RSS

Uppgjörið við Davíð

davidoddsson.jpg

Ærlegt uppgjör Þorgerðar Katrínar og brotthvarf Illuga skilar flokknum áleiðis í uppgjörinu við hrunið.

Eitt stærsta málið í þessu er þó eftir: Uppgjörið við Davíð Oddsson. Það þarf að hefjast á því að viðurkenna sem reginmistök þá ákvörðun hans að setjast í stól seðlabankastjóra. Úr skýrslu Rannsóknarnefndarinnar:

Hér hefur verið staðnæmst við atburði í aðdraganda að falli bankanna sem eru til vitnis um það að fyrri stjórnmálaþátttaka formanns bankastjórnar Seðlabankans hafði bein áhrif á það hvernig ráðherrar brugðust við upplýsingum sem formaðurinn flutti fulltrúum ríkisstjórnarinnar um alvarlega stöðu sem komin var upp í málefnum íslensku bankanna. Þegar gætt er að mikilvægi þess að tryggja sjálfstæði Seðlabanka Íslands og áhrifamátt stefnumörkunar bankans um peningamálastjórn og aðra þætti efnahagsmála sem bankinn fer með verður það ekki talin æskileg skipan mála að í starf seðlabankastjóra veljist fyrrverandi stjórnmálamenn líkt og tíðkast hefur um árabil í Seðlabanka Íslands. Það er til þess fallið að vekja upp efasemdir um einurð þeirra við að vinna að lögbundnu markmiði bankans, einkum ef slíkt er í andstöðu við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar eða framkvæmd tiltekinna kosningaloforða. Þá er hætt við að tillögur slíks seðlabankastjóra verði, með réttu eða röngu, settar í ákveðið pólitískt samhengi sem þarf ekki á neinn hátt að endurspegla forsendur slíkra tillagna sem settar eru fram á grundvelli lögbundins hlutverks Seðlabanka Íslands. Síðast en ekki síst er slík aðstaða til þess fallin að rýra trúverðugleika Seðlabankans.

Magnað. Gott sjónarhorn frá vefmyndavél Mílu á Þórólfsfelli. Kíkið líka á flottustu kvikmyndirnir af gosinu hingað til á RÚV.is.

fimmvorduhals.jpg

Nýr snúningur á Icesave söguþráð

john_kayjpg.jpgJohn Kay neglir þjóðaratkvæðagreiðsluna upp á útidyr fautans að Downingstræti 10.

geithner.jpgAð öðrum hrunbókum ólöstuðum er að mörgu leyti mestur fengur í magnaðri bók Styrmis Gunnarssonar sem kom út í dag: Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn. Í henni er nálægð við persónur og kjarna atburðarásarinnar og dýpt í frásögninni sem hefur oft vantað í hinar bækurnar.Styrmir verður gestur í Vikulokaþættinum á laugardaginn.Sjónarhorn Styrmis er einstakt. Nálægðin við Davíð og valdakjarna Sjálfstæðisflokksins er auðvitað afgerandi en Styrmir viðurkennir líka gallana við þá stöðu. En kosturinn við náið talsamband þeirra Davíðs er líka gullvægur. Eins og sagan þar sem Davíð hitti Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, um mitt ár 2008, þegar hvorki gekk né rak í lánsfjáröflun Íslands. Geithner var þá einn aðstoðarbankastjóra bandaríska seðlabankans og þeir hittust á einum af mörgum fundum seðlabankastjóra heimsins um mitt ár 2008. Davíð spurði hvort bandaríski seðlabankinn gæti lánað Íslendingum 2-3 milljarða dollara. Svo segir í bókinni:

Geithner kvaðst munu athuga það. Viðbrögð hans nokkru síðar voru þessi: Davíð. Ykkur vantar ekki 2-3 milljarða dollara. Sú upphæð skiptir engu máli. Ykkar vandi er yfirþyrmandi (e. overwhelming). Þessi upphæð er ekki raunsæ. Davíð sagðist hafa rætt við aðra seðlabanka og gerði sér vonir um að lántaka á nokkrum stöðum mundi duga Íslandi, þegar allt kæmi saman, og lét þess getið að Trichet, bankastjóri seðlabanka Evrópu, hefði nefnt þann möguleika að Ísland leitaði til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðbrögð Geithners voru þessi, þar sem þeir tveir stóðu með kaffibolla í höndunum í fundarhléi: „Aha. He offered you the kiss of death.“ Hann bauð þér koss dauðans.

Styrmir segir síðan að ummælin segi harla afdráttarlausa sögu um viðhorf Geithners til AGS.Kannski það. Nema Geithner hafi bara verið að lýsa orðnum hlut.

Það hefur jafnan mátt treysta því að í náttúrulífsmyndum á forsíðu Morgunblaðsins um helgar ríkti heiðríkjan ein, þessi notalega, ljóðræna náttúrufræði alþýðunnar í anda Jónasar, hafin yfir dægurþras. Í þessu fannst mér blaðið heiðarlegt og allra landsmanna.

Myndin af skötuselnum framan á síðasta laugardagsblaði Moggans er annars eðlis.

skotuselur-davids.jpg

Baldur McQueen útskýrir hér og hér, hvernig „yfirgripsmikið þekkingarleysi“ hafi búið að baki upphrópunum Staksteina í Icesave málinu á fimmtudaginn.

Nöturlegt að sjá hjá fjölmiðli, sem þarf að vera hægt að taka alvarlega a.m.k. í stærri málum, að þar sé núna vaðið svona hiklaust framhjá lykilstaðreyndum.

Í stærra samhengi

Ríkisstjórn Obama tókst (vonandi) að afstýra kreppunni miklu með því að dæla 700 milljörðum dollara til banka í vanda í vetur og bæta svo við 780 milljörðum dala í aðgerðir til að örva efnahagslífið. Þetta eru samtals næstum 1.500 milljarðar dala – alveg gígantískar fjárhæðir. Aðrar eins upphæðir höfðu ekki sést í bandarískri fjármálaumræðu. Bandarísku fjárlögin 2009, til samanburðar, eru rúmlega 3000 milljarðar dala. En um heimskreppu var að tefla og góð ráð dýr.

En þetta er samt ekki neitt miðað við Icesave-reikning Íslendinga ef við færum hann í bandarískt samhengi. Icesave reikningurinn, ef hann hefði fallið á bandaríska skattgreiðendur með samskonar þunga og okkur er ætlað að standa undir, hefði orðið 5.380 milljarðar dala.

Ég efast stórlega um að jafnvel Obama hefði tekist að troða því í gegnum þingið og Brown hefði sjálfsagt verið hent öfugum út úr Downingstræti fyrir að nefna samsvarandi upphæð hjá sér, 655 milljarða GBP.

Þetta er bilun.

Það er alltaf eitthvað á Facebook. Brandari gærkvöldsins á mínu heimili var Pressufrásögn af færslu eiginkonu Ólafs Arnarsonar blaðamanns, Sólveigar Hreiðarsdóttur, um allnáin ættartengsl Ólafs við fyrrum toppa hjá Kaupþingi og Exista, Hreiðar Má Sigurðsson og Erlend Hjaltason.

Sólveig vill meina að alltaf þegar þetta er nefnt sé það til að gera Óla tortryggilegan. Ég ræddi þetta aðeins í Vikulokaþættinum mínum í gær – þar sem Ólafur var meðal gesta – en einmitt og sérstaklega sem dæmi um það hvernig fólk tortryggði allt núorðið. Þannig að: Nema hvað?

Sólveig segir sjálfsagt að halda svona tengslum til haga en finnst samt alltaf felast í því persónulegt skítkast. Ég held nú ekki. En fólk er mismunandi viðkvæmt. Kannski er of mikið af skít til að kasta.

En þetta var ekki það fyndna við Facebook færslu Sólveigar. Það var uppljóstrun hennar um tengsl minnar konu, í föðurættina, við Hreiðar Má Sigurðsson og þar með þessi hingað til leyndu  tengsl mín við Kaupþingsforstjórann sem Sólveig veltir upp hvort ég hefði ekki átt að gera grein fyrir líka. Tengslin eru þessi: Sólveig og Sigurður, faðir Hreiðars Más, eru systkini. Þau eru svo aftur systkinabörn konu minnar.

Það fyndna við þetta – og það sem Sólveig nefnir ekki – er að við hjónin höfðum ekki haft hugmynd um þessi tengsl við þetta föðurfólk hennar fyrr en einhvern tímann í vetur og höfum aldrei umgengist það né þekkt. Sem er leiðinlegt í hina röndina og þá kannski sérstaklega fyrir þessa ættingja konunnar minnar, sem aldrei hafa spáð mikið í tengslin við hana. Fyrr en þá núna.

Skrítnir tímar.

Hin fáránlega leynd

kafka.jpg

Við hljótum að ganga út frá því sem vísu að embætti sérstaks saksóknara sé á kafi að rannsaka málin, og þar með það sem lítur út fyrir að vera borðleggjandi markaðsmisnotkun í þessu Kaupþingsmáli.

En allt fer þetta opinbera uppgjör fram með hraða snigilsins og með svo mikilli leynd og Kafka-hætti að jaðrar við fyrirlitningu gagnvart þjóðinni.

Eins er það til skammar ef það er svo að dráttur á breytingu laga um bankaleynd hafi komið í veg fyrir að rannsóknarnefnd Alþingis fjalli um málin með opinskárri hætti en raun hefur orðið á. Fyrir mitt litla líf næ ég því ekki af hverju er sú rannsókn fer ekki fram með opnari hætti.

Rannsóknarnefndin ætti að lágmarki að vera búinn að birta eitthvert opinbert áfangaplagg í rannsókn sinni til að lofta þannig út versta fnyknum af þeim óþverra sem þjóðin er látin rogast með, mánuð eftir mánuð.

Vikulokin um Icesave

Það má gera ráð fyrir forvitnilegum umræðum um Icesave og sögu þess í Vikulokunum í dag. Gestir þáttarins sem öll hafa komið að málinu og innsta kjarna þess á ýmsum stigum þess með einum eða öðrum hætti.

Þetta eru Huginn Freyr Þorsteinsson, adjunkt við Háskólann á Akureyri, sem var aðstoðarmaður Svavars Gestssonar formanns samninganefndarinnar sem lenti Icesave samningunum við Breta og Hollendinga í byrjun júní og þau Kristrún Heimisdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson sem komu að málinu í tíð fyrri ríkisstjórnar, Kristrún sem aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra og Tryggvi Þór sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra Geirs Haarde.

Eldri færslur »