RSS

Alþingi krefst 16 ára fangelsis fyrir mótmæli

Hópur fólks gerir hróp að Alþingi og einn kemst upp á palla og hrópar hluta af fyrirfram saminni ræðu – vopni hópsins. Án þess að blikka auga finnst Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, sjálfsagt að draga 9 manns fyrir dóm og krefjast allt að 16 ára fangelsis fyrir þessa alvarlegu sök, að trufla Alþingi.
Enginn þingmaður hefur talað um að það hafi verið erfið ákvörðun þingsins, forseta þess eða starfsmanna að kæra mótmælendurna níu fyrir meint brot á 100. grein hegningarlaga sem áskilji að lágmarki árs fangelsi og allt að 16 ára fangelsi, verði mótmælendur fundnir sekir, né hafa þingmenn vorkennt mótmælendunum fyrir að þurfa að eyða afli sínu, tíma og fé fyrir dómi, eða bent á að ekki eigi að ákæra nema mestar líkur séu á sakfellingu.

- En nú ná þingmenn vart andanum af harmi — einn þeirra gæti þurft að svara til saka. Geir H Haarde sjálfur nær ekki upp í nef sér yfir hve óréttlátt það sé að hann þurfi að svara fyrir Landsdómi, og þingmennirnir sem þurftu að taka ákvörðun um kæru geta vart lýst því hve erfitt það sé þeim og þungbært að vísa máli hans til dóms — þó getur versta sök ráðherra vegna brota á ráðherraábyrgð að hámarki leitt til 2ja ára fangelsis.
— Alþingi var létt að kæra 9 ungmenni með ásökunum sem varða 16 ára fangelsi —mótmælendur sem hrópuðu á pöllum Alþingis eins og Össur gerði forðum — en óendanlega þungbært að draga fyrir Landsdóm, til að verja hendur sínar, vel efnað mælskasta fólk landsins fyrir að valda 12.000.000.000.000 króna tjóni eða 12 þúsund milljarða króna tjóni.

Geir H Haarde sætir nú ákæru — þrátt fyrir að njóta pólitísks skjóls samflokksmanna sinna og samráðherra sinna í Samfylkingunni — ekki vegna pólitískrar aðfarar. Þrír ráðherrar sluppu við ákærur vegna þessa pólitíska skjóls. Vissulega er þetta mál pólitískt en bara alls ekki gegn hagsmunum ráðherranna fyrrverandi heldur pólitískt í þágu þeirra. – Allt sem er að þessu fyrirkomulagi er í þágu ráðherranna en ekki andstætt þeim eða réttindum þeirra.
- Þetta eru ekki pólitísk réttarhöld — heldur pólitískt skjól fyrir réttarhöldum, pólitískt skjól gegn kærum og pólitískt skjól gegn opnum málaferlum.

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is