Uppboðin kveiktu í þá og aftur nú
2. 10. 2010 - 15:07
| Flokkur: Stjórnmál og samfélag | FB ummæli (
Held að margir átti sig ekki á að upphaf þessarra „óeirða“ og upphaf búsáhaldabyltingarinnar eiga sér einn samnefnara — sameiginlega kveikju sem sprengir tundrið — þ.e. að mikill fjöldi uppboða er auglýstur.
Þó mjög margir þættir spili saman um að skapa eldfimt ástand, þá eiga aðstæður í báðum tilvikum, janúar 2009 og nú, það sameiginlegt að fréttir eru dagana áður af auglýsingum um mikinn fjölda uppboða.
Þannig átti Sýslumaðurinn á Selfossi sinn þátt í að fella Ríkisstjórn Geirs H Haarde með því að auglýsa daginn áður en þing koma saman í janúar 2009 um 70 uppboð, þrátt fyrir heitstrengingar ráðamanna um hið gagnstæða.
- Nú eru aftur fréttir af miklum fjölda uppboða og engin raunhæf von er gefin um úrbætur. Innst inni vilja því margir allt eins upplausn og að ríkisvaldið lamist og að allir verði á sama báti og þeir sjálfir, fremur en að ríkisvaldið sé í stakk búið til að ganga að þeim og fjölskyldum þeirra.
- Menn ættu því að taka alvarlega þennan sameignlega undanfara búsáhaldabyltingarinnar og átandsins núna. Þegar grundvallarhagsmunum fjölda fólks er ógnað hefur sagan sýnt að hvað sem er getur gerst. Þó fjölmargt fleira spili saman til að skapa eldfimt ástand þá er þetta tundrið sem kveikir í.
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Helgi Jóhann Hauksson