir Bolvíkingar í framboði fyrir þessar kosningar: Einar K Guðfinnsson fyrir sjálfstæðisflokk, Kristinn Há og Lýður Árna fyrir frjálslynda, Pálína Vagns og Jón Elíasson (hann flokkast með því að hann er í Grjóthruninu) fyrir Íslandshreyfinguna sem og Hákon Seljan litli bróðir Helga sem reyndar er í framboði í NA kjördæmi þó að hann búi í NV kjördæmi og svo ég sjálf fyrir Samfylkingu. Þetta gera tvær úr Skriðunum og tveir úr Grjóthruninu. Ef þessar tvær hljómsveitir koma saman eru s.s. fjórir frambjóðendur til þings komnir saman. Mikið hlakka ég til kosningavökunnar heima hjá okkur 12. maí. Þar verður líklega allt þetta fólk… eða sko… ekki kannski Kristinn Há og Einar Ká heldur meira svona hinir. Fulltrúar Samfylkingar, Frjálslyndra og Íslandshreyfingar. Ég verð nú að segja að mér finnst synd að Framsókn og VG hafi ekki fundið verðuga Víkara á listana sína. Gengur betur næst.

Ásta Júlía – 6 ára:

„Það er eins og það sé alltaf þoka í Reykjavík … því við sjáum ekkert í fjöllin“

Rölti í gegnum miðborg Reykjavíkur á leið úr skólanum í gær. Uppúr miðnætti var sérstakt ástand í miðborginni. Heit gufan steig upp af laugaveginum, heitavatnsæð á Frakkastíg sprakk með þeim afleiðingum að sjóðandi vatnið flæddi yfir götur og torg.

Þegar í bankastrætið var komið blasti eyðileggingin við okkur Snærós. Þessi gömlu hús rústir einar og slökkviliðsmenn enn að störfum. Við stöldruðum aðeins við til að fylgjast með, og þá kom gamli skólabróðir minn, Stebbi Eiríks gangandi. Hann var s.s. ennþá í vinnunni. Hann er líklega einn af flottustu embættismönnum sem ég hef hitt. Þarna var hann um eitt leitið, enn að fylgjast með sínum mönnum, brunninn á fæti eftir að hafa stokkið út í heitt vatnið uppi á laugavegi þegar einhverjir krakkar (lesist krakkabjálfar) vildu endilega prófa að stökkva út í heitan strauminn.

Og það var á honum að heyra að hann væri bara ánægður með sitt fólk. Hans fólk, slökkvi, sjúkra og lögreglufólk stóð í ströngu í gær og á lof skilið fyrir sín störf.

Takk fyrir ykkar störf í gær. Þetta var erfiður dagur en þið stóðuð ykkur vel.

Það kom loksins að því. 25% loksins. Nú er bara að saxa á Sjálfstæðisflokkinn. Það er algerlega út í hróa að þeir skuli mælast svona sterkir. En það munar ekki miklu. Tveggja flokka stjórn. Samfó og VG með 30 þingmenn og hinir með 33. Þetta mjakast í rétta átt. Við náum þessu á endanum. Kommmasssoooo

p.s. Íronía útleggst á íslensku sem kaldhæðni….

viðbætur: Vegna þess að lesendur virðast vera að misskilja mig – sbr athugasemdakerfið – eða lesandi – þá vil ég láta vita að ég kann alveg að reikna og veit að 33 er meira en 30. Ég veit líka að þegar einn er með 30 og annar með 33 þá er sá sem er með 33 með meira. Ég veit líka að þetta getur breyst. Ég veit að það getur farið svo að þegar fólk sér að það er möguleiki á tveggja flokka stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna þá kjósi fólk frekar með þessum flokkum.

Svo vil ég lýsa því yfir að lokum að get oft verið ansi kaldhæðin og þegar ég útskýri vel og vandlega hér að ég sé með það á hreinu á 33 sé meira en 30 þá er ég ekki að segja þetta til að sanna mig eða láta vita hvað ég sé klár. Því ég held að þeir sem mig þekkja viti að mér finnist ekki mikið til þess koma að vita muninn á 33 og 30. Ég held að ég sé alveg meðalgreind, en því miður þá virðist ég skrifa stundum eitthvað sem fer öfugt ofan í lesendur síðunnar. Í mínum frábæra vinahóp í skólanum þá bregðum við stundum á það ráð að skrifa B þegar við erum búnar að segja brandara á póstinum. Ég held ég þurfi að fara að skrifa B alltaf þegar ég bregð fyrir mér kaldhæðninni hér á póstinum…. svo að mínir einlægu lesendur verði ekki spinne í hvert sinn sem ég set inn á síðuna.

En fagnaðarlætin yfir því að við séum komin upp í 25% eru ekki B. Það eru alveg heiðarleg fagnaðarlæti. Viðbæturnar eru meira svona B.

Það er á svona stundum sem íronían ryðst fram.

Gamli góði Villi mættur niður á lækjartorg í slökkviliðsbúningi.

Það er greinilega búningadagur í vinnunni hjá honum í dag.

Topp tíu!

Yfir það sem mér datt í hug þegar ég vaknaði af dásvefni þeirrar sem er gersamlega búin á því eftir tvö próf af þremur.

1. Mikið er veðrið gott.

2. Marshallinn stóð sig frábærlega í morgunútvarpinu og Unnur sjálfstæðiskona stóð sig næst best.

3. Kaffið á kaffitári er gott

4. Það eru margir bílar á Miklubraut klukkan átta á morgnanna.

5. Mig langar í kjöt.

6. Lánin mín hækka í hvert sinn sem ég dreg andann, þökk sé ríkisstjórn Íslands. Sumir flokka það sem góða hagstjórn. Ég lít á það sem klúður.

7. Ég er eins og sveppur á heilsíðu í fréttablaðinu.  

8. Mig langar heim til Bolungarvíkur – þar er fallegt og gott.

9. Leikarar eru að mótmæla launatilboðum vegna þáttagerðar hjá Sagafilm og Stöð tvö. Þeir ætla að greiða undir taxta og vonandi standa leikarar saman. Ég ákvað amk að mæta ekki í prufu. Stend með leikarastéttinni.

10. Leikarar fá lúsalaun, vona að lögmenn fái betur borgað – veit það reyndar – þess vegna ætla ég að klára næstu þrjú árin hér í HR.

« Fyrri færslur