Haukur Nikulásson

blogg á eyjan.is

Líkin kvarta ekki

16.3 2010 | 08:03 | 1 ummæli

Það þarf ekki að koma neinum á óvart að hræfuglarnir hafi hátt kaup við að naga í sundur föllnu bankana.

Ég velti því fyrir mér að vinstri stjórnin sem nú situr, pakkfull af „jafnaðarmönnum“ skuli hvorki hreyfa legg né lið í því að koma á einhverjum snefil af siðferði í þessi mál loks þegar þau komast til valda með „hreina“ vinstri stjórn.

Mestu byltingarsinnar fyrri tíma úr kommúnistahreyfingunum eru nú stærstu hræfuglarnir á veisluborðinu. Þeir koma í „fylkingum“ að því borði sem frjálshyggjugaurarnir settu upp með sínum sóðaskap.

Það er lítill munir á vinstri græðgi og hægri græðgi. Það hugsar hver um sig… og líkin hugsa bara ekki neitt á meðan þau eru étin!

→ 1 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Er greiðsluvilji á Icesave tengdur eigin sparifé?

14.3 2010 | 15:08 | 4 ummæli

Ég er að komast á þá skoðun að þeir sem telja það einhverja „siðferðilega“ skyldu að láta íslenskan almenning greiða Icesave innlánin í Bretlandi og Hollandi séu þeir sömu og fengu hundruða miljarða í sparifé í íslenskum bönkum verndað upp í topp með íslensku neyðarlögunum.

Þett er eina haldbæra skýringin á því hvers vegna fólk er haldð þeirri sjálfspíslarhvöt að vilja greiða eitthvað sem þeim kemur ekki við… nema… þeir viti upp á sig skömmina með að neyðarlögin eru sams konar þjófnaður og bresku og hollensku sparifjáreigendurnir fengu að njóta í sínum löndum.

Ég er hægt og bítandi að komast á þá skoðun að það verði aldrei hægt að leiðrétta misvægið og óréttlætið sem út úr neyðarlögunum hafa komið. Við sjáum það best á því að það er ekkert réttlæti komið yfir þá sem eyðilögðu allt. Þingmenn og ráðherrar sem settu neyðarlögin voru að vernda sína eigin hagsmuni og voru óhæfir til þess vegna hagsmunaárekstra. Þjóðinni er smám saman að verða þetta ljóst.

Þess vegna styttist óðum í að það fari að verða alvöru uppgjör á milli þeirra sem voru annars vegar verndaðir að fullu og hins vegar þeirra sem eru á móti píndir alla leið í fullkomna eignaupptöku til þeirra sem eyðilögðu allt þ.e. bankanna í skjóli ríkisins.

→ 4 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Birna bankastjóri fékk sjálf 180 millur niðurfelldar!

12.3 2010 | 18:57 | 9 ummæli

Hvernig er hægt að taka mark á þeim orðum bankastjóra íslandsbanka að „verið sé að nota svigrúm“ til niðurfellinga þegar ekkert er eiginlega gefið eftir.

Staðreyndin er samt sú að hún fékk sjálf fellt niður 180 milljóna króna kúlulán.

Hversu lengi ætlar þessi ríkisstjórn að ofbjóða okkur?

Er ekki spillingarógeðið að komast í eitthvert suðumark?

→ 9 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Matsfyrirtækin pantaðar grýlur?

9.3 2010 | 07:47 | 15 ummæli

Eftir hrunið hefur mér undist að matsfyrirtækin hafi verið notuð að Bretum og Hollendingum sem eins konar grýlur á okkur íslendinga til að þvinga okkur til að borga Icesave reikningana.

Þessi fyrirtæki hafa ekki reynst mikið marktæk í gegnum tíðina og minnast margir þess að þau gáfu bönkunum okkar toppeinkunn rétt fyrir fall þeirra. Á þeim tíma hentaði það þeim, en var alls ekki rétt í ljósi stöðunnar.

Matsfyrirtækin vilja hækka lánshæfismat okkar ef við samþykkjum hundruða milljarða króna skuldabyrði vegna Icesave en lækka alveg niður í ruslflokk ef við neitum. Hvernig er hægt að færa rök fyrir því að við séum með betra lánshæfi ef við eyðileggjum efnahagslega framtíð okkar með því að samþykkja ósanngjarnar kröfur?

Finnst engum nema mér skrýtið að svona öfugmæli séu viðhöfð? – Það er bara ein skýring á svona rugli og hún er sú að þessi fyrirtæki vinni „álit“ samkvæmt pöntun þeirra sem telja sig ráða ferðinni í þessum málum. Núna eru það Bretar og Hollendingar sem „panta hjá þeim“ svona álit.

Í ljósi kreppunnar ættu þessi fyrirtæki eiginlega að fá ný nöfn: Standard & very poor, Faked ratings, og Bad Moodys.

→ 15 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Þeir geri kröfu í 18 milljarða tryggingasjóðinn… og búið!

7.3 2010 | 11:34 | 5 ummæli

Ég efast ekki lengur um það að þorri íslendinga sé á þeirri skoðun að almenningur eigi ekki að bæta við innistæðutryggingasjóð bankanna. Þetta hafi verið mál einkabanka og komi okkur ekki við þrátt fyrir hin umboðslausu loforð stjórnmála- og embættismanna sem voru gefin í óðagotinu fyrir hrunið. Þjóðin hefur sýnt með kosningunni að slík mistök verði ekki liðin aftur.

Ég óttast samt ennþá að Jóhanna og Steingrímur reyni ennþá að semja langt umfram það sem almenningur telur sanngjarnt. Við sættum okkur aldrei við einkavæddan gróða einkabankanna og síðan þjóðnýtt tapið af þeim. Við munum aldrei láta það ganga yfir okkur.

Bretar og Hollendingar geta gert kröfu í 18 milljarða króna sjóð innistæðutrygginga bankanna og meira fá þeir ekki. Punktur. Okkur gildir einu þó að þeir hafi „keypt“ atkvæði sparifjáreigenda í sínum löndum, það er bara þeirra vandamál en ekki okkar. Þessu til viðbótar eiga þeir ennþá eftir að svara fyrir það að hafa sett hryðjuverkalög á friðsömustu þjóð í heimi. Það mál er alveg óútkljáð og það er eiginlega sterkasta vísbendingin um alvarlegan aumingjagang allra ríkisstjórna okkar frá hruninu að geta ekki nýtt það óþverrabragð í samningum við þá. Bretar og Hollendingar hafa hagað sér eins og sálarlausir nýlendukúgarar.

Við eigum líka eftir að leiðrétta óréttlæti hrunsins þar sem það er morgunljóst að þeir sem eyðilögðu allt er ennþá hlíft við að sæta alvöru ábyrgð. Þeir fá jafnvel fyrirtækin, sem þeir settu á hausinn sjálfir, afhent aftur á silfurfati í boði ríkisstjórnar  Jóhönnu og Steingríms sem segjast „ekkert geta gert!“

Í öllum bænum fari Jóhanna og Steingrímur að hætta áður en landið steypist í byltingarástand. Almenningur er orðinn fullsaddur af bullinu og það er ekki gott að setja meirihluta þjóðarinnar í þá stöðu að hafa engu að tapa lengur. Þá er fjandinn laus.

Það hefur ekkert áunnist undir þeirra stjórn fyrir almenning í landinu. Ennþá er dekrað við útrásarvíkinga og ónýta kúlulánaliðið í bönkunum.

Jóhanna, einu sinni enn: Segðu af þér, þú ræður ekki við NEITT! Maður er orðinn skíthræddur um að þú gerir eitthvað meira þjóðhagslega skaðlegt af þér í þeirri brjáluðu þráhyggju þinni við að koma Íslandi undir yfirráð Evrópusambandsins. Við þolum ekki svona undirlægjuhátt og getuleysi mikið lengur.

→ 5 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Jóhanna kýs ekki eigin gerning!

5.3 2010 | 22:32 | 11 ummæli

Það er með hreinum ólíkindum að Jóhanna Sigurðardóttir geti boðið þjóð sinni upp á það að hún kjósi ekki með því sem hún kom með offorsi og frekju í gegnum Alþingi.

Hvað meinar konan með þessu? Getur einhver tekið mark á manneskju sem ekki fylgir eftir eigin gjörðum með léttri atkvæðagreiðslu.

Það er alveg sama hvað kemur út úr þessum kosningum. Þær eru ekki marklausar. Niðurstaðan mun senda skýr skilaboð til umheimsins.

Jóhanna Sigurðardóttir er hinsvegar gersamlega marklaus. Hún á að segja af sér á sunnudaginn. Kona sem ekki virðir eigin gerðir meira en þetta er ekki bara ónýt, hún er líka að nálgast 5% flokkinn!

→ 11 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Hver „sigrar“ á laugardaginn?

4.3 2010 | 23:35 | 18 ummæli

Auðvitað verður „Nei“ niðurstaðan. En hver er þá að sigra?

  • Sjálfstæðisflokkurinn sigrar ekki. Davíð Oddsson er stofnandi þeirrar óheillaþróunar sem hér átti sér stað með einkavinavæðingu hans á ríkisfyrirtækjum og bönkum. Ef hann hefði ekki hleypt þessu rugli í gang hefði aldrei farið svona illa. Íhaldið hefur engan rétt á að baða sig í sigurljóma um helgina. Helstu forkólfar flokksins mega skammast sín fyrir sinn þátt i hruninu.
  • Davíð Oddsson sigrar ekki. Það er alveg sama hversu mjög hann og skósveinn hans reyna að ljúga upp söguna þá voru viðvaranir hans að berast löngu eftir að ÖLLUM öðrum var ljóst að þetta var farið til fjandans.
  • Hannes Hólmsteinn sigrar ekki. Myndskeiðin á netinu með hann blaðrandi tóma vitleysu gera hann að aðhlátursefni næstu áratuga.
  • Framsóknarflokkurinn sigrar ekki. Halldór Ásgrímsson var hinn þægi „besti vinur aðal“ þegar einkavinavæðingin átti sér stað. „Vinir Dóra“ fengu sinn skerf af kökunni og Dóri hélt kvótanum inni í fjölskyldunni sinni.
  • Samfylkingin sigrar ekki. Samningur Jóhönnu verður henni alger niðurlæging á laugardaginn. Fljótlega verður farið að reikna út hversu mörg hundruð milljarða þessi vitleysa hefði kostað ef samningurinn hefði farið framhjá forsetanum.
  • Vinstri grænir sigra ekki. Steingrímur missti dómgreindina af því að hann hélt að hann gæti núið íhaldinu þessu um nasir til eilífðar í pólitísku skyni. Þar klikkaði hann illilega og líklega er hans ferill á enda nú þegar hann deilir niðurlægingunni með Jóhönnu.
  • Sigmundur Davíð sigrar. Ég hef aldrei kosið Framsóknarflokkinn og vildi ekki SDG vegna tengsla hans við auðvaldið. Hann hefur samt staðið sig býsna vel undanfarna mánuði og komið mér á óvart.
  • Forsetinn sigrar. Loksins steig einhver upp úr dellunni og hlýddi rödd skynseminnar og fleygði þessu máli til þjóðarinnar. Forsetinn er að taka frábæran endasprett á forsetatíð sinni og losaði sig undan dekrinu við fjársóðana sem blekktu hann… og raunar þjóðina alla.
  • Ísland sigrar. Það á eftir að koma betur í ljós hvers lags hálfvitagangur var í því óðagoti sem bæði fyrri og seinni ríkisstjórnir gerðust sekar um. Það á líka eftir að koma í ljós að meira og minna allir gerningar frá og með neyðarlögunum voru meira en lítið vanhugsaðir subbugerningar ætlaðir til að vernda hagsmuni fjármagnseigenda á landinu. Það mun taka áratugi að leiðrétta ranglætið.

Ég hvet fólk til að fara á kjörstað og sýna því litla lýðræði sem okkur býðst þá virðingu að kjósa. Setjið krossinn ykkar á NEI. Sendum viðsemjendum okkar skýr skilaboð með metmætingu á kjörstað.

→ 18 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Verða svik á þjóðaratkvæði að hefð?

1.3 2010 | 21:45 | 10 ummæli

Ég tel eins og svo margir aðrir að það sé ljóst að lögin um Icesave ábyrgðina verði felld á laugardaginn. Þess vegna finnst mörgum að það sé tilgangslaust að kjósa og ekki síst vegna þess að sumir telja að betri díll bjóðist nú þegar. Það er rangt. Það er ekkert á borðinu og þetta er bara tilraun til að fá íslendinga til að falla frá þjóðaratkvæði og kljúfa þjóðina aftur í þessu máli.

Það er ástæða til að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fara fram. Í fyrsta lagi til að sýna umheiminum að þetta ruglsamkomulag hafi aldrei verið neinum bjóðandi og eins til að gera fólki ljóst að það megi ekki verða að hefð að slá af þjóðaratkvæðagreiðslu bara af því að niðurstaðan sé fyrirfram ljós.

Látið atkvæðagreiðsluna fara fram. Haldið síðan áfram með samningaumleitanir með skýr skilaboð til viðsemjenda okkar.

Kostnaðurinn við atkvæðagreiðsluna? Hann kemur örugglega til baka í formi betra samkomulags um málið.

→ 10 ummæliFlokkar: Lífstíll · Stjórnmál og samfélag| Facebook .

Bankastarfsmenn verðlaunaðir fyrir óbilgirni

27.2 2010 | 10:02 | 12 ummæli

Nú þarf enginn að efast lengur um að neyðarlögin og þjófnaður bankakerfisins var ekki í þágu þjóðarinnar heldur hinna fáu. Ég er æfareiður þeim fréttum að starfsmenn Landsbankans verði sérstaklega verðlaunaðir ef þeir ná að pína inn allar yfirfærðar skuldir bankans úr gömlu kennitölunni.

Það er vitað að þeir yfirtöku lánin með 50% afslætti en þeir eru ekki til viðræðu um að láta það ganga áfram til almennra skuldara. Það er hreinlega sagt við mann að búið sé að afskrifa svo mikið til stórfyrirtækja að minni fyrirtækin og einstaklingarnir verði að borga allt í topp fyrir þá.

Við þetta verður ekki unað. Það er nóg að þingmenn hafi með neyðarlögunum skipt þjóðinni klárlega upp í skuldara og fjármagnseigendur og eyðilagt allt sem heitið gæti þjóðarsátt um uppgjör við ónýta stjórnmálamenn, embættismenn og fjársóðana sem þeir sköpuðu.

Núna verðum við sem skuldum að krefjast réttlætis. Það hefur ekkert verið tekið til hendinni við að koma lögum yfir glæpamennina og stjórnmálamennirnir sem sköpuðu þá halda ennþá hlífiskildi yfir þeim með því að segjast „því miður ekkert geta gert!“

Ég uni ekki lengur þeirri lygi að verið sé að vinna með einstaklingum og fyrirtækjum í „gegnsæju ferli“. Þetta er svo yfirborðslegt og ótrúlegt kjaftæði að það hálfa væri nóg. Það er talað við fólk eins og það hafi engan skilning á fjármálum. Hversu lengi ætlum við að hlusta á þetta skaplaust?

Landsbankinn er ennþá ríkisbanki. Við vitum hins vegar alls ekki hvort útrásarvíkingarnir eru að eignast hina bankana í gegnum skúffufyrirtæki á aflandseyjum. Það hefur aldrei verið upplýst hverjir séu „kröfuhafarnir“ sem eiga Arion og íslandsbanka. Er ekki kominn tími til að upplýsa það áður en þeir eru látnir hverfa og það hugsanlega til baka í fjársóðadeildina?

Ég er hoppandi brjálaður yfir þessu útspili kúlulánaliðsins sem ætlar að halda áfram að maka krókinn og nú með því að pína þá sem ekki áttu sök á hruninu. Þar sem hér er ríkisbanki á ferðinni geta Jóhanna og Steingrímur ekki svarið af sér þetta ógeð! – Ég krefst þess að þessi bankabónus starfsmanna Landsbankans verði dreginn til baka umsvifalaust! Það er ótækt að þeir nærist enn frekar á sjálftöku sinni eins og ekkert hafi í skorist.

Nýjungar í bankastarfseminni finnast ennþá: Nú á bara að græða á fátæktinni!

→ 12 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .

18 milljarðar fyrir Icesave – Take it or leave it!

26.2 2010 | 20:30 | 13 ummæli

Ég held að fleirum en mér sé að verða ljóst að það verður ekkert meira borgað fyrir Icesave heldur en þeir 18 milljarðar sem voru í innistæðutryggingasjóði bankanna. Við berum einfaldlega ekki meiri ábyrgð og þeir stjórnmála- og embættismenn sem lofuðu einhverju öðru í óðagotsumræðum við erlenda ráðamenn höfðu bara ekki umboð til að lofa meiru. Til þess þurfti umboð Alþingis með fjárveitingavald. Látum ekki telja okkur trú um annað. Tilvitnun til ónýtra laga um þessi efni eru bjánarök sem standast enga heilbrigða skynsemi. Við einkavæðum ekki gróða og þjóðnýtum svo tap, það þýðir ekkert að bjóða upp á þann hálfvitamálflutning.

Það er bara sterkur leikur í stöðunni að þæfa málið þangað til þeir skilja að almenningur á Íslandi ætlar ekki að taka á sig þjóðnýtt skakkaföll einkabanka.

Það er líka að verða deginum ljósara að vilji Steingríms og Jóhönnu til að láta málið hverfa næstu sjö árin í biðstöðu og gleymsku er bara uppgjöf Steingríms og þjónkun Jóhönnu við ESB, sem hún vill sameinast. Ríkisstjórnin hefði stórskaðað framtíðarhagsmuni Íslands ef Icesave ábyrgðin hefði náð fram að ganga.

Það mjálm að tafir á þessum frágangi sé að skaða okkur er röklaust bull. Lántökur settu okkur á hausinn. Hvernig er þá hægt að halda því fram að frekari lántökur forði okkur frá frekara efnahagshruni? Við lögum ekki efnahag þessa lands með enn frekari lántökum á meðan ekki er tekið til í okkar eigin ruslahaug uppsafnaðrar vitleysu í ríkisútgjöldum.

Hins vegar óttast ég að ESB muni reyna að kaupa Ísland til ESB aðildar með því að „gefa eftir“ Icesave og bæta við 300 milljarða Evru lán.

Það verður erfitt fyrir sum okkar að standa af okkur þá hættu sem fullveldi og sjálfstæði Íslands stafar af núna vegna tímabundinna efnahagsörðugleika.

Tökum þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars og sendum Bretum, Hollendingum, AGS og ESB kristaltær skilaboð með stóru NEI-i.

→ 13 ummæliFlokkar: Stjórnmál og samfélag| Facebook .