Þingmenn – fullorðnist
7. 10. 2010 - 18:12
| Flokkur: Stjórnmál og samfélag | FB ummæli (
Ágætu þingmenn okkar Íslendinga, fulltrúar okkar, háttvirtra kjósenda ykkar, vinsamlegast verðið nú eins og fullorðnar og fullþroskaðar manneskjur, – sem þið hljótið þó að vera.
Látið af linnulausu lítilsvirðingartali hver í annars garð. Við þolum ykkur þetta ekki mikið lengur. Við verðum að sjá að þið getið borið fram mikilvægustu mál og rök ykkar sjálfra án þess sífellt að hnýta við málflutning ykkar svívirðingum, sem svo sjálfkrafa virka sem sjálfvirkur lokunarbúnaður fyrir eyru allra annarra en hörðustu stuðningsmanna ykkar sjálfra.
Þið verðið að fara að skilja að þegar þið hnýtið við flest sem þið segið meiðandi lítilsvirðingarglósum í garð andstæðinganna og segið efnislega að þeir séu ekki aðeins vitgrannir heldur beinlínis illa innrættir og gangi illt eitt til og láti stjórnast af „mannvonsku og mannfyrirlitningu“, þá kemur það ekki aðeins alvarlega niður á allri þjóðinni og stórskaðar Alþingi, heldur skaðið þið ykkur sjálf persónulega og flokk ykkar sjálfra með slíkum málflutningi.
– Eða af hverju haldið þið að Framsóknarflokkurinn mælist nú með minnst fylgi sögu sinnar þrátt fyrir mikið hæfileikafólk sem miklar vonir voru bundnar við eftir endurnýjun forystu hans, og röska framgöngu kvenskörunga og formanns hans?
– Eða hversvegna skyldi Hreyfingin ekki hafa fitnað, sem vart hefur frá kosningum tekið til máls án þess að segja hve heimskur, vitlaus og illa innrættur þingheimur er?
- Þið verðið að skilja að þó þeir ykkar komist greiðast í fréttir sem senda eitruðustu skotin og gefa stórkallalegustu yfirlýsingarnar, og þó harðasti stuðningsmannakjarni ykkar klappi ykkur á bakið og þakki ykkur fyrir meiðandi eiturpillurnar sem þið sendið „hinum“, þá skaðið þið til lengdar alvarlega ykkur sjálf og flokkinn ykkar. Mest þó þjóðina alla sem missir allt traust á alþingi, lýðræðið og ykkur, bæði vegna þeirra sem taka mark á ykkur og telja fyrir ykkar orð, alþingismenn flesta vera illa og vitgranna menn sem stjórnist af annarlegum hvötum — og svo að fyrir öðrum landsmönnum virðist þið sjálf með slíkum málflutningi sönnun um að þingmenn séu óheiðarlegt fólk sem stjórnist af annarlegum hvötum.
– Fyrir utan svo það að allur sá fjöldi sem ekki er harðasti kjarni stuðningsmanna ykkar, setur sjálfvirka lokunarbúnaðinn fyrir eyrun við svona málflutning og heyrir ekki rök ykkar og tillögur sem ættu fullt erindi við þjóðina.
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Helgi Jóhann Hauksson