Aumingja Geir og Vesalingarnir
20. 1. 2012 - 05:10
| Flokkur: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | FB ummæli (
Gömlu valdaöflin ætla í dag að frelsa stjórnmálin undan því að þurfa að vitna um hvað gerðist árið 2008 og að þurfa að svara til saka eftir því sem enn er þó unnt.
Afhverju er Geir H Haarde fv. forsætisráðherra, sem hefur alla helstu sérfræðinga landsins í lögum sér innan handar til halds og trausts og gnótt fjár, meiri vorkunn að mæta fyrir dómi, en t.d. blaðamönnum sem segja fréttir og fá sífellt stefnur og ákærur fyrir að vinnu störf sín samviskusamlega í þágu þjóðarinnar. Svo ekki sé talað um allslaust fjölskyldufólk sem reynir sjálft að lesa sér hjálparlaust til um lög til að bjarga heimilum sínum frá dómum um uppboð, útburði og afmáun heimilanna — eða þá að ógleymdum 9 ungmennum sem kærð voru af Alþingi af handahófi úr stærri hópi og Geir H Haarde ásamt Bjarna Ben og félögum kröfðust að hlytu allt að 16 ára dóm fyrir mótmæli, og urðu allslaus og reynslaus að verjast ásökunum Alþingis um tilraun til valdaráns, sem Bjarni og Ögmundur tók ekki í mál að draga til baka?
Við hvað er Sjálfstæðisflokkurinn svo hræddur að hann treystir ekki Geir fyrir dómi til að geta svarað fyrir sig og varist eins maður — eins og svo fjölmargir aðrir hafa þurft með svo miklu minna á bak við sig á undan honum?
Veitum aðhald frá þingpöllunum í dag og sýnum með þeim aðferðum sem okkur eru heimilar að við sættum okkur ekki við að enginn ráðamanna þurfi að svara neinu fyrir dómi eða bera neina ábyrgð.
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Helgi Jóhann Hauksson