Horfði á hörmulega útsendingu Stöðvar tvö frá Stykkishólmi í gærkvöldi. Hörmulega frá stöðvarinnar hendi. Hljóðið var ónýtt og stjórnendurnir svo æstir eitthvað, eins og venjulega þegar á svo sannarlega að búa til hressilegt sjónvarpsefni. Og nýtt kúl.. Ingalind með epli. Meiriháttar kúl.
Og annað kúl – sem er greinilega orðið að nýju trendi hjá framsókn – að kalla Vinstri græna, vinstri græningja… úúú.. ótrúlega fyndið bara… og kúl … eins og eplið.
En að pólitíkinni.
Eigum við að byrja á stjórnarliðum: Magnús Stefánsson stóð sig jafn vel og Sturla stóð sig illa. Magnús kom bara mjög vel út, þó að auðvitað hafi hann hörmulegan málstað að verja og allt það. Sturla hins vegar vildi meina að 90 daga stoppið þeirra á framkvæmdum hefði skilað þeim stórkostlegum árangri. Heldur maðurinn að við séum fífl. Heldur hann í alvöru að það þegar einkageirinn ætli í vegaframkvæmdir sem sé ódýrara fyrir ríkið en dýrara fyrir okkur sem þurfum þá bara að greiða fleiri vegatolla, þá sé hann persónulega að gera rosa gott múv. Að það sé vegna þess að hann hafi verið svo hygginn að fresta öllum vegaframkvæmdum hér á Vestfjörðum til að slá á þensluna á suðvesturhorninu? Af því að þetta er svo mikið eitt svæði að hans sögn.
Sturla – þú færð deffenetlí ekki mörg atkvæði út á þinn leik í gærkvöldi. Það er morgunljóst.
Jón Bjarnason. Hélt þú gætir betur. Byrjaði ágætlega en fórst svo alveg með það þegar þú gast ekki nefnt EITT EINASTA mál sem þú vildir sjá gerast í atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Þú varst og upptekinn við að benda á hina, muna það að við þurfum líka að fá lausnir.
Guðbjartur, minn maður, kom svo mjög vel út. Traustur og með lausnir öfugt við félagann á hægri hönd honum. Hann er bara þannig gerður hann Gutti að hann segir ekkert án þess að hafa legið yfir því og hugsað sig vel um. Hann Gutti er skólastjóri og vanur því að þurfa að stjórna. Hann er mikill fagmaður og vill hafa vaðið fyrir neðan sig, alger nó búllshit maður. Enda hefur verið skemmtilegt að fylgjast með honum á fundum, því þegar Gutti byrjar þá verður salurinn ósjálfrátt eins og doddi í leikfangalandi. Það byrja bara allir að kinka kolli. Hann hefur legið svo rosalega vel yfir þessu öllu, með mikla reynslu þó að nýr sé í framboði til þings, að hann veit algerlega fyrir hvað hann stendur.
Og það skilaði sér.
Guðjón Arnar kom ágætlega út held ég líka. Ég er auðvitað mjög ósammála honum í mjög mörgu en ég er nú að reyna að taka þetta svona pínu út frá hvernig þetta kom út í gær. Hann er mér reyndar ekkert sérlega minnisstæður frá því í gær. En í fyrsta sinn held ég að ég hafi skilið það sem hann sagði. Hann hefur kannski vandað sig í gær, eða þá að það hafi verið honum til hagsbóta að hljóðið var í lamasessi.
En stöð 2 – gerið það nú fyrir mig að laga hljóðið – því að þið eruð að gera frábæra hluti með þessum útsendingum, og ekki vera svona æst. Það verður ekkert kosið á morgun. Það er ekki fyrr en 12. maí. Þetta virkaði pínu svona fóní… hvað þið voruð æst.
Annars takk fyrir mig. Ég skemmti mér vel og meira að segja á köflum náði ég að æsast með ykkur – reyndar út í ykkur og ykkar stjórnun en það er líka þannig þegar maður horfir á íþróttaleiki. Stundum verður maður brjálaður út í línumennina, eða þennan með flautuna í stað þess að brjálast út í sjálfa íþróttamennina. Það var pínu þannig í gær. Þið fenguð eipin frá mér í gær. Þið og Sturla.
Annars… takk
Nýlegar athugasemdir