Rekið unga fólkið til að kjósa
27. 11. 2010 - 20:08
| Flokkur: Stjórnmál og samfélag | FB ummæli (
Nú er síðasti séns fyrir ungu kynslóðina til að halda uppi heiðri sinnar kynslóðar og mæta á kjörstað. Eftir því er tekið að unga fólkið mætir vart á kjörstað. Tæpir tveir tímar eru nú þar til kjörstaðir loka klukkan 22:00. Það dugir öllum—ef þeir nenna.
- Hver getur kvartað yfir þjóðmálum, stjórnvöldum, ríkisstjórn og Alþingi ef hann sjálfur nennir ekki að taka þátt í þessum mikilvæga lýðræðislega ferli við að skapa nýjan grundvöll alls þessa—nýja stjórnarskrá.
- Þið sem eruð búin að kjósa og þeir sem eldri eru, hafið samband við unga fólkið og aðra sem mögulega eru ekki búnir að kjósa og hreinlega rekið fólk á kjörstað—það dugir að kjósa einn.
- Flestir iðrast seinna ef þeir taka ekki þátt núna.
- Það er þá í það minnsta ekki mikið sem þeir geta kvartað sem ekki nenna nú sjálfir að ómaka sig við að kjósa og taka þátt.
- Enginn getur sagt að ekki hafi verið nægilega margra kosta völ.
- Jafnt þeir sem vilja litlu eða engu breyta í stjórnarskrá og hinir sem vilja gerbreyta henni, eiga allir sinn hóp frambjóðenda til að velja úr, svo enginn skoðun sigrar með leit kjósenda í dag. – Aðeins letin sjálf sigrar, en lýðræðið, þjóðaratkvæðagreiðslur og persónukjör tapa.
———
.
.
Þrjár ungar konur sem ég kaus og í þessari röð.
Þær leggja allar megináherslu á mannréttindi og af meiri dýpt en flestir.

Jórunn Edda Helgadóttir – 3205
Jórunn Edda á RÚV (hljóðskrá)
Jórunn Edda Helgadóttir er með BA gráðu í heimspeki frá HÍ og er nú að ljúka MA í alþjóða- og samanburðarlögfræði við SOAS, University of London.
Jórunn leggur áherslu á að stjórnarskráin verði samin frá sjónarhorni mannréttinda.
„Stjórnarskrá sem í heild er rituð frá sjónarhorninu um „mannréttindi fyrir alla“ leiðir af sér virkt lýðræði, valddreifingu, skörun valds, upplýsingarétt almennings og raunhæf og réttlát réttarfarsúrræði fyrir alla, auk burðugra mannréttindaákvæða.“
Jórunn Edda Helgadóttir [3205] á DV
.
.

Helga Baldvinsd. Bjargardóttir – 6879
Helga Bjargardóttir á RÚV (hljóðskrá)
Helga Baldvinsd. Bjargardóttir er Þroskaþjálfi, BA lögfræðingur og MA-nemi í fötlunarfræði
„Stjórnarskráin á að kveða skýrt á um grundvallarréttindi borgaranna til mannsæmandi lífskjara og vera verndartæki almennings gegn valdníðslu og skammsýni stjórnvalda sem ekki telja sér skylt að byggja upp eitt samfélag fyrir alla.“
Helga Baldvinsd. Bjargardóttir [6879] á DV
.
.

Katrín Oddsdóttir – 8463
Katrín Oddssdóttir á RÚV (hljóðskrá)
Katrín Oddsdóttir er með MA próf í mannréttindum frá University of London. BA í lögfræði frá HR og BA í blaðamennsku og Dublin City University.
„Ég vil að mennska og samkennd gangi framar gróða og skriffinnsku. Ég vil taka þátt í því að búa íslensku samfélagi þann sáttmála sem við getum byggt okkar lög og reglur á til framtíðar.“
Katrín Oddsdóttir [8463] á DV
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Helgi Jóhann Hauksson